1 til 16 af 16
Belgía
Ritað þann: 27. júní 2005
Efnisflokkar: ferðalög
Jæja, þá er komið að þessu. Belgía í fyrramálið, öl og rokk.
Ég skal drekka ykkar skál í öl-landinu góða.
...
- grettir :: Flæmskan maður
Það vantar blóð
Ritað þann: 22. júní 2005
Efnisflokkar: líðandi stund
Blóðbankinn var að hringja. Það sárvantar blóð. Hvet ég því alla sem dropa geta misst til að mæta nú og gefa.
Þið vitið aldrei hvenær þið þurfið að taka út sjálf (á lélegu vegunum okkar eins og sjá má að neðan).
Í
frétt á mbl.is er fjallað um of hraðan akstur og tengsl hans við banaslys í dreifbýli.
Um leið og ég samhryggist öllum sem eiga um sárt að binda vegna þessa og án þess að ég vilji vera að verja hraðakstur, þá liggur vandinn dýpra en það.
Ég keyri til dæmis mjög mikið Suðurlandsveginn, enda búa foreldrar mínir fyrir austan fjall. Þegar maður kemur inn í Reykjavík, liggur við að maður verði að gefa í og keyra hraðar til að vera ekki fyrir. En Ártúnsbrekkan ber léttilega 100 km hraða. Það gera þjóðvegirnir ekki.
Ástæðan fyrir þessum fjölda banaslysa er því einföld. Vegakerfið hérna er drasl. Og þess vegna þarf ekki mikinn hraða til að allt fari í voða.
Ég held að stjórnendur þessa lands ættu að sjá sóma sinn í því að vera ekki að spara þegar kemur að því að malbika þjóðvegina og stefna að því að tvöfalda alla helstu þjóðvegi landsins. Þegar það er búið má bora göng, byggja sendiráð og hvað þeim dettur í hug.
Ég var að vinna úti í Þýskalandi fyrir nokkrum árum þar sem menn eru nú ekki beint þekktir fyrir að keyra hægt. Á venjulegum hraðbrautum, þ.e. tvöföldum brautum sem ekki eru beinar er 120 km hámarkshraði. Á beinum brautum (ekki endilega fleiri akreinar) máttu keyra eins hratt og þú vilt.
Hins vegar ef þú kemur að "sveitavegi", þar sem er ein akrein í hvora átt, þá er 70 km hámarkshraði.
Ég sagði við Þjóðverjann sem fékk far með mér á sveitahótelið:
"Svona eru allir vegir á Íslandi."
"Ha?" spurði hann hissa, "er þá ekki mikið af slysum?"
Þegar ég kom heim eftir 5 daga hafði banaslysa talan hækkað um tvo.
Ég var að taka eftir því að Síminn er að rukka 1600 kall af Visa kortinu mínu í hverjum mánuði, en ég kannast ekki við að þeir séu að veita mér þjónustu af neinu tagi.
Þetta er kannski það sem kostar að vera til.
...
- grettir :: ódýr er maður
Við erum með vínpott hérna í vinnunni. Ég skulda fjórar flöskur. Gleymi alltaf að koma með í pottinn. Nú verður maður að rölta í ríkið og versla.
Nú er ég kominn með miðann minn á
Rock werchter. Hitti
Olav von Olves yfir lunch þar sem farið var yfir ferðaplanið. Ég er kominn með svitadropa í lófana af tilhlökkun. Fékk líka aðgangskortið að Tech Ed í Amsterdam í dag. Það er allt að gerast hérna.
Ætli maður bíði ekki með íbúðaskiptin eitthvað í bili.. nenni varla að standa í þessu svona yfir hásumarið. Kannski væri snjallt að mála kofann að utan áður, gera þetta sölulegra kot.
Það eru allt of mörg járn í eldinum.
...
- grettir :: jibbí
Mögnuð steggjun
Ritað þann: 20. júní 2005
Efnisflokkar: djamm
Djöfull framkvæmdum við magnaða steggjun á fimmtudaginn. Byrjuðum á því að senda stegginn í listflug, þaðan héldum við á Mangó grill og létum hann taka hamborgara áskoruninni, en hún felur í sér að torga þarf 1100 gramma hamborgara á 10 mínútum.
Náðist ekki. Hefði kannski gert það ef inni í þessum 1100 grömmum væru ekki 250 grömm af frönskum og 100 grömm af kokteilsósu.
Svo fórum við í körfubolta, gufu og nudd og enduðum í heimapartíi með Nings og endalaust af bjór.
Ég var því fárveikur á föstudaginn.
...
- grettir :: góð helgi maður
Styttist í sumarfrí
Ritað þann: 15. júní 2005
Efnisflokkar: djamm tónlist
Ég var að fatta að það er frí á föstudaginn. Meiri snilldin sem það er. Hver veit nema að maður fái sér þá í glas á morgun. Hver veit..
Og svo styttist í sumarfrí og rokk í Belgíu. Ég verð að viðurkenna það að ég er ekki búinn að vera sérlega duglegur að hlusta á grúppurnar sem verða þar til að koma mér í gírinn. Í morgun er til dæmis búin að vera einhver fortíðar nostalgía í gangi og U2 hefur fengið að malla á eyrunum. Það er kúl svo sem, enda U2 eðal meðal.
Nýtt kot?
Ritað þann: 13. júní 2005
Efnisflokkar: íbúðamál
Ég er búinn að finna aðra íbúð. Nú er bara að vona að hún seljist ekki alveg á næstu dögum eins og sú sem ég fann um daginn, því nú þarf ég að taka til hendinni:
Slá garðinn
Ryksuga ganginn
Taka til og þrífa eldhúsið og baðið
Setja mína á sölu
Gera tilboð í nýju íbúðina
Nýja íbúðin er á tveimur hæðum, á efstu hæð (svo þegar ég sef, þá er íbúðin mín líka fyrir neðan rúmið mitt og engir púngsveittir grannar með heimabíóið í botni), með svölum, 94 fermetrar + stór geymsla + tvö stæði í bílageymslu, með eyju í eldhúsinu og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er að missa þvag af spenningi.
Þegar ég var í skólanum keypti ég mér rosalega reiknivél, Casio eitthvað, rosa GB plús eitthvað meira. Hún er með rosa stórum skjá og getur teiknað gröf og leyst öll heimsins vandamál - ef maður kann á hana það er að segja. Handbókin er á þykkt við símaskrá.
Hún hefur legið ofan í skúffu og rykfallið síðustu árin, enda ekki oft sem ég finn hjá mér þörf til að teikna gröf eða framkvæma líkindareikning.
Um daginn ákvað ég að brúka kvikindið til að reikna nokkra útgjaldaliði í heimilisbókhaldinu (lesist - leggja saman og finna út hversu stór hluti Visa reikningsins var bjór).
Ég gróf því undrið upp úr skúffu og settist með hana við eldhúsborðið, með bjór í annarri og penna í hinni.
Hún var batteríislaus.
System of a Down - Kill Bill
Ritað þann: 07. júní 2005
Efnisflokkar: kvikmyndir tónlist
Búinn að vera að hlusta á nýja System of a Down diskinn undanfarið, Mezmerize. Hann er tussugóður og passlega langur.
Í gær horfði ég á Kill Bill Vol. 2. Hún er tussugóð en alls ekki passlega löng.
Uma er hinsvegar æði og það var æðislegt atriðið þegar hún plokkaði augað úr vondu kellingunni.
...
- grettir :: áts.
Neyðist til að fara í Bónus á eftir. Eina sem var í skápnum í morgun var bjór og hálf gúrka. Maður lifir ekki á bjórnum einum saman og gúrkur eru ekkert nema vatn.
Nema pólitíkusar gúrkur. Þeir eru vatn og smá grá hár.
Sjóstangveiði
Ritað þann: 06. júní 2005
Efnisflokkar: bjór vinnan
Óvissuferðin á föstudaginn endaði úti á miðjum Faxaflóa með stöng í annarri og bjór í hinni. Ég er ekki mikill sjóari og er illt í öðrum hælnum eftir að hafa stigið ölduna vel við skál.
Hællinn á mér er því hálfgerður skíthæll í dag. En ég veiddi þrjá þorska og brögðuðust þeir prýðilega.
Eftir ferðina fórum við í bæinn og þræddum barina í kringum Austurvöll. Thorvaldsen menn voru nú ekki á því að hleypa okkur inn í strigaskóm og fengu þeir því fokk merki, enda tómir skíthælar og hersingin skundaði á Sálarball á Nasa.
...
- grettir ::
svona var svo laugardagskvöldið í miðjunni við mikinn fögnuð minn og majue eða þannig
Framkvæmdagleði
Ritað þann: 04. júní 2005
Efnisflokkar: djamm fyndið
Meira sem þessir grannar eru duglegir að saga í dag. Það eru vélsagir búnar að vera í gangi báðum megin við mig frá því á hádegi.
Vita þeir ekki að það er fyrsti í þynnku?
Jæja, á eftir verður farið í aðra óvissuferðina á innan við mánuði. Það er prýðilegt. Nú er það fyrirtækið sem blæðir, sú fyrri var á vegum starfsmannafélagsins.
Í fyrra fórum við í Borgarfjörðinn, á fjórhjól, í leiki og grill þar sem við átum lamba fillé þar til við gátum ekki staðið upp. Verður gaman að sjá hvernig það verður toppað.
Ég held ég verði að mæla með Pústþjónustunni Fjöðrinni í Skeifunni. Fór með bílinn þangað í gær að láta skipta um kút svo ég vekji nú ekki alla í hverfinu á morgnanna (já, það eru einhverjir ennþá sofandi þegar ég fer, ótrúlegt en satt).
Vinna+efni 5700 kr. Og á meðan ég beið, þá kom kona að sækja bílinn sinn sem þurfti ekki að borga neitt, því það var svo lítið gat á pústinu að það tók því ekki að rukka fyrir það.
Maður fer aftur þarna, það er á hreinu.
Hjólið góða
Ritað þann: 02. júní 2005
Efnisflokkar: íþróttir
Hjólaði í vinnuna áðan úr Faxafeninu. Þvílík steik er úti. Hefði betur hjólað í Nauthólsvíkina og skoðað stelpur.
...
- grettir :: Ártúnsbrekkan var auðveldari en um daginn
Í dag á að smella myndum af okkur hérna í vinnunni fyrir nýja fancy smancy starfsmannapassa.
Auðvitað vaknaði ég með bólu á enninu.