1 til 13 af 13

Ónýta draslið

Ritað þann:    30. september 2004
Efnisflokkar:  neytendur  nördadót  

Keypti mér einnota mp3 spi... *hóst*... digital audio spilara um daginn. Kostaði einhvern þrjú þúsund kall og hentar mér ágætlega í gymmið.

Hann entist eitt skipti.

Ég gerðist nefnilega áskrifandi að Audible.com um daginn og stóð til að nota tímann til að hlusta á einhverjar skemmtilegar bækur á meðan.
Lítur út fyrir að maður verði að fara út í dýrari fjárfestingar til að fullnægja bókaorminum í mér. Eða lesa bara skræðurnar á kvöldin og henda imbanum út í garð.

Annars mæli ég með þessu Audible dæmi. Endilega, ef þið ætlið að kaupa, sendið mér póst og leyfið mér að senda ykkur invite. Þá fær strákurinn inneign sjáiði :-)

...
- grettir :: það er ekki allt elektrónískt skemmtiefni bannað og hættulegt

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. september 2004 ( Jón arnar ) [H]
heyrðu, sendu mér invite vinur.. ég á sko æpod og ætla að smella mér á audible


 30. september 2004 ( - grettir ) [H]
Það er komið...


 02. október 2004 ( Jón Arnar ) [H]
Þetta er snilld, er að hlusta á Lies and lieing liars, og kappræður Bush og Kerrys. Besta er að bókin heldur áfram á þeim stað þar sem maður hætti síðast..


 03. október 2004 ( - grettir ) [H]
Já alger snilld. Vel lesið líka.


 04. október 2004 ( ramage ) [H]
Var bara að spá hvort að þú hafir
verið að ríða hrossi í Þorlákshöfn
á föstudagskvöldið.


 04. október 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei. Þá sjaldan ég legg leið mína þarna austur, þá ét ég lambasteik hjá múttu. Það eru nú einu dýraníðarnar sem ég stunda.


Bílnum lagt og rykið dustað af svölustu græjunni

Ritað þann:    27. september 2004
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Einhver í vinnunni hefur annað hvort gefist upp á bíldruslunni sinni eða tekið það næst besta ef maður á ekki blæjubíl.

Nema að lyftan í húsinu hafi bilað og einhver hafi séð aumur á feitabollunum og boðist til að koma þeim hratt og örugglega á sinn stað, hvað veit ég?

Jæja, hvað á að gera í hádeginu?

Ætli maður fari ekki út að lyfta. Lyfta feitabollum.

...
- grettir :: hefurðu séð nýja pimpmobile-inn minn?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. september 2004 ( Erlingur ) [H]
http://www.drechsler.no/andreting/film/staplerfahrer-klaus.avi
Skoðaðu þetta áður en þú ferð að keyra.



 27. september 2004 ( - grettir ) [H]
haha, þetta er nú meiri snilldin. Það er greinilega aldrei of varlega farið.


 28. september 2004 ( Lilja ) [H]
Bwahahahahaha!

Ég skal bjóða mig fram ef þig langar að fara að taka upp á því að lyfta feitabollum með svona svalri græju ;o)


 28. september 2004 ( - grettir ) [H]
Jibbí.. :D


 28. september 2004 ( von ölves ) [H]
ertu ekki með próf á svona græju kall minn?... eða á kannski að kalla á sæmund?


 29. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hahah, jújú.. ætli það sé ekki runnið út samt.


Píku rassgat í helvíti

Ritað þann:    24. september 2004
Efnisflokkar:  peningar  

Var að fá Vísa reikninginn minn.

Time to execute myself. Eða kortið.

...
- grettir :: hvar eru skærin?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. september 2004 ( Lilja ) [H]
Eru þau ekki bara í prjónakörfunni þinni?


 24. september 2004 ( - grettir ) [H]
Auðvitað! Við hliðina á hekludótinu mínu :D


 24. september 2004 ( Lilja ) [H]
Sko... bara að spyrja mig ;o)


 25. september 2004 ( albin ) [H]
Kreditkort eru uppfinning frá helvíti. Eitt sinn byrjaður, og heimildin í botni eftir það....


 26. september 2004 ( spritti ) [H]
Djöfulsins....vísa/euro dreifir drepsóttum og gubbupestum út frá sér.


 27. september 2004 ( - grettir ) [H]
Reyndar er eitt stykki Ríó ferð á þessu tímabili, dálítið mér að kenna :-| En þetta er samt drasl :-)


 27. september 2004 ( Birna ) [H]
Löngu búin með visa ferilssöguna, kom engu vitrari út frá því... it´s most deffinetly from the devil!


 27. september 2004 ( - grettir ) [H]
Býst við að minni sé lokið hér með. Nema að ég nái einhvern veginn að hrista slatta af fjólubláum fram úr erminni.


When sex goes .. Zzzz

Ritað þann:    23. september 2004
Efnisflokkar:  klám  sjónvarp  

Maður er búinn að heyra ýmsar fyndnar sögur úr þessu þáttum, When sex goes wrong, sem er á Stöð 2 á miðvikudögum, stelpuztöð.
Þess vegna reyndi ég allt hvað ég gat til að reyna að halda mér vakandi yfir þessum ömurlega Footballer kellingaþætti. Það tókst, en af því að ég er með vott af svefnsýki tókst mér hins vegar ekki að vaka yfir öllum kynlífsþættinum.

Blanda af hálfum þættinum og sú staðreynd að ég steinsofnaði fékk mig til að pæla aðeins í þessum skyndikynna pakka.

Ef annar aðilinn (til dæmis ég) sofnar í miðjum klíðum sökum ölvunar/leiðinda/þreytu/svefnsýki á maður þá ekki rétt á því að sækja um að fá að gera aftur?
Það hljóta að vera einhverjar reglur til um þetta.

Annars væri ótrúlega hressandi að fá að heyra einhverjar vandræðalegar sögur frá ykkur! Megið þess vegna skrifa undir dulnefni ef þetta er eitthvað leyndó.

...
- grettir :: ég er efni í heilan episode í þessum málum

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. september 2004 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
nei það eru engar reglur, þetta er ekki shotgun you know ;)


 23. september 2004 ( - grettir ) [H]
Djö.. maður.. ég var kominn að ljósritunarvélinni og ætlaði að fara að senda út umsóknir um endurtöku.


 23. september 2004 ( spritti ) [H]
hahaha vinur minn kom í heimsókn í gær og þá var hann að enda við að pota í einhverja stelpu og mamma hennar kom að þeim í miðri helreiðini


 23. september 2004 ( spritti ) [H]
annars sá ég ekki þennan þátt þarna


 23. september 2004 ( - grettir ) [H]
Vinur minn, vinur minn... hversu oft hefur maður ekki notað þessa afsökun :D


 23. september 2004 ( Dulnefni ) [H]
Var einhvern tíman í Hljómskálagarðinum
með vinkonu minna að leika mér í risastóru tjaldi sem að sett hafði verið upp,(man ekki hvaða sérstaka dag)
eftir ball. Og þegar við vorum búinn
og vorum að girða okkur, tökum við eftir manni sem var að runka sér fyrir
utan, og hafði semsagt verið að glápa á okkur Skemmtilegt ekki satt.
Ehh nei þetta gerðist fyrir "vin" minn.


 23. september 2004 ( - grettir ) [H]
Jæks... þeir eru víða perrarnir :-)


 23. september 2004 ( karlkyn ) [H]
Hu, hum. Fékk eitt sinn putta upp í óæðri endann við oral! Ég var nú ekki alveg undir það búinn.



 24. september 2004 ( - grettir ) [H]
Aaa hahahaha... hvenær er maður undir það búinn! Hentirðu henni ekki út?


 24. september 2004 ( Hannes Hólmsteinn ) [H]
Ja bedpost , handjárn, vín, glæfrakvenndi= ekki góð blanda sérstaklega þegar kindin tekur með sér lyklana morguninn eftir


 24. september 2004 ( karlkyn ) [H]
Nei, nei. En það var nú eiginlega allur ljómi farinn af því. Merkilegt hvað mannslíkaminn er fljótur að bregðast við svona óæskilegri framkomu gagnvart sér.


 29. september 2004 ( Lykla-Pétur ) [H]
Hannes, ég man eftir þessu atviki með handjárnin. Gott ef ég fékk ekki neyðarsímtal frá hrútnum daginn eftir ;o)


Bíllaus?

Ritað þann:    22. september 2004
Efnisflokkar:  fréttir  líðandi stund  

Af hverju fréttir maður ekki að það sé bíllaus dag fyrr en maður er mættur, á bílnum að sjálfsögðu, upp í vinnu?

Ekki það að mér hefði dottið í hug að taka 1,5 tíma strætóferð hérna upp í rassgat.

Verður maður ekki líka að tjá sig um þetta verkfall kennara. Kostirnir sem ég sé í fljótu bragði er að ég losna við krakkaskrílinn sem er með hávaða og læti fyrir utan gluggann hjá mér í frímínútum. Ókosturinn er að sjálfsögðu að við sitjum uppi með heimskari krakka sem kunna ekki að skrifa íslensku.

Ég hef nú ætíð verið þeirrar skoðunar að kennarar eigi að vera hálaunastétt, enda er menntun ekki metin til fjár. Maður missir samt einhvern veginn samúðina með þeim blessuðum þegar þeir byrja á því að básúna hvað þeir eigi mikið í verkfallsjóði og geti þess vegna verið heillengi í verkfalli. Og þegar þeir líta á það sem verkfallsbrot að fyrirtæki og stofnanir taka að sér að passa þessa grislinga meðan foreldrarnir eru í vinnunni.
Það hlýtur að teljast niðurlægjandi fyrir kennara að verkfallsverðir líti á þá sem barnapíur.

...
- grettir :: ég gæti passað, en ekki kennt

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. september 2004 ( Ægir pípari ) [H]
LÖG á þessa ansans kennara og hananú.
Ef það er hægt að setja lög á sjómenn trekk í trekk vegna hagsældar þjóðar vorrar, þá sé eg ekki af hverju það eru ekki sett lög á kennara því æska landsins jú er það ekki þjóðar auður.



 23. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe.. já þú segir það. Endar ekki með því núna?


 23. september 2004 ( Anna Júl ) [H]
Jæja þið segið það. Ég held að maður verði að vera innan stéttarinnar til þess að gera sér grein fyrir um hvað málið snýst nákvæmlega. Ekki er ég t.d. að fá í laun það sem þeir eru alltaf að tala um og í sambandi við sjóðinn þá er þetta ekkert til þess að lifa af.


 24. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ég geri mér grein fyrir því að þetta er skítalaun og ættu að vera mikið hærri, enda var ég nú aðallega að gera grín að verkfallsvörslunni.
Ef að fyrirtæki mega ekki passa fyrir starfsfólkið sitt, þá missa þeir nú fljótt stuðninginn.

Það sem mér finnst hinsvegar arfaslakt og móðgun við fólkið í landinu og er auðvitað báðum aðilum að kenna - það er að ekki sé hægt að funda og semja nema einu sinni í viku! Hvernig væri nú að hittast daglega og ræða málin eins og fullorðið fólk.


Honey, I'm home

Ritað þann:    18. september 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  peningar  skandall  

Verst að Jukkur (held að blómið á heimilinu heiti það) geta ekki fagnað manni gríðarlega þegar maður mætir heim eftir vinnuferðir. Satt best að segja, þá var hún hálf tussuleg og hefði líklega ekki fagnað mér þó hún gæti, enda ekki fengið vott né þurrt meðan ég var í burtu.

Well, Frankfurt er alger snilld, ódýr bjór og mikið mannlíf. Verst þótti mér að vera tekinn þurrt í sparigatið varðandi þetta hótel, en eins og ég sagði hér á undan, þá var einhver bílavika núna og þá þykir leðurhommunum (hóteleigendunum) bara sjálfsagt að smyrja 150% ofan á hótelverðið og því ekki ein evra eftir af dagpeningunum og Visa kortið alveg að eipa á heimildinni. Stefnir í met reikning næstu mánaðarmót, því ofan á þessa ferð + óhófleg eyðsla þennan mánuð, þá er eitt stykki Ríó ferð á þessu tímabili.
Stefnir allt í að maður verði að hringja með skottið á milli lappana í vinkonu mína í bankanum og biðja um miskunn.

Tilraun var gerð til að sigrast á lofthræðslunni með því að skunda með lyftu upp á hæsta turninn þarna í miðborginni. Ég svitna í lófunum bara við að skrifa þetta, enda þori ég varla að standa upp á stól, hvað þá meir. O, jæja. Útsýnið var magnað svo maður taki nú ekki dýpra í árinni en það.

Nú er ég búinn að sofa myndarlega, taka duglega á því í ræktinni og nú er stefnan sett á Húsafell þar sem mín er vænst í afmælis/pottapartí veislu.

...
- grettir :: best að hella uppá sig

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. september 2004 ( Lilja ) [H]
Velkominn heim :o)


 19. september 2004 ( von ölves ) [H]
þín var saknað á nonnabita klukkan 5 aðfaranótt sunnudagsins þar sem við kalli vorum hressir og sungum Lionel Richie lög... Hello!!


 20. september 2004 ( Karl Ferdinand ) [H]
Hello! Já, þetta var ógleymanleg stund. Lionel er frábær tónlistarmaður og ég veit að Grettir er mikill Richie maður.
Í diskasafni hans má m.a. sjá "Is It Me You´re Looking for? - The Very Best of Lionel" og "Richie Rich - Penny Lover". Þannig er nú það.


 20. september 2004 ( - grettir ) [H]
Djöfull að missa af því maður. Þetta hefur verið eintóm gleði :-)


Að hleypa brúnum

Ritað þann:    14. september 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  fyndið  

Það er einhver ráðstefna hérna í Frankfurt þessa viku sem olli því að mér var troðið inn í eitthvað pínkulítið hótelherbergi sem býður ekki beint upp á nein víðavangshlaup.
Hér má til dæmis sjá aðstöðuna sem ég hef til brúnahleypinga. Það er ekki mikið pláss fyrir hnén þegar maður er sestur á þetta postulín.

Hins vegar verð ég að lýsa yfir ánægju minni með það hugvit sem legið hefur að baki þegar innanhússarkitektunum datt í hug að skrúfa eitt stykki öskubakka úr bimmastáli við hliðina á vaskinum. Það er auðvitað helber nauðsyn að geta strompað eins og maður fái greitt fyrir það í Evrum á meðan maður skolar á sér krumlurnar.


...
- grettir :: magnaðir þessir Þjóðverjar

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. september 2004 ( ÞýskaraÖnd ) [H]
Kannski var það við svona aðstæður sem "Smoke on the water" var samið ? :)



 15. september 2004 ( Lilja ) [H]
Afar hentugt indeed


 15. september 2004 ( Lilja ) [H]
En alltaf að líta á björtu hliðarnar; ef nágrannarnir eru með hávaða, geturðu fundið skjól á postulíninu.

Þú heldur nefnilega fyrir eyrun með hjánum meðan þú teflir við páfann.

Ægilega sneddí ;-)


 15. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, já líklega...

Já, það er nú hentugt :-) Prófa það í kvöld.


 16. september 2004 ( von ölves ) [H]
ertu ennþá að prófa postulínið í þýskum eyrnalokandi stellingum með bimmastál í andlitinu?


 16. september 2004 ( - grettir ) [H]
Nei, skrambinn.. bara mikið að gera á stóru heimili. Legg alltof snemma af stað heim á morgun, svo það verður að klára með rakettureyk.


 16. september 2004 ( von ölves ) [H]
drífa sig að klára og sturta svo niður!


 17. september 2004 ( Maggi Sæla ) [H]
Ekert WC er WC nema að þú er búinn að baula hátt í gústafsbergið


 18. september 2004 ( gisill ) [H]
Thad get ég tekid undir. Èg søng heilar og hálfar aríur í Midtúninu:)


 18. september 2004 ( Ingvar J. ) [H]
Aumingjas klósettið á miðtúninu er með alvarlegar heyrnarskemmdir eftir mánudagsgrínin.


 19. september 2004 ( rakel ) [H]
hehe


Nú er mér ekki skemmt

Ritað þann:    10. september 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  íþróttir  skandall  

Skv. mbl.is veðrinu, þá stendur til að það rofi til í næstu viku. Og hvert fer rigningin?

Nú auðvitað beina leið til Frankfurt.

Annar galli við þessa vinnuferð er að nú fer gym-átakið í tómt bull, en ég er búinn að vinna hörðum höndum að því að losa mig við þessar tvær kippur af bjór sem fluttust inn í sumar. Bara hálf eftir, þetta er allt að koma.

...
- grettir :: rigningin er ekkert góð

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. september 2004 ( Hemmi ) [H]
Sælla minninga, þá var það í Frankfurt sem ég og Óttar bróðir þinn lentum, til að sjá F1 í nürburgring. Hann gat séð gagnaugað á sér, vegna bjúgur í andliti, og ég var frá í tvær vikur vegna bruna. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur brettir minn. Eftir þessa ferð verður sólin óvinur þinn.


 11. september 2004 ( - grettir ) [H]
Jæja, ég skil þá regnstakkinn eftir og pakka sólarvörninni.


 12. september 2004 ( Lilja ) [H]
Neineinei... það er um að gera að pakka regnstakknum og skilja sólarvörnina eftir. Þá er týpískt að það verði8 skraufþurrt og æpandi sól.

Svoleiðis er það alltaf hjá mér.


 12. september 2004 ( gisill ) [H]
Rigningin er komin hingad, koma reyndar bara smá skúrir, thví thad á víst ad vinda all svakalega úr skýjunum yfir Frankfúlt og Studgardi. Leigirdu thér bara ekki BMW og thá verdur thetta alveg eins og heima í rigningunni, nema ad ókvæmisordin sem eftir fylgja, einni vænni drulluppolls gusu verda á thýsku, "scheisse-tasche" eda "scheisskerl"...


 13. september 2004 ( - grettir ) [H]
haha... engin spurning. Sletta dáldið úr drullupollum yfir Þýskarana.


 13. september 2004 ( von ölves ) [H]
an die deutche geskwetten ja!


 13. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ég er svo sleipur í þýskunni að það er ekki fyndið. Grundvallaratriði í hverju tungumáli er auðvitað að kunna að panta bjór:
Ein Pils bitte.
Og biðja um pennann sinn:
Kann ich mein Kugelschreiber haben?
Og náttúrulega eitt alveg basic:
Wollen sie mit mir Geschlafen?

Iss, ekkert mál!


 13. september 2004 ( von ölves ) [H]
þarf maður að kunna eitthvað annað í þýsku?... eina sem ingis kenndi manni var ævisaga moniku mai og dino botta :(


 14. september 2004 ( - grettir ) [H]
Iss, þeir vita nú ekkert í sinn haus þarna hjá Cnn. Bongó blíða hérna.


 14. september 2004 ( von ölves ) [H]
bongóblíða!!... er þá ekki tilvalið að fá sér bjór?


 14. september 2004 ( - grettir ) [H]
Akkúrat! Bjór á dag kemur skapinu í lag.


Vinnudagurinn ónýtur

Ritað þann:    10. september 2004
Efnisflokkar:  netið  nördadót  

Þið ráðið hvort þið smellið hér og eyðileggið ykkar líka.

Þessi leikur er meira ávanabindandi en Bubble Shooterinn sem kostaði mig eitt fall í skólanum hérna um árið. Spurning hvort ég verði rekinn í þetta skiptið.

...
- grettir :: ég er svoooo lélegur í þessum leik

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. september 2004 ( Ægir ) [H]
thanks a bunch (NOT ARRRRRRGGGGG!!!!!!)


 10. september 2004 ( Ægir ) [H]
hvaddu buin að fá margar stjörnur?


 10. september 2004 ( - grettir ) [H]
Fjórar. Ég er búinn að mastera þetta sjáðu :-)


 12. september 2004 ( Lilja ) [H]
Hahaha! Ég á þennan leik í Deluxe útgáfu þar sem levelin eru 20. Metið mitt er rétt rúmlega milljón ;o)

Löngu orðin hooked :Þ


Eins og í Harrý og Heimi forðum...

Ritað þann:    09. september 2004
Efnisflokkar:  fréttir  nöldur  

... sem rannsökuðu dularfullt morðmál þar sem gestir veitingastaðar dóu úr dönsku, þá er ég við það að drepast úr sænsku. Meira hvað endalaust er hægt að flytja fréttir af þessu kóngafólki. Ef það viðrar ekki vel á þetta pakk, þá rignir á það.

...
- grettir :: úú.. ég er svo merkilegur.. kóngur og allt

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. september 2004 ( von ölves ) [H]
iss þú ert bara skotinn í sænsku prinsessunni...


 09. september 2004 ( - grettir ) [H]
Of augljóst? Hehe.


 10. september 2004 ( SvíjaÖnd ) [H]
Það er spurning hvort að það kemur vídeó með henni að taka einhver múv með ofvirka álfinum í ríkabæ ?


 10. september 2004 ( - grettir ) [H]
Já, alveg rétt. Hún kíkti á íþróttaálfinn. Ég hefði nú getað fíflast eitthvað fyrir hana ef ég hefði verið beðinn um það :D


 19. september 2004 ( rakel ) [H]
hehe


Sumir dagar

Ritað þann:    08. september 2004
Efnisflokkar:  líðandi stund  vinnan  

Suma daga færi nú betur að maður væri bara heima.
Framan af morgninum lítur allt þolanlega út, fyrir utan ömurlega rigningu. Svo kemur maður í vinnuna og í fyrsta pissustoppi sér maður í speglinum að þessi fína skyrsletta er framan á bolnum. Eins gott að ég átti ekki að mæta á fund með einhverju fínu fólki í bítið.

Sem betur fer horfi ég fram á bjartari tíð með blóm í haga, því ég er að leiðinni til Þýskalands á Sunnudaginn og ef ég man rétt þá var ekkert nema gott um það segja. Ekkert skyr í morgunmat allavega.

...
- grettir :: skilst að það sé sól þar meira að segja

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. september 2004 ( Ægir pípari ) [H]
Hvað ert þú að pirra þig á veðrinu þú þarna innivinnandi tölvuséní,
afsakið var bara að leggja gólfhita úti í dag, frekar blautt


 08. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ég þarf að hlaupa út í bíl, úr bílnum og í gymmið, aftur út í bíl, úr bílnum og í vinnuna og svo framvegis og framvegis.
Þetta er mun skemmtilegra í góðu veðri sjáðu :-)


 09. september 2004 ( von ölves ) [H]
er ekkert ósáttur við rigninguna... ef þessir helv. bílabullur keyrðu ekki af fullum krafti í alla polla og slettu vatni á gangadi fólk :(


 09. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ég er einn af þeim, muhuhahahaa...


Miriam

Ritað þann:    07. september 2004
Efnisflokkar:  klám  sjónvarp  

"Raunveruleikaþættir" náðu nýjum lægðum í gær, en þá byrjaði enn ein deiting serían og nú er piparjónkan með skaufa. Sem keppendurnir að sjálfsögðu vita ekki af.
Seinna um kvöldið var síðan styttri og "djarfari" útgáfa sem ég hafði ekki nokkurn áhuga á að sjá eftir að hafa heyrt hann/hana segja frá leyndarmálinu.

Þetta er bara áminning til mín áður en ég held til Ríó að passa mig á þessum latínó gellum. Maður veit aldrei og að gefinni ævilangri heppni minni í kvennamálum, þá er þetta týpískt eitthvað sem gæti komið fyrir mig.
Og ég myndi að sjálfsögðu aldrei segja frá því.

...
- grettir :: íslenskt, já takk

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. september 2004 ( Birna ) [H]
Hahahahaha OMG.. það yrði alveg EKTA grettis saga ... þegar þú hözzlaðir flottu latínógelluna... með skaufann híhíhíhí


 07. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hvað myndi maður gera? Oh crap hvað það myndi sjást undir iljarnar á mér á harðahlaupum í burtu.


 07. september 2004 ( Ægir ) [H]
hvað hét gæinn sem fann Dr.Livingstone? I presume.


 08. september 2004 ( gisill ) [H]
Gæinn hét Henry Stanley bladamadur frá Herald Tribune og fór med thessi frómu ord eftir ad vera búinn ad leita af Dr. Livingstone í heilt ár...


 08. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ertu að læra undir próf Ægir?


 08. september 2004 ( von ölves ) [H]
ég þekki nú mann sem lent hefur í svona "latínógellu"... hann var ekkert allt of sáttur!.. en sagði mér samt frá þessu á 10 bjór eða svo


 08. september 2004 ( - grettir ) [H]
Þetta færi með mér í gröfina :-|

Annars var verið að benda mér á að baugfingur er iðulega lengri en vísifingur á karlmönnum. Mikil vísindi liggja þar að baki.


 08. september 2004 ( Ægir ) [H]
ekkert próf, þetta er bara búið að pirra mig allt of lengi, svona eins og að muna ekki eftir e-h lagi eða mynd sko. Og vissi að gáfumenninn hjá þér vissu þetta.
Takk takk


 09. september 2004 ( lorýa ) [H]
"Annars var verið að benda mér á að baugfingur er iðulega lengri en vísifingur á karlmönnum. Mikil vísindi liggja þar að baki."
vitleysa! ég skoðaði hendurnar á mér, og ég er sko ekki með neinn skaufa...



 09. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hmm.. ég myndi nú kanna það betur :D


What a f***

Ritað þann:    02. september 2004
Efnisflokkar:  nöldur  

Hvaða heilbrigt fólk tekur upp síma klukkan hálf sjö á morgnanna og hringir í skakkt númer?
Hér eftir verður gemsinn á silent á nóttunni og snúran tekin úr sambandi á heimilisgræjunni.

Ehh, afsakið...

...
- grettir :: nei, ég held nú síður! þú ættir ekki að hafa síma.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. september 2004 ( von ölves ) [H]
ef fólk þarf að hringja á ósiðlegum tímum þá á það að drullast til að hringja í rétt númer... hef líka lent í þessu og það var bara um fimmleitið :(


 02. september 2004 ( Ægir ) [H]
hva eru ekki allir komnir á fætur á þessum tíma?


 02. september 2004 ( - grettir ) [H]
Ég tussaði mér bara í gymmið. Það var ágætt svo sem. Kannski þetta hafi verið einhver sem finnst ég hafa bætt á mig?


 04. september 2004 ( SímaÖnd ) [H]
Ég lenti nú ítrekað í þessu 2 daga í röð að það var hringt eldsnemma og spurt um einhvern gaur nema í seinna skiptið þá vissi ég númerið hjá gaurnum þannig að það var styttra rangt símtal :)


 06. september 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, góður. Um að gera að vinna heimavinnuna þegar maður fer að fá ítrekuð röng símtöl.