1 til 5 af 5

Sumarfrí

Ritað þann:    08. júlí 2008
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  líðandi stund  

Ég er kominn í sumarfrí. Ég var búinn að leggja inn pöntun fyrir góðu veðri og mér sýnist það ganga ágætlega það sem af er.

Margrét var á næturvöktum um helgina svo ég dró krakkana út snemma á morgnanna í hjólatúra. Á sunnudagsmorguninn fengum við okkur morgunverð í Öskjuhlíðinni. Sáum kanínu og þýska ferðamenn.

Það er svo sannarlega fjölbreytt dýralífið í Öskjuhlíðinni.

Gærmorgninum eyddum við síðan með tærnar uppi í loft á Miklatúni og sleiktum sólskin. Það var kominn tími á frí, ég finn það.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. júlí 2008 ( jón Ævarr ) [H]
komiði sællllir


 16. júlí 2008 ( - grettir ) [H]
Já, sæll


Nautahlaup

Ritað þann:    07. júlí 2008
Efnisflokkar:  fréttir  líðandi stund  nostalgía  

Eftir að hafa séð Nautahlaupið í Pamplona með eigin augun er ég alltaf jafn hissa á því að slasaðir skuli ekki hlaupa á hundruðum og það skuli ekki fleiri vera drepnir við þessa hressandi iðju sem nautahlaupið er.

Íslensku netmiðlarnir eru allir með fréttir af atburðunum eins og venja er og ber reyndar fjölda slasaðra ekki saman, en eru þó allir sammála um að slasaðir séu innan við 10.
8 sárir á rúv.is
8 slösuðust á vísir.is
9 slasaðir á mbl.is

Með mbl.is fréttinni má sjá myndband sem sýnir augnablikin rétt áður en nautunum er hleypt inn í þvöguna. Maður getur næstum því fundið hlandlyktina, enda er San Fermin hátíðin mikið sótt af Bretum sem pissa þar sem þeir standa séu þeir ekki heima hjá sér.

Ég sá hlaupið af svölunum sem sjást á myndinni - í öruggri fjarlægt frá oddhvössum hornum. Ég er ekki hrifinn af þeirri hugmynd að fá nautahorn upp í endaþarminn en það virðist vera draumur þeirra sem hafast við þarna á götu niðri.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. júlí 2008 ( ægir pípari ) [H]
man those were the days, verðum eiginlega að finna annað svona ævintýri


 16. júlí 2008 ( - grettir ) [H]
Engin spurning!


Baugsmiðlarnir

Ritað þann:    07. júlí 2008
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  

Ég verð að viðurkenna að það er orðið frekar þreytt þegar stjórnmálamenn tala um baugsmiðla þegar óþægileg umræðuefni koma upp á yfirborðið.

Ef málgagn sjálfstæðisflokksins eða ríkisrekni miðillinn sjá ekki ástæðu til að fjalla um málin, þá eru það ekki fréttir, heldur áróður baugsmiðla?

Nú er Stöð 2 samsteypan ansi stór vinnustaður. Er einhver starfsmaður á Stöð 2, visir.is eða Fréttablaðinu sem kýs Sjálfstæðisflokkinn? Ég veit fyrir mitt leyti, að ef heill flokkur á þingi væri sífellt að draga í efa heilindi mín í starfi, þá fengi sá flokkur ekki mitt atkvæði.

Ég er í rauninni hissa að það skuli ekki vera migið meira yfir Sjálfstæðisflokkinn í þessum miðlum miðað við hvernig þeir míga í sífellu yfir það fólk sem þar starfar. Það veit kannski að Sjálfstæðismenn eiga eftir að fá hlandið framan í sig fyrr en seinna. Gott ef að er ekki þegar byrjað að frussast á tærnar á þeim.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Er von á lækkun olíuverðs?

Ritað þann:    04. júlí 2008
Efnisflokkar:  neytendur  

Á mbl.is í dag er sagt frá því að neytendur geti keypt bensín á verði dagsins í dag, fram í tímann. Þ.e.a.s. þú getur farið og keypt margar áfyllingar og sótt þær eftir þörfum.

Nú þarf enginn að segja mér að olíufélögin (eins gjafmild og þau nú eru) ætli að leyfa neytendum að tryggja sig fyrir verðhækkunum. Nú hlýtur verðið að hrapa þegar neytandinn sér fram á gróðravon (eða sparnaðarvon). Þetta eru markaðsfræðingar olíufélaganna búnir að sjá fyrir og sjá enn eina leiðina til að kreista aura út úr almenningi.

Íslensku olíufélögin ætla að sjálfsögðu ekki að vera með vegna óstöðugleika hér heima, en þegar verðið hrapar, þá stefna þau að því að "eiga miklar birgðir á háu verði og lágu gengi krónunnar" og halda verðinu háu þar til allir eru búnir að gleyma að olíuverðið féll.

Burtséð frá þessum spekúleringum, vona ég svo sannarlega að verðið á olíu fari nú að lækka.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Efnisflokkar (tags)

Ritað þann:    01. júlí 2008
Efnisflokkar:  nördadót  vefurinn  

Í fyrravor voru allnokkrir af þeim vefjum sem ég les farnir að nota efnisorð, eða tags til að auðvelda notendum leit að efni innan vefsins, finna tengdar færslur og svo framvegis.

Eitursnjallt hugsa ég með mér og útfæri snöggvast svoleiðis fídus á þessum vef. Þannig má losna við að útfæra leit, sem hvort sem er býður upp á að spambottar setji inn eitthvað rusl til að gera tilraunir til innbrota.
Allar nýjar færslur sem ég skrái upp úr maí 2007 eru skráðar með efnisorðum. Samhliða þessu fer ég að flokka þær færslur sem þegar eru á vefnum, þá eitthvað rúmlega 1100 færslur. Ég hef verið að taka nokkrar gamlar færslur um leið og ég skrái nýja. Hressandi.

Í dag kláraði ég loksins að flokka síðustu færslurnar. Svo það má segja að ég sé ekki fyrstur með tæknina að þessu sinni, enda búinn að röfla á neti síðan 2000 (fyrsta árið er týnt, sem betur fer kannski) og mikið efni að fara yfir.

Það var ansi áhugavert að lesa sumt af því sem ég hef skrifað í gegnum tíðina. Stundum er ég snjall og fyndinn en á milli eru kaflar þar sem ég röfla óstjórnlega um áhöfnina sem stýrir þjóðarskútunni. Boring stöff, en einhver verður að halda þessu liði á tánum.

Sumsstaðar hafði endirinn klippst af þegar ég uppfærði síðuna og færði yfir á vélina heima. Ég hef lagað það, svo ef einhver var skilinn eftir í lausu lofti við lestur einhverrar samsæriskenningar, þá ætti botninn að vera kominn á vefinn núna.

Á enn öðrum stöðum er ég að vísa í fréttir á vefjum sem eru ekki lengur til staðar. Það er bömmer, en svona er netið. Vefir fara á hausinn og/eða eru endurforritaðir. Vísir.is er skæður með þetta. Nánast allar vísanir af gömlu vefjunum eru ónýtar. Ég nenni hreinlega ekki að grafa upp nýjan link (ef hann er þá til) svo sumar færslurnar eru samhengislaust bull án upprunalegu fréttarinnar.


Í framtíðinni stendur svo til að bæta efnisflokka kerfið þannig að unnt sé að filtera út efni sem ekki höfðar til lesandans. Þannig má koma í veg fyrir að blæði úr augum þeirra sem eru komnir með upp í kok af verðbólguröfli og krónutali.

Ég á svo eftir að setja upp "box" þar sem öll efnisorðin eru sýnileg og smellanleg fyrir auðvelda leit að eldra efni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..