1 til 12 af 12

Full vinna nálgast

Ritað þann:    30. maí 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  vinnan  

Ég er búinn að hafa það ansi fínt undanfarna mánuði, vinnandi hálfan daginn og knúsandi nýju dóttur mína hinn helminginn. En öll gleði tekur enda fyrr en síðar. Þann 1. júní byrja ég að vinna fulla vinnu. Þá tekur alvara lífsins við eins og einhver orðaði það.

Það styttist sem betur fer í sumarfrí :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. júní 2007 ( Elsa Rut ) [H]
Heyrðu, afsakaðu en ég er búin að vera að googla harrý og Heimi og þín síða kom oft upp, mig langar til að vita hvort þú búir svo vel að eiga þætti 12, 33 og 34 í 40þátta seríunni um þá félaga... :)


 04. júní 2007 ( - grettir ) [H]
Nei, því miður. Ég á bara þættina 13 úr fyrri seríunni sem var gerð :-)


 05. júní 2007 ( Hermann ) [H]
ég á þátt númer 12 en ekki 33 og 34


Smiðurinn ég

Ritað þann:    24. maí 2007
Efnisflokkar:  bjór  fjölskyldan  líðandi stund  

Ég hef komið sjálfum mér á óvart undanfarna daga. Pallurinn er að verða tilbúinn og ég hef sveiflað hamri eins og vindurinn. Við tókum general prufu í gær og grilluðum á þeim helming sem er kominn með gólf.

Í fyrradag mokaði ég moldarhaugnum í trjábeðin með hjólbörur og minigröfu að vopni. Ég fékk aðstoð seinnipartinn þegar pabbi og Axel bróðir mættu á svæðið, hreinsuðu upp restina og fjarlægðu gröfuna úr garðinum.

Eina sem á eftir að gera í hreinsunarstörfum nú er að fjarlægja afgangstimbur og trjábolinn sem þurfti að moka í burtu. Hann er á stærð við fólksvagn. Ég brytja hann niður í rólegheitunum.

Aukaverkanir af svona dugnaði eru harðsperrur frá nefi og niðurúr, blöðrur á öllum fingrum og mold undir nöglum.

Þegar ég stend á tilbúnum pallinum, með bjór í annarri og grilltöng í hinni þá verður þetta allt þess virði. Þá horfi ég á pallinn minn en ekki pallinn sem ég fékk þrjá smiði til að smíða fyrir mig.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. maí 2007 ( von ölves ) [H]
það er eitthvað svo karlmannlegt að byggja pall... fáum við ekki mynd af þér á nýja pallinum með bjór og grilltöng?


 29. maí 2007 ( Konan og börnin ) [H]
Hann er svaka kall ;-D


 30. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Auðvitað fáið þið myndir.. ég þarf svo að bjóða í bjór í kvöldsólinni við tækifæri.


Afmælisdrengurinn ég

Ritað þann:    19. maí 2007
Efnisflokkar:  bílar  ég  tæki  

Ég á afmæli í dag. Flestir sem ná svo hárri elli sem ég finnst ekki skemmtilegt að halda upp á daginn. Halda honum jafnvel leyndum.

Ekki ég. Og ég á bestu konu í öllum heiminum. Hún gaf mér nokkuð sem mig hefur dreymt um frá því ég var lítinn drengur. Hún gaf mér fjarstýrðan bensínbíl í afmælisgjöf!

Þetta er nýji bíllinn. Blár eins og BMW-inn.

Þetta tefur pallasmíðina um einhverjar vikur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. maí 2007 ( von ölves ) [H]
til hamingju með afmælið í gær. ég sendi þér reyndar sms í gær en nú óska ég þér til hamingju með nýja bílinn líka...


 21. maí 2007 ( Una ) [H]
Til lukku með daginn :)


 21. maí 2007 ( Konan og börnin ) [H]
Allt fyrir þig :-D


 22. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


 23. maí 2007 ( Hjalti ) [H]
Til hamingju með daginn og bílinn kallinn minn... Ég fæ kannski að kíkja í kaffi á morgun og prufa bílinn ;)


 24. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Ekki málið..


Úrkynjun

Ritað þann:    17. maí 2007
Efnisflokkar:  fyndið  

Ég er að horfa á Barnyard teiknimyndina og sé að þar eru nautin með júgur. Þetta er væntanlega til að koma í veg fyrir að amerískir foreldrar þurfi að svara erfiðum spurningum varðandi muninn á kynjunum - ekki mega stúlkubörn til dæmis vera ber að ofan á ströndum Flórída.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sigurvegarar - Lúserar

Ritað þann:    13. maí 2007
Efnisflokkar:  pólitík  

Mér þykja það einkennileg rök Vinstri Grænna að þeir séu sigurvegarar kosninganna og því eigi þeir meiri rétt á því en Samfylking að vera í ríkisstjórn. "Sigurvegarar" því þeir bættu við sig fjórum mönnum.

Þeir eru þrátt fyrir þessa fjóra menn helmingi færri á þingi en Samfylking og eiga því ekki rétt á setu í ríkisstjórn frekar en ég.

Ef einhver ræki stjórnmálaflokk með einum þingmanni og bætti við sig einum til viðbótar þá er það helmings aukning og sá flokkur því "sigurvegari" á mælikvarða Vinstri Grænna. Sá flokkur hefði því væntanlega umboð til myndunar ríkisstjórnar með sömu rökum?

Þetta hljómar eins og Framsóknarflokks rökfærsla.

Framsóknarflokkur er því miður enn inni á þingi. Það þýðir að hann kemur til með að útdeila þægilegum stöðum til sinna manna og kvenna næstu fjögur árin.
Hvaðan kom til dæmis þessi Jón Sigurðsson formaður flokksins? Ekki minnist ég þess að hann hafi verið í framboði 2003. Æjá, alveg rétt... hann var hirtur upp af ruslahaugunum inni í Seðlabanka til að taka við formennsku af Halldóri, því engum sitjandi þingmanni flokksins var treyst til formennsku.

Því miður tókst ekki að útrýma þessum anskotans flokk og þeir virðast ekki skilja að kjósendur voru að senda þeim skýr skilaboð. Tala bara um endurskipulagningu og nýja stefnu og einhvern þvætting. Þeir ættu kannski að endurskoða landbúnaðarstefnuna og spillinguna innan flokksins. Ekki það að ég muni nokkurn tíma skipta um skoðun á þessum flokki.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn gengur enn einu sinni í sæng með þessari úreltu spilltu flokksómynd þá er ekki víst að þeir fái eins góða kosningu næst.

Hvenær ætlar svo Samfylkingin að átta sig á því að Össur er Samfylkingin og Ingibjörg er Kvennalistinn? Ég þekki fullt af fólki sem getur ekki hugsað sér að kjósa S því Ingibjörg er forsætisráðherraefni Samfylkingar.
Össur er hinsvegar bráðskemmtilegur og vill ganga í ESB. Það er eitthvað sem ég er til í að styðja.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. maí 2007 ( von ölves ) [H]
ég vona þá að þú hafir stutt össur... ég gerði það!


 14. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Auðvitað. Enginn annar boðlegur í Rvk-Norður.


 14. maí 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Flestir af þeim segjast ekki kjósa Samf. vegna Imbu eru Sjálfstæðismenn og það breytir engu hvort hún væri við stjórnvölin eða ekki þeir myndu finna sér aðra ástæðu til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn...
Uppistaðan af þeim sem þola ekki Imbu eru Sjallar sem þola ekki stjórnmálamenn sem sigra þá, hjá flestum þeim sömu er Ólafur Ragnar mjög ofarlega á óvinsældalistanum...


 15. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Góður punktur..


 15. maí 2007 ( majae ) [H]
ég er nú ekki sammála þessum "góða punkti". mér finnst ingibjörg sólrún eitt þreyttasta mannsefnið í íslenskri pólitík.

"Uppistaðan af þeim sem þola ekki Imbu eru Sjallar sem þola ekki stjórnmálamenn sem sigra þá" ... já hún ingibjörg er sigurvegari ... ef þetta er ekki tuskan sem þurfti á smettið hjá frúnni þá veit ég ekki hvað - er engin fylgni milli þess að forsætisráðherraefni samfylkingarmanna er hún og þess að fylgi flokksins var eins og kosningarnar gáfu til kynna ?

Reyndar er ég líka ósammála þvía ð sjálfstæðismenn þurfi að finna sér ástæður til að kjósa ekki samfylkinguna. Mér finnst það bara common sense að kjósa hana ekki.


 15. maí 2007 ( Óli Fly ) [H]
"Flestir af þeim segjast ekki kjósa Samf. vegna Imbu eru Sjálfstæðismenn"

Ertu einhversstaðar með eitthvað sem styður þetta? Skoðanakönnun, tölur eða eitthva álíka?

"Uppistaðan af þeim sem þola ekki Imbu eru Sjallar sem þola ekki stjórnmálamenn sem sigra þá"

Aftur, hvaðan hefurðu upplýsingar um þetta? Allt í lagi að halda þessu fram sem skoðun sinni, en að slengja þessu fram sem einhverjum sannleik án nokkurs til að styðja >skoðun< þína er hálfkjánalegt ;)

Mín >skoðun< er sú að mikið af þeim sem myndu aldrei kjós samf. vegna Imbu er fólk sem man eftir "Ég er sko ekki á leið í landspólítíkina" ræðunni sem hún hélt fyrir nokkrum árum áður en hún var endurkjörinn borgarstjóri ;)


 16. maí 2007 ( Uxinn ) [H]
Það verður að banna Ingvari að birta sínar skoðanir á lýðnetinu....hann gerir allt BRJÁLAÐ!!!! p.s. er hægt að rökstyðja eitthvað í pólitíkinni, er þetta ekki allts saman "mambó jambó"


 16. maí 2007 ( Anna Júl ) [H]
Ég myndi nú ráðleggja þessu fólki að vera ekkert að rökræða við hann Ingvar :)


 17. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Voðalega er fólk með heitar tilfinningar til þessa anskotans Sjálfstæðisflokks.
Fyrir mér var útilokað að kjósa flokkinn sem lofar stöðugleika og heldur sem fastast í ástæður óstöðuleikans - íslensku krónuna, úrelt landbúnaðarkerfi, Framsóknarflokkinn og neitar að ganga í ESB.
Ég get seint kallað 14.5% stýrivexti og hærri verðbólgu en tíðkast í hinum siðmenntaða heimi stöðugleika. Og svo kom hann á ósanngjarnasta fiskveiðikerfi í heimi til að tryggja sér og sínum réttinn til fiskveiða við Ísland að eilífu.. ekki næstu 10 árin eða 100 árin. Nei.. AÐ EILÍFU. Þangað til einhver tekur sig til og kýs einhvern annan til að stjórna.

Hlustið á mig.. aldrei AÐ EILÍFU mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur. Og aftur segi ég því ég alltaf gert það þar til nú.


 18. maí 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Hmm.... Það er ótrúlegt hvað Imba nær að vekja upp heitar tilfinngar. Engin tölfræði eða skoðanakönnun á bak við þetta bara 'gut feeling' eftir samtöl við fólk sem ég þekki og ég þekki gríðarmarga Sjálfstæðismenn.
Það er sérstaklega íhaldsklúbburinn í D sem hatar Imbu, armurinn hans Davíðs og Bíbí. Geirsarmurinn er mun hófsamari og sér þá gríðarlegu framtíðar möguleika sem felast í samstarfi D og S eða Geirs og Imbu. Hinir vilja frekar fara í íhaldsstjórn allra íhaldsstjórna með VG, pælið í því!


 18. maí 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Ég er alveg sammála þér Grettir... Þetta eru svona 'common sense' mál eins og með ESB, ísl. krónuna. og tala nú ekki um landbúnaðarkerfið sem er það steiktasta í heiminum í dag. Við sláum út Sviss og rústum ESB í keppninni 'heimskulegasta landsbúnaðarkerfi í heimi'.
Stjórn D og S er eina stjórnin sem er líkleg til að brjóta niður þetta landbúnaðarkerfi ekki munu kommúnistarnir í VG gera það eða framsókn...


Bloc Party

Ritað þann:    11. maí 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Nýjasti Bloc Party diskurinn er góður.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. maí 2007 ( von ölves ) [H]
það finnst mér líka... ekkert síðri en fyrsti diskurinn þeirra þó hann sé svolítið þungmeltari...


 12. maí 2007 ( Hjalti ) [H]
Betri og betri við hverja spilun


Rokkið

Ritað þann:    11. maí 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Ég rak nefið inn fyrir svaladyrnar til að sjá Eirík taka lagið í Júróvisjón en hélt svo áfram við pallasmíðina. Ég get ekki sagt að ég missi svefn yfir því þó við dögum uppi í þessari undankeppni.

Því fyrr sem við áttum okkur á því að við erum aldrei að fara að taka þátt aftur í "alvöru" keppninni, því fyrr verða sett lög um að dagurinn eftir undankeppnina skuli vera frídagur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Pallasmíði hafin

Ritað þann:    08. maí 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  tæki  

Ég fékk gröfu í garðinn minn í gær og byrjaði að jafna hólinn við húsið fyrir pallasmíðinni. Að moka með svona gröfu rifjar upp fyrir manni gamla góða tíma af leikskólanum.

Pallurinn verður 25 fermetrar svo það ætti að vera hægt að grilla pulsur.

Þetta verður splendid.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. maí 2007 ( von ölves ) [H]
kveiktu upp í grillinu og opnaðu bjórinn... ég er að koma með pulsurnar.


 09. maí 2007 ( Ægir pípari ) [H]
segðu mér að þú hafir ekki leigt gröfuna og ef svo skamm skamm
og svo fyrst að þú ert að æfa þig þá vantar mér að klára minn pall fyrir klukkan 7 á laug. ertu maður? eða ertu kannski byrjaður á þínum og þá er minn nú ekki mikið mál fyrir vanan mann.


 10. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Grannarnir eru eflaust alveg hissa á því hversu lengi grafan fær að vera í garðinum þó ég sé búinn að grafa í bili. Halda eflaust að ég skeini mér á þúsundköllum.

Nei, litli bróðir minn (sem er stærri en ég) á þessa gröfu og ég gef honum að borða í staðinn :-)

Næsta mál á dagskrá er að losna við trjábol úr veginum. Ég leigi mér keðjusög í það verkefni.


Hringingar frá flokknum

Ritað þann:    05. maí 2007
Efnisflokkar:  nöldur  pólitík  

Þegar ég var ungur (og vitlaus) skráði ég mig í Sjálfstæðisflokkinn. Reglulega fæ ég greiðsluseðla senda fyrir félagsgjöldum sem enda að sjálfsögðu í ruslinu, því ég hef snúið baki við þeim félagsskap spillingar og valdhroka.

Nú hringdi í mig einhver kona frá kosningaskrifstofunni og "var að kanna hljóðið í okkar fólki".
Ég sagði henni að ég væri ekki lengur "þeirra fólk". Það kemur svo í ljós fyrir borgarstjórnarkosningarnar hvort skilaboðin berast.

Ekki ætla ég að skrá mig í annan flokk, heldur hef ég ákveðið að gerast flokkshóra og kjósa það sem hentar mér hverju sinni. Fyrir nokkrum misserum var ég einstæður piparsveinn sem gerði lítið annað en að borga til ríkisins. Þá hentaði mér að "vera þeirra fólk".
Nú á ég tvö börn og vil fá eins miklar barna- og vaxtabætur og fjármálaráðherra getur borið í mig. Þá hentar mér ekki að vera í flokki sem sker niður allan slíkan munað.

Ekki það að ég væri alveg til í að sleppa barnabótunum og sleppa þá tekjuskattinum í staðinn! Eða fá hann í 10% eins og fjármagnstekjuskattinn. Hvernig væri það?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nokia eru góðar græjur

Ritað þann:    05. maí 2007
Efnisflokkar:  fyndið  tæki  

Ég tæmdi þvottakörfuna í þvottavélina áðan og gamla Nokia 7250 símanum mínum með.

Úr þvottavélinni kom tandurhreinn síminn, betri en nokkru sinni. Ég hef því slegið símakaupum á frest.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. maí 2007 ( von ölves ) [H]
af þessari og sambærilegum sögum að dæma mætti halda að það væri til mikilla bóta að þvo þessa síma reglulega.


 07. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Mikilla bóta. Það eru öll símtöl eitthvað svo hrein eftir þetta.


 07. maí 2007 ( von ölves ) [H]
no dirty calls!


Domain vandræði

Ritað þann:    04. maí 2007
Efnisflokkar:  nördadót  

Ég gleymdi að endurnýja grettir.net og ekki í fyrsta sinn. Þannig er að grettir.net sést alltaf heima hjá mér og ég veit ekki af því að það er útrunnið fyrr en einhver lesandi bendir mér á það.

Í hin skiptin hef ég tekið eftir því nógu snemma, en nú er domain-ið horfið út af accountinum hjá dotster.com og ég get ekki endurnýjað.

Ég opnaði eldgamalt póstfang sem ég nota ekki lengur og þar - innan um sprilljón spam pósta voru reminders um að nú væri kominn tími til að endurnýja.

Nú er ég semsagt bara að blaðra út í loftið. Enginn kemur til með að lesa þetta. Ég gæti verið að skrifa þetta nakinn og enginn kæmist að því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. maí 2007 ( - grettir ) [H]
Well, þetta fór vel. Ég sendi póst á hjálpina hjá þeim og þeir skráðu mig fyrir domain-inu strax og bentu mér á að endurnýja "at your earliest convenience" :-)

Góð þjónusta þarna hjá dotster.com

Ég loggaði mig því inn og endurnýjaði hið snarasta.


Ummæli þjóðernissinna bíta hann í rassinn

Ritað þann:    01. maí 2007
Efnisflokkar:  fyndið  

Hnakkus segir stórskemmtilega frá.

Mjög vont karma sem fylgir svona þjóðarrembingi verð ég að segja.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..