1 til 4 af 4
Ágætis partý í
garðinum í gær. Við kíktum þarna við og ekki bar á öðru en að fólk væri ánægt með þetta.
Ég verð nú seint talin aðdáandi Sigur Rósar númer eitt, en ég verð nú að taka ofan fyrir svona framtaki. Þetta var glæsilegt.
ADSL
Ritað þann: 27. júlí 2006
Efnisflokkar: íbúðamál
Loksins komið ADSL í nýja kotið og vefurinn því í loftinu að nýju.
Við fluttum á föstudaginn og notuðum helgina til að koma okkur fyrir. Nýja svalahurðin kom í hús á föstudag, þökk sé snillingunum í
Plast- og Gluggaverksmiðjunni sem gerðu sér lítið fyrir og redduðu svalahurð á þremur dögum, en ekki 8-9 vikum eins og allir aðrir á landinu. Ekki slæmt það.
Kláraði að mála í gær. Vá hvað íbúðin er glæsileg. Á mánudag mætir maður með steinsög og gerir gat út í garð. Það verður splendid.
Stefnt er að flutningum í framhaldinu og fyrsta nótt verður helgina á eftir.
Við erum búin að vera að rekast á fólk úr næstu húsum undanfarið og það lítur út fyrir að við séum ekki bara með góða granna í húsinu sjálfu heldur allt í kring. Tilbreyting það.
Ferðin til
Belgíu var æðisleg í alla staði. Erfitt að nefna þær hljómsveitir sem stóðu uppúr, en Red Hot Chili Peppers og Placebo voru hreint út sagt æðislegar. Fleiri góðir voru þarna eins og Muse, Kaiser Chiefs, Franz Ferdinand svo einhverjir séu nefndir.
Mikið magn var drukkið af bjór, tæplega 30 stiga hiti var alla daga og er maður bara nokkuð brúnn í kaupbæti.
Verst að konan skyldi ekki komast með en það var gott að komast heim eftir langa lestarferð og sveitt flug. Og við þetta tækifæri er kannski ekki úr vegi að uppljóstra því að hún er með barn í bumbu. Genin mín eru komin áfram. Ekki slæmt það.