1 til 10 af 10
Við hefðum átt að gera meira grín að því þegar Bush varð forseti með minnihluta atkvæða. Nú situr "meirihlutinn" í Reykjavík með minnihluta atkvæða.
Hressandi það.
Áhugavert að sjá í fréttum í gær þegar farið var út á götu og fólk spurt álits á nýrri borgarstjórn að flestir voru frekar ósáttir við þetta - enda ekki skrýtið - engir alvöru hægri menn láta sjá sig undir beru lofti, heldur sitja inni í bíl og bölva því að það séu ekki mislæg gatnamót á hverju horni.
Ég hef verið hægri maður frá því ég var brund, en ég hefði viljað sjá Dag sem Bastían bæjarfógeta. Það er kannski af því að það er hægri stjórn í landinu. Kannski af því að forsætisráðherrann kemur úr minnsta flokki landsins. Kannski af því að í sömu viku og síðustu alþingiskosningar kláruðust, þá kom stjórnin með eftirlaunafrumvarpið góða. Kannski af því að menn rifu kjaft þegar fólk hvatti forsetann til að beita neitunarvaldi, eins og hann réði einhverju. Kannski af því að menn í hægri flokkunum vilja stofna her, eins og við höfum ekkert annað við peningana að gera. Kannski af því að menn koma sér þægilega fyrir í starfi á vegum ríkisins þegar þeir hafa unnið nægilega lengi til að ná fullum lífeyrisréttindum samkvæmt nýja frumvarpinu. Kannski af því að menn þykjast vera hægri menn og byggja upp þannig kerfi en verða svo fúlir þegar fyrirtæki fara að græða peninga samkvæmt sama kerfi og hætta viðskiptum við fyrirtækið - opinberlega - með skítkast. Kannski af því að mönnum dettur ekkert annað í hug en að byggja álver til að byggja upp atvinnuveginn og framleiða skítódýrt ál sem tekur því ekki að endurvinna og er því urðað af kaupendum.
Kannski er ég bara kominn með Sjálfstæðisflokks ógleði.
Í bílaleigubílnum okkar er Navigation kerfi sem kaninn hefur kosið að kalla NeverLost. Eftir gærkvöldið hef ég kosið að kalla það "Get Lost". Var að reyna að finna seven eleven sem einn hélt að væri á hverju götuhorni, en sú er ekki reyndin. Eftir að kerfið hafði þvælt okkur hálfa leið til Washington í leit að bjórkippu, þá var stefnan tekin heim á hótel.
Evrópan er betri.
Er í landi skyndibitana. Lenti í gær og tollarinn spyr mig: "Got any food items?"
Afhverju ætti maður að reyna að smygla mat til Bandaríkjana? Það væri eins og reyna að smygla álveri til Íslands.
Jæja, þá á maður afmæli enn eina ferðina. Gaman að því.
Horfði á Júróvisjón í hótel lobbíinu í gær. Silvía var töff. Ég hélt ég myndi missa þvag úr hlátri þegar hommi og nammi rifu af sér buxurnar og hoppuðu á annarri löpp.
Hommunum í salnum fannst þetta ekki fyndið og reyndu að púa hærra en listaelítan. Það fannst mér dónalegt. Pú á þá.
English breakfast
Ritað þann: 16. maí 2006
Efnisflokkar: ferðalög matur
Enskur morgunverður er ekki að gera góða hluti. Sat á postulíninu í góða stund í morgun og skilaði draslinu. Held ég fái mér bara jógúrt og kellogs í fyrramálið.
Fer til London á mánudag - verð þar með kennslu og fleira fyrir notendur á kerfinu mínu góða. Fer svo þaðan til Köben á miðvikudag í sama tilgangi. Það verður hressandi að komast aðeins út.
Kannski maður nái að versla eitthvað sumarlegt fyrir konuna og barnið. Hver veit.
Ég hjólaði í vinnuna í morgun. Þetta voru rúmir 11 kílómetrar og ég var vel sveittur eftir átökin. Hlustaði á Guano Apes í iPodinum mínum á leiðinni og var glæsilegur í alla staði.
Kannski verðum við ofar í
keppninni í ár.
Lykilorðið mitt rennur út á þriggja mánaða fresti hérna í vinnunni. Lykilorðið í einkabankanum er komið í sama farveg.
Það er trend hérna á klakanum að gefa upp kennitölur við hin ýmsu tækifæri. Þær renna aldrei út. Ef maður skráir sig á einhverjar vefsíður til að versla þá heimta fyrirtæki allskonar upplýsingar um mann.
Þessi frétt á Guardian sýnir svo ekki er um villst að söfnun persónuupplýsinga er kominn út í algeran öfgar.
Hvenær kemur að því að kennitalan eða jafnvel nafnið manns "rennur út"?
Stærsta persónunjósnafyrirtæki landsins var að senda mér gíróseðil vegna litasjónvarps. Gaman þætti mér að vita hvernig þeir komust yfir þær upplýsingar. Ekki hef ég keypt neitt slíkt.
Ég er að fara á
Rock Werchter í sumar.
Loks fæ ég að sjá Red hot chili peppers á sviði. Það er kominn tími til.