1 til 7 af 7
Frí frí frí
Ritað þann: 23. júní 2006
Efnisflokkar: ég
Vá hvað það er leiðinlegt að sparsla veggi.
Konan mín á afmæli í dag. Til hamingju með það elskan.
Við bönkuðum uppá hjá grönnunum á mánudagskvöldið og báðum um leyfi fyrir svaladyrum. Ég er ekki frá því að við eigum bestu granna í heimi. Okkur var boðið inn í kaffi og spjall í einn og hálfan tíma. Toppfólk allt saman.
Og ekkert af þeim spilar á gítar. Lovely.
Sóttum svo um leyfið hjá
Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur í gær. Þar eru endalaust elskulegar konur að vinna sem vildu allt fyrir okkur gera. Tóku við umsóknum með brosi á vör, ljósrituðu teikningar og fóru yfir ferlið með okkur. Gaman að koma í svona stofnanir.
Politically correct
Ritað þann: 12. júní 2006
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Al-Zarqawi lést af völdum innvortis áverka
Skv.
frétt á mbl.is
Með öðrum orðum.. hann sprakk í loft upp.
Fór með fjölskyldunni á Hátíð hafsins í gær. Sannkallaður Þjóðhátíðarfílíngur, mígandi rigning og svoleiðis okrað í matartjaldinu að það hálfa hefði verið nóg.
En við fengum að skoða Ægi, landhelgisgæsluskipið. Það vakti mikla lukku hjá þeim stutta þegar hann fékk að setjast í skipstjórastólinn og ræða málin við "bílstjórann" eins og hann kallaði kapteininn.
Seinnipartinn fór frúin að vinna og notaði ég þá tækifærið og uppfærði
myndasafnið í
Gallery 2, sem er töluvert svalara og betra að stýra en það
gamla, sem þó verður opið eitthvað aðeins lengur meðan vinir og kunningjar breyta "Favorites" og linkum á myndir.
Fjölskyldumyndir og slíkt er allt harðlokað :-) Það er kaffi á könnunni ef fólk vill kíkja í heimsókn og skoða slíkt - kæri mig ekki um að hver sem er sé að valsast í þeim. Fjölskyldumeðlimir geta líka fengið lykilorð eftir beiðnum.
Það var hundleiðinlegt að uppfæra í gallery 2, þar sem vélin var með eldgamla uppsetningu af php, en gallery 2 er að nota nýja authentication method fyrir MySQL.
Þurfti ég því að hreinsa gamla php-ið af vélinni, restarta, installa php 5 og configurera Apache til að nota það og stilla php-ið upp á nýtt.
Það var því ekki sett heimsmet í uppitíma á XP á þessu ári frekar en fyrri daginn.
Þegar það var komið er importið úr gallery 1 smooth og þægilegt.
Að lokum breytti ég svo afritatökunni þannig að nú afritast nýja gallery-ið einu sinni í viku.
Svo á alveg eftir að koma í ljós hvernig nýja gallery-ið er að performa. Kannski er það bara of flókið og hægvirkt.. þá bakkar maður bara .-)
Fengum íbúðina afhenta í gær, degi á undan áætlun. Buðum fjölskyldunni í "kaffi" og sýndum höllina. Þetta verður bara snilld.
Nú verða hendur látnar standa fram úr ermum, smíðaður pallur, málað og garðurinn sleginn.
Red Hot Chili Peppers
Ritað þann: 02. júní 2006
Efnisflokkar: ferðalög tónlist
22 dagar í Rock Werchter!
Ég er búinn að vera að hlusta á Stadium Arcadium, nýjustu afurð Red Hot Chili Peppers. Mörg ansi góð lög á henni, þó fremst meðal jafningja er Dani California.
Svo rakst ég á þetta á b2.is, en þarna eru einhverjir útvarpsstrumpar að færa sönnur á að lagið sé stolið..
Mér er sama.. gott lag.