1 til 6 af 6
Menningarmunur á skjálftaviðbrögðum
Ritað þann: 30. maí 2008
Efnisflokkar: fréttir
Ég var að vinna fyrir viðskiptavin í gær þegar jörð byrjaði að skjálfa. Þessi viðskiptavinur er með mikið af erlendum verktökum í vinnu, indverskum að stórum hluta.
Indverjarnir brugðust hárrétt við - við sáum undir iljarnar á þeim út úr byggingunni, enda vita þeir ekki að íslenskar byggingar eru með svo mikið af steypustyrktarjárni að þær hafa eigið segulsvið og aðdráttarafl. Þess vegna er allt þetta fólk á sporbaug um Kringluna og Smáralind.
Íslendingarnir fóru á mbl.is, visir.is og vedur.is
Símaskráin komin út
Ritað þann: 29. maí 2008
Efnisflokkar: kjánalegt netið
Símaskráin 2008 er komin út, enda ekki seinna vænna. Árið að verða hálfnað.
„Óhætt er að segja að Símaskráin sé útbreiddasta og mest notaða bókin á Íslandi – en samkvæmt könnun Capacent Gallup frá því í september sl. nota 86,3% landsmanna Símaskrána,“ segir í tilkynningu frá Já.
Símaskráin er mest notaða bók á Íslandi og Spaugstofan vinsælasti þátturinn. Hver er eiginlega meðalaldur svarenda í Gallup könnunum?
Hamborgarar
Ritað þann: 29. maí 2008
Efnisflokkar: matur vinnan
Í fyrrakvöld ákváðum við að vera löt í eldhúsinu og keyptum okkur hamborgara í Nóatúni.
Í gær fórum við út í Viðey í starfsmannagrill með vinnufélögum hennar Margrétar. Þar voru grillaðir hamborgarar.
Í hádeginu verður grillað í vinnunni minni. Síðast þegar var grillað voru það hamborgarar.
Í næstu viku þegar við verðum löt í eldhúsinu ætla ég að elda nautapiparsteik með pönnusteiktum humri, rauðvíni og hvítlauksbrauði.
Mistök í starfi lögreglumanns
Ritað þann: 28. maí 2008
Efnisflokkar: fimmaurar fréttir
Í gær birtist myndband á netinu sem sýnir lögreglumann veita viðskiptavini 10/11 föðurlega áminningu að hætti Hómer Simpson.
Sjá
frétt hér á vísir.is
Lögreglumaðurinn gerir greinileg mistök í starfi, því hann gleymir algerlega að hrópa "hálstak, hálstak, hálstak!" til að vara meintan afbrotamann við því sem koma skal.
Gasmaðurinn hefur greinilega fylgst betur með í tímum.
Ég þreif pallinn í gær og alveg óvart baðherbergið líka, því slangan losnaði aðeins úr plasthulsunni sem er skrúfuð á blöndunartækin og bunan stóð í allar áttir.
Heppilegt að dýrmætu vatnslitamálverkin okkar eru ekki geymd á baðinu.
.. vefurinn risinn úr öskustónni? Eða steypurykinu öllu heldur.
Ég er búinn að útbúa server horn heima, undir stiganum í geymslunni. Tengja almennilega símalínurnar, leggja rafmagn í stokk (miðað við verktíma mætti halda að ég hefði lagt Miklubrautina í stokk), steypa nýtt gólf, flísaleggja og parketleggja geymsluna.
Nú er serverinn í góðum málum.
Margt hefur gerst undanfarinn mánuð. Ég átti til dæmis afmæli þann 19. Þá var sungið:
Grettir á afmæli, hann á afmæli, hann á afmæli og það er í dag.
Við dustuðum rykin af reiðhjólunum, enda fékk drengurinn nýtt reiðhjól í afmælisgjöf þann 30. apríl. Nú nýtum við hvert tækifæri til hjólreiða. Ég fór meira að segja hljólandi út í Nóatún í gær með dóttur mína í stól aftan á. Ég er að leggja mitt af mörkum í olíusparnaði
Um miðjan mánuð missti ég vinnuna, ef svo má segja, en ég er búinn að vera starfandi sem verktaki hjá Glitni um skeið og eins og alþjóð veit er kominn stjóri úr frystihúsageiranum til Glitnis. Í frystihúsageiranum hengja menn upp miða í kaffistofunni þar sem starfsfólki er sagt upp vegna hráefnisskorts.
Á fjármálamörkuðum er hráefnisskortur.
Ég er því kominn í önnur verkefni, ný og gömul.
Já, svo var brotist inn hjá okkur í gær. Eða það höldum við. Það var engu stolið, sem er frekar grunsamlegt, en kerfið fór í gang, öryggisvörður mætti á staðinn og kom að opnum glugga og allt úr glugganum var á gólfinu.
Við héldum að þar hefði verið á ferð köttur, en skófar á sófanum benti til að einhver hefði stigið þar niður. Kannski var það bara öryggisvörðurinn sem steig í sófann til að loka.
Vörðurinn sagðist líka hafa læst svaladyrunum; við héldum því að þjófurinn hefði rokið þar út þegar kerfið fór í gang, en það má vel ver að ég hafi kviklæst henni þegar ég tók kerruna út um morguninn.
En engu var stolið og hvort sem þetta var köttur eða melur, þá erum við í það minnsta búin að uppfæra öll gluggajárn og hengjur og fögnum því að vera með öryggiskerfi.