1 til 4 af 4

Tveggja og hálfs

Ritað þann:    30. september 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Ég fór með eldri dóttur mína í tveggja og hálfs árs skoðun í morgun þar sem hún skoraði "himinhátt" eins og hjúkrunarkonan orðaði. 91 stig af 100 mögulegum.

Að teikna virðist ekki vera hennar sterka hlið og dró það hana niður. Hreyfiþroski, fínhreyfingar, málfar og önnur snilligáfa er hennar sterka hlið.

Hún hefur líka stækkað gríðarlega, um heila 11 cm á einu ári og orðið stór miðað við aldur - en hún var alltaf tveimur staðalfrávikum undir kúrfu eins og það er kallað.

Það þarf varla að taka það fram að pabbinn var að rifna úr monti yfir stúlkunni þegar niðurstöður lágu fyrir - þó þær hafi ekki komið neitt á óvart.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. október 2009 ( Ingunn ) [H]
Til hamingju með skvísuna :)


 06. október 2009 ( - grettir ) [H]
Kærar þakkir. Hún var ekkert smá dugleg..


Og þá kom haust

Ritað þann:    29. september 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Í öðrum löndum er haustið lengi að koma sér fyrir með tilheyrandi litadýrð, uppskeru ávaxta og hægt kólnandi veðri.

Á Íslandi kemur eitt gott rok og allt laufið liggur dautt í garðinum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. september 2009 ( Hjalti ) [H]
Nú væri gott að búa bara í ástralíu..!


 30. september 2009 ( - grettir ) [H]
Já segðu..


Hin daglega rútína

Ritað þann:    25. september 2009
Efnisflokkar:  börnin  ég  vinnan  

Hin daglega rútína er hafin á ný en hún hefur verið úr skorðum undanfarið vegna nýja fjölskyldumeðlimsins.

Ég mætti ferskur til vinnu rúmlega níu, búinn að hjóla með "gömlu börnunum" í skóla og leikskóla og hjóla loks til vinnu.

Haustvindhviðan kom í nótt og breytti sumri í haust í einni svipan.

Eftir einn kaffibolla og einn fund er ég tilbúinn fyrir langan vetur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Og þá urðu þau þrjú

Ritað þann:    08. september 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Rétt fyrir kvöldmat í gær eignaðumst við hjón aðra stelpu.
Fyrir þá sem eru að halda tölu yfir börn á heimilinu þá eigum við nú einn stóran strák, eina millistóra stelpu og eina agnarsmáa.

Sú nýjasta hefur fengið það frábæra nafn Þórdís Birna. Við fæðingu vó hún 2440 grömm (10 merkur tæpar) og var heilir 44 cm (en ekki 45 eins og ég laug blákalt í sms-i í hita leiksins í gær).

Við erum orðin fimm manna fjölskylda með þessari ágætu viðbót og stóru systkinin geta ekki beðið eftir því að fá þá stuttu heim.

Myndavélin er enn uppi á spítala, svo myndir verða að bíða, en ég er komin heim með "gömlu" börnin og er að fara að elda og koma þeim í bað.

Nú er maður sko orðinn fullorðinn :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. september 2009 ( Jón Óskar ) [H]
Innilega til hamingju með spánýju stelpuna þína! Já og með nafnið í leiðinni, það er býsna frábært.


 08. september 2009 ( - grettir ) [H]
Kærar þakkir. Já við erum nokkuð ánægð með valið á nafninu.


 09. september 2009 ( Heimir ) [H]
Til lukku !


 09. september 2009 ( Ingigerður Tómasdóttir ) [H]
Til hamingju með litlu dömuna og fallega nafnið.
Skilaður kveðju til Margrétar og barna.

Bestu kveðjur frá okkur úr höfninni :)


 09. september 2009 ( Sigga Hrönn ) [H]
Til hamingju með þá agnarsmáu og fallega nafnið hennar - þú ert ekkert smá fullorðins!!


 09. september 2009 ( - grettir ) [H]
Takk öll :-) Við erum ferlega ánægð með hana. Fáum hana heim á morgun. Það eru tvö systkin heima sem geta ekki beðið eftir henni.


 09. september 2009 ( Írena ) [H]
Og þið eruð svo sannarlega ekki sú einu sem ertu ánægð :D ég er alveg að springa úr monti ,er svo ánægð með hana :)


 15. september 2009 ( Anna Júl ) [H]
Innilega til hamingju með dömuna og nafnið hennar :)


 20. september 2009 ( spritti ) [H]
Til hamingju til hamingju


 25. september 2009 ( - grettir ) [H]
Takk takk öll :-)


 08. október 2009 ( Hófí ) [H]
Innilega til hamingju með litlu dömuna :0)