1 til 23 af 23

Þess vegna er svo gott að búa í Evrópu

Ritað þann:    30. september 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Við erum svo drykkfelld!

Ég held að það sé betra en að ganga um með haglabyssu og lóga náunganum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jæja þá - ég er með

Ritað þann:    29. september 2005
Efnisflokkar:  ég  

Majae og Olav voru búin að klukka mig fyrir löngu, en ég hef ekki haft nennu til að skrá niður fimm atriði um mig. Enda getur hver sem vill haft samband við mig og spurt ef eitthvað hefur ekki komið fram á síðunni.

En svo ég verði nú ekki alger félagsskítur, þá eru hérna fimm atriði um mig sem ég held að sé ágætt að fólk viti um mig:

Bjór er besti drykkur sem ég veit um. Bjór fer vel í mig og ég er ótrúlega rólegur með víni. Ólögleg fíkniefni hef ég aldrei á ævinni prófað og stendur ekki til. Hver þarf svoleiðis þegar hægt er að drekka bjór?

Ég hætti að reykja (í síðasta sinn vonandi) þann 25. Ágúst síðastliðinn. Ég hef fengið mér einn og einn vindil með bjórdrykkju síðan þá, en daglegar reykingar heyra sögunni til.

Ég á stóra fjölskyldu, en ég er elstur af 6 systkinum. Við erum mjög samheldin og góðir vinir. Ég gæti ekki hugsað mér að vera einkabarn.

Ég set alltaf á mig bílbelti og keyri varlega, sérstaklega þegar ég er með fólk í bílnum. Kannski þykir það ekki kúl, en mér finnst ekki kúl að breytast í grænmeti eða breyta fólki sem mér þykir vænt um í grænmeti.

Ég þekki ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki og það sem meira er, ég á ótrúlega mikið af góðum vinum sem ég treysti.


Mig grunar að þessi klukk-leikur sé orðinn þreyttur og gott ef ég er ekki bara síðastur og "er hann" það sem eftir er, svo við klukkum ekki neinn að sinni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. september 2005 ( Halla ) [H]
Vonandi er ég ein af þessum vinum sem þú visar til... eða a.m.k. ein af skemmtilega fólkinu


 29. september 2005 ( - grettir ) [H]
Auðvitað Halla mín. Alger uppáhalds :-)


 29. september 2005 ( Margrét ) [H]
En ég :-D


 29. september 2005 ( - grettir ) [H]
Þú ert ágæt ;-)


 29. september 2005 ( von ölves ) [H]
góður punktur með bjórinn... takk fyrir ágætis bjórdrykkjugleði um síðustu helgi!


 30. september 2005 ( - grettir ) [H]
Mín var ánægjan :-)


 30. september 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Er Gammel Dansk ólöglegt fíkniefni?


 30. september 2005 ( - grettir ) [H]
Gammel Dansk er á mjög gráu svæði, haha..


 30. september 2005 ( von ölves ) [H]
mjöööög gráu!!!


Google

Ritað þann:    29. september 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  

Samkvæmt frétt á mbl.is stefnir Google að því að verða ekki einungis stærsta leitarvél í heimi, heldur geimi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Kex

Ritað þann:    28. september 2005
Efnisflokkar:  vinnan  

Ég er búinn að finna mjög gott kex í eldhúsinu. Hafra eitthvað, súkkulaði stöff. Það er æðislegt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. september 2005 ( Margrét ) [H]
Frábært..svo nammi og kók ;-)


 28. september 2005 ( von ölves ) [H]
fannstu það í þínu eldhúsi?
þú varst nú klukkaður þarna um daginn... ert kannski ekki í klukki?


 29. september 2005 ( - grettir ) [H]
Kók? *yack* :D

Nei, það var nú í vinnu eldhúsinu ;-)

En klukk segirðu.. já ég var búinn að gleyma því. Hendi því kannski inn í dag.


Hamingjusamasta þjóð í heimi

Ritað þann:    28. september 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Öðru hverju heyrir maður að Íslendingar séu hamingjusamasta þjóði í heimi.

Hvernig er það hægt með 63.5 milljarða í yfirdrátt? Versluðu menn Prósak fyrir yfirdráttinn?

Ekki er það veðurblíðan. Það er á hreinu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Langt síðan síðan virkaði ;-)

Ritað þann:    27. september 2005
Efnisflokkar:  fréttir  sjónvarp  vefurinn  

Nú er allt að gerast í þessum síðumálum og ég hef unnið hörðum höndum að því að koma þessu í lag eftir flutningana. Þetta kemur allt með kalda vatninu og þeir sem mig þekkja vita nú að ég er ekki stressaðasti maður á jörðu.

Anywho.. ég nenni ekki að ræða Baugsmálið, enda allir áhorfendur orðnir hundleiðir á því máli og allir sem í hlut eiga komnir með kúk upp á bak. Bendi bara á Baggalút, sem lýsir þessu ansi vel.

Eins og ég nefndi um daginn, þá sá ég íslenska piparsveinaþáttinn á Skjá einum. Þetta verður langdregnasti raunveruleikaþáttur ever. Leiðinlegri en Idol, sem er að byrja um helgina. Hvað er að fólki eiginlega? Hefur það ekki séð fyrri Idol seríur? Veit það ekki hverju er verið að leita eftir? Aftur og aftur mætir þarna fólk sem myndi ekki halda laglínu þó einhver miðaði á það byssu.

Ég kenni Singstar um þetta :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. september 2005 ( von ölves ) [H]
er svo langþreyttur á þessu veruleikasjónvarpskjaftæði... hvenær á að endursýna Derrick?


 28. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ég segi það. Eða Matlock?


Ástarfleyið

Ritað þann:    23. september 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  sjónvarp  

Við erum svo miklar hermikrákur. Eins og flestir vita eru nú að byrja íslenskir piparsveinaþættir og Kapteinn Flygenring ætlar að sigla með eitthvað lið á Ástarfleyinu á haf út.
Ég spurði bróðir minn í gríni hvort hann væri ekki búinn að skrá sig:

Nei, ég er ekki hvorukyn..
Ha?
Já, það er verið að auglýsa eftir átta einstaklingum af hvorukyni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. september 2005 ( albin ) [H]
ómetanlegt hahaha


 25. september 2005 ( Fjóla ) [H]
What!! Ætlar Fly að skella sér á Ástarfleygið, je minn vonum þá að hann lendi ekki á bekkjarsystur eins og hann gerði þegar hann tók þátt í djúpu lauginni.


 26. september 2005 ( - grettir ) [H]
Hahaha.. nei þetta er sko Valdimar Flygenring. Ekki Óli Fly.

En Óli yrði vissulega flottur á Ástarfleyinu, því verður ekki neitað.


 26. september 2005 ( Fjóla ) [H]
Damn, var bara orðin spennt að sjá hann og slúðraði því í maju að hann væri að taka þátt.....


Allt í kleinu

Ritað þann:    21. september 2005
Efnisflokkar:  nördadót  vefurinn  

Það fór allt í tóma steik hérna á síðunni í síðustu viku og mér sýnist þetta ekkert vera á leiðinni í lag.

Því brá ég á það ráð að læra php í snatri, setja upp MySQL á heimilistölvunni og er að myndast við að breyta síðunni allri svo ég geti bara sjálfum mér um kennt ef eitthvað fer í kleinu. Apache serverinn var uppsettur fyrir myndirnar, svo þetta var ekkert gríðarmikið maus.

Útlitin munu koma til með að týnast inn eitt af öðru, á meðan verðið þið bara að sætta ykkur við þetta hvíta/bláa rólega útlit.

Mér er búið að vera svo mál að segja frá ýmsu fyndnu/skemmtilegu/asnalegu/fíflalegu/klaufalegu undanfarið að það er ekki fyndið. Ég held ég sé háður þessari síðu.

Well, best að halda áfram að vinna í uppfærslunni. Ég á alveg eftir að forrita administrator viðmótið, svo ég verð kannski ekki alveg fyrstur með fréttirnar - í bili.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. september 2005 ( - grettir ) [H]
Og endilega látið mig vita ef eitthvað virkar ekki ;-)


 21. september 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Ég er að koma hér inn í fyrsta skiptið í langan tíma. Netsían í vinnunni er nefnilega búin að ákveða að síðan þín er of dónaleg fyrir starfsfókið! :-)
En annars gleymdi ég alltaf að segja ykkur að við Beggi sendum flís með íslenska skjaldarmerkinu til Selaron og hann er búinn að senda okkur tölvupóst með kærum þökkum og segir flísina mjög fallega. Þetta þýðir náttúrulega að nú verður maður að fara aftur til Rio og sjá flísina! ;-)


 21. september 2005 ( - grettir ) [H]
Já, ég er með í aðra ferð, engin spurning!

Og þessar vefsíur eru nú meira prumpið. Ég var að vinna fyrir kúnna úti í bæ og komst að þessu fyrir tilviljun. Anywho. Það virðist vera sem gamla Margmiðlunarslóðin hafi verið blokkuð, en ekki sjálfur grettir.net


 21. september 2005 ( Margrét ) [H]
Sæll Finnur...... Strákurinn lýgur engu ;-D....Brjálað fjör hér.


 22. september 2005 ( von ölves ) [H]
gleður mig óstjórnlega að sjá að þú gefst ekki upp fyrir yfirruglurunum... ég var farinn að halda að maður þyrfti að bjóða þér í bjór til að fá fréttir!


 22. september 2022 ( von ölves ) [H]
5. september 2021? bíddu, svaf ég yfir mig?


 22. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ahaha.. jæja, allavega eitt sem ég þarf að laga. Meira prumpið.


 22. september 2005 ( - grettir ) [H]
Hvernig er þetta?


 22. september 2005 ( - grettir ) [H]
Lítur mun betur út :D


 22. september 2005 ( Margrét ) [H]
Hæ sæti :-D


 22. september 2005 ( albin ) [H]
Velkomin í loftið aftur.


 23. september 2005 ( - grettir ) [H]
Takk takk!


Nörda grín - helgin

Ritað þann:    12. september 2005
Efnisflokkar:  djamm  vinnan  

Mér finnst þetta svoooo fyndið.


Ég fékk ekki nógu góðar fréttir í vinnunni í morgun. Það var ekki mjög fyndið. Lítur út fyrir að utanlandsferðir haustsins séu í uppnámi, en ég er búinn að hlakka til í allt sumar að komast til Ameríku að versla mér iPod.


Helgin var með besta móti. Drukkið og étið í góðra vina og systkina hópi á laugardaginn. Það var bara hið besta mál. Note to self: fá uppskriftina að þessu snilldarpasta sem var á borðum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Svo er nú skylda að koma við í GAP....


 12. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ég hef gert tilraun til að versla gallabuxur í henni Ameríku, án árangurs. Þeir eru með svo stóra rassa þessir kanar, það passaði ekkert á strákinn :-)


 13. september 2005 ( Ásgeir ) [H]
já, ég hef nú séð að þú ert með mjög nettan afturenda... þó svo að hann geti látið ófriðlega.


 13. september 2005 ( - grettir ) [H]
Hahaha.. já ég er nú með sætan rass sko :-)


 13. september 2005 ( Hjalti ) [H]
Ég hikaði nú ekki við að spurja um uppskriftina... Og hikaði heldur ekki við að elda mér eitt stykki máltíð strax eftir helgi :D


 13. september 2005 ( - grettir ) [H]
Og bauðstu mér ekki í mat? Hehe


 13. september 2005 ( von ölves ) [H]
fáðér burger og þá færðu kanarass sem passar í buxurnar...


 13. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ég þarf að skoða það..


Sipp heimsmet

Ritað þann:    10. september 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Meira svindlið að heimsmetið í sippi skuli ekki vera miðað við höfðatölu. Nú eiga kínverjar metið með einhver skitin 2400 kvikindi. Það er eins og einn Íslendingur myndi sippa, með annarri og ónýtu sippubandi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. september 2005 ( Margrét... ) [H]
:-D


 12. september 2005 ( Al ) [H]
Heildarfjöldi íslendinga er 300 þúsund og heildarfjöldi kínverja er 1,3 miljarðar. Ergo ættum við einungis að þurfa að láta 0,55 íslending sippa. Samkvæmt höfðatölu þyrfti einungis einn íslending og sippuband til að slá metið....


 12. september 2005 ( - grettir ) [H]
Einn, sem sippar með annarri? :-)


10.5

Ritað þann:    09. september 2005
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Ég gleymdi alveg að tala um hina frábæru mynd, 10.5, sem var framhaldsmynd mánaðarins um daginn og Bo Halldórs mælti eindregið með.

Þvílíka ruslið, maður minn. Óraunverulegri mynd hef ég ekki séð á ævinni. Þegar skjálftasprungan elti járnbrautarlestina, í beygjum og hvaðeina, þegar liðið notaði kjarnorkusprengjur til að "bræða saman" misgengið til að stöðva skjálftana (Bush hefur greitt framleiðendum myndarinnar vel fyrir jákvæða ímynd kjarnorkusprengja) og þegar hjólreiðakappinn hjólaði undan Geimnálinni í Seattle.

Fyrir utan þessi augljósu atriði, hvar voru steliþjófarnir, byssumennirnir sem skjóta á björgunarfólk eða nauðgararnir sem nýta sér eymd fátæka fólksins sem komst ekki úr borginni?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. september 2005 ( von ölves ) [H]
ég missti alveg af þessari mynd... tókstu hana upp?


 09. september 2005 ( Ingvar J. ) [H]
Sá fyrri hlutann, járnbrautaatriðið vakti einmitt athygli mína. Tók ígrundaða ákvörðun um að horfa alls ekki á seinni hlutann.


 09. september 2005 ( - grettir ) [H]
Nei, ég tók hana ekki upp. Maður hefði kannski átt að gera það, ég skemmti mér konunglega yfir þessari vitleysu.


Ég

Ritað þann:    08. september 2005
Efnisflokkar:  ég  

Ég tók svona Persónuleika próf að beiðni félaga míns og fyrrverandi verkefnisstjóra sem er í MIT núna að læra og var að spá í hvernig verkefnishópurinn sem hann stýrði var samsettur.

Ég er ESFJ týpa, sem stendur fyrir Extraverted, Sensing, Feeling, Judging.

Störf sem henda mér eru hjúkka, bókasafnsvörður og tryggingasölumaður, svo einhver dæmi séu nefnd. Veit ekki hvað ég er að paufa við forritun alla daga, þegar ég gæti verið að nudda eða kenna ensku, verið "professional volunteer" (hvernig er maður atvinnumaður í sjálfboðavinnu?) eða verið aðstoðarmaður tannlæknis.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. september 2005 ( von ölves ) [H]
(trygginga)sölumaður sem hjúkrar bókum... Herbert Hollywood Guðmundsson?


 09. september 2005 ( - grettir ) [H]
Haha.. góður


 09. september 2005 ( Ásgeir ) [H]
Skemmtileg þessi persónuleikapróf. Ég er semsé ENTJ, sem er víst alveg ágætt:
"ENTJs are natural born leaders."


Lífshlaup kvenna

Ritað þann:    08. september 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Þennan fékk ég í email-i áðan:

What is the difference between girls/woman
aged: 8, 18, 28, 38, 48, 58. 68, and 78 ?


At 8 -- You take her to bed and tell her a story.



At 18 -- You tell her a story and take her to bed.



At 28 -- You don't need to tell her a story to take her to bed.



At 38 -- She tells you a story and takes you to bed.



At 48 -- She tells you a story to avoid going to bed.



At 58 -- You stay in bed to avoid her story.



At 68 -- If you take her to bed, that'll be a story!



At 78 -- What story??? What bed??? Who are you???

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. september 2005 ( von ölves ) [H]
við sækjum greinilega í besta flokkinn...


 08. september 2005 ( - grettir ) [H]
Greinilega, haha.


 08. september 2005 ( - grettir ) [H]
Og annar góður:

On Friendship between women:

A woman didn''t come home one night. The next day she told her husband that she had slept over at a friend''s house.

The man called his wife''s 10 best friends.

None of them knew about it.

On Friendship between men:

A man didn''t come home one night. The next day he told his wife that he had slept over at a friend''s house.

The woman called her husband''s 10 best friends.

Eight of them confirmed that yes, he had slept over. And two claimed that he was still there!


 08. september 2005 ( von ölves ) [H]
hehe!


Þar kom að því!

Ritað þann:    08. september 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Ég er búinn að vera með áskriftar lottómiða síðan ég veit ekki hvenær, en loksins loksins loksins vann ég!

Ég er að spá í að hætta snemma í dag og fagna.

Látum okkur sjá, hvað fær maður fyrir tvö þúsund kall?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. september 2005 ( von ölves ) [H]
smá bjór!


 08. september 2005 ( Ingvar J. ) [H]
Verst að tveir fyrir 2000 tilboðið í Duggunni er ekki lengur í gangi...


 08. september 2005 ( - grettir ) [H]
Já uss, það hefði komið sér vel maður.


Blýanta nag

Ritað þann:    07. september 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Fínt að naga blýanta í Seðlabankanum á tækniöld. Þá er jafnvel enn minna að gera en áður.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Ágæt næring þar.......


 08. september 2005 ( - grettir ) [H]
Kannski nagar Davíð bara lyklaborð í staðinn :-)


Skyrmál

Ritað þann:    06. september 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  

Hvernig er hægt að þingfesta skyrmál? Og hvar fær maður svoleiðis? Ikea?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Já sennilega er gott að vanda valið... Ég þyrfti kannski að reyna það.. Þá hættir kannski þetta single dæmi...

Ekki sátt við að maður hefði lent út á hafi.. he he ég reyndi líka að grafa til Kína..tókst það bara aldrei..undarlegt.

Góða skemmtun í kvöld...



 06. september 2005 ( Ramage ) [H]
Veit að þú hefur ekkert betra að gera í vinnuni, so here goes:
http://www.travian.com/


 07. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ónei! Nú verð ég rekinn..


Hereford

Ritað þann:    06. september 2005
Efnisflokkar:  djamm  vinnan  

Vinnufélagar mínir eru búnir að smala í myndarlegan hóp á Hereford steikhús fyrir kvöldið, en það er tilboð þar í gegnum World for 2. Það verður æðislegt.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. september 2005 ( von ölves ) [H]
farið varlega í þetta... ýmislegt sem ekki "inni í pakkanum"...


 06. september 2005 ( - grettir ) [H]
I see.. takk fyrir það.


 06. september 2005 ( Ósk ) [H]
Ég gef ekki mikið fyrir Hereford nema með svona tilboðum. Finnst ágætis matur þar en stemmningin ömurleg. Er eins og á Hardrock eða eitthvað


 06. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ég gef einkunn á morgun.
Annars eru þessi tveir fyrir einn tilboð auðvitað fordómar gagnvart single fólki. Eina rétta í stöðunni væri að sniðganga þessa staði :-)


 06. september 2005 ( von ölves ) [H]
já, rétt að taka þessu sem móðgun bara...


 07. september 2005 ( Halla ) [H]
Eða borga fyrir sjálfan sig og bjóða vinkonu sinni frítt að éta, það er annar sjens


 07. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ef ég ætti svona kort, þá hefði það verið alveg sjálfsagt :-)


Ég ætla að grafa til Kína

Ritað þann:    06. september 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Þegar ég var lítill byrjaði ég stundum að moka holu og átti að sjálfsögðu von á því að hitta Kínverja.

Nú getur maður kannað hvar maður endar með aðstoð Google map og niðurstaðan er ekki hressandi. Maður endar úti á miðju hafi sunnan við Ástralíu.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nakti kokkurinn

Ritað þann:    05. september 2005
Efnisflokkar:  matur  sjónvarp  

Hvaða skepnuskapur er það að hafa þennan Jamie Oliver á dagskrá þegar það eina sem maður nennti að elda var skyr?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. september 2005 ( albin ) [H]
Fantabragð


 06. september 2005 ( - grettir ) [H]
Algjörlega. Ég kenni Bo Hall um þetta.


Mánudags flensa

Ritað þann:    05. september 2005
Efnisflokkar:  djamm  vinnan  

Það er einhver mánudags flensa í mannskapnum sem vinnur með mér. Ég fór á stöðufund áðan í verkefni sem ég er að vinna í og við mættum tvö.

Engin flensa í mér. Stálsleginn alveg. Reyndar með pínku móral eftir föstudagskvöldið, en það er ekkert sem á eftir að endast.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Auðvitað hraustur...

Ekki nema vona að ég sé hér í tíma og ótíma... Þetta heilbrigðisstarfsfólk er vonlaust...... Vaktavinnufólk....

;-)


 05. september 2005 ( - grettir ) [H]
Já fussum svei. Það er nú ekki gott fyrir heilsuna. Maður á alltaf að vera búinn að breiða yfir haus klukkan 10 á kvöldin (right).


 05. september 2005 ( Margrét... ) [H]
He he ..

Við erum alveg fílhraust enn allavega...Leikum okkur að því að vinna þegar aðrir sofa og blóta svo hressilega kl 05 þegar maður fer að úldna aðeins..... Vont en það venst..



 05. september 2005 ( majae ) [H]
mórall. yfir hverju. ha. djö. maður getur ekkert njónsað lengur.


 05. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ekkert þannig mórall :-)


 05. september 2005 ( Margrét... ) [H]
En það er amk að ákveðnu leyti jákvætt að hafa móral....


 05. september 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, já kannski. En það má auðveldlega komast hjá slíku með því að vanda valið.


Drasl klósett efni

Ritað þann:    02. september 2005
Efnisflokkar:  neytendur  nöldur  

Hvaða asna datt í hug að selja áfyllingar á plasthaldfangið sem maður setur í klósettskálina fyrir vellyktandi?

Eins og maður hafi eitthvað áhuga á því að koma við plastdraslið og troða nýju dóti á það? Þetta er gott dæmi um umhverfisvernd sem gengur of langt. Nú ætla ég til dæmis að henda áfyllingunni sem ég keypti óvart og versla mér nýja með plasthaldfangi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. september 2005 ( Fannar ) [H]
Þessi sami asni selur einnota gúmmíhanska til að skipta um hylkin. Heildarendurvinnsla = 0. Kostnaður eflaust meiri heldur en að kaupa bara haldfangið.


 02. september 2005 ( - grettir ) [H]
Einmitt! Algjörir asnar.


 03. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Karlmenn....

Hvernig er það..engin comment nema á dagvinnutíma... ?


 04. september 2005 ( - grettir ) [H]
Haha, já svona er þetta. Maður nennir nú ekki að hanga á netinu um helgar.


 05. september 2005 ( von ölves ) [H]
örugglega sama grallaraspóanum sem héllt að það myndi selja lyktarjúnit að láta klósett tala... maður spyr nú hvaða efni séu sett í það júnit, ef fólk sér talandi klósett?


 05. september 2005 ( - grettir ) [H]
Það eru einhver annarleg efni :D


 05. september 2005 ( Halla ) [H]
Sama bjánanum og datt í hug að búa til sápu sem maður getur þvegið sér um hendurnar með eftir að hafa skipt um áfyllingargaurinn?


 05. september 2005 ( - grettir ) [H]
Hey, ekki gera þetta of einfalt! ;-)


Herlög

Ritað þann:    02. september 2005
Efnisflokkar:  fréttir  skandall  

Merkilegir apakettir þessir bandaríkjamenn. Svo glorhungraðir eftirlifendur fellibylsins éti nú örugglega ekki neitt úr matvöruverslununum sem marra hálfar í kafi, þá eru sendir hermenn á staðinn með haglabyssur til að hafa hemil í lýðnum.

Ef ég ætti matvöruverslun þarna á bólakafi, ætli mér væri ekki slétt sama þó einhverjir ætu draslið sem eftir væri í búðinni. Ef það yrði til að bjarga einhverjum frá sulti - gott mál.
Ætli það séu ekki frekar tryggingafélögin í eigu ríkra vina Búss sem sjá fram á að finna heilt brauð eða heilan kálhaus sem draga mætti frá tryggingabótum búðarinnar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. september 2005 ( Inga ) [H]
og ekki nóg með það þá voru komnar myndir á netið (myndi linka ef ég myndi hvar!) þar sem blökkumenn voru kallaðir illum nöfnum fyrir að ná sér í mat, en hvítir voru hins vegar að sýna sjálfsbjargarvitleitni (sitthvor myndin fyrir hvorn litarhátt)!


 02. september 2005 ( - grettir ) [H]
Jebb, þessi hér:
http://www.dummocrats.com/links/view_comments.php?thread_id=34439

Skrýtið hvað það liggur mikið á að koma á lögum og reglu. Brauð og drasl er greinilega verðmætara en þetta lið sem hafði ekki efni á að forða sér úr bænum.


Búhúhú

Ritað þann:    01. september 2005
Efnisflokkar:  ég  

Sumarið búið. Mig langar í skóla. Nenni ekki þessu vinnubulli endalaust.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. september 2005 ( Halla ) [H]
Kondí alþjóðamambójambóið. Ég á einmitt enga vini þar svo það væri allra hagur!


 01. september 2005 ( - grettir ) [H]
Ég get komið og setið með þér í tímum. Eru ekki sætar stelpur í alþjóðamambójambó?


 01. september 2005 ( Margrét... ) [H]
Bíddu við.....

Vorum við ekki búin að ákveða að þú yrðir tilraunadýr hjá okkur Hjúkkunemum ?

Mjög fræðandi tímar .....

Ágætar stelpur þar !!! ;-)


 01. september 2005 ( Halla ) [H]
Það eru alla vega fleiri stelpur en strákar.
Sjáumst á mánudaginn kl. 8! Ekki spennó?


 01. september 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta stefnir bara í fullt nám! Excellent.

8 er reyndar fullsnemmt og almennt ekki minn tími fyrir vakn. En sjáum til.


 02. september 2005 ( Gunnar Sig. ) [H]
Vadd is ze alþjóðamambójambó, plíz?


 02. september 2005 ( majae ) [H]
komdu á bifröst. ;)


 02. september 2005 ( - grettir ) [H]
Bifröst segirðu.. ætlarðu þá að koma og hjálpa mér að flytja? :-)

Alþjóðamambójambó? Alþjóðastjórnmál? Dunno.. eitthvað stuð samt greinilega.