10 ár

Ritað þann:    02. febrúar 2010
Efnisflokkar:  annáll  ég  markmið  

Um helgina var haldin árshátíð fyrirtækisins.

Ég var heiðraður fyrir 10 ára ötult starf í þágu fyrirtækisins.

Já þið lásuð rétt. 10 ár.

Mér líður eins og gaurunum í office space - sem kom einmitt út fyrir rúmum 10 árum.

Það eru næstum 10 ár síðan það var flogið á twin towers.

Það eru 10 ár síðan árið 2000 gekk í garð og tvöþúsund vandinn gerði það að verkum að dagsetningar á nokkrum vefsíðum sýndu 19100

Fyrir 10 árum var ég rúmum 10 kílóum þyngri en ég er í dag - enda nýútskrifaður úr háskóla og búinn að lifa á pizzum, bjór og pasta.

Já; ég útskrifaðist fyrir 10 árum.

Þá átti ég ekkert barn en nú á ég þrjú.

Hvaða undur skyldu næstu 10 færa mér? Helstu markmið:

  • Ég verð kominn með svarta beltið í Taekwondo

  • Ég verð skuldlaus

  • Ég verð annaðhvort framkvæmdastjóri í fyrirtækinu sem ég vinn hjá nú eða í mínu eigin

  • Allavega ein af þeim fjölmörgu hugmyndum sem ég er með í kollinum verður komin á markað

  • Ég á þrjú næstum uppkomin börn

  • Skemmtisigling um Karabíska hafið


2020; ég er að koma!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. febrúar 2010 ( Konan .... ) [H]
En ég ?


 03. febrúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Fyrirtaks árangur og geypilega göfug markmið! Mér líst vel á áætlanirnar um starfsframann. Ég var að rifja upp nýlega master plan sem ég ræddi einhvern tímann við góða menn frá Ölvezinu. Þar sem við erum nokkrir forritarar þaðan snerist planið um hugbúnaðarfyrirtæki hverjar höfuðstöðvar yrðu staddar í Ölvez dreifbýli eða Selvoginum. Ég mæli með þér í framkvæmdastjórastöðuna ;o)


 03. febrúar 2010 ( Ingunn ) [H]
Til hamingju með heiðurinn :)


 04. febrúar 2010 ( - grettir ) [H]
- Það er pláss fyrir konuna í ferðalaginu til 2020 :-)

- Jón - maður verður að fara að setja sér há markmið :-) Mér finnst verst að hafa misst af rembu árshátíðinni þar sem mig grunar að hugmyndin um stórveldi í hugbúnaðargeiranum á Ölvez svæðinu hafi fæðst!

- Takk Ingunn :-) Ég fékk gjafabréf út að borða. Mig grunar að ég verði að hóa í ykkur til að passa örverpin þegar ég nýti mér það ;-)


 10. febrúar 2010 ( Ingunn ) [H]
okkar væri ánægjan ;)