1 til 18 af 18

Bleik súpa

Ritað þann:    28. apríl 2005
Efnisflokkar:  matur  vinnan  

Þegar maður kíkir í pottinn í mötuneytinu og það er bleik súpa í matinn, þá sést undir iljarnar á mér út úr húsi.

...
- grettir :: ja hérna

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
barbapabbasúpa?


 28. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Haha, já.. RIP


Vorhreingerning

Ritað þann:    26. apríl 2005
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  

Byrjaði á vorhreingerningunni í gær.

Gafst upp þegar ég var búinn með uppvaskið. Ekki það að vaskurinn hafi verið svo pakkfullur eða þannig, uppvask er bara leiðinlegasti hlutur í heimi.

Kannski geng ég frá leirtauinu í kvöld. Maður má ekki fara of geyst. Upphitun er nauðsynleg, annars tognar maður bara.

...
- grettir :: vaskurinn verður orðinn fullur aftur áður en ég klára dæmið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. apríl 2005 ( ÞvottaÖnd ) [H]
Eitt orð : Uppþvottavél


 26. apríl 2005 ( majae ) [H]
annað orð: einnota plasteldhúsáhöld.


 26. apríl 2005 ( Óli Fly ) [H]
enn eitt orð: Hundur


 27. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Já, ég býst við að uppþvottavélin verði ofan á... einnota drasl krefst þess að maður fari oftar út með ruslið. Boring..
Hundur? Fara þeir ekki illa í uppþvottavélum?


 27. apríl 2005 ( Halla ) [H]
heyrðu 19. maí er fimmtudagur maður. Ætlaði sko að færa veisluna inn í dagbókina. Mér reiknast að það séu sex ár nákvæmlega síðan við djömmuðum saman fyrst...


 27. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Já rétt... þá er forkeppnin í Eurovision.. Partýið verður semsagt 20. maí everybody!

Fólki er að sjálfsögðu velkomið að kíkja við þann 19. og sulla bjór yfir forkeppninni.


10 ára

Ritað þann:    22. apríl 2005
Efnisflokkar:  fyndið  handbók kjósandans  

Ríkisstjórnin er 10 ára á morgun.

Þetta kemur ekki á óvart, enda hagar hún sér alveg eins og 10 ára.
Fer í fýlu ef hún fær ekki það sem hún vill, rífur kjaft ef einhver er ekki sammála.

...
- grettir :: já það er erfitt að vera 10 ára

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. apríl 2005 ( Una ) [H]
Amenz!


 23. apríl 2005 ( Rauði maðurinn ) [H]
Ég vona samt að hún verði ekki mikið eldri en þetta...


 24. apríl 2005 ( von ölves ) [H]
það er okkar allra að sjá til þess!


Sumarið komið

Ritað þann:    22. apríl 2005
Efnisflokkar:  ég  

Loksins loksins.
Finn það á mér að þetta verður enn betra en sumarið í fyrra, sem var þó býsna gott.
Náði snús tímanum niður í 50 mínútur, en þá var orðið svo bjart að ég vaknaði.

...
- grettir :: húrra

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. apríl 2005 ( Ægir Pípari ) [H]
Það er orðið bjart kl 0700 for crying out loud...
Ertu nokkuð búin að sjá hithchikers guide.....?


 22. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Neibb.. ekki er byrjað að sýna hana?


 24. apríl 2005 ( ægir ) [H]
ja duh ertu ekki einhver heavy tölvu dude ég hélt að menn eins og þú væruð búnir að fá svona lagað sent með hraðpósti 2 árum fyrir framleiðslu


 24. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, sumt eru Bíómyndir.. með stóru Bé


Hötum grannann dansinn

Ritað þann:    21. apríl 2005
Efnisflokkar:  djamm  íbúðamál  

Ljómandi fullur á sumardaginn fyrsta, mætti og dansaði stríðsdansinn, þar til ég hné niður. Mission náð hérna.. næsta session, þegar kvikindið fer í próf..

...
- grettir :: við erum að tala um óvin #1

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Btw, öllum boðið í afmæli þann 19. maí.. evróvisión stuð.
Verður excellent skítur.. pullur, lamb, hammarar, whatever!
Mætið. Flæmum nágrannann í breiðholtið!


 22. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
ég mæti með trommurnar ef ægir mætir með píparagræjurnar... þá ættum við að ná ágætis hávaða.


 22. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
hljómar eins og plan!


 22. apríl 2005 ( majae ) [H]
ég vona að þú sért að tala ummiðju nágrannnan ;)




 22. apríl 2005 ( Halla ) [H]
Ég á trompet. Vá ég misskrifaði næstum því og sagði Ég át trompet. Það hefði nú verið fyndið


 22. apríl 2005 ( Ægir Pípari ) [H]
ég get glaður komið og brotið niður einn vegg eða svo, svona til að hrekkja grannan


 22. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Auðvitað er það miðjan :D

Halla, þér og mr. trompet er boðið...

Ægir, þú kannski tekur bara þakið mitt og þéttir það :-)


 23. apríl 2005 ( majae ) [H]
þegar hann þéttir þakið, helduru að þú gætir platað hann tilað laga vaskinn á klóstinu hjá mér ?

Ég skal hafa svaka læti á meðan ;)


 24. apríl 2005 ( ægir pípari ) [H]
hér með sendist 2500kr reikningur + vsk fyrir yfirlesningu og áhyggjum um að verða settur í vinnu næst er ég hætti mér í vesturbæin


 24. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Ahahaha... góður. Ertu ekki alltaf með píparagræjurnar í skottinu hvort sem er?


 24. apríl 2005 ( ægir pípari ) [H]
jú sorry maður, ég redda þessu þá


 26. apríl 2005 ( Halla ) [H]
Það er frú trompet takk. Ég skal bjóða henni með ef hún hefur ekki móðgast við þetta komment.


 26. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
hehe, auðvitað.. Trompetan


Bakstunga

Ritað þann:    20. apríl 2005
Efnisflokkar:  skandall  vinnan  

Eins og bros fallegrar stelpu getur breytt deginum til hins betra, þá er merkilegt hvað eitt nett backstabbing getur breytt deginum til hins verra.

Nokkuð ljóst að ein kona hér í bæ fær ekki lengur góða þjónustu af minni hálfu.

...
- grettir :: áts

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. apríl 2005 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Hvaða hvaða hvaða...þú byrjar ekki sögu án þess að klára hana :)


 20. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
já hvernig væri að klára þessa sögu... stunginn í bakið hvað?


 20. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta er work releated, harla óspennandi. En téð kona vinnur hjá fyrirtæki sem okkar fyrirtæki er í samstarfi við. Hún er svo til nýtekin við af einum strák sem ég vann mikið með og ég hef lagt mig allan fram að koma henni vel inn í hlutina.
Anyways, í morgun var hún að kvarta yfir einhverri vinnu frá því í síðustu viku og sendi afrit af póstinum á gjörsamlega alla, allt frá fólki í mínum vinnuhópi, verkefnisstjórum og upp í framkvæmdastjóra beggja fyrirtækjanna.

Mér er ekki skemmt, sérstaklega þar sem ég var nánast nýbúinn að ræða við hana í síma og allt virtist í góðu glensi.

En sem betur fer virðast flestir líta þetta sem klöguskjóðu fyrir vikið og verkið hafi verið unnið skv. beiðni verkkaupa.

My job sucks today.


 20. apríl 2005 ( majae ) [H]
úff kannast við þetta. Fólk sem sendir cc á liggur við alla í fyrirtækinu útaf eitthverju sem er hægt að redda með að ræða við viðkomandi ætti að klæða úr fötunum, henda útúr bíl á ferð á laugarveginum og grýta með eggjum.


 21. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Píkurassgat í helvíti.. grýtum tussuna!!


Akkúrat það sem þurfti

Ritað þann:    19. apríl 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fréttir  

Kirkjan á eftir að ná sér í marga fylgismenn með þessu nýja útspili.
Íhaldsamur afturhaldsseggur sem hlustar ekki einu sinni á rokktónlist. Þvílíkt move inn í 21. öldina.

...
- grettir :: sauðir

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
er ekki alltaf verið að tala um lömb í biblíunni... lömbin verða svo sauðir...


 20. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
hehe, góður.


Nýr heimilislæknir

Ritað þann:    19. apríl 2005
Efnisflokkar:  ég  

Jæja, loksins kominn með nýjan heimilislækni. Fór í morgun í síðustu bólusetningarsprautuna mína og komst að því að mér hefur verið úthlutað svaka gellu.
Kannski maður reyni þá að ná sér í myndarlega vorflensu.

...
- grettir :: eða ekki

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Páfinn ræðir við Dyravörðinn

Ritað þann:    15. apríl 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fyndið  

Þennan fékk ég í pósti áðan og þótti fyndinn:



The pope arrives in heaven, where st Peter awaites him. St peter asks to the pope who he is.
The pope : I am the pope.
St Peter : Who ? There's no such name in my book?
The pope : I am the representative off God on Earth.
St Peter : Does God has a representative ? He didn't told me...
The pope : but I am the leader off the Catholic Church...
St Peter : The Catholic church... Never heard of it...
St Peter : Wait, I'll check with the boss

St Peter goes away trough heavens gate to talk with God.

St Peter : There's a dude standing outside who claims he's your representative on earth.
God : I don't have a representative on earth, not that i know off... Wait, I'll ask Jesus ( Take his intercom and yells for Jesus)
Jesus : Yes father, what's up....

God and St Peter explain the situation....

Jesus : Wait, I'll go outside and have a little chat with that fellow.

Ten minutes pass and Jesus reenters the room laughing out loud. After a few minutes St Peter asks To Jesus why he's laughing...

Jesus : remember that fishing club I've started 2000 years ago.... It still exists.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. apríl 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Hahahaha...


 21. apríl 2005 ( Uxinn ) [H]
aaahhaahaha....Frábær......


Ertu ekki að grínast?

Ritað þann:    15. apríl 2005
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Samkvæmt frétt á vísir, þá vill Idol Davíð fá bætt vinnutap sem hann varð fyrir með þátttöku í Idol keppninni.

Ég ætla að vona að þetta gangi í gegn, því þá geta allir hætt vinnu tímabundið til að láta drauma sína rætast. Nú ef draumarnir rætast ekki, þá getur maður alltaf sótt um bætur fyrir vinnutapið.

Common.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. apríl 2005 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Þetta hlýtur að vera eitthvert djók...


 15. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Eða lygi. Þetta er jú DV sem um ræðir.


 15. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
er hann ekki frá selfossi?


 15. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Tja, það kæmi ekki á óvart :D


Hvernig er með þetta vor?

Ritað þann:    14. apríl 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  vinnan  

Ég er að verða pínku pirraður að bíða eftir vorinu. Þessi hvíti morgunskítur er að verða þreyttur.

Ég er hins vegar ekki þreyttur. Við vorum að fá nýja kaffivél hérna í vinnunni og ég er því glaðvakandi, enda alvöru expresso þar á ferð.

...
- grettir :: great

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. apríl 2005 ( Ægir pípari ) [H]
ahhh kominn tími til að kíkja við í kaffi


 14. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Alveg hjartanlega velkomið


Snúrulaus

Ritað þann:    14. apríl 2005
Efnisflokkar:  fyndið  nördadót  vinnan  

Meiriháttar þegar maður ætlar að vera duglegur á kvöldin, vinna og svona, gleymir rafmagnssnúrunni í vinnunni, er að skrifa eitthvað geðveikt merkilegt og svo Hibernating......

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Rock Werchter

Ritað þann:    11. apríl 2005
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  peningar  

Ég er búinn að vera að hlusta á nýju Rammstein plötuna - Reise, Reise undanfarið og finnst hún tussugóð. Moskau er svooo gott lag að það er ekki fyndið.
Rammstein er einmitt ein af hljómsveitunum sem verður á Rock Werchter í Belgíu í sumar, en ég var sannfærður um að það væri málið um helgina, en Olav von Ölves, Ingvar Júll og fleiri góðir eru að fara.. og núna Grettir sjálfur.

Ég var búinn að lofa sjálfum mér og mr. Visa card að ég færi ekkert út fyrir landsteinana meira á þessu ári, nema þá til að vinna, en loforð eru til að svíkja þau og enginn verður sár, nema í versta falli mr. Visa - og hann er enginn sérstakur vinur minn hvort sem er.

...
- grettir :: Rock og ról maður

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
nú hefur tekið sig upp gamallt stuð og spurnig um að fá hlyn hilmars og sigga með aftur... eins og þegar við sáum u2 hér um árið.


 11. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, já það var nú meiri snilldarferðin! London klikkar ekki á því, sérstaklega með slíka snillinga með í för.


 13. apríl 2005 ( Ingunn ) [H]
...frábært að þú ætlir að koma með Kv Ingunn


 13. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-) Vorum einmitt að ganga frá miðakaupum í gær. Komst að því að Dutch er ekki mín sterkasta hlið.


 13. apríl 2005 ( Ingunn ) [H]
Já ég vona að við þurfum ekki mikið á henni að halda...á auðveldara með kínverskuna en þýskuna.


 13. apríl 2005 ( Halla ) [H]
Þú átt eftir að skrá þig í fótboltaliðið maður! www.kaninka.net/halla
Verður kannski ekki jafngott og Olga Onatop hér um árið en...


 13. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Fæ ég að vera klappstýra?
Hef ekki góða reynslu af bolta, hvorki í áhorfi né í live spilun :-)


 13. apríl 2005 ( Halla ) [H]
Þá skráiru þig náttla bara á uppskeruhátíðirnar maður. Þær verða a.m.k. á tveggja mánaða fresti!! Þú kannt annars að sitja og drekka bjór er þaki? Já og kjósa besta þjálfarann.


 13. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Ég er geim! The magic word, beer *droool*


 13. apríl 2005 ( Halla ) [H]
Haha. Ég þóttist vita það!


 13. apríl 2005 ( Ægir of the fab 5 ) [H]
hei fæ ég ekki að vera með í boltanum?


Starfslokasamningar

Ritað þann:    08. apríl 2005
Efnisflokkar:  fréttir  nöldur  peningar  

Hvaða tísku fyrirbæri eru þessir starfslokasamningar að verða?

Menn mega ekki lengur reka nefið inn í einhver prump fyrirtæki án þess að fá starfslokasamninga. Eins og Auðunn sem hætti við að verða fréttastjóri. Hann ætti í besta falli að fá borgað útkall fyrir þessar mínútur sem hann mætti til vinnu - mætti til að segja að hann væri hættur við að vinna þarna hjá RÚV.

Ekki það að ég myndi nenna að vinna hjá RÚV. Nema kannski til að hitta sætu gelluna í Kastljósinu, Eyrúnu Magnúsdóttur, sem söngfuglinn og monthaninn Kristján Jó var dónalegur við hérna um árið.

Maður ætti kannski að gera það að starfsferli?
Við hvað vinnur þú?
Ég vinn við að byrja og hætta hjá allskonar fyrirtækjum og redda mér góðum starfslokasamningum.

...
- grettir :: eða ekki.. Eyrún, hringdu í mig.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. apríl 2005 ( Óli Fly ) [H]
Með miklum klækjum og rannsóknarivnnu (Google), þá tókst mér að grafa þetta upp fyrir þig:

Eyrún Magnúsdóttir: eyrunm hjá ruv punktur is

- Svo bara láta vaða! -


 08. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Vúhú!


 08. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
og hvert ætlið þið eyrún að fara um helgina?


 08. apríl 2005 ( Fimmaurabrandarakallinn ) [H]
Þú vildir semsagt helst vera alveg á eyrúnum um helgina...


 09. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
hahaha, góður fimmaur..

En ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að hún hefur bara ekki haft samband ennþá.


Agaleg saga

Ritað þann:    07. apríl 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Í nýjasta FHM er kafli sem heitir What does it feel like... og svo fylgja sögur eins og:
- To be eaten by a shark þar sem einn gaur lenti í hákarlaárás
- To go blind og þar segir gaukur frá því þegar hann varð blindur

Ein er hræðileg, en hún fjallar um gaur sem var að klifra einhversstaðar í helvítinu og klemmdi upphandlegginn á milli í grjóthruni. Hann gerði sér lítið fyrir (eftir fimm daga dvöl fastur í gjótunni) og sargaði af sér handlegginn með bitlausum hníf.
Og tók myndir.

...
- grettir :: *fölur og líður yfir mig*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. apríl 2005 ( Birna ) [H]
Ooooj... ég held að það liði yfir mig ef ég sæi þetta... *hryllir*


 08. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Og það hefði verið mjög slæmt hefði liðið yfir mig þegar ég las greinina, því ég sat á postulíninu :-)


Kuldaboli

Ritað þann:    07. apríl 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  

Ég var svo sannfærður um að veturinn væri búinn - og við tæki bjartari tíð með blóm í haga - að ég smellti sumardekkjunum undir á föstudaginn.
Ég var varla búinn að ganga frá tjakknum þegar það byrjaði að snjóa.

Og nú er svo kalt að ég kyndi allt í botn heima og get ekki vaknað á morgnanna, leiðist í vinnunni, internetið uppfærist ekki nógu hratt og það er skyr í matinn.

...
- grettir :: bú fokking hú

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. apríl 2005 ( hr. ölves ) [H]
djöfulli ertu hress!


 07. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Ég veit.. grunar að mig vanti bara utan um hann. Kannski maður vinni bara í því um helgina.


 07. apríl 2005 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Svo þetta kuldakast er ÞÉR að kenna! Að setja sumardekkin undir?! Vítavert gáleysi og jafnvel bara tillitsleysi gagnvart samborgurum þínum ;) Skamm skamm skamm!


 07. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, já maður.. til að bæta fyrir þetta er ég búinn að lofa að setja ekki upp útisnúrur í garðinum og geyma grillið bara inni í geymslu svo það skíni nú einhver sól í sumar.
Einnig verða garðhúsgögnin send í Góða hirðinn.


 07. apríl 2005 ( Birna ) [H]
Þetta með garðhúsgögnin... er þetta eitthvað sem varið er í? Láttu mig vita þegar þú ferð með þetta, læt taka þetta frá ef þetta er eitthvað sem vit er í;) Drífa sig svo... mér er kalt!!!!! I NEED SUN!


 08. apríl 2005 ( ella ) [H]
skyr er hollt og það er ekki einu sinni komið vor ennþá!!!


 08. apríl 2005 ( ella ) [H]
en................ það snjóaði ekki í Rvk???????????


 08. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Á laugardaginn? Hlussu snjókorn sko.. hætti reyndar mjög fljótlega en það er auðvitað búið að vera fokk kalt alla vikuna.

Þetta eru snilldar garðhúsgögn Birna. Eðal harðviður úr rúmfatalagernum. Grannarnir eru grænir af öfund þegar ég læt fara vel um mig með bjór á sumrin.


Þeir deyja ungir...

Ritað þann:    05. apríl 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fimmaurar  fréttir  

Það kannast nú allir við máltækið Þeir deyja ungir sem guðirnir elska

Hvernig stendur þá á því að páfinn varð fjörgamall?
Maður hefði nú haldið að hann ætti að vera í sérstöku uppáhaldi. Er þetta bara blöff?

...
- grettir :: bara spekúlera

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. apríl 2005 ( Una ) [H]
Er ekki bara einn Guð í hinni kaþólsku kirkju. Held að þetta sé upprunnið úr Ásatrú...


 05. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Sama suðið í mínum eyrum :-)


 06. apríl 2005 ( spritti ) [H]
Held að guð elski alla jafnt. Svo segirann allavega.


Hressandi stjörnuspær

Ritað þann:    04. apríl 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fyndið  

Les stundum stjörnuspánna mína, mér til gamans. Spár helgarinnar voru ótrúlega nákvæmar (ekki alveg orðrétt, en nánast):

Laugardagur:
Þig langar ekkert sérstaklega til að vinna í dag.

Hárrétt. Enda laugardagur og hef ég ekki unnið á laugardegi síðan í fyrravor.

Sunnudagur:
Annan daginn í röð ertu ekki í skapi til að vinna. Hafðu samt ekki áhyggjur af því að himnarnir séu að hrynja, þér veitir bara ekki af hvíldinni.

Og enn og aftur hárrétt! Og ekki hef ég unnið á sunnudegi síðan 1999.

Ég held að maður fari bara að láta þessi hárnákvæmu vísindi stjórna lífi sínu! Eða ekki.

...
- grettir :: viss um að stjörnufræðingurinn er bara naut líka og nennti ekki að skrifa spár helgarinnar

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. apríl 2005 ( Esther ) [H]
Hey, þú ennþá á lífi... Snilld!!


 05. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Og þú!? Magnað.. lítið þetta Internet.