1 til 9 af 9
Í 11 daga hef ég verið orðlaus, enda betra að þegja þegar maður hefur lítið til málanna að leggja, engu fyndnu að segja frá eða er kominn með upp í kok af þjóðmálunum.
Í fyrsta sinn um helgina var lífið nokkurn veginn í eðlilegum skorðum eftir íbúðabreytingar. Við bökuðum köku og fórum út að hjóla. Fjölskyldustöff. Ég á aðeins eftir að ganga frá tölvurýminu og forstofunni en það er peanuts miðað við það sem á undan er gengið.
Stórfrétt!
Ritað þann: 11. apríl 2008
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Ég var að vafra fréttavefina og falin innan um fréttir af óðaverðbólgu, verðhruni fasteigna, stýrivöxtum og gjaldþrotum bankanna er stórfrétt.
Haldið ykkur fast. Ég kynni fyrir ykkur í boði visir.is:
Agaleysi nemenda í Portúgal
„Það er lítið um að vera hjá mér. Ég var að vonast til að komast héðan frá Ísafirði til Akureyrar til að sinna vinnu þar en flugi hefur verið aflýst hvað eftir annað. En ég hef mikið fylgst með fréttum frá Portúgal enda er athyglisvert mál þar til umræðu. Þannig var að kennari vildi taka farsíma af framhaldsskólanema sem var upptekinn við hann í kennslustund, kom þá til smá átaka og annar nemandi tók það upp og setti inn á Youtube. Síðan þá hefur agaleysið í framhaldsskólum verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu."
Með fréttinni er mynd af einhverjum dreng sem er ekki nefndur á nafn.
Svona er Ísland í dag. Eða Portúgal, ef þið viljið.
Ég las ótrúlega góðan pistil eftir Hallgrím Helga í Fréttablaðinu um daginn.
Hann er hér
Þar segir meðal annars:
Um árabil höfum við mátt hlusta á yfirmenn Seðlabankans skýra síhækkandi stýrivexti með þeim rökum að hemja verði verðbólgu. Á netinu rakst ég á línurit sem sýnir að verðbólgan hefur elt þá sömu vexti af stakri samviskusemi. Þegar grafið er skoðað er engu líkara en að stýrivextirnir séu sú gulrót sem verðbólguasninn eltir. Og nú þegar asninn náði næstum því að bíta í gulrótarendann var honum snarhendis sveiflað enn hærra. Enn eru stýrivextir hækkaðir til að hemja verðbólgu og halda krónunni á floti.
Nú hafa stýrivextir hækkað enn og aftur. Það er engu líkara en Davíð sé að ávaxta spariféð sitt áður en hann flýr sökkvandi skip.
Davíð er verðbólguasninn.
Ein af ástæðunum fyrir því að ganga ekki í Evrópusambandið eru góð viðskiptasambönd okkar í Kína samkvæmt herra Haarde og hans fólki sem vill ekki að almenningur fái að velja hvort rollan er íslensk eða erlend sem er borðuð á sunnudögum.
Nú missir Björk út úr sér
stuðningsyfirlýsingu við Tíbet á tónleikum og í kjölfarið verður
íslenskum hljómsveitum líklega ekki hleypt á tónlistarhátíð í Kína sem verður haldin í vor.
Hressandi og traust milliríkjasamband það.
Ég spyr því - er Evrópa of lítil fyrir hrokagikkina sem starfa á þingi í dag?
Flottur sími
Ritað þann: 09. apríl 2008
Efnisflokkar: fyndið
Ég er nýbúinn að kaupa mér Nokia E65, megatöff síma sem getur farið á netið, sótt email, sent sms, tekið myndir, er með bluetooth, minniskorti, músíkspilara og ég veit ekki hvað.
Ég gleymdi honum heima.
Það er greinilega hollt og gott fyrir heilann að mæta snemma til vinnu.
Við vorum eitthvað að skiptast á reynslusögum af dagsetningum í morgun og hvað þær eru elíft vandamál í öllum tölvukerfum - þegar ég fór allt í einu að spá í hvað myndi gerast árið 10000?
Við ákváðum samt að vera ekkert að stressa okkur yfir þessu. En það er eiginlega nákvæmlega það sem menn gerðu seinnipart síðustu aldar þegar einhverjum datt í hug hvað myndi gerast árið 2000. Nenntu ekki að stressa sig yfir þessu. Fyrr en of seint.
Það þarf harðari refsingar þegar kemur að veggjakroti. Það þarf að koma slefandi aumingjum sem þetta stunda í skilning um að þeir eru að eyðileggja eignir annarra, það kostar pening að laga til eftir þá og þetta er mökkljótt!
Opinberar hýðingar er sport sem ætti að taka upp við það tilefni. Eða aflimanir og púng/píku spörk.
En hvernig er hægt að ætlast til þess að slíkir skemmdarvargar hræðist refsingar þegar dómskerfið á landinu leyfir mönnum að berja konur eins og harðfisk og sleppa ódýrt frá því.
Það er dýrara að kalla einhvern ónöfnum á netinu.
Home sweet home - Kreppa er hugarástand
Ritað þann: 07. apríl 2008
Efnisflokkar: fjölskyldan íbúðamál
Fluttum inn í gær, sléttum þremur mánuðum eftir að við yfirgáfum íbúðina fyrir breytingar.
Það á eftir að laga svona smotterí hér og þar, setja ljós á ganginn, blöndunartæki á baðið og já, .... setja sturtubotninn í :-) Eða réttara sagt steypa hann upp á nýtt. Við verðum að fara í sund þangað til hann er tilbúinn. Væntanlega næ ég að byrja á honum í kvöld og klára hann á miðvikudag, fimmtudag.
Einnig á eftir að setja ofn í forstofuna og flísaleggja hana.
Eins og
Finnur benti á í febrúar að mig minnir, þá á maður alltaf að margfalda með pí þegar fyrsta útgáfa verkáætlunar liggur fyrir. Þegar upp verður staðið er það líklega nærri lagi. Það sem verra er að kostnaður við framkvæmdina er líklega milljón yfir áætlun. Við vorum búin að borga parket og innréttingu áður en við byrjuðum og ég bjóst við að "annað" yrði svona í kringum 500 þúsund. Þetta "annað" mátti nánast margfalda með pí einnig.
En þegar framkvæmdum er lokið höfum við:
Búið til nýtt eldhús í gamla sjónvarpsherberginu með nýrri innréttingu og tækjumBúið til svefnherbergi í gamla eldhúsinuSkipt út öllu rafmagni, dósum, tenglum og dregið nýtt íLagt nýjar pípulagnir og skipt út öllum ofnumKlætt veggi í barnaherbergjum með gipsi og einangraðStækkað hurðargat á milli gömlu stofanna um tvær og hálfa breiddLagt hita í forstofugólfFlotað í öll gólf (dýrt spaug það)Skipt um baðinnréttingu og flísar á gólfiLagt nýtt fljótandi parket á alla íbúðinaBúið til skrifstofuhorn/serverrými með símatenglum, rafmagnstenglum sem verða á sér öryggi í töflu og netkapli sem liggur inn í stofu (fyrir flakkarann)Skipt um skáp á gangiSetja næturlýsingu á gang
Eflaust eitthvað sem ég er að gleyma. Við erum semsagt að tala um að íbúðin er eins og ný, nema hún lekur ekki eins og nýjar íbúðir gera í dag.
En það sem mestu máli skipti var að þegar við komum heim í gær, lögðum við börnin í rúmið og þau sváfu í einum dúr þar til við vöktum þau í morgun.
Það er gott að vera heima.
Mótmæli vörubílstjóra eru dæmd til að mistakast. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þau bitna á hinum almenna borgara og almennum borgara á Íslandi finnst ekki töff að mótmæla samanber mótmælin í Ráðhúsinu við valdaráns minnihlutans.
Hinn almenni borgari mun láta þetta fara í taugarnar á sér í stað þess að henda eggjum í Alþingi og sletta skyri á valdhroka ráðherra.
Ríkisstjórnin situr á rassgatinu og gerir ekki neitt - en fyrir þá sem tala með rassgatinu er mjög slæmt að sitja á því einnig. Allir sem einn eru sammála því að það þurfi ekkert að gera, bara "bíða af sér þennan ólgusjó" sem eru ráð rökþrota manna/kvenna. Enginn vill gera neitt því enginn veit hvað á að gera. Það virðist ekki vera neinn á þingi sem hefur menntun eða getu til að gera nokkurn skapaðan hlut.
Aumingjar á spena hjá almenningi. Almenningi sem ætti að mótmæla háu bensínverði með því að leggja bílunum sínum í veginn fyrir vörubílstjóra að störfum, en verktakar með þá í vinnu myndu þá kannski berja á þingmanni sínum.