1 til 18 af 18

Hjálpardekkin af - talkennsla

Ritað þann:    30. ágúst 2007
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Við skrúfuðum hjálpardekkin af reiðhjóli drengsins í byrjun vikunnar. Stór dagur í lífi hans. Hann er með nokkra marbletti, en engin stórslys hafa enn hlotist af þessu.

Dóttirin skríður nú á methraða um allt hús og er farin að sýna tilburði til að standa upp.
Við erum líka alltaf að reyna að fá hana til að segja mamma og pabbi en með góðum vilja má skilja bablið í henni sem pabba og mamma.

Þegar við sitjum með henni og segjum "Segðu pabbi.. segðu mamma.." kemur stundum bróðir hennar, horfir beint framan í hana og segir hægt og skýrt: "Segðu Stóri bróðir!"

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ónýtar útvarpsstöðvar

Ritað þann:    29. ágúst 2007
Efnisflokkar:  nöldur  tónlist  

Það er ekki hlustandi á útvarp nú orðið.
Ég klaufaðist til að stilla á X-ið sem í gegnum tíðina hefur verið skásti kosturinn í stöðunni og er þá ekki Valtýr Björn með alveg mökkleiðinlegan þátt um íþróttir. ÍÞRÓTTIR!

For fucks sake - er ekki nóg af íþróttaþvaðri á öllum stöðvum allstaðar þó ekki sé spes þáttur á X-inu með Valtý Birni.

X-ið er farið úr minninu á mínu útvarpi. Nú er suð á öllum sex stöðvum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
i-pod!!!!
er svarið.


 30. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Ójá. Ég er ekki frá því að ipoddinn sé besta og mest notaða tæki sem ég hef keypt í seinni tíð.
Ég keypti svona i-trip þegar ég var í USA í fyrrasumar og get því hlustað á hann í bílnum. Bara snilld.


Haglabyssa

Ritað þann:    29. ágúst 2007
Efnisflokkar:  fréttir  

Það er eins gott að fara ekki með fjarstýrða bílinn sinn í Hafnarfjörðinn. Á forsíðu fréttablaðsins í dag er þessi frétt:


Lögreglumál "Maður veit ekkert hvað hefði gerst ef ég hefði ekki slökkt á bílnum eins og hann sagði," segir Gunnar Þór Gunnarsson, íbúi að Hverfisgötu í Hafnarfirði.

Gunnar segir að nágranni sinn hafi komið út vopnaður haglabyssu og hótað að skjóta fjarstýrðan bensínbíl Gunnars ef hann myndi ekki slökkva á honum hið snarasta.

Lögreglan kom á staðinn og handtók manninn. Þrjú skotvopn voru gerð upptæk ásamt skotfærum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
hefur maðurinn bara ekki orðið eitthvað pirraður á hávaðanum í þessum fjarstýrða bensínbíl?
ekki að ég sé að réttlæta að fólki sé hótað með vopnum en mér finnst nú á þessu eins og það vanti einhverjar upplýsingar í fréttina...


 29. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Fyrr má nú vera.. hann fer kannski með haglarann út í hvert skipti sem einhver ræsir sláttuvél?

En það er stærri grein á bls. 10 í fréttablaðinu í dag.


Bakþankar fréttablaðsins

Ritað þann:    27. ágúst 2007
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  

Ég les oftast bakþanka fréttablaðsins og oftar en ekki eru þeir skemmtilegir og vekja mann til umhugsunar um fólk og málefni líðandi stundar.

Langskemmtilegastur finnst mér Dr. Gunni og hlæ oftar en ekki upphátt að pistlunum hans. Flestir aðrir pennar eru ágætir. Ég nenni þó sjaldnast að lesa Billjónsdagbók Jóns Arnar þar sem hann setur sig á afar kjánalegan hátt inn í hugarheim billjónamærings.

Um daginn kvartaði Davíð Þór undan gaspri á Internetinu - fannst að sér vegið þegar netverjar voru að kvarta undan íslenskri þýðingu Simpsons fjölskyldunnar.
Að vissu leyti skil ég Davíð, enda fátt leiðinlegra en gaspur á interneti, en ég gúgglaði að gamni þetta dæmi sem hann vitnar í og fann heimasíðu 11 ára drengs sem fannst "discrace" að Simspons væri íslenskaður.

Ég man óljóst eftir því hvernig er að vera 11 ára, en ég hefði ekki verið til í að sjá aftan á Fréttablaðinu tilvitnun í lélega ensku sem ég hefði óvart látið út úr mér á Internetinu.

Svo stórt verkefni sem talsetning Simspons hlýtur að bjóða upp á að aðdáendur verði ekki allir yfir sig hrifnir og ef menn þola ekki gagnrýni 11 ára krakka, þá ættu menn ekki að taka svona verkefni að sér. Ég hef reyndar ekki heyrt íslensku útgáfuna, en hún ku vera ágæt, svo ég held að aðstandendur þurfi ekki að skammast sín og hljóta að geta horft framhjá einhverju net röfli.

Talandi um netröfl. Rakst á þetta fyrir tilviljun þegar ég las mbl.is án Firefox og neyddist til að sjá bloggana við fréttirnar:
Bloggarar eru hálfvitar

Athugasemdirnar staðfesta svo algerlega það sem maðurinn er að segja.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Menningarnótt á Miklatúni

Ritað þann:    21. ágúst 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  líðandi stund  tónlist  

Okkur gafst ekki tími til að þræða miðbæinn í leit að atburðum að þessu sinni, en létum okkur nægja að fara á tónleikana á Miklatúni.

Þar sáum við:
Mínus
Magna
Megas
Mannakorn

og einhverja fleiri sem ekki byrja á M.
Pétur Ben var líklega bestur af þeim. Hann verður líklega að skipta í listamannanafnið Mr. Ben til að falla í hópinn.

Við komumst ekki á tónleikanna á föstudagskvöldið frekar en í afmæli von ölves (mér þykir það ákaflega leitt Óli.. við tökum bjór við tækifæri), en ég sá einhverjar glefsur í sjónvarpinu og sýndist þetta vera ágætlega heppnað mætingalega séð.
Mugison var snilld, en það var of mikið af sveitum sem eru að reyna rísa upp frá dauðum. Líkið bara neitar að rísa með.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
ég á einmitt kalda stellu í ískápnum...


 21. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
+s


 21. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Mmm.. Stella. Ég þarf líka að sjá nýja kotið!


Leikföng fyrir stóra stráka

Ritað þann:    20. ágúst 2007
Efnisflokkar:  harðsperrur  íþróttir  nördadót  

Ég fékk að prófa crossara í gær - eða drullumallara eins og svona mótorhjól eru gjarnan kölluð.

Ég er ennþá með æðaslátt í höndunum eftir að reyna að halda mér á baki. Ég fór þrjá hringi og datt í þeim seinasta þegar ég var aðeins farinn að þora að gefa tryllitækinu inn. Ég var svo þreyttur að ég ætlaði ekki að koma hjólinu í gang aftur.

En gaman var það.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Tímakort vikunnar

Ritað þann:    20. ágúst 2007
Efnisflokkar:  vinnan  

Á hverjum mánudegi fæ ég reminder frá tímakortakerfinu um að senda tímakortið.

Á hverjum mánudegi opna ég tómt kort og þarf að fylla inn alla tíma síðustu viku. Það er í sjálfu sér ekkert mál, því flest er unnið samkvæmt beiðnum eða eru fundir sem eru skráðir í Outlook.
Þetta er bara handavinna.

Ég var alveg að verða búinn með kortið mitt áðan og var að skrá 1,75 tíma á eitthvað djobb á föstudaginn, nema ég ýtti óvart á F5 í stað 5 (sem er beint fyrir ofan).

Allir tímar vikunnar hurfu, því ég átti eftir að ýta á "Vista".

Svona eiga mánudagar að vera! Pain in the ass..

Jæja, best að byrja upp á nýtt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Forræðishyggja í borginni

Ritað þann:    17. ágúst 2007
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  pólitík  

Naumast að borgarstjórinn okkar er hress. Nú vill hann Átvr burt úr miðbænum. Maður gæti haldið að hann ætti veitingastað í götunni sem verður af viðskiptum, en svo gott er það nú ekki. Þetta er líklega fyrsta skrefið í þurrkun miðbæjarins.
Fyrst ríkisokurbúlluna burt og svo verða vínveitingaleyfi staðanna í kring ekki endurnýjuð.

Rokk að kjósa yfir sig svona forræðishyggju flokk sem segist vera hægri en er líklega kominn svo langt til hægri að hann er orðinn öfga vinstri.

Ég legg til að fólk skrifi þetta hjá sér svo það verði ekki sömu mistök talin upp úr kjörkössunum næst.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. ágúst 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Ótrúlegir kommúnistar þessir sjallar stundum...


 18. ágúst 2007 ( Forræðishyggjuálfurinn ) [H]
Held nú að hann sé að bregðast við rónunum í miðbænum með þessu. Og það þarf að gera eitthvað í því máli en þetta er eins og að kenna bensínstöð um hraðakstur viðskiptavinanna.


 19. ágúst 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Rónarnir hafa verið þarna síðan áður en ÁTVR opnaði verslun þarna og þeir voru þarna áður en bjórkælirinn var settur í samband. Ég leyfi mér að efast um að þeir færi sig þótt að Villi sé búinn að láta taka bjórkælinn úr sambandi og þeir verða þarna áfram þótt versluninni verði lokað.


 19. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Þeir setjast kannski að í Kringlunni.. er ekki næsta útibú okur og einokunarinnar þar?


Nýr Smashing diskur

Ritað þann:    17. ágúst 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Ég fékk nýjustu afurð The Smashing Pumpkins í hendurnar áðan. Zeitgeist heitir gripurinn.
Billy Corgan hefur engu gleymt og við fyrstu hlustun virkar diskurinn tussugóður.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. ágúst 2007 ( Hjalti ) [H]
Hann er betri en tussu góður, Er bara ekki með nógu stóran orðaforða til að lýsa hversu splended hann er!


 21. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
tek undir þetta... massafínt efni hjá þeim Billy og Jimmy.


Ákeyrsla

Ritað þann:    17. ágúst 2007
Efnisflokkar:  skandall  

Einhver slefandi aumingi með hor keyrði spegilinn af konubílnum um kvöldmatarleytið í gær og stakk af.

Þegar ég finn samstæðu (brotinn spegil hægra megin) þá hlýtur eigandinn verra af. Ef þetta var helvítis strætó druslan sem keyrir alltaf á öðru hundraðinu hérna framhjá, þá verður Villi borgarstjóri að opna stóra ávísanaheftið.

Nei, í alvöru. Hvað er að svona liði sem ber enga virðingu fyrir annarra manna hlutum? Ég er frekar reiður yfir þessum aumingjaskap.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. ágúst 2007 ( ægir pípari ) [H]
ég ætlaði að fara að gera grín af þér fyrir að hafa keypt þér í götu með enginn bílastæði og breidd á við sæmilegan göngustíg, en ég skil bara svo vel hvað þetta er pirrandi og reyni því aðeins að hughreista þig með því að þetta var þó ekki bimminn.


 21. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Ég kannski stofna íbúa samtök og læt loka götunni með hliði. Einn verður þá að kunna leyniorðið til að komast inn :D

Annars er ég loksins búinn að gefa konunni hjól. Þá getum við bráðum selt bílaflotann.


 21. ágúst 2007 ( Margrét og börnin ) [H]
Hey hey, þetta var nýji bíllinn... sem var lagt á besta stæði örstutt frá miðbænum en langt frá sveitinni :-D


Holulæri

Ritað þann:    15. ágúst 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  matur  

Við erum búin að grafa djúpa holu í enda garðsins og notum hana til að grilla holulæri.

Það fer þannig fram að við fyllum botn holunar með kolum, setjum læri í álpappír ofan á kolin og setjum torfu ofan á. Þetta er æði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
þessi holulæri eru snilld.. prufaðu að krydda með birkilaufum og blóðbergi... með þessu á ekkert að drekka nema íslenskan mjöð og éta helst með berum höndum og vasahníf...


Skriðdýr á heimilinu

Ritað þann:    13. ágúst 2007
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Dóttir mín byrjaði að skríða um helgina. Nú skríður hún um allt hús, eltandi bolta og fiktandi í öllu sem er í gólfhæð.

Ef hún leggur af stað í kvöld nær hún líklega tónleikunum á Miklatúni á laugardaginn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Þjófavörn

Ritað þann:    13. ágúst 2007
Efnisflokkar:  nöldur  

Það er eitthvað verkstæði hérna við hliðina á vinnunni minni sem annaðhvort setur þjófavarnir í bíla eða er alltaf að prófa þjófavörnina á bíl eins starfsmannsins.

Hvort heldur sem er, þá pípir bílkvikindið á korters fresti. Ef vörnin er biluð þá er eigandinn eflaust ekki vinsælastur í hverfinu og einn morguninn á hann eftir að koma að bílnum sínum í buffi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. ágúst 2007 ( von ölves ) [H]
heyrðu hann bjó líklega hérna í mínu hverfi helv. maðurinn... kerfið hans vakti alla á hverjum morgni.. gríðarlega vinsæll...


 14. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Djöfulsins plebbar..


Maraþon

Ritað þann:    10. ágúst 2007
Efnisflokkar:  bjór  íþróttir  líðandi stund  

Ég sá að skráning er hafin í Latabæjar maraþonið. Ætli ég láti það ekki duga í ár. Ég hljóp 10 km í fyrra og var í 1200sta sæti eða eitthvað álíka.

Ég tek ekki sénsinn á að ég verði lélegri en í fyrra, en það eru góðar líkur á því enda kjötát, bjórþamb og hreyfingarleysi verið með meira móti eftir að ég smíðaði pallinn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. ágúst 2007 ( Margrét og börnin ) [H]
Nú er súkkulaðikakan tilbúin svo að þú getir fengið þér hressingu þegar þú ert búinn í ræktinni :-D

Elskum þig :*


Tannálfur

Ritað þann:    09. ágúst 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Konan mín er einum endajaxli fátækari en þegar hún vaknaði í morgun.

Vonandi verður það til þess að framtönnin í dóttur minni kemur niður í dag. Alheimurinn verður að halda jafnvægi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. ágúst 2007 ( Hermann ) [H]
Ég vil þá að gefnu tilefni leggja það til að ofurgranna fólkið komi sér upp í kjörþyngd, svo við hin getum farið að lifa eðlilegu lífi : )


 10. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
haha, já svona er þetta.. við erum að bera bumbu einhvers annars.


Eiturlyf - hvernig komast þau á leiðarenda(þarm?)

Ritað þann:    07. ágúst 2007
Efnisflokkar:  fréttir  líðandi stund  

Fyrir nokkrum árum voru ansi hressandi auglýsingar aftan á strætisvögnum sem sýndu smokk með eiturlyfjum og fyrir ofan myndina var textinn úr hvaða rassi?

Þessi frétt á rúv um kókaín smyglið fyrir rúmri viku minnti mig á þessar auglýsingar og finnst skrýtið að svoleiðis áróðri hafi ekki verið haldið áfram - svo ég vitni í fréttina:

en samkvæmt heimildamönnum var um helmingur efnisins í endaþarmi og nærbuxum hans, hinn helmingurinn í stúlkunni.

Jömmí..

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

The Simpsons Movie

Ritað þann:    07. ágúst 2007
Efnisflokkar:  kvikmyndir  

Ég gerði vel við mig og mína um helgina og fór á The Simpsons Movie í lúxus sal um helgina.

Hún er æðisleg þessi mynd.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Þjóðhátíðarveðrið

Ritað þann:    03. ágúst 2007
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  

Þegar ég leit út um gluggann í morgun sá ég að þjóðhátíðarveðrið lét ekki á sér standa frekar en fyrri ár. Heppinn er ég að þurfa ekki að láta okra á mér hundblautum á þeirri eyjunni eina ferðina enn.

Ég læt bara okra á mér hundblautum á stóra skerinu í staðinn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. ágúst 2007 ( Srósin ) [H]
Já, það er einhvern veginn ekkert svakalega heillandi við að fara í Herjólf í dag... einhverjir 20 m/s Gubbigubb. En eflaust margir sem láta það ekki á sig fá, hefði nú ekki stoppað mann fyrir nokkru síðan :)


 05. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Svo breyttist þetta bara í bongóblíðu!
Þjóðhátíðarnefnd ætti að borga mér fyrir að halda mig heima.


 06. ágúst 2007 ( Hermann ) [H]
Já, veðrið var reyndar með betra móti þetta árið. Fer í flokk með þjóðhátið 2001. Allir bara að sóla sig og vera sexy. Good times!


 08. ágúst 2007 ( - grettir ) [H]
Þannig að það er ekki von á jafn góðu veðri fyrr en 2013? Hehe..