1 til 11 af 11

Duglegur strákur!

Ritað þann:    29. apríl 2004
Efnisflokkar:  fyndið  pólitík  

Bússinn klikkar ekki á því.

Ætli hann hafi nokkurn tíma getað svarað öllum spurningunum á prófi?

...
- grettir :: snillingur

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
"... ég naut stundarinnar.."

Ha? Ofsalega notaleg stund að rifja upp aðdraganda hryðjuverka?


 30. apríl 2004 ( Rosso ) [H]
hahaha, og ekki nóg með að þeir eigi í fullu fangi með að réttlæta innrásina í Írak, þá lætur kaninn taka af sér myndir að hamast á íröskum stríðsföngum, ...doldið klúður. "Thumbs up" USA!!!


 30. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
hressir þessir amerískur forsetar... djöfulli hressir...


 30. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Það má nú segja. Vitleysingar allt saman.


 30. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Stupid people deserve a stupid president.


 30. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Rétt! Hehe, eins gott að droppa þessu viðhorfi fyrir sunnudag.


Forgangsröðin á hreinu

Ritað þann:    26. apríl 2004
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  

Hver man ekki eftir öllum fögru skattalækkunar loforðunum sem fengju að fljúga fyrir síðustu kosningar. Samkvæmt mbl.is verður nú líklega ekkert af því í bili.

En ef á að koma höggi á Baug undir belti, þá eru málin drifin í gegn.

Nú er ég kannski bara að tala fyrir mig, en ég væri mikið meira til í smá skattalækkanir. Nóg borgar maður nú samt í formi tekjuskatts, neysluskatts, vörugjalda og ofurtolla.
Ég treysti mér alveg til að velja mér blöð til að lesa, eða fréttir til að horfa á. Og trúa því sem ég vil.

En svona er þetta. Maður er líklega svo vitlaus að það þarf að mata ofan í mann hvað eru "góðar" og "vondar" fréttir. Og klípa af manni hverja krónu í leiðinni.

...
- grettir :: skítapleis

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
djöfulli hressandi þessi forsætisráðherra...


 26. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
gaman samt að þetta verður allt vergezt fyrir næstu kosningar... skítapakk á þessu skítapleisi... á það bara skilið...


 26. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Það eru allir með Alzheimer hérna, ég meina það.


 27. apríl 2004 ( Birna ) [H]
Allir að safna saman notuðum smokkum og dömubindum og grýta "ábyrga aðila" ...


 27. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Hey, það er hugmynd. Eins og mótmælandinn forðum sem sletti skyri á þessa gaura. Nú er skyr bara orðið svo dýrt að maður myndi ekki tíma því.


 27. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
ég held að það sé fátt meira vanhressandi eins og að fá notaðann smokk eða dömubindi í hausinn... get ég ímyndað mér...


 27. apríl 2004 ( Anna Júl ) [H]
Alveg er ég til í að grýta þetta lið. Held að það sé alveg að tapa sér. Og þetta kaus maður yfir sig. Geri ekki sömu mistökin tvisvar!!


 27. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega! Svo getur maðurinn ekki einu sinni mætt í viðtöl til að verja þetta. Sendir bara Halldór í Kastljósið og svona.


 28. apríl 2004 ( Maggi Sæla ) [H]
Við íslendingar ættum bara láta eins og manneskjur og biðja hana Þórhildi afsökunar og biðja hana um að taka Skerið aftur og rassskella vondu karlana og kerlingarnar


 29. apríl 2004 ( gisill ) [H]
Sammála sídasta rædumanni,og sérstaklega í ljósi annara valmøguleika, th.e.a.s. íslenskra stjórnmálaflokka eins og their leggja sig.


Útlönd

Ritað þann:    26. apríl 2004
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  

Ég er búinn að vera á leiðinni til Bandaríkjanna síðan 8. mars, en ferðinni hefur ítrekað verið frestað af óviðráðanlegum orsökum.
En núna er það confirmed, ég fer á næsta sunnudag. Reyndar overlappar það við bústaðaferð í Húsafelli sem við strákarnir erum búnir að plana um næstu helgi, en maður verður bara að vakna um hádegi og bruna á völlinn.
Eins gott að lögreglan verði hvergi á leiðinni að leika sér með nýja dýra tækið sem ku geta mælt mann úr kílómeters fjarlægð.

Þá fjúka dagpeningarnir á einu bretti.

Nú hef ég aldrei komið til Bandaríkjanna, ætli manni verði ekki snúið við á vellinum, með 9 ára gamalt vegabréf og 10 ára gamla passamynd? Spurning um að mæta nýrakaður.

...
- grettir :: Bússinn sendir mig heim með rakettureyk

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. apríl 2004 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Ég fór einmitt í gegn um vegabréfsskoðun í USA um daginn með gamalt vegabréf og gamla mynd. Mér var tilkynnt það að þetta vegabréf væri ekki tekið gilt eftir 1. október og í Leifsstöð þurfti ég að fylla út eitthvert hvítt blað aukalega sem fólk með nýju útgáfuna þarf ekki.
Þannig að þetta er spurning um að uppfæra!


 26. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Ó boy.. og ég er líka með gamalt ökuskírteini. Ég verð að athlægi þarna úti.


Sumarið búið

Ritað þann:    23. apríl 2004
Efnisflokkar:  fyndið  íþróttir  

Þetta var stutt gaman. Nú er aftur komið haust.

Mér þykir ótrúlega gaman þegar ég er haugsyfjaður á morgnanna að týna saman gym-dótið mitt og kemst svo að því eftir sturtuna að ég hef tekið sokka af sitthvoru taginu.

Maður er eins og trúður, gríðarskemmtilegt.
Skemmtilegra var þó að hópur af mongólítum mætti í leikfimi. Mongólítar eru hamingjusamasta fólk í heimi. Ef allir væru mongólítar, þá væri gaman að vera til.

...
- grettir :: tíhíhí

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. apríl 2004 ( ægir haugur ) [H]
ræktin klukkar 7:30 í fyrramálið gull í mund gefur eitthvað


 23. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Á laugardegi! I don''t think so. Ég er til í að koma um svona þrjúleytið.


 23. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Iss, ég er iðulega í öðrum sokknum svörtum og hinum dökkbláum.

Ómögulegt að sjá muninn í myrkrinu :Þ


 24. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
kaupi ekki dökkbláa sokka... þá er maður ekki í sínum hvorum litnum... nema maður sé algerlega sofandi þegar maður tekur sig til...


 24. apríl 2004 ( elín ) [H]
Þá væri ekki svo vitlaust að taka allt til kvöldið áður, á meðan heilinn virkar ennþá ;)


 24. apríl 2004 ( Birna ) [H]
Sokkar.....hvað er það? Hélt að fólk væri bara svona skítugt á fótunum o_O


Sumarið byrjar vel

Ritað þann:    22. apríl 2004
Efnisflokkar:  djamm  ég  líðandi stund  

Ég hóf sumarið á því að sofa fram yfir hádegi. Þá sá ég að veður Siggi hafði haft rétt fyrir sér og úti var afburða fínt veður skal ég segja ykkur.

Ég fór því á bensínstöð og henti öllum hreinlætisvörunum sem höfðu frosið í skottinu og keypti nýjar (ég veit, ég er skussi). Ég henti líka sköfunni, en hún hafði brotnað í vetur, við gríðarlegan fögnuð minn þann morgun, en þá fékk ég að klára skafið með höndunum. Æðislegt.
Svo bónaði ég hátt og lágt, hefði þrifið að innan ef einhver hefði ekki verið búinn að stela ryksugunni.

Mér tókst meira að segja að gera góðverk í dag. Einhver gömul kona kom á bensínstöðina eftir lokun og kunni ekki að dæla sjálf. Og dælan tók bara kort, svo ég tók bara út af mínu fyrir hana. Svo fór ég sjálfur upp í Kópavog og fyllti hjá Atlantsolíu. Þar var meiriháttar gella að vinna.
Já, sumarið byrjar svo sannarlega vel.

Tölvukunnátta mín borgaði sig líka feitt í dag, en út á hana var mér boðið í kaffi og vöfflur í Breiðholtinu um fjögur leytið og svo í grillað lambafille í Grafarvoginum um sjö leytið.

Svo styttist í afmælið mitt, en þá verður sko grillað og þambað rauðvín. Ég þarf eiginlega að byrja að skipuleggja hvenær væri best að halda grill/afmælis/innflutnings veisluna. Það er spurning um að hafa þetta á Júróvisjón kvöldinu? Eða helgina eftir... nú verður maður að fara að hringja út vinina, þetta líður allt of hratt.

...
- grettir :: excellent

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Ég hóf sumarið í morfínvímu. Top that! :Þ


 23. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Ég næ því ekki. Hef ekki einu sinni prófað morfín! Damn it!


 23. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
hóf sumarið á violent femmes... það toppar morfínvímu...


 23. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Djöfull! Alltaf þarft þú að toppa mig!

Urrr........


Handicapped

Ritað þann:    20. apríl 2004
Efnisflokkar:  bmw-inn  djamm  vinnan  

Þar kom að því. Bíllinn bilaði.
Á föstudaginn fór ég í tómu rokki beina leið í vinnuna. Eftir hádegi fékk ég þá stórkostlegu hugmynd að nú væri kominn tími á nýjan síma og ætlaði að skunda niður í Tal.
Bimmanum hefur fundist þetta vera óþarfa peningasóun og ákvað að ég ætti frekar að eyða peningum í hann og neitaði að fara í gang.

Ég lét Krók kippa honum á verkstæði og fékk þær góðu fréttir í gær að þetta væri ekkert alvarlegt, biluð bensíndæla var allt og sumt, enda bíllinn kominn til ára sinna.
Ég fékk líka þær vondu fréttir að dælan fengist hvergi og var ég farinn að pæla í eftirfarandi smáauglýsingu í Fréttablaðinu:

Bilið bensíndæla til sölu, BMW fylgir.

Fékk svo þær stórkostlegu fréttir áðan að verkstæðið hefði fengið dælu og ég kemst því í vinnuna á morgun. Enda dedd boring að hanga einn heima og vinna.

Ég á líka eftir að segja frá stórkostlegri óvissuferð sem ég fór í á laugardaginn. Hún var svo vel heppnuð, að hún var alger óvissa fyrirfram og næstum hálfan þunnudaginn, því ég var heillengi að rifja upp hvað var gert.
En við brunuðum sem sagt upp í Borgarfjörð, fórum í leiki og á fjórhjól, svo var slegið upp heljarinnar grillveislu í gamalli hlöðu þar sem grillað var lamba fille og svínaket. Og auðvitað hellt í sig, með karókí og alles.

...
- grettir :: alger snilld

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Ég vissi að það yrði karókí!

ABBA?


 20. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei... og ég söng ekki. Það hefði verið skelfilegt I tell you.


 20. apríl 2004 ( Birna ) [H]
NEeeiiii...... getur ekki verið.. við hefðum heyrt englatónana allaleið hingað til reykjavíkurinnar:P


 21. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
hehe... þú varst nú svolítið tuskulegur á kenny á þunnudaginn... annað en við hinir ;)


 22. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Hvaða hvaða.. sjaldan verið ferskari. Eða ekki :-)


Óvissuferð

Ritað þann:    16. apríl 2004
Efnisflokkar:  vinnan  

Á morgun stendur til að fara í óvissuferð, til að fagna ægilegum gróða síðasta árs. Þetta verður eitthvað suddalegt, því við eigum að mæta um hádegi, með útifatnað og sundföt.

Ég veit ekki með ykkur, en ég er geðveikt spenntur, tíhíhí.

...
- grettir :: það verður sko langferðabíll

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. apríl 2004 ( Una ) [H]
Já, auðvitað verður engin helvítis rúta...


 16. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega!


 16. apríl 2004 ( Óli Fly ) [H]
Ég verð nú að segja að ég er miklu spenntari fyrir rútu en langferðabíl ;o)


 17. apríl 2004 ( Ramage ) [H]
Hvað getur Limmó tekið marga?


 17. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Hmm.. við fórum einu sinni sex út á flugvöll. Ég held að það séu rúmlega 40 skráðir, svo þetta eru 7 limmós.
Djöfull væri það svalt!


 17. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
En langferðabílarnir eru með karaoke. Þú getur tekið ABBA, samferðamönnum þínum til mikillar ánægju :o)

Dance, grettir, dance!!!


 18. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Ó boy, legg það nú ekki í samstarfsfólkið. Grínlaust, þá held ég að laglausari mann en mig sé ekki hægt að finna.


 19. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Spurning um að fara í Ædölið í haust og fá það staðfest?


Nýtt bumbukort

Ritað þann:    14. apríl 2004
Efnisflokkar:  djamm  íþróttir  

Jæja. Ákvað loksins að endurnýja bumbukortið mitt, enda ekki búinn að hreyfa mig í rúma þrjá mánuði.
Núna er ekki sjón að sjá mig, með harðsperrur dauðans og geng eins og önd, með rassinn út í loftið til að hlífa mjóbakinu.

En nú fer hver að verða síðastur að koma sér í form fyrir sumarið svo maður verði klár á línuskautana.
Ég var að spá í að halda smá grillveislu í lok maí, svona bland afmæli og innflutningspartý þar sem ég "gleymdi" alltaf að halda eitt slíkt. Er að pæla í hvort maður eigi að sleppa bjórnum þangað til. Eða ekki.

...
- grettir :: búinn að leggja í rauðvín og alles


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. apríl 2004 ( von ölves ) [H]
ekki sleppa bjórnum... það eru mannréttindi að fá að drekka bjór... sleppa frekar mjólkinni...


 14. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Rétt! Hvað var ég hugsa?


 14. apríl 2004 ( ægir pípari ) [H]
og má maður spyrja hvert velmegunarbumban leiddi þig í þessum heilsubótarmálum?



 15. apríl 2004 ( Birna ) [H]
Grettir......maður sleppir aldrei bjór.. það væri eins og að sleppa að fara á klóstið......ussss


 15. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Já ég skammast mín geðveikt fyrir þetta :þ

Ægir, ég endurnýjaði bara á gamla góða, þá get ég hjálpað þér að klára þitt kort sem ku liggja undir skemmdum.


 15. apríl 2004 ( ægir pípari ) [H]
hmmmm......
takk takk finnst samt eins og það sé verið að skjóta á mig hmmmmm...........


 15. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Sussuss, nei hvaða vitleysa :-)


Back to work

Ritað þann:    13. apríl 2004
Efnisflokkar:  vinnan  

Þetta er án efa einn af myglaðri (mánu)þriðjudögum sem ég man eftir. Djöfulsins lúxus ef maður væri í skóla og þyrfti ekki að mæta fyrr en á morgun, eins og sumir sem ákváðu að halda partý í nótt. Damn, þessi kalkipappír á milli íbúðanna er ekki að gera góða hluti.

Til að toppa daginn eru einhverjar framkvæmdir í næsta húsi hérna uppi í vinnu og einhver snillingur er að valta eins og hann fái borgað fyrir það. Tja, líklega fær hann það.. en það er constant 1,5 á richter hérna og ég er ekki hress.

...
- grettir :: mygl.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Gobbi gobb

Ritað þann:    05. apríl 2004
Efnisflokkar:  djamm  

Ég vaknaði við símann um hádegi á laugardag og var minntur á að ég var búinn að lofa mér í hestaferð fyrir austan fjall.

Þar sem ég hitti það fólk nú svo sjaldan ákvað ég að skella mér, þrátt fyrir að ég gæti varla lyft hausnum upp frá koddanum. Eins og í alvöru hestaferðum var mikið drukkið, étið og haft gaman.

Ég reif mig svo á lappir um hádegi á sunnudaginn til að mæta í fermingarveislu. Þynnkan var ekki sem verst í gær, en harðsperrurnar, marin innanlæri og púngur, bakið allt í krumpi... það var verst. Mér líður eins og ég hafi verið að hlaupa maraþon í alltof þröngum nærbuxum með lóð í eftirdragi.

Já svona leið mér í gær. Í dag er ég skárri, en harðsperrurnar í bakinu eru ekkert að hverfa. Ég er ekki neinni þjálfun lengur.

...
- grettir :: jæja.. nú fer ég í gymmið

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. apríl 2004 ( Lilja ) [H]
Marinn á pungnum? Jahérna....


 05. apríl 2004 ( Óli Fly ) [H]
já..hemm....reiðin getur farið svona með mann.....


 07. apríl 2004 ( Birna ) [H]
HAhahah Ææææææææ verður bara að fara á bak oftar og hætta þessum borgarskap;)


 11. apríl 2004 ( Birna ) [H]
Þó þú sért í páskafríi finnst mér nú alltílagi að blogga aðeins:( ég er að verða uppiskroppa með brandarana:S


 12. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Ég tek páskana mjög hátíðlega :-) Rétt nenni að kíkja á póstinn minn til að athuga hvort það sé ekki allt up and running í vinnunni.


Menningarvitinn ég

Ritað þann:    02. apríl 2004
Efnisflokkar:  bmw-inn  ég  ferðalög  fyndið  

Ég hef verið menningarlegur með meiru í þessari viku. Að jafnaði fer ég ekki í leikhús nema einu sinni á ári, í mesta lagi. Í vikunni hef ég farið á tvö stykki, fyrst á Queen showið, We will rock you eða eitthvað svoleiðis, sem var alger sniiiild; og í gær fór ég á Abba showið sem var alveg fínt. Fannst grunsamlega margir strákar þarna tveir og tveir saman? Anyways, fékk mér bara Gin og var hress.

Ég er búinn að pæla í því lengi hvort ég eigi að tíma að kaupa ný dekk á bílinn hjá mér, en stykkið kostar um 31 þúsund. Ég tékkaði á þessu hérna í UK og hvað haldiði? Kvikindið kostar ekki nema 12 þúsund.
Þannig að með því að kaupa tvö, borgar sig að fljúga hingað og sækja. Og auðvitað verslaði ég bara tvö núna og er að pæla í að skreppa aftur seinna.

Verst hvað það verður leiðinlegt að dröslast með þetta í lestinni, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir 38 þúsund kallinn sem maður spara, eða 76 fyrir öll dekkin. Ýmislegt skal ég segja ykkur, ýmislegt.

Fyndinn samt þrifgaurinn hérna á skrifstofunni. Hann var búinn að líma á dekkin svona gulan post-it miða sem á stóð: "No parking, please".
Eftir að hafa horft á Já, Ráðherra í den, þá hélt ég að Bretar hefðu ekki húmor. Það var rangt.

...
- grettir :: hlýt að rúlla í gegnum tollinn í þetta sinn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. apríl 2004 ( Gunna ) [H]
Hvenær er von á þér á klakann? Vantar svona smá tölvuþjónustu og svo ertu boðinn í veislu á þunnudaginn! :c)


 02. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
Ég kem í kvöld. Læt mig sko ekki vanta í veislu sko.
Tölvuþjónusta segirðu, það má athuga það. Veltur á því hvort ég verð ánægður með matinn :-)


 02. apríl 2004 ( icelily ) [H]
Fannst þér Já, ráðherra? ekki fyndinn? Ég gargaði úr hlátri yfir þeim.

Bretar rúla. Hef ég kannski sagt það áður? :Þ


 02. apríl 2004 ( Ramage ) [H]
Það vantar alla umfjöllun um hvað heimafólk þitt fer illa með minnimáttar!


 03. apríl 2004 ( Maggi Sæla ) [H]
Grettir fólk sem eldar jafnmikin viðbjóð og tjallinn hlýtur að hafa mikinn húmor, sbr. Monty Python, Ali G ofl.


 03. apríl 2004 ( - grettir ) [H]
hahaha, já. Þeir eru ekkert spes í matargerð, þeir mega eiga það.