Næsta síða
1 til 15 af 580
Lögreglan stöðvar ökumann.
"Augun í þér eru ansi rauð, hefurðu verið að drekka?"
"Vá, augun í þér eru glansandi. Varstu að éta kleinuhring?"
Dag einn kemur fjölskylda ein með aldraða móður sína á elliheimili, skilja hana eftir og vona að henni líði sem allra best. Daginn eftir koma hjúkrunarkonur, baða hana, gefa henni staðgóðan og hollan morgunverð og koma henni fyrir í stól með útsýni yfir fallegan garð.
Í fyrstu lítur út fyrir að allt sé í lagi, en eftir nokkra stund byrjar gamla konan að halla til hliðar. Tvær hjúkrunarkonur hlaupa til og hjálpa henni að setjast aftur.
Aftur lítur út fyrir að allt sé í lagi í nokkra stund, en svo gerist það sama aftur. Gamla konan byrjar að halla til annarrar hliðar og hjúkrunarkonurnar koma og rétta hana við. Svona gengur þetta allan morguninn.
Seinna um daginn kemur fjölskyldan í heimsókn til að sjá hvernig sú gamla hafi það. "Jæja mamma, hvernig hefurðu það? Er vel hugsað um þig?"
"Já, þetta er voðalega indælt," svarar hún. "Nema að þeir leyfa mér ekki að reka við."
Bóndi var nýgiftur og var á leiðinni heim í hestvagninum sem var dreginn af nokkrum hestum. Þegar einn af hestunum hrasaði sagði hann: "Einu sinni".
Þegar hann hrasaði aftur sagði hann: "Tvisvar"
Seinna, þegar hesturinn hrasaði í þriðja sinn, sagði hann ekki neitt, heldur sótti haglabyssuna og skaut hestinn.
Nýja konan hans varð brjáluð og gargaði á hann. Bóndinn snéri sér að henni og sagði: "Einu sinni".
Ljóska í krossaprófi 06. apríl 2006
Ljóskur
Jóna Ljóska var í krossaprófi sem samastóð af satt/ósatt spurningum.
Hún fékk sér sæti og starði á prófið. Þá fékk hún snjalla hugmynd. Hún tók upp krónupening og kastaði henni. Ef skjaldarmerkið kom upp, krossaði hún við ósatt, annars satt.
Á innan við hálftíma kláraði hún prófið á meðan samnemendur hennar voru ennþá kófsveittir að finna svörin.
Þá byrjaði hún að kasta krónupeningnum aftur, stroka út og breyta, alveg fram á síðustu mínútu en þá var hún farin að kasta hraðar og hraðar, greinilega mjög stressuð.
Kennarinn kom til hennar og spurði hvort það væri ekki allt í lagi.
"Jú jú," segir hún, "ég kláraði prófið fyrir hálftíma, nú er ég bara að fara yfir svörin og leiðrétta."
Páfagaukurinn 14. mars 2006
Konur
Fín frú var á gangi niðri í bæ þegar hún sér páfagauk úti á stétt fyrir utan gæludýrabúð. Páfagaukurinn horfir á hana og segir: "Hey, fröken! Þú ert hundljót!" Það snarfauk í hana, en hún hélt samt áfram og í vinnuna.
Á leiðinni heim sér hún sama fuglinn, sitjandi á priki fyrir utan búðina og hann segir aftur: "Hey, fröken! Þú ert hundljót!"
Nú er hún brjáluð. Hún stormar inn í búðina og segist ætla í mál við gæludýrabúðina og hún drepi fuglinn ef þetta komi fyrir aftur. Búðareigandinn lofar að gera eitthvað í þessu.
Daginn eftir er páfagaukurinn enn fyrir utan búðina. Hann kallar: "Hey, fröken!"
Hún stoppar og horfir á gaukinn: "Já?"
"Þú veist.."
Palli var á leiðinni á mikilvægan fund niðri í bæ og gekk illa að finna bílastæði.
Palli var nokkuð trúaður og leit til himins og sagði stundarhátt: "Góði guð, hjálpaðu mér núna. Ef þú finnur fyrir mig bílastæði skal ég fara í messu á hverjum sunnudegi það sem eftir er. Og ég skal hætta að drekka."
Skyndilega, eins og fyrir kraftaverk, birtist bílastæði beint fyrir Palla. Hann lítur til himins og segir: "Gleymdu þessu. Fann bílastæði."
"Ferðu alltaf í sturtu eftir kynlíf?"
"Já, það geri ég."
"Þá legg ég til að þú reynir að stunda meira kynlíf."
Fyrirtæki nokkurt var að opna birgðageymslu úti á landi.
Stjórn fyrirtækisins sagði: "Einhver gæti brotist inn að nóttu til og stolið vörum."
Svo næturvörður var ráðinn.
Þá sagði stjórnin: "Hvernig á næturvörðurinn að vinna sína vinnu án tilsagnar?"
Því var búin til starfsmannadeild og tveir starfsmenn ráðnir, einn til að skrifa leiðbeiningar og annar sem framkvæmdi rannsóknir á vaktaskipulagi.
Þá sagði stjórnin: "Hvernig vitum við að næturvörðurinn er að sinna starfinu á skilvirkan hátt?"
Því var búin til gæðadeild og tveir starfsmenn ráðnir, einn til að framkvæma rannsóknir og annar til að skrifa skýrslur.
Þá sagði stjórnin: "Hvernig á allt þetta fólk að fá borgað?"
Því var ráðið í tvær nýjar stöður, yfirbókara og gjaldkera.
Þá sagði stjórnin: "Hver ber ábyrgð á þessu fólki?"
Því voru búnar til þrjár nýjar stöður, deildarstjóri, aðstoðardeildarstjóri og ritari.
Ári síðar er birt ársuppgjör fyrirtækisins og stjórnin segir: "Við erum 10 milljónum yfir fjárhagsáætlun. Við verðum að draga úr kostnaði"
Svo þeir ráku næturvörðinn.
Tvær mellur standa á götuhorni og spjalla:
"Það verður mikið að gera í kvöld," segir önnur, "ég finn alveg typpalyktina í loftinu."
Þá segir hin: "Ég var bara að ropa."
Eddi hitti gellu á djamminu. Þau fóru að spjalla og í lok kvöldsins bauð gellan Edda með sér heim og fljótlega voru þau byrjuð á heitum ástarleikjum í rúminu.
Eftir margar ástríðufullar klukkustundir eru þau bæði uppgefin og fullnægð. Þau liggja hlið við hlið og slappa af þegar gellan byrjar að gæla við typpið á Edda.
"Það getur ekki verið að þú viljir meira," segir Eddi alveg uppgefinn.
"Nei nei," segir gellan. "En öðru hvoru sakna ég gömlu góðu dagana þegar ég var með mitt.."
Ung stúlka átti gamaldags og trúaða foreldra sem trúðu á gömul gildi hjónabandsins. Nokkru fyrir brúðkaup stúlkunnar er mamman að leggja henni lífsreglurnar:
"Aldrei láta eiginmanninn sjá þig alveg nakta. Vertu alltaf í einhverju!"
Tveimur vikum eftir brúðkaupið spyr eiginmaðurinn:
"Elskan? Af hverju sefurðu alltaf með þessa húfu?"
Eddi kemur inn í svefnherbergi með rollu í taumi. Konan hans liggur uppi í rúmi og hann segir: "Þetta er svínið sem ég hef mök við þegar þú ert með hausverk."
Konan hans lítur á hann og segir: "Þetta er ekki svín, þetta er rolla!"
"Ég var að tala við rolluna."
Eftir sextíu ára hjónaband sitja gömul hjón úti á palli og njóta sólarlagsins.
Skyndilega teygir sú gamla sig í áttina að kallinum og slær hann hressilega aftan á hnakkann. Hann dettur úr ruggustólnum, út af pallinum og í blómabeð fyrir framan húsið.
Hann situr smá stund í blómabeðinu, ringlaður en spyr svo: "Hvað í fjandanum átti þetta að þýða?"
"Þetta er af því að þú ert með lítið typpi," svarar sú gamla.
Hann stendur upp og sest aftur í ruggustólinn. Eftir smá stund teygir hann sig yfir og reiðir þeirri gömlu myndarlegt högg, beint aftan á hnakkann. Hún dettur úr ruggustólnum, út af pallinum og beint í blómabeðið hinum megin við pallinn.
Hún situr smá stund í beðinu og spyr svo: "Og fyrir hvað var þetta?"
"Þetta er fyrir að vita að typpi koma ekki bara í einni stærð!"
Kílómetramælirinn 03. maí 2005
Ljóskur
Ljóska nokkur var búin að gera nokkrar tilraunir til að selja bílinn sinn, en gekk erfiðlega, enda bíllinn keyrður 340 þúsund kílómetra. Hún ræddi þetta vandamál við vinkonu sína sem var að vinna með henni.
Hún segir: "Ég gæti vitað um leið til að selja bílinn, en það er ekki beint löglegt."
"Það skiptir engu," segir ljóskan, "mig vantar bara að losna við bílinn."
"Allt í lagi," segir vinkonan, "vinur minn vinnur á bílaverkstæði. Farðu til hans, segðu að ég hafi sent þig og hann setur mælinn í 40 þúsund."
Ljóskan gerir þetta. Næst þegar þær hittast spyr vinkonan: "Jæja, náðirðu að selja bílinn?"
"Nei," segir ljóskan, "afhverju ætti ég að gera það? Hann er bara keyrður 40 þúsund!"
Vitlausi hvíti maðurinn 07. apríl 2005
Karlmenn
Gamall indíána höfðingi sat og reykti pípuna sína þegar tveir alþingismenn koma og ræða við hann.
"Höfðingi Tveir Ernir," segir annar þeirra, "nú ert þú búinn að fylgjast með hvíta manninum í næstum 90 ár. Þú hefur séð stríðin sem hann hefur háð, séð tækni framfarirnar og tjónið sem hann hefur valdið."
Höfðinginn kinkaði kolli.
Alþingismaðurinn heldur áfram: "Með þetta að leiðarljósi, hvar heldurðu að hvíti maðurinn hafi farið út af leið? Hvar liggja mistökin?"
Höfðinginn starði á alþingismennina í rúma mínútu og sagði svo rólega: "Þegar hvíti maðurinn kom til Norðu Ameríku, þá stjórnuðu indíánar því. Engir skattar, engar skuldir, fullt af buffalóum, fullt af bjórum, konurnar unnu alla vinnuna, töfralæknirinn var ókeypis og við eyddum öllum deginum í að veiða fisk og buffalóa - og allri nóttunni í að ríða."
Svo hallaði hann sér aftur og sagði: "Aðeins hvíti maðurinn er svo vitlaus að halda að hann gæti betrumbætt kerfi eins og þetta."