1 til 14 af 14
Tveir tímar
Ritað þann: 30. júlí 2004
Efnisflokkar: djamm
Jæja, nálgast nú eins og óð fluga brottförin út í eyju. Skilst á mínum mönnum þar úti að það sé nú að rofa til og þetta verði ekki alslæmt.
Nema auðvitað að verið sé að ljúga upp í opið geðið á mér, bara til að fá mig. Það er auðvitað ekki almennilegur mannfagnaður nema ég sé á svæðinu með mitt Gin.
Well, tékklistinn:
Regnstakkur - checked
Vararegnstakkur - checked
Tvennar regnbuxur - checked
Þrennar peysur - checked
Þrennir bolir - checked
Þrennar næríur - checked
Poki af sokkum - checked
Þykkar buxur - checked
Plastpokar í skóna - checked
3 lítrar af Gini - checked
Flugmiði - checked
Var rétt í þessu að fá sms frá Akureyri. Sól og blíða. Merkilegt hvað sólin nær alltaf að skína þar þegar ég er ekki þar. Oh, well.
...
- grettir :: þetta verður stuð
Jæja, þá er komið trial á nýja Trek 4300 magnaða hjólið mitt (með framdempara, minnir að ég hafi átt eftir að monta mig af því). Ég brunaði út á Granda og snéri þar við og tók allt Seltjarnarnesið, alveg út á ystu tá.
Fer þá ekki að hellirigna, vindur á móti, ég orðinn þreyttur og ekki með neitt að drekka því ég gleymdi að taka fríkeypis brúsann með úr búðinni í gær.
Ég er nýkominn heim, ekki þurr þráður á neinum klæðnaði og vappa ég því um á næríunum einum saman og freista þess að þorna áður en ég fæ hressandi lungnabólgu.
Eigum við ekki að líta á þetta bara sem upp"hitun" fyrir Þjóðhátíð? Lítur út fyrir að veðurfræðingarnir verði að skila öllum jólakökunum og öllum 10 kílóunum af Muffins sem ég var búinn að baka handa þeim í skiptum fyrir sól um Verslunarmannahelgina.
Það þarf nú að stinga upp á því við þessa eyja-apaketti að færa nú þessa blessuðu Þjóðhátíð fram í júlí og helst upp á land. Muna þeir ekki afhverju hún er haldin? Nú, af því að þeir voru veðurtepptir einhverntíma í fornöld og neyddust til að húka heima og halda sína eigin.
...
- grettir :: popp, spóla og teppi í kvöld
Vinur minn Geir Skattman
Ritað þann: 28. júlí 2004
Efnisflokkar: peningar
Kíkti á álagningarseðilinn minn á netinu í dag og í fyrsta sinn síðan ég var blaðburðarstrákur fæ ég nú endurgreitt frá skattinum og það bara heilan helling.
Reyndar eru þetta peningar sem ég hefði í raun átt að vera með inni á bankareikningnum mínum smám saman allt þetta ár, en Geir þurfti eitthvað að brúka hann á árinu og fékk hann að láni í formi oftekinna gjalda. Spurning um að senda honum gíró fyrir ógreiddum vöxtum?
...
- grettir :: ríkari í dag en í gær
Eftir að hafa lent óverðskuldað í þriðja sæti í vinnu-poolmótinu í síðustu viku, skoraði ég á Ægi vin minn og hafði betur, 10-7. Fyrirgefningu miðgata-guðana má því þakka, sem og því að battaskots-guðirnir voru mér hliðhollir.
Löngubeinuskota-guðirnir eru hinsvegar í fýlu út í mig ennþá. Þeir mega éta það sem úti frýs. Maður getur ekki verið vinur allra.
Annað gott hlaust af deginum í dag. Ég verslaði mér eitt stykki fjallahjól. Eflaust hef ég sett Íslandsmet, því ég keypti fyrsta hjólið sem ég prófaði í fyrstu búðinni sem ég fór í.
Og fékk 20% afslátt + brúsastatív og brúsa í kaupbæti. Gleymdi reyndar brúsanum, en það er bara af því að ég var eins og lítill krakki í nammilandi og gat ekki beðið eftir að komast út með nýja hjólið. Þetta er eins og að eiga öll afmælin í einu!
Nú verður sko hjólað á morgun, því bensín-guðirnir eru mér og mínum Bimma ekki hliðhollir.
...
- grettir :: dett örugglega á hausinn, brýt nýja hjálminn og fæ kúlu á ennið
Líst nú ekki á þetta góða veður
Ritað þann: 27. júlí 2004
Efnisflokkar: fyndið
Mig grunar að veðurguðirnir séu að safna í fötur fyrir næstu helgi. Það á eftir að rigna sem aldrei fyrr á þjóðhátíð í ár.
En til að brúka nú þessa síðustu sólargeisla fyrir helgina þá er ég að spá í að fara út í búð og kaupa mér reiðhjól.
...
- grettir :: og hjólabuxur náttla

Ég nenni nánast aldrei að hella mér upp á kaffi þegar ég er heima hjá mér. Núna er því komin rúm vika frá því að ég smakkaði kaffi síðast og er vægast sagt farið að líða skringilega.
Svaf til dæmis ekki nema fjóra tíma í nótt og dreif mig í gymmið eldsnemma og hljóp heila 6 kílómetra, sem er bara nokkuð gott miðað við að hlaup eru það allra leiðinlegasta sem ég geri í gymminu.
Ég held að það sé engin spurning um að tussast inn í eldhús og hella uppá áður en ég spring eða hleyp út í Hafnarfjörð.
...
- grettir :: helli uppá sparikaffi í tilefni dagsins
Eftir að vera búinn að vera í fríi í nokkra daga var ég farinn að sakna vinnufélagana svo mikið að blásið var til poolmóts á Hverfisgötunni á fimmtudagskvöldið. Mæting var gríðargóð og var miklu öli hellt í andlitið.
Eftir mótið fórum við á Ara og fengum okkur grjónagraut og þaðan á ölstofuna þar sem var djammað til tvö. Alhörðustu djammararnir komu síðan á Framnesveginn og héldum við vöku fyrir grönnunum til fimm og ég er eflaust ekki vinsælastur í húsinu núna. Ég þori varla að reka nefið á mér út fyrir dyrnar :-)
Mér hlýtur að verða fyrirgefið fyrr en síðar, enda ekki vanur að standa í svona óreglu. Oh well.
...
- grettir :: rólegur í gær, en kvöldið í kvöld verður tekið með trompi
Sólbruni framundan
Ritað þann: 19. júlí 2004
Efnisflokkar: djamm
Í fyrsta sinn síðan ég var í barnaskóla á ég nú loksins fullt sumarfrí. Og það hófst í dag. Núna er ég að fara að leggja af stað í sumarbústað rétt hjá Laugarvatni þar sem stendur til að sulla í bjór og heitum potti. Vonandi nær maður að brenna eilítið í leiðinni.
Öllum að óvörum keypti ég mér líka miða á Þjóðhátíð. Ég veit að fyrir tveimur árum sagðist ég aldrei ætla að stíga fæti á þann auma rigningarhól sem Vestmannaeyjar eru, en þegar sólin skein alla Verslunarmannahelgina í fyrra, nagaði ég mig í handarbökin og bölvaði sjálfum mér í sand og ösku fyrir öll stóru orðin.
Nú er semsagt tími til kominn að éta ofan í sig allt sem maður hefur látið flakka um þessar eyjar og mæta galvaskur, því það jafnast nú víst ekkert á við góða þjóðhátíð.
...
- grettir :: tjaldið verður heima
Ég er ekkert búinn að vera smá duglegur, húsfreyjulega séð, þessa viku. Byrjaði á því að þrífa allt kotið um helgina, skipti um á rúminu, þreif allan þvott, skipti um eitthvað júnit sem heldur stofuglugganum lokuðum, setti upp þvottasnúrur og vaskaði allt upp (já líka glösin sem eru út um allt hús).
Til að toppa þetta, þá stendur til að afþýða frystinn og þrífa ískápinn. Þetta krefst þess að sjálfsögðu að ég eldi allt sem er geymt í frystihólfinu og hef ég hrist ótrúlegustu rétti fram úr erminni í þessari viku. Ef ég ætti Kitchen Aid hrærivél, þá væri ég eflaust búinn að baka einhverja snilld.
Það allra leiðinlegasta sem ég geri heima hjá mér er uppvask og því stendur til að fá sér kon... ég meina uppþvottavél sem fyrst.
...
- grettir :: mér leiðist greinilega
Sniðugur þessi Sýslumaður á Selfossi. Lætur lærisveina sína sitja fyrir saklausum mönnum sem skreppa í kjötsúpu til mömmu yfir fjallið og passar sig á því að senda reikninginn svo seint að maður missir af afslættinum.
Þegar maður hefur hvort sem er misst af honum hugsar maður sem svo að ekkert liggi á að borga - enda borgar sig ekki að flýta sér eins og hann bendir sjálfur á - en þá fær maður bara hótun um fangelsisvist í ábyrgðarpósti.
Það súrasta er að ég sá þessa sveppi löngu áður en ég mætti þeim, en var víst rétt yfir hundraðinu, smámunasömu bjánar. Engin umferð í sól og blíðu. Reynið að eltast við alvöru glæpamenn apakettirnir ykkar!
Spurning um að drífa sig á höggmyndanámskeið áður en maður verður settur inn?
...
- grettir :: ætli Stöð 2 náist á hrauninu?
Símafundur á dollunni
Ritað þann: 08. júlí 2004
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim á daginn er vanalega númer tvö. Þá sest ég í ró og næði, finn mér skemmtilega leik í símanum og tæmi bæði huga og holræsakerfi.
Í dag var þessi heilaga stund trufluð af símhringingu, sem hefur nú svo sem gerst áður, nema í þetta skipti voru tveir á línunni og vildu ræða vinnuna.
"Nei nei, þið eruð ekkert að trufla," laug ég myndarlega. Ekki segir maður hvað maður er að gera í svona tilfellum.
Eftir dágóða stund var orðið ljóst að við þrjú myndum ekki leysa þetta og var því hringt í tvo til viðbótar og vorum við þá orðin fimm á fundi, inni á klósetti hjá mér.
...
- grettir :: þarf ekki að losa næstu vikuna
Þegar maður liggur heima, hóstandi og er eina mínútuna í svitabaði og þá næstu við það að frjósa í hel, þá er Bíórásin vinur í neyð.
Ef fjölmiðlafrumvarpið og bananalýðveldis tilburðir þeirra stjórnarmanna verða til þess að skrúfa verður fyrir B mynda sýningar allan sólarhringinn, þá er nokkuð ljóst að maður neyðist til að brjóta nokkrar hnéskeljar og kjósa Steingrím Joð í næstu kosningum.
...
- grettir :: er nú að hressast
Ég hef greinilega fengið of stóran skammt af fersku lofti á landsmótinu um helgina, því ég er kominn með þessa fínu hálsbólgu og hita.
Lá því undir sæng og horfði á vídeó í allan gærdag. Horfði m.a. á Duplex, sem fjallar um óþolandi gamla kellingu sem leigir af ungu pari. Hún er eiginlega nágranni dauðans.
Ég, á hinn bóginn, eignaðist nýja nágrannakonu á föstudaginn sem ég held að mér eigi eftir að líka mjög vel við. Fyrsta verk hennar var að taka til í stigagangnum og svo spyr hún af fyrra bragði hvort hún megi ekki reita arfann í garðinum! Ég hélt það nú.
...
- grettir :: jæja, best að halda áfram að vera veikur
VÖRUSVIK !
Ritað þann: 02. júlí 2004
Efnisflokkar: fyndið
Ég er búinn að fórna geit, sofa hjá 14 hreinum meyjum og brenna allt þungarokk sem ég komst yfir í vikunni, til þess eins að sólin myndi nú tussast til að skína líka á einhverjum öðrum tímum en þegar ég húki inni á skrifstofu.
Hvað fær maður í staðinn? Ský og súld.
Ef þetta kallar ekki á hertar aðgerðir, þá veit ég ekki hvað gerir það.
...
- grettir :: veðurguð smuð