1 til 23 af 23

Helvítis læti

Ritað þann:    31. maí 2005
Efnisflokkar:  nöldur  vinnan  

Djöfull væri hressandi að fara út með kúbein og reka í hausinn á þessum vörubílstjóra asna sem er búinn að vera með bílinn í gangi hérna fyrir utan í rúman klukkara.

...
- grettir :: það nötrar allt og skelfur hérna

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. maí 2005 ( majae ) [H]
ha hvar ?


 31. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Fyrir utan vinnuna.. kíktirðu út heima? :D


 31. maí 2005 ( majae ) [H]
ofheyrnir held ég ;)


Hard Rock

Ritað þann:    30. maí 2005
Efnisflokkar:  matur  neytendur  

Mér finnst sorglegt að Hard Rock sé að loka. Ég á eftir að sakna Grísasamlokunnar.

Ætli þeim hafi ekkert dottið í hug að slá aðeins af 3000% álagningunni til að fá fólk inn í mat? Maður fór aldrei þarna nema á tyllidögum vegna fáránlega hárrar verðlagningar.

...
- grettir :: nei, það má ekki lækka! Hver borgari verður að skila 30 földu tilbaka.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. maí 2005 ( von ölves ) [H]
ég var einmitt að hugsa það sama.


 31. maí 2005 ( BorgaraÖnd ) [H]
Það er Íslenska aðferðin selja 1 stykki með 1000 falldri álagningu


 31. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Akkúrat. Í staðinn fyrir að selja 100 stykki með tífaldri. Sá einhvern gaur tala um þetta í fréttunum í gær. Hann sagði að svona staðir virkuðu ekkert vel inni í verslunarmiðstöðvum. Yeah right.
En Hard Rock er ekkert eini staðurinn í Kringlunni sem hagar sér svona. Það kostar handlegg og fótlegg að fá sér kaffibolla og snúð á kaffihúsunum þarna.


Ferðalög yfirvofandi

Ritað þann:    27. maí 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  vinnan  

Ég er á leiðinni á rokk hátíð í Belgíu næstu mánaðarmót eins og ég var búinn að grobba mig af, en nú var að koma upp ferð til Hollands í júlí á einhverja tölvunördaráðstefnu, sem verður prýðilegt.

Óstaðfest er svo fimm vikna vinnureisa næsta haust til Bandaríkjanna, London, París, Þýskalands og Danmerkur, vika á hverjum stað.

...
- grettir :: I love my job..



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. maí 2005 ( sjérann ) [H]
wanker...


 30. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, I know!


 31. maí 2005 ( von ölves ) [H]
heyrðu já... ég er með miðann þinn á rw... hann er semsagt kominn sko :)


 31. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Það er svalt! Verðum við ekki að taka upphitun einhverja helgina?


 01. júní 2005 ( von ölves ) [H]
sem sannir sjómenn höldum við upphitun um næstu helgi!


 01. júní 2005 ( - grettir ) [H]
Ég er að fara á vinnu fyllerí um næstu helgi, enn ein óvissuferðin. Hver veit nema við endum í koddaslag á einhverri hátíðinni :D


Svalasti hlutur í heimi

Ritað þann:    27. maí 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  nördadót  pólitík  

Fékk rosalegt þjófavarnarkerfi í afmælisgjöf frá systkinum mínum og mági. Innbyggt fjarstart sem dregur upp á Akranes, fjarstýringin er með skjá með mynd af bílnum, lætur mig vita ef einhver er að fikta og ég veit ekki hvað og hvað.

Þetta var sett í bílinn í gær og ég hjólaði því í vinnuna úr Síðumúlanum. Ég verð nú að segja að ég horfi öðrum augum á þessa fjandans Ártúnsbrekku eftir þá þolraun. Þetta er ekkert smá brött brekka þegar maður er á hjóli með laptop töskuna á hliðinni.




Samkvæmt ríki mínu á vefnum er ég afbragðs stjórnandi:
Crime is totally unknown.
Tax rate is 20%
Tiny government devotes most of its attentions to Education
Civil rights excellent
Political freedoms excellent
Economy thriving

Hver segir svo að menn þurfi annað hvort að styðja fyrirtækin eða litla manninn? Og hver þarf álver?

...
- grettir :: má ekki nota rafmagnið í eitthvað annað? Til dæmis, búa til vetni og selja útlendingum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. maí 2005 ( von ölves ) [H]
gretti á þing!!!


 27. maí 2005 ( majae ) [H]
jii hvað það verður nú hressandi þegar þetta fer að íla á nóttunni :P


 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Ég held ég yrði afbragð á þingi. Annars var ég nú meira að spá í forsetaembættinu. Ég held að Ísland kæmist í heimsfréttirnar fyrir að vera úber svalt land með ungan og hressan forseta eins og mig!

Hehe, já stekkur þú ekki út með kökukeflið og buffar hvern þann sem setur þetta í gang?


 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Og þetta svínvirkar. Einhverjir krakkaormar voru að dúndra boltanum í bílinn og allt fór á fullt :D


American Idol

Ritað þann:    26. maí 2005
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Djöfuls fokk að taka heilt dagskrárkvöld undir þetta drepleiðinlega Idol crap.

...
- grettir :: búúhú

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. maí 2005 ( sjérann ) [H]
gráttu eigi.. ''mæl hæ'' fer að byrja...


 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, það voru sem sagt fleiri en ég sem leituðu á náðir internetsins í gærkvöldi :D


 27. maí 2005 ( von ölves ) [H]
feginn er ég að vera ekki með þetta drepleiðinlega stöð tvö crap!


 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
En digital Ísland er úber kúl!


 27. maí 2005 ( von ölves ) [H]
þegar ég kem í grill og afmælisafganga gefst þér kostur á að sannfæra mig...


 27. maí 2005 ( majae ) [H]
ég er nú ennþá í fílu að bo hafi tapað.

Hvernig getur maður sem stígur á stokk með lynark skynard tapað fyrir barbídúkku ?

bölvaðir ameríkanar


 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Lyn who? :D


 27. maí 2005 ( majae ) [H]
k=d lynard skynard = sweet home alabama.


 27. maí 2005 ( Halla ) [H]
Hvenær verður grill og afmælisafgangar? Ég er enn í fýlu yfir að hafa verið svona slöpp síðast!



 27. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Fólk er ætíð velkomið í kaffi til mín :-)


Lyf lyf lyf

Ritað þann:    25. maí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Bráðum verður hægt að fá lyf við öllu. Nú eru Kanarnir að hanna lyf gegn ótímabæru sáðláti.

...
- grettir :: er þetta ekki bara spurning um að æfa sig?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Star Wars

Ritað þann:    25. maí 2005
Efnisflokkar:  kvikmyndir  

Kíkti á Star Wars í gær. Fín ræma, þó ég sé nú enginn aðdáandi. Man ekki eftir að ég hafi séð númer tvö, en þessi var ágæt engu að síður.

Eitt sem ég fatta ekki. Hvað eru þessir Jedi gaurar að paufast með sverð í öllum bardögum? Miklu afkastameira að vera bara með almennilega vélbyssu.

...
- grettir :: Yoda uppáhalds kallinn, minn er

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. maí 2005 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Hey málið er að gera þetta með stíl ;)


 25. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta eru auðvitað kúl sverð, því verður ekki neitað :D


Afmælishelgi að baki

Ritað þann:    23. maí 2005
Efnisflokkar:  djamm  ég  

Það er óhætt að segja að afmælisveislan hafi verið vel heppnuð á föstudaginn. Ég allavega svaf til tæplega þrjú og hafði ekki orku í neitt djamm á laugardagskvöldið.

Einhver afföll urðu á gestum, einhverjir höfðu ekki fengið sms boðskort, en allflestir skiluðu sér þrátt fyrir það. Nú taka bara við vikuþrif, enda var íbúðin pakkfull út úr dyrum á tímabili. Sérdeilis prýðilegt það.

Reyndar var svo mikið rok rassgat að partítjaldið hékk ekki uppi nema í mesta lagi 15 mínútur. Fyrir næstu afmælisveislu verð ég búinn að byggja sólskála yfir meirihlutann af garðinum. Eða kaupa stærri íbúð.

En takk allir sem sáu sér fært að mæta, vona að allir hafi skemmt sér vel :-)

...
- grettir :: kominn í frí frá djammi, eina eða tvær helgar...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Endalokin nálgast

Ritað þann:    19. maí 2005
Efnisflokkar:  annáll  ég  

Hingað til hefur þetta bara verið eitthvað sem kemur fyrir annað fólk. En nú, kæru vinir, hef ég orðið fyrir barðinu á þessu líka.
Já, kallinn er bara orðinn þrítugur. *sniff*

Þegar ég var lítill, þá var ég að pæla í því hversu gamall ég yrði þegar árið 2000 gengi í garð og hugsaði með mér Vááá, maður.. ég verð tuttugu og fimm.
Svo sá ég fyrir mér tvöfaldan bílskúr við stórt einbýlishús, jeppa og vélsleða í innkeyrslunni, konu og þrjú börn.
Aldrei hugsaði ég til 2005. Hef líklega ályktað sem svo að enginn yrði svo gamall.

Mér finnst ekki svo langt síðan ég varð tvítugur, en ég man að það var með eindæmum skemmtilegt partí, en það hefur ansi margt gerst á þessum 10 árum. 1995 var varla til internet og gsm símar var eitthvað sem maður sá bara í framtíðarmyndum og þá á stærð við brauðrist.
Ég náði mér í BS próf í tölvunarfræði, var á föstu í samanlagt 5 ár, hef eignast flesta af mínum bestu vinum á þessu tímabili, leigði í tæp 5 ár, keypti mér loks íbúð og ekki má gleyma nýja reiðhjólinu. Fyrir rúmum tveimur árum keypti ég svo aftur bílinn sem ég átti þegar ég var tuttugu og eins. Ég náði að þyngjast um 20 kíló á síðustu 10 árum en náði þeim af mér aftur.

Kannski er ekkert svo slæmt að vera þrítugur. Mér líður allavega ekkert öðruvísi en í gær eða fyrir fimm árum. Held svei mér þá að ég sé meira að segja í betra formi heldur en fyrir 10 árum. Svo markmiðið er einfalt. Láta mér líða betur og skemmta mér betur næstu 10 ár heldur en síðustu 10. Munurinn á milli 20 og 30 annars vegar og 30 og 40 hinsvegar er sá að nú hefur maður efni á að gera það sem manni langar til svo því ekki að gera bara það sem mann langar til. Og ekki þarf að borða núðlur með því eins og þegar maður var rúmlega tvítugur, skítblankur á námslánum í leiguhúsnæði.

...
- grettir :: fertugsaldur, hér kem ég, hress sem aldrei fyrr

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. maí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
til hamingju með daginn "gamli"


 19. maí 2005 ( Ósk ) [H]
Veivei.. til hamingju með afmælið!! 30 is the new 20!!


 19. maí 2005 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Gott að vita að þetta er ekki alveg svartnætti og auðn þarna upp í 30 árunum ;)
Til lukku með daginn.


 19. maí 2005 ( Maggi Sæla 29 ára ) [H]
Til hamingju gamli


 19. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Takk öll :-)
Til að toppa daginn þá var lasagne í matinn, en eins og allir vita, þá er það uppáhaldsmatur kattarins Garfield, náfrænda míns, hehe.

Well, ég hugsa að ég hætti bara vinnu í dag, í tilefni dagsins og fari heim að fá mér bjór.


 19. maí 2005 ( Halla ) [H]
Til hamingju með daginn. Það rifjaðist einmitt upp fyrir mér að í dag eru sex ár síðan við drukkum öl saman í fyrsta sinn. Meðaltalið á ári er þó orðið ansi slappt.

Hvað holdarfar þitt varðar þá ertu miklu spengilegri í dag en á 24 ára afmælisdaginn!


 19. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Þakka þér fyrir það :-)
Það er líka eins og mig minni að ég eigi mynd af mér svona á hlið, drekkandi bjór á Spáni 2000. Þá var hálfur bjórkútur framan á mér! Nokkurs konar six-pack af tveggja lítra gosi.
Þessi mynd er tekin í Ríó í febrúar. Ansi sólbrenndur og hress.


 19. maí 2005 ( majae ) [H]
til hamingju gamli kall, kannski við getum bara stofnað úti bú frá grund ?



 19. maí 2005 ( gisill ) [H]
Já til hamingju med daginn. Èg er nú ordinn 31 og í mun betra formi. Upp ad 25 var madur svo upptekinn af ad vera fullur, á sjó eda keyra leigubíl svo madur átti engann sjens. Svo tók thad frá 25-30 ad jafna sig á ólifnadinum. Vid tøkum sprett á hlaupabrettinu næst thegar ég kem til Ìslands:)


 19. maí 2005 ( Ramage ) [H]
Til hamingju með daginn.
Lífið verður bara skemmtilegra eftir þrítugt!


 19. maí 2005 ( sjérann ) [H]
guð blessi þig á afmælisdaginn vinur, í ölfus nafni, halelúja.


 19. maí 2005 ( Jónína Guðrún ) [H]
Til hamingju með daginn Grettir, ég er alveg sammála þér, ég held að mér líði bara betur núna þegar við erum að komast á 30. aldurinn......Skemmtu þér vel í dag......


 19. maí 2005 ( Anna Júl ) [H]
Til lukku með 3og0. Enn langt í þetta hjá mér :)


 20. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D
Lagleg afmælisgjöf sem ég fékk frá Evrópu eða þannig. Henda Selmunni bara úr Júróvisjón! Hvað á þetta að þýða?


 20. maí 2005 ( Una ) [H]
Til lykke.


 21. maí 2005 ( Sandra Bj ) [H]
Sæll Grettir og til lukku með árin ÞRJÁTíU ;)


 22. maí 2005 ( Karl Ferdinand ) [H]
Hjartanlega til hamingju með 30 árin og þúsund þakkir fyrir frábært partý... Svona á að gera þetta.


 22. maí 2005 ( Birna ) [H]
TIL HAMINGJU MEÐ AMMILIÐ ... *feitt þrítugsknús* er ekki alltaf sagt að þrítugum er allt fært.... eða var það fertugum... segi þetta bara aftur þá;)


 22. maí 2005 ( ægir ) [H]
hei til hamingju með afmælið. sorry með tjaldið en ég er viss um að þetta takist í þriðju tilraun. og hvernig er það á ekki alltaf að vera svo gott veður þarna dántán? já og takk fyrir mig


 22. maí 2005 ( majae ) [H]
takk fyrir fínt party, ég bíð spennt eftir að þú safnir í annað lið til að taka tjaldið svo niður ;)


 23. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Takk öll :-)
Já þetta tjald var hálfgert klúður. Býst við að það fari beint í tunnuna bara.


 24. maí 2005 ( von ölves ) [H]
gríðarlegar hamingjuóskir gamli... erfitt að trúa því að 10 ár séu frá tvítugsafmælinu á setberginu... treysti því að þú hafir haft það gott á afmælisdaginn... þú varst amk hress þegar ég talaði við þig í síma þarna um nóttina :)


Óhappadagur

Ritað þann:    18. maí 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Föstudagurinn þrettándi var ekkert öðruvísi en aðrir dagar fyrir mér, en miðvikudagurinn 18. er nú meira prumpið. Nú er klukkan 09:01 og það sem hefur gerst er eftirfarandi:

Spilarinn minn varð batteríislaus á brettinu í morgun.
Ég gleymdi rafmagnssnúrunni fyrir lappann og þurfti að fara heim aftur að sækja hana.
Ég rak hnéð í þegar ég fékk mér kaffi.
Þjófavarnarkerfið fór í gang í vinnunni.
Það er einn dagur í að ég verði fjörgamall.

...
- grettir :: dagurinn getur bara batnað

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Nú er klukkan 09:14 og dagurinn er strax betri. Það var að byrja hérna ný gella, ekki slæm skal ég segja ykkur!


 18. maí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
ekki erfitt að gleðja þig *hahah*


 18. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei, enda með eindæmum jákvæður :D


 18. maí 2005 ( ÚtsýnisÖnd ) [H]
Gott útsýni hressir, ekki spurning.




 18. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Bætir hressir kætir, er gott fyrir meltinguna og gefur hraustlegt og gott útlit :D


 19. maí 2005 ( ÚtsýnisÖnd ) [H]
Nei það er hraustlegt og gott útlit sem gefur.. nei bíddu, hvernig var þetta aftur ?


 19. maí 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Til hamingju með afmælið! :-)


 19. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


Andlát

Ritað þann:    17. maí 2005
Efnisflokkar:  nördadót  

Tölvumúsin mín gaf upp öndina um daginn. Ég dreif mig í eina tölvubúð hérna í bænum og verslaði mér svona þráðlausa í staðinn. Eini gallinn, sagði búðarmaðurinn, er að það fylgir ekki hleðslutæki með, en það fylgja fjögur hleðslubatterí.

Hmm - hugsaði ég - og minnti að ég ætti einhversstaðar hleðslutæki. Ojæja, ég kaupi hana samt sagði ég ákveðinn.

Þegar ég kom heim var stór mynd aftan á kassanum með lýsingu um það hvernig maður ætti að setja tvö batterí í hleðslu í móttakara únitinu og tvö í músina og skipta svo þegar músin væri batteríislaus. Svona nokkurs konar hringrás, if you will.

Hvað ætli margir séu búnir að hætta við að kaupa þessa músategund af því að þeir eiga ekki hleðslutæki? Og hvað margir ætli hafi keypt hleðslutæki með músinni?

Hérna er mynd af kvikindinu.

...
- grettir :: og nú getur maður hlaðið batterí fyrir skeggsnyrtinn líka!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. maí 2005 ( Arnór ) [H]
Hvaða drasl er þetta eiginlega, ég er með Logitec þráðlaus þar sem móttakarinn er líka hleðslutæki þar sem þú smellir bara músinni ofan á mótakarann og músin hleðst.

Glætan að ég myndi nenna eitthvað að skipta um batterí í músinni mörgum sinnum í viku.


 17. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, ég held nú að batteríin dugi nú daginn. Ég myndi alltaf gleyma að setja músina í móttakarann :D


 18. maí 2005 ( Birna ) [H]
ISssssss Mín er nú flottari!! er með microsoft sett... í stíl við lyklaborðið U c! Bara cool;) http://www.toptronics.fi/TopProducts.nsf/ 0/5238c10d159d6725c2256d56004a5ef4/ $FILE/WirelessIntExplorerPlatinumMetallic_24.jpg


 18. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Við verðum þá að vera sammála um að vera ósammála ;-)
Nei nei, þín er ágæt.


Ryksugu hljóð

Ritað þann:    17. maí 2005
Efnisflokkar:  íbúðamál  

Í gær heyrðust í fyrsta sinn í heilt ár ryksuguhljóð úr íbúðinni að ofan.

Það þýðir bara eitt. Granninn er að flytja.

...
- grettir :: svaf eins og ungabarn í nótt

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. maí 2005 ( Ingvar J. ) [H]
Trúi því ekki að hann hafi forðað sér fyrir partýið... Við vorum búnir að panta lúðrasveit.


 17. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Já fjandinn sjálfur! Þið verðið bara að senda hana upp á stúdentagarða :D


 17. maí 2005 ( majae ) [H]
já en miðað við lætin á laugardagsnóttina.... urradan


 17. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Ég var ekki heima þá :D


Satan enn að verki

Ritað þann:    11. maí 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fréttir  

Gullmolarnir eru byrjaðir að streyma frá nýjum páfa og segir hann skv. frétt á mbl.is að Satan sé að dreifa illri orku í heiminum.
Ég verð nú að segja að myndin með fréttinni segi meir en mörg orð. Hvaða krípí svipur er þetta?

...
- grettir :: kölski sjálfur?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. maí 2005 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Af svipnum að dæma myndi ég segja að hann hefði FIRST HAND vitneskju um hvað er að gerast hjá Kölska í heiminum...


 11. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Og virðist vera nokkuð sáttur við það bara :D
Þetta er svona muhuhuhahaha
Evil hlátur er ekkert að virka með lyklaborði :-|


 11. maí 2005 ( hr. ölves ) [H]
djöfullegur þessi fugl!


 12. maí 2005 ( Birna ) [H]
*hrollur* Creepy creepy man, hann hefur líklega nýtt sér djöfullegan mátt sinn til að komast í páfastólinn... ojbara


 13. maí 2005 ( Hemmi ) [H]
Já, hann er ekki alveg allur þar sem hann er séður
athugið þetta: http://www.b2.is/?sida=tengill&id=103381


Recurrence fundir

Ritað þann:    10. maí 2005
Efnisflokkar:  nördadót  vinnan  

Það er nú eitthvað dularfullur þessi recurrence fídus í Outlook vefviðmótinu. Ég var boðaður á fund "Every day(s)" -> For 2 day(s), sem sagt á morgun og hinn.

Lítur út fyrir að miðviku- og fimmtudagar séu bókaðir hjá mér út árið, því þetta tveggja daga skilyrði fór eitthvað framhjá Outlúkkinu.

...
- grettir :: Outlúkkið heldur manni við efnið

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. maí 2005 ( von ölves ) [H]
er þetta einn af þessum tölvunördabröndurum?


 11. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, já. Eitthvað svoleiðis.


Skrýtinn spilari

Ritað þann:    10. maí 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  nördadót  

Keypti mér hræódýran Audio spilara, Elto eða e-ð, í Þýskalandi í fyrra til að nota í ræktinni.
Hann er nú furðulegt tæki. Það virðist ekki vera hægt að hlaða hann fyrr en batteríið er alveg dautt. Því hef ég gripið á það ráð að plögga honum í USB tengið og ýta á play. Fyrir rest verður hann rafmagnslaus og byrjar þá að hlaða.

...
- grettir :: ómögulegt að hlusta á PopTíví, alltaf sömu lögin

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Mannvitsbrekkur

Ritað þann:    10. maí 2005
Efnisflokkar:  nöldur  vinnan  

Einhverjum yfirmanns snillingnum hérna datt í hug að það væri snjallræði að spara nokkra þúsund kalla og fá iðnaðarmenn hingað á dagvinnu til að brjóta upp flísar.

...
- grettir :: þetta á eftir að bíta þá í rassinn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Einkennileg hljóð

Ritað þann:    09. maí 2005
Efnisflokkar:  nördadót  

Skjárinn við heimilistölvuna mína er farinn að gera frá sér einkar sérkennileg búkhljóð. Mig grunar að dagar hans verði brátt taldir.

...
- grettir :: fæ mér flatan næst

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. maí 2005 ( SkjáÖnd ) [H]
Minn 21" 10+ ára gamli skjár lést einmitt fyrir ekki svo löngu... útförinn verður tilkynnt síðar.
Fékk mér prýðis Dell skjá í staðinn 2001FP



 10. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Þessi Dellari lítur vel út. Hvað kostar svona græja?


 10. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Fann hann í Tölvulistanum:
http://tolvulistinn.is/files_library/catalog_print/a_jadartaeki.htm
Aðeins 100 þúsund :-|


Aftur helgi

Ritað þann:    06. maí 2005
Efnisflokkar:  vinnan  

Djöfull er ég ánægður með þessa frídaga sem dembast á mann þessar vikurnar. Aftur komin helgi, íha. Reyndar bölvað svindl að 1.maí skyldi vera á sunnudegi.

Á morgun fer ég í óvissuferð með vinnunni. Það verður sérdeilis prýðilegt.

...
- grettir :: *glúgg glúgg glúgg*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. maí 2005 ( hr. ölves ) [H]
hvernig var óvissuferðin? þú skrópaðir á brennsluna í miðprófahátíð skólastrákanna :(


 10. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Það var bara ótrúlega gott. Fórum í Húsafell, skoðuðum helli, fórum í sund og grilluðum. Kom heim seint og illa leikinn af drykkju. Svona á þetta að vera!


Ofvirkur

Ritað þann:    06. maí 2005
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  

Vaknaði svo ljómandi hress í gær að ég ákvað að dusta rykið af hjólinu mínu. Tók hjólreiðastíginn út á Nes, meðfram ströndinni, Ægisíðuna, út í Nauthólsvík, yfir brúnna á Reykjavíkurveginum og í gegnum allan Fossvoginn. Þaðan Bústaðaveginn, inn í Hlíðarnar og niður í bæ og þaðan heim.

20 km spank you very much.

Þegar maður er svona duglegur, þá verðlaunar maður sig myndarlega og bregður sér í bæinn á eftir og fær sér einn öl.

...
- grettir :: svo illt í rófubeininu, að ég get bara setið á klósetti í dag

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Blaðið

Ritað þann:    06. maí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Enn eitt Blaðið (frumlegt nafn... þetta er eins og einhver myndi framleiða bíl sem héti bara Bíllinn) sem kemur til með að streyma inn um bréfalúguna óumbeðið.

Þetta þýðir bara fleiri ferðir út í tunnu, með fangið fullt af Fréttablaði, Vesturbæjarblaði, Nóatúns-, Hagkaups-, Bónus-, Byko og Húsasmiðjubæklingum, Dagskránni og nú Blaðinu.

Spurning um að setja bara ruslatunnu beint undir bréfalúgunni.

...
- grettir :: eru engar ruslpóstsíur sem virka á þetta?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. maí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
fáðu þér svona ofsafínan gulan límiða sem á stendur "engan ruslpóst takk" :P


 06. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Hvar fær maður svoleiðis!? Það vantar sárlega á mitt hús.


 06. maí 2005 ( majae ) [H]
i´m on it !!!!!


 06. maí 2005 ( TætaraÖnd ) [H]
Spurning hvort að það er hægt að fá tætara og fötu hinumegin við lúguna ?


 08. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Tætari væri snilld! En mér sýnist majae ætla að redda þessu. Munur að vera með svona framtakssama granna :D


 09. maí 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Þó þú biðjir um engan ruslpóst, færðu samt Fréttablaðið og Blaðið áfram. Þarft væntanlega annan miða ef þú vilt afþakka það! Ég er svo sammála þér, þetta er bara umhverfisspillandi!


 09. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Bara negla fyrir bréfalúguna :-)


Slæm blanda

Ritað þann:    04. maí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Það er ávísun á heimsókn til tannlæknis að taka lúkufylli af M&M sem búið er að blanda bingókúlum saman við.

...
- grettir :: áts

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. maí 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Heyrðu, vildi bara segja þér að við Beggi létum loksins verða af því að skoða flísar til að senda listamanninum í Rio. Pöntuðum flís í Postulínsbúðinni og erum að láta brenna íslenska skjaldamerkið á hana og ætlum svo að senda! :D Þannig að næst þegar við förum til Rio sjáum við vonandi íslenska flís í tröppunum...


 04. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Vúhú.. sá verður kátur. Obrigada!


Hjólað í vinnuna

Ritað þann:    03. maí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Djöfull er ég ánægður með þetta "Hjólað í vinnuna" framtak.

Nú er mun auðveldara fyrir mig að fá bílastæði og gat ég parkerað beint fyrir framan dyrnar í morgun. Svona á þetta að vera!

...
- grettir :: vona að það verði bráðabani

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. maí 2005 ( hr. ölves ) [H]
er þetta ekki stæði fyrir fatlaða?


 03. maí 2005 ( - grettir ) [H]
haha, nei, ég er nú ekki alger dóni. Það er við hliðina.


 04. maí 2005 ( Lilja ) [H]
Hvað mun þetta "sækla tú vörk" standa yfir lengi? Ertu búinn að leggja Bimmanum?


 04. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Tvær vikur held ég.

Já, ég er búinn að leggja Bimmanum. Beint fyrir framan dyrnar á vinnunni á daginn og fyrir utan húsið mitt á kvöldin :D


 04. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Annars voru menn að reyna telja mig á það að hjóla allavega einn dag, því ég bý 10-11 km í burtu frá vinnunni, svo það yrðu 20-22 km pr. dag sem ég myndi hjóla. Það er komið eitthvað keppnisskap í liðið hérna :-|


Upp með skíðin

Ritað þann:    02. maí 2005
Efnisflokkar:  djamm  fréttir  líðandi stund  

Djöfull var kalt í morgun.

Átakið hjólað í vinnuna gat ekki verið á misheppnaðri tíma. Ég hefði ekki hjólað í morgun "at gunpoint".

Helgin var með rólegasta móti, fékk mér 3 bjóra eða eitthvað á föstudaginn og fór snemma heim. Eyddi svo bara laugardagskvöldinu fyrir framan kassann, horfði meðal annars á Ocean's Twelve. Skítsæmileg, fyrri myndin var betri.

Svo sá ég á visir.is að Blúmmarinn var í Ríó á sama tíma og ég. Ekki það að ég hefði þekkt hann úti á götu, ég er eitthvað svo ómannglöggur. Ef þið hafið veifað mér og ég ekki til baka, þá er það ekki viljandi gert.

...
- grettir :: *veif*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. maí 2005 ( hr. ölves ) [H]
iss láttekkisvona... þið orlý blúms hringduð í mig alveg mökkaðir og hlóguð yfir því að hafa stungið af frá barreikningnum...


 02. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta kvöld er í einhverri móðu... gæti útskýrt afhverju símareikningurinn var svona hár :D


 03. maí 2005 ( Lilja ) [H]
Ertu orðinn celeb-stalker? O.O


 03. maí 2005 ( - grettir ) [H]
heheh, nei það verður seint.


 03. maí 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Já, ég er alveg svekkt yfir að hafa misst af bæði Blúmmaranum og Cuba Goodin Jr.! Eins og þetta er nú lítil borg!... :S


 03. maí 2005 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega!