1 til 10 af 10
Flestir sem reka fyrirtæki ættu að vita að það er mun meira virði að halda þeim kúnnum sem versla við þá en að sækja nýja. Samt eyða fyrirtæki oftar en ekki óratíma og peningum í að afla nýrra kúnna en hugsa ekki um þá sem fyrir eru.
Mig grunar að flest fyrirtæki hér á klakanum hafi heldur ekki hugmynd um hversu mikils virði hver kúnni er - þ.e.a.s ef einn hótar að hætta viðskiptum við fyrirtækið, þá gæti borgað sig að elta einn en sleppa öðrum. Þetta á sérstaklega við um símafyrirtæki. Einn kúnni hringir kannski og pexar og pexar og er svo með 1500 króna reikning á mánuði. Svona kúnni er dýr og má alveg missa sín.
Annar gæti hringt út af einhverju smávægilegu - þjónustufulltrúinn sér ekki ástæðu til að uppfylla óskir hans og hann hættir. Þetta er kannski stórnotandi, með feitan símareikning, internet tengingu, vefhýsingu og er búinn að versla fullt af símum hjá þeim. Svona kúnna er gott að hafa góðan.
Svona er þessu háttað með eina tölvuverslun hér í bæ. Ég er búinn að versla 3 tölvur hjá þeim í gegnum tíðina og 7 eða 8 uppfærslupakka fyrir vini og fjölskyldu, hver að verðmæti 25-30 þúsund. Ég hef bent fólki á að fara þangað því þar sé góð þjónusta og hef verslað allt mitt tölvudót þar.. minni, harða diska, að minnsta kosti þrjú skjákort, skrifara, geisladrif, geisladiska, prentara og ég veit ekki hvað og hvað.
Tölvur eru jú drasl og þurfa endalaust viðhald.
Nú síðast mælti ég með þessari verslun vegna fartölvukaupa tveggja bræðra minna.
Nú brá svo við að önnur fartölvan bilaði. Er lengi að ræsa sig og er með annan óhemjugang. Ég skundaði því á svæðið og tók afrit á flakkarann minn. Það tók rúman klukkutíma að taka afritið, sem hefði ekki átt að taka nema 10 mínútur. Því giskaði ég á að diskurinn væri gallaður eða bilaður.
Vélin var send í viðgerð.
Viku seinna er hringt: "Við fundum ekkert að henni. Reikningurinn er 5000 kr. Við getum sett stýrikerfið upp aftur, en það kostar auka 5000 kr."
Ég fór og sótti hana, lagði Vísa kortið á borðið - vitandi það að þetta væru síðustu krónurnar sem ég myndi nokkurn tíma greiða þessari búð.
Einu sinni fékk maður bara spam í tölvupósti.. svo installar maður Skype og þá eru allskyns furðufuglar að reyna að hringja í mann. Ég svara nú reyndar aldrei - en það væri fróðlegt að vita hvernig söluræðan hjá typpastækkunar sölumanni hljómar.
Nú eru allar stillingar á mesta privacy og vandamálið ætti að hverfa.
Sumarið búið
Ritað þann: 24. apríl 2006
Efnisflokkar: ég íþróttir
Þetta var stysta sumar sem ég man eftir.
Ég er búinn að lofa því að ég taki þátt í Reykjavíkur maraþoninu í ár. Ég ætla nú ekki að hlaupa nema 10 km, en það verður gert á nýju bjórþambarameti. Stefnan er að sjálfsögðu sett á top 10 svo það sé smá séns á að myndir náist af mér koma í mark og fagna með því að skála í bjór um leið og ég kem yfir línuna.
Það verður svalt.
Hvaða bull?
Hvurslags liði er eiginlega boðið á þessar forsýningar? Einhverjum tískulöggum?
Tom mætti vera með fjólublátt hár fyrir mér.
Tékklistinn
Ritað þann: 18. apríl 2006
Efnisflokkar: ég ferðalög
Nú get ég merkt við eitt atriði á tékklistanum mínum:
"Sjá Vestfirði" [x]
Nú á ég bara eftir að sjá Ástralíu, Asíu, Kanada, meirihlutann af Norður Ameríku, Austur Evrópu, Suðurskautslandið og meira af Suður Ameríku en Ríó.
Nóg eftir.
En grínlaust, þá var þetta dálítið gaman. Kalt en gaman. Það er ennþá vetur þarna uppi og það var því voða gott að koma heim aftur. Ég tók eitthvað af myndum og svo er að sjá hvenær ég nenni að tæma kortið í vélinni. Kannski fyrir jól, hver veit.
Nú er kjörið tækifæri að leggja niður Seðlabankann.
Þrátt fyrir það held ég að sama hvar Davíð dytti niður, þá gæti hann misnotað vald sitt. Þó hann afgreiddi pulsur á Bæjarins bestu. Hvaða Seðlabankastjóri með viti básúnar það að framundan sé lægð í efnahagslífinu og hann komi til með að hækka vexti upp í mafíu mörk?
Maður gæti haldið að hann væri að endanlega að reyna að telja fólki í trú um það að lífið hafi bara verið gott á Íslandi þegar hann sat við stýrið.
Helvítis forsjárhyggju pakk.
Svo eru allir hissa á því að fólk taki frekar erlend óverðtryggð lán.
Langþráð frí
Ritað þann: 10. apríl 2006
Efnisflokkar: vinnan
Af því ég tók "sumarfríið" mitt í febrúar í fyrra, þá hef ég ekki fengið almennilegt frí í 14 mánuði. Þá tel ég ekki með þennan auma dag sem vinnandi fólk fékk um jólin.
Ég ætla að taka mér frí á miðvikudag og næ því næstum heilli viku í eintómri leti og afslöppun. Kominn tími til. Og það er ekki beint action í gangi á skrifstofunni í dag. Ég er næstum því einn á staðnum. Ætli maður hætti ekki snemma bara.
Sumardekkin
Ritað þann: 05. apríl 2006
Efnisflokkar: bmw-inn fyndið
Setti sumardekkin undir í gær, fjórum dögum seinna en í fyrra, en það klikkaði ekki - byrjaði að snjóa um leið. En mér er alveg sama. Ég er búinn að ákveða að veturinn sé búinn.
Ég sá undur og stórmerki í vikunni. Amerískan pallbíl, með drasl á pallinum! Ég hef hingað til haldið að þessir pallar væru punt.
Eftir frammistöðu mína í 60 metra hlaupinu um helgina hef ég lært eitt: það þýðir ekki að reyna að hlaupa lögregluna af sér. Ekkert smá sem þetta lið getur sprett úr spori! Þetta er líklega í fyrsta sinn sem lögreglan reynir að stinga mig af.
En fæturnir á mér eru í verkfalli í dag. Ég er eins og Forrest Gump með spelkurnar. Beinhimnubólgan er alveg að drepa mig (lærði þetta orð um helgina, en það er notað um verkina sem maður fær framan á sköflunginn).
Í gær fór ég í 17 ára afmæli hjá litla bróður. Hann var enn í barnabílstól þegar ég fékk bílpróf. Time is fun when you are having flies.