1 til 15 af 15

Hraðakstur

Ritað þann:    26. júní 2007
Efnisflokkar:  fréttir  líðandi stund  

Hér að neðan eru tvær afar áhrifaríkar auglýsingar gegn hraðakstri. Sú neðri er alls ekki fyrir viðkvæma, en sú efri er frekar fyndin og er hluti af nýrri aðferð sem Ástralir hafa kosið að nota.








Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. júní 2007 ( jón óskar ) [H]
Merkilegt nokk en það glás af kálhausum þarna úti sem svona herferðir hafa engin áhrif á. Siðblindir og heilalausir einstaklingar sem trúa því innilega að ekkert sé svalara en að nýta öll þau hestöfl sem farartækið hefur upp á að bjóða. Á hverjum degi keyri ég á milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur til vinnu og nánast undantekingalaust taka fram úr mér bílar sem láta mig finnast ég vera kyrrstæður á þjóðveginum. Sjálfur keyri ég á ca. 95 km/klst. Fávitar.


 27. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega.. Fávitar.

Því meiri hraði, því meiri skaði.

Og eins og umræðan hefur verið undanfarna daga og vikur í sambandi við mótorhjólin held ég að það sé loft í hausnum á þeim hluta bifhjólamanna sem tjáir sig á internetinu. Hótandi að taka niður númer ökumanna sem þeim finnst svína á sig, heimtandi braut, hóta að stinga af og ég veit ekki hvað.


Íbúð sýnd

Ritað þann:    25. júní 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  líðandi stund  nöldur  

Litla íbúðin mín er komin á sölu. Ég og konan bönkuðum upp á hjá leigjandanum í gær og fenguð að vaða inn og sýna væntanlegum (vonandi) kaupanda íbúðina.

Ég hef ekki komið í vesturbæinn dáldið lengi, en það er ekki vanþörf á að slá garðinn og mála húsið ef ég á að fá gott verð fyrir kotið. Svo hafa einhverjir slefandi aumingjar með tóman hugsanaklefa tekið sig til og krotað einhver slagorð á húsið. Horétandi aumingjar og skemmdarvargar.


Helgina notuðum við í afslöppun og leik. Ég hélt reyndar áfram pallasmíði í gær í blíðunni og smíðaði tröppu niður af pallinum. Granninn mætti seinnipartinn með nýja sláttuvél. Vonandi slær hann í dag.

Garðurinn okkar er svo mikil snilld!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. júní 2007 ( von ölves ) [H]
ég þarf örugglega ekki að minna þig á að RockWerchter er um helgina... spurning með hvort við hittumst á nýja pallinum þínum eða nýju svölunum mínum til að fá okkur bjór og hlustum á live útsendinguna þegar rw-fararnir hringja í okkur...


 25. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Það hljómar eins og plan. Skálum í Stellu og hlustum á Interpol og Bloc Party.


 26. júní 2007 ( von ölves ) [H]
það er gott plan... gríðargott plan!


Símanúmer selt til spammera

Ritað þann:    20. júní 2007
Efnisflokkar:  nöldur  skandall  

Ég hef tekið ákvörðun um að breyta um símanúmer. Þeir sem eru í bókinni minni fá sent nýja númerið þegar ég er búinn að fá það afhent.

Ástæðan er einföld. Símanúmerið mitt er komið í hendurnar á einhverjum kúkum sem eru síhringjandi og bjóða mér eitthvað drasl til sölu frá útlöndum. Ég er orðinn vel þreyttur á þessu.
Nýja númerið verður ekki skráð í símaskrá.

Þar til nú nýlega hélt ég að maður yrði að passa email-ið sitt til að sleppa við spam, en nú verður maður greinilega að vera varkár hvar maður gefur upp símanúmerið sitt líka. Á þessari síðu má sjá að fólk er farið lenda í töluverðum vandræðum með þetta.
Ég var til dæmis búinn að stilla símann þannig að allir í bókinni eru skráðir í hóp sem hefur sérstakan hringitón. Ef símanúmerið er ekki í bókinni hringir síminn ekki, heldur er stilltur eins og á meeting.

Svona bögg þoli ég ekki.

Mér þætti gaman að komast að því hvar þessir gaurar náðu í númerið og ég væri til í að sparka hressilega í púnginn eða pussubeinið á þeim sem afhenti það.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. júní 2007 ( von ölves ) [H]
fúss únd svei!!!


 25. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Það er reyndar ágætt að hreyta einhverjum ónotum í þá á íslensku. Spurja hvort þeir ætli ekkert að fá sér alvöru vinnu, hvort mamma þeirra viti hversu miklir hálfvitar þeir eru, spurja hvort þeir séu með þvag og saur á milli eyrnanna og svo mætti lengi telja.
Möguleikarnir eru endalausir.

En það verður samt þreytandi til lengdar.


Hringvegurinn farinn á fjarstýrðum bíl

Ritað þann:    19. júní 2007
Efnisflokkar:  nördadót  tæki  

Tómstundahúsið stendur fyrir hringvegaakstri á fjarstýrðum bíl þann 23. júní.

Eins og glöggir muna, þá fékk ég einn slíkan í afmælisgjöf og að öllum öðrum gjöfum ólöstuðum þá er þetta besta gjöf sem nokkur drengur getur óskað sér :-)

Vonandi keyra ökuníðingar ekki yfir bílinn á leiðinni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ný plata með Interpol væntanleg

Ritað þann:    18. júní 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Ég er nú orðinn dáldið spenntur að bíða eftir nýju plötunni með Interpol

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. júní 2007 ( Einar Örn ) [H]
Ert ekki einn um það :)


 18. júní 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Ætli maður heyri hana ekki í fyrsta skiptið á RW...


 19. júní 2007 ( sjérann ) [H]
"How are things on the west coast...." úúúú get ekki beðið!!


 19. júní 2007 ( von ölves ) [H]
fleiri sem eru spenntir að bíða eftir Interpol... hver ætlar að troða sér fremst með ásgeiri þegar interpol spila á RW?... nú er enginn golfari til þess!!!


 19. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Ingvar, þetta var nú óþarfi, hehe..
Ætli maður reyni ekki að komast á Rock Werchter að ári.


 19. júní 2007 ( von ölves ) [H]
jú er það ekki... zmá RW með einni ferð á DeWiering í rif, Domus bjór og viðkomu hjá Ali Baba...


 19. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Smá sýnishorn fyrir þá sem eru ekki búnir að heyra
http://www.myspace.com/interpol

Mér sýnist á athugasemd sérans að hann sé búinn að kíkja í pakkann :-)


 20. júní 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Herr Peter hótelstjóri á allaveganna eftir að sakna ykkar Óli og Grettir...


 20. júní 2007 ( von ölves ) [H]
við eigum líka eftir að sakna herr peter... spurning hvort þú værir ekki til í að ná mynd af honum í sundskýlunni í sólbaði með hundinum...


 20. júní 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Uss... Það verður erfitt maður það kemur svo mikil birta af skýlunni.


Útskrift úr Kennaraháskólanum

Ritað þann:    18. júní 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Konan mín útskrifaðist á laugardaginn sem Þroskaþjálfi og getur nú tekið á hegðunarvandamálum mínum sem fagmaður :-)

Ég mætti henni til stuðnings í Laugardalshöllina og varð ákaflega montinn þegar henni voru veitt verðlaun fyrir lokaverkefnið.

Eðlilega voru kennarar ansi áberandi í útskriftarhópnum, tæplega 200 af tæplega 500 kandídötum. Þannig flutti nýútskrifaður kennari ræðu fyrir hönd kandídata.
Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir það að í ræðu sinni - sem átti eflaust að vera hvatning fyrir nýútskrifaða kennara - sagði hún að þeir [kennarar] ættu ekki að þurfa að færa rök fyrir því hvernig þeir ynnu starf sitt.

Nú hef ég starfað sem tölvunarfræðingur í sjö ár og á að baki sjö ára nám, fyrst í framhaldsskóla og svo háskóla. Ef ég mætti til vinnu með þannig viðhorf væri ég einfaldlega ekki með vinnu.

Það er hægt að fara óhefðbundnar leiðir og sýna frumkvæði í starfi, en að maður þurfi aldrei að rökstyðja hvers vegna hlutirnir eru gerðir svona en ekki öðruvísi er vægast sagt ekki góð leið. Það er líkt og að segja að engum komi það við hvernig maður vinnur.
Það er ekki vænlegt til árangurs eða samstarfs.

Ég vona að þeir kennarar sem ég kem til með að starfa með í framtíðinni við menntun barna minna hafi ekki þetta viðhorf.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. júní 2007 ( von ölves ) [H]
til hamingju með konuna þína!


 18. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)


Konuafmæli

Ritað þann:    14. júní 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Konan mín á afmæli í dag.

Það verður erfitt að toppa afmælisgjöfina sem hún gaf mér en ég held samt að hún verði glöð.

Til hamingju :*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. júní 2007 ( Konan og börnin ) [H]
Takk fyrir mig, ég var voða glöð. Þið eruð best :*


80% ölvaðra undir stýri Íslendingar

Ritað þann:    12. júní 2007
Efnisflokkar:  fréttir  neytendur  nöldur  skandall  

Forvarnarfulltrúi Vís gerir mikið úr því að fimmti hver ölvaður undir stýri sé með erlendan ríkisborgararétt. Hún vill meina að það sé af því að "þessir erlendu gestir" þekki ekki reglurnar sem gilda hér á landi.
En þessar tölur segja mér að 4 af hverjum 5 séu Íslendingar. Hvaða afsökun hafa þeir?

Ég var tryggður hjá Íslandstryggingu og kunni því vel. Svo keyptu Vís félagið og nefndu nýja fyrirtækið Vörð. Samhliða því hækkuðu tryggingarnar mínar umtalsvert af því "að hinir ökumennirnirnir voru að valda svo miklu tjóni".

Það er samt skrýtið að Vís/Vörður skuli þurfa að hækka tryggingarnar við fleiri tjón, því þeir leita allra leiða til að sleppa við að borga tjón.
Nýjasta trikkið hjá þeim er að senda greiðsluseðlana of seint. Þegar tjón er tilkynnt segja þeir: þú ert ekki búinn að borga. Það voru reyndar mistök hjá okkur - gleymdum að senda seðilinn - en þú ert samt ekki tryggður því þú ert ekki búinn að borga.

Ég skil ekki af hverju fólk tryggir hjá svona skítafyrirtæki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. júní 2007 ( Ægir pípari ) [H]
og hjá hvaða gæðablóðum tryggir þú?


 13. júní 2007 ( - grettir ) [H]
TM


 13. júní 2007 ( von ölves ) [H]
og er það málið?


 14. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Já það er fínt. Við erum með báða bílana og íbúðirnar hjá þeim og fengum tugþúsunda afslátt á ári.


Árekstur á Háteigsvegi

Ritað þann:    12. júní 2007
Efnisflokkar:  nöldur  

Rétt eftir kvöldmat í gær heyrðum við bremsulæti og í kjölfarið háværan skell. Harður árekstur varð rétt fyrir utan húsið okkar. Skömmu síðar mætti lögregla með sjúkrabíl og hreinsaði til á svæðinu.
Enginn slasaðist alvarlega. Ekki í þetta sinn að minnsta kosti.

Fimm ára drengnum okkar fannst þetta ansi merkilegt og sagði 6 mánaða systur sinni að hún mætti sko aldrei fara út á götu. Það væri stórhættulegt.

Það er sko engin lygi. Gatan okkar er frekar þröng og ég hef orðið vitni að því þegar tvær bílar mættust og brutu spegla hvors annars. Núna standa yfir viðgerðir á ræsum ofar í götunni með viðvörunarskiltum um að fara varlega. Þegar komið er inn í götuna er stórt skilti sem á stendur "30". Þarna eru tvær hraðahindranir til að minna á að þetta er íbúðahverfi.

Allt þetta virðist ekki skipta neinu máli. Fólk virðist nota götuna sem hraðbraut niður á Rauðarárstíg. Í morgun steig ég út á götuna hálfsofandi með fuglasöng í öðru eyranu og eyrnamerg í hinu og þurfti að forða mér hið snarasta upp á götuna aftur til að verða ekki fyrir leigubíl sem brunaði framhjá á alltof mikilli ferð. Bílstjórinn var ævaforn og hefði ekki séð strætó þó hann væri á leiðinni aftan á einn slíkan.

Fólk er fífl.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Blast from the past

Ritað þann:    11. júní 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Öðru hverju renni ég ég gegnum músik safnið mitt og læt iTunes velja lög sem ég hef ekki heyrt lengi.

Núna datt inn lagið Rubber Ring með The Smiths. Það er vel gott. Morrissey er bara snillingur.

Það er á "Todo before I die" listanum að sjá hann á tónleikum áður en hann hættir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. júní 2007 ( von ölves ) [H]
heyrðu þú misstir af honum í fyrrasumar, í ágúst sl. að mig minnir... það var hressandi að heyra hann taka svolítið af smiths-slögurum í bland við ágætt nýlegt efni...


 14. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Já, damn.. hann var líka á Roskilde 2004. Oh well.


Timbur

Ritað þann:    07. júní 2007
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Fór í Byko í gær og reyndi að kaupa timbur án árangurs. Líklega eru allir að smíða palla en enginn eins fallegan og ég.

Það verður flott þegar búið verður að kolefnisjafna allan bílaflota landsmanna, þá skreppur maður bara út í skóg og nær sér í timbur án þess að hafa Byko sem millilið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. júní 2007 ( Ægir pípari ) [H]
fékk mitt timbur í húsó, fullt af tilboðum og enginn góð verð fyrstir koma fyrstir fá


 08. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Hmm, ég kannski tékka á því. Er þetta ekki allt úr sömu timburverksmiðjunni í Lettlandi?


Öryggisátak á vegum Securitas

Ritað þann:    07. júní 2007
Efnisflokkar:  neytendur  nöldur  

Um daginn hringdi í mig afskaplega kurteis drengur frá Securitas. Hann sagði mér frá öryggisátaki sem þeir væru með í mínu hverfi og væru að bjóða fólki að koma - ókeypis - og taka út öryggi húsanna, hvað mætti betur fara í reykskynjaramálum, læsingum og þess háttar. Með þessu átti að fylgja ráðgjöf varðandi öryggiskerfi.

Ég sagði honum að við væru með öryggiskerfi frá Öryggismiðstöðinni, en honum væri velkomið að koma og sjá hvort þeir gætu gert/boðið betur. Við ákváðum tíma og hann sagðist myndi setja í athugasemdir við stefnumótið að við værum þegar með kerfi frá Öryggismiðstöðinni.

Daginn eftir hringir alger andstæða kurteisa drengsins - dónaleg stúlka.

Hún segist sko ekki ætla að senda menn í ókeypis úttekt á húsinu þegar við séum þegar með kerfi. Stefnumótinu var aflýst.

Þetta er svona svipað og ef ég færi niður í Ræsir og sölumaðurinn myndi segja við mig: Þú færð sko ekkert að prófa bíl hjá mér. Þú átt BMW!

Við höldum okkur því við Öryggismiðstöðina. Þeir eru kurteisir og það hefur ekki verið neitt vandamál með kerfið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Seðlabankastjórar

Ritað þann:    06. júní 2007
Efnisflokkar:  fréttir  nöldur  

Þegar Davíð ofbauð launahækkanir Kaupþings Búnaðarbanka forstjóranna þá fór hann með hávaða og látum í Búnaðarbankann - með fréttamiðlana á hælunum - og tók út allt sitt í mótmælaskyni.

Nú hafa Seðlabankastjórar fengið 200.000 kr. hækkun (fyrir vel unnin störf?) algerlega úr takt við samfélagið allt. Þetta er kannski til að vega upp á móti verðbólgu sem þeir bera ábyrgð á.

Í mótmælaskyni ættu allir að endurfjármagna sín lán í erlendri mynt og gera Seðlabankann óvirkan.

Edit:
Sama frétt á visir.is. Athugasemdin frá þeim er kallar sig "Rómverji" er ansi athyglisverð og síðasta málsgreinin er svo sönn:
Íslenskir fjölmiðlar eru með gullfiskaminni og áreiðanlega er ekkert jafnsárameinlaust til undir sólinni. Þess vegna verður seðlabankastjóri tæplega spurður þessarar einföldu spurningar. Íslenskir fréttamenn eru ekki aðeins duglausir heldur líka huglausir. Yfirleitt.


Minnir mig á það sem Stephen Colbert sagði eitt sinn:

"Let's review the rules. Here's how it works. The president makes decisions, he's the decider. The press secretary announces those decisions, and you people of the press type those decisions down. Make, announce, type. Put them through a spell check and go home. Get to know your family again. Make love to your wife. Write that novel you got kicking around in your head. You know, the one about the intrepid Washington reporter with the courage to stand up to the administration. You know--fiction."


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Vatnslaust

Ritað þann:    04. júní 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  nöldur  

Einhver gröfumaður þarf ekki að mæta í vinnu á morgun eftir afrek dagsins. Honum hefur tekist að moka í sundur kalda vatnið hérna á Háteigsveginum með tilheyrandi óþægindum því fylgjandi.

Með sama áframhaldi förum við ótannburstuð í rúmið í kvöld.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. júní 2007 ( Barbietec ) [H]
hva.. reddar þér bara á sódavatni...
svo er líka heitavatnið hollara, það er flúor í því :)
fyrir utan það að maður á ekki að skola tannkremið af, þannig að þið lifið af!


 04. júní 2007 ( Ægir pípari ) [H]
ég hélt að það væri bara brennisteinn í heita vatninu, var það ekki bara kaninn sem flúor blandaði?


 05. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Ég fór bara í 10-11 og keypti rándýrt Bruz Wasser


 06. júní 2007 ( von ölves ) [H]
það voru einmitt innflytjendur á Bruz Wasser sem réðu gröfumann...


 06. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Haha..


Sjómannadagur

Ritað þann:    04. júní 2007
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Við kíktum niður á miðbakka í gær, fóru í sjóferð, skoðuðum furðufiska og átum SS pylsur. Íslenskara verður það varla. Og þó - það var rok og rigning.

Ég var aðeins að pæla í því í gær hvernig það hafi æxlast að heil starfsstétt eigi sinn dag og önnur stétt eigi heila helgi - Verslunarmannahelgi.

Við tölvunarfræðingar erum líklega of ný stétt til að eiga okkar dag, en hvernig væri það ef hjúkrunarfræðingar, ræstitæknar, slökkviliðsmenn ættu sinn dag og héldu hann hátíðlegan? Nú eða tannlæknar? Boðið væri upp á flúorskol og tannsteinaskrap á Austurvelli.

Þingmenn ættu heldur ekki í vandræðum með að festa í lög dag sér til handa, nógu marga frídaga eiga þeir á árinu. Þeir gætu fært þinghald undir bert loft og keppt í pokahlaupi og launráðum. Gestir og gangandi gætu fengið að rasskella þann þingmann sem stæði sig verst og skvett skyri á þann sem hefði röflað mest yfir hvað það væri ósanngjarnt að hann væri í stjórnarandstöðu.

Þetta gæti orðið gaman.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. júní 2007 ( Óli Fly ) [H]
úúúú, hvar skrái ég mig???


 06. júní 2007 ( von ölves ) [H]
þetta er með betri hugmyndum...