1 til 12 af 12
Upprisan
Ritað þann: 29. mars 2007
Efnisflokkar: fjölskyldan
Við erum búin að vera lárétt á Háteigsveginum í viku. Meira að segja brjóstabarnið fékk upp- og niðurgang, eða ælu og renning eins og við kjósum að kalla það.
Þetta hefur sett allt úr skorðum hérna, vinnu, pallaplön, skóla og mataræði.
Munnlegt próf í ISO
Ritað þann: 23. mars 2007
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Það er viðhaldsúttekt í vinnunni í dag. Ég er mættur með Panodil hot í annarri og snýtubréf í hinni.
Viðhaldsúttekt fer þannig fram að maður sem vinnur við það að votta vinnuferli mætir og tekur fyrir verkefni af handahófi.
Þetta köllum við verkefnastjórarnir að vinna í úttektarlottóinu. Ég fékk sem betur fer ekki stóra vinninginn (fleiri en eitt verkefni) en eitt verkefni á mínum snærum þarf eftir sem áður að fara í úttekt.
Ef alvarlegar athugasemdir eða frávik eins og spjátrungarnir kalla þetta, þá gætum við misst ISO vottunina. Það sér það hver maður í hendi sér að einn vill ekki verða þess valdandi að á forsíðu Morgunblaðsins prentist sú frétt. Það er ekki tromp á hendi í hinu árlega launaviðtali.
Ég kvíði þessu svona svipað og þýsku munnlegu prófi. Ég átti það til að tala dönsku í slíkum prófum og því alveg viðbúið að ég prumpi einhverri vitleysu út um matargatið á mér í kvíðakasti.
Svona svipað og Bush forseti sem ruglar stundum saman "inni" og "úti" orðum. "Inni" orð eru orð sem maður hugsar en "úti" orð þau sem ýtast út um trantinn.
Þegar ég er kvíðinn ýtast stundum "inni" orð út um munnvikin eða út á lyklaborðið, ekki endilega í neinu rökrænu samhengi.
Eins og núna.
Gubbupest
Ritað þann: 22. mars 2007
Efnisflokkar: ég
Af öllum flensum, kvefum og smápestum líkar mér verst við gubbupest. Bjakk.
Ástralía
Ritað þann: 20. mars 2007
Efnisflokkar: fjölskyldan
Þegar það fór að snjóa um daginn dæsti drengurinn minn og sagði:
Af hverju er alltaf svona kalt. Ég nenni ekki alltaf að vera í öllum þessum fötum. Mig langar að vera í bol og stuttbuxum.
Ég sagði honum að þá þyrftum við að flytja til Ástralíu. Þar væri sumar núna og allir á stuttbuxum.
Þegar við sóttum hann á leikskólann í dag sagðist hann vera búinn að gefast upp á því að búa á Íslandi. Hvenær við færum eiginlega til Ástralíu? Hann væri meira að segja búinn að láta vini sína vita að hann væri að flytja.
Ég er til...
Ég fékk á síðasta ári bréf frá tryggingafélagi sem ég var hjá þess efnis að vegna "fjölgunar óhappa", "dýrari bíla", "dýrari viðgerða" þá þyrftu þeir að hækka bílatrygginguna hjá mér um 17 þúsund á ári.
Mér þótti þetta einkennilegt, sérstaklega þar sem ég kannaðist ekki við að hafa lent í neinu óhappi á árinu og ef þeir settu 150 þúsund krónur inn um bréfalúguna mína þá væri BMW-inn þeirra.
Ég var því ekki þeirrar skoðunar að dýrari óhöpp væru mér að kenna og ákvað að skipta um félag.
Þar sem ég er ekki duglegur að lesa póstinn minn jafnóðum var ég of seinn að segja upp tryggingunni og leita að nýju tilboði í mín mál. Ég fékk því einkar snjalla hugmynd.
Ég "seldi" bílinn minn. Á pappírunum þ.e.a.s. Í viku átti ég ekki bíl, rétt á meðan eigendaskiptin gengu í gegn.
Svo "keypti" ég bílinn minn aftur og þegar ég fór með eigendaskipta tilkynninguna merkti ég við nýtt tryggingafélag.
Í millitíðinni hringdi ég og heimtaði endurgreiðslu á þeirri fjárhæð sem ég var búinn að borga fyrir tryggingu út árið.
Nýja félagið fékk tvo bíla til tryggingar, húseigendatryggingu og brunatryggingu á tveimur íbúðum og innbústryggingu á einni.
Um áramótin birtist krafa frá gamla tryggingarfélaginu í einkabankanum. Ég reif upp símann og spurði hvaða snepill þetta væri.
Þetta er brunatrygging sagði maðurinn á línunni.
- Ég sagði upp öllum tryggingum hjá ykkur á síðasta ári, vegna hækkunar á bílatryggingu. sagði ég.
Nú?
- Já, ég er ekki með neinar tryggingar hjá ykkur. Ég flutti allt mitt og minnar fjölskyldu vegna þess að ég fékk lægri bílatryggingu annarsstaðar, hélt ég áfram.
Já, ég sé hérna að það er búið að segja brunatryggingunni upp, en við höfum ekki fengið staðfestingu á að nýja tryggingin sé búin að taka gildi.
- Ja há... og voruð þið bara að vona að ég myndi borga þetta óvart?
Haha.. hehe.. nei nei.
- Viltu fella þetta niður?
Já, ég skal gera það.
- Vertu blessaður
Ég er bara rétt að byrja í tiltektinni hjá mér. Næst fær ákveðinn banki að fjúka. Á meðan ég var í námi sótti ég um debetkort í öllum bönkum landsins til að fjármagna bækur, bjórdrykkju, skólagjöld og bjórdrykkju.
Ég ætla að segja upp einum banka eða svo. Ég skulda honum ekki neitt og ég nenni ekki lengur að muna svona mörg pin númer, reikningsnúmer og lykilorð í netbanka.
Auðlindir þjóðarinnar
Ritað þann: 13. mars 2007
Efnisflokkar: fréttir pólitík
Hinn fámenni Framsóknarflokkur hefur sett allt á annan endann með því að hóta stjórnarslitum verði stjórnarskránni ekki breytt og bætt þar inn ákvæði um að auðlindir landsins skuli vera þjóðareign.
Hverjir eru þjóðin? Er það ekki ríkið? Er Framsóknarflokkurinn að festa það í stjórnarskrá að ríkið eigi fiskinn í sjónum, laxinn sem syndir í ánum, vatnsaflið sem rennur í gegnum land ýmissa bænda. Á ríkið dúninn sem týndur er í æðarvarpinu?
Ætli auðlindarákvæðið fengi svo jákvæðar undirtektir ef þar stæði að allar auðlindir landsins yrðu ríkiseign. Hvað með mannauð?
Svo segja menn bara að þetta sé merkingarlaust ákvæði. Til hvers er verið að setja merkingarlaust ákvæði í stjórnarskránna? Er hún með öllu merkingarlaus? Er Sjálfstæðisflokkurinn að reyna að hífa upp fylgi þessa ömurlega Framsóknarflokks til að tryggja sig áfram í stjórn?
Rétti þeir upp hönd sem vilja áframhaldandi ríkisstjórn með Framsókn innanborðs.
Þið verðið að muna það að það er ekki nóg að fylgi þeirra minnki niður í nánast ekki neitt - því ef þeir koma einum manni að, þá er hann vís með að verða forsætisráðherra - það verður að hreinsa hann alveg af þingi.
Framtíðin með Vinstri Grænum
Ritað þann: 09. mars 2007
Efnisflokkar: nöldur pólitík
Ef netlöggu hugmynd Steingríms nær fram að ganga, ætli það þurfi þá að tollafgreiða allt dánlód sem maður framkvæmir?
Tollurinn góðan dag.
- Já, góðan dag. Ég var að dánlóda í síðustu viku. Ég var að spá í hvort það væri komið til landsins?
Augnablik..
..
biðmúsik
..
Já, þetta er komið. Var þetta ekki forsíðan á cnn.com?
- Jú, passar.
Það eru smá vandræði við afgreiðsluna. Það var mynd af hálfnöktum kvenmanni í auglýsingu sem birtist þarna hægra megin. Strákarnir eru að fótósjoppa hana út. Þetta ætti að vera komið til þín seinnipartinn.
Klám í Smáralind
Ritað þann: 08. mars 2007
Efnisflokkar: klám nöldur
Í Fréttablaðinu í morgun er
talað um fermingarklám pistil þar sem kvartað er yfir klámi á forsíðu einhvers auglýsingapésa frá Smáralind sem borinn var í hús í gær.
Svo ég tilvitni:
Á forsíðunni má sjá unga stúlku á háum hælum í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.
Ég gróf því pésann upp úr ruslinu, enda hafði þessi sýn á blaðið alveg farið framhjá mér.
Á forsíðunni er vissulega stúlka. Gott ef hún er ekki fermingarstúlka. Hún beygir sig fram og er gapandi (af undrun eða fermingarspenningi?). Annað er ekki að sjá nema maður sé virkilega klámfenginn.
Ég er nú ekki sérfræðingur í klámi, en hvernig eru "velþekktar stellingar úr klámmyndum"? Er klámfengið að vera með opinn munninn? Er ekki klámfengið að
opna munninn á internetinu og tala um skaufa og hreinar meyjar? Er í lagi að kalla fermingarbarn sem birtist á auglýsingapésa hóru?
Ég held að sumir ættu nú að taka niður klámgleraugun áður en bændasamtökin vísa þeim úr landi.
Edit:
Rakst á þessa stórskemmtilegu grein um sama efni
http://blogg.visir.is/denni
Verið að taka okkur í ósmurt
Ritað þann: 07. mars 2007
Efnisflokkar: neytendur
Á
vef neytendasamtakanna er
listi yfir vörur sem hafa hækkað og lítur út fyrir að birgjar þeirra ætli að stinga skattalækkun okkar í vasann.
Þessar vörur verða ekki bornar á borð á Háteigsveginum.
visir.is hefur í nokkurn tíma boðið fólki upp á að skrifa athugasemdir við fréttir - sem oftar en ekki snúast um að tjá sig um hversu illa fréttin er skrifuð - en hefur nú einnig tekið upp bloggkerfi svipað moggablogginu á mbl.is
Þetta moggablogg hefur mér nú sýnst bara vera samansafn af uppum sem gera lítið annað en að hreykja sér af því hvað það er töff að vera moggabloggari. Þess á milli hreykja þeir sér af því að áhrifamáttur þeirra sé svo mikill því færslur þeirra birtist á forsíðu mbl.is
Meirihluti færslnanna eru svo ótengdar fréttunum sem þær vísa á eða innihalda gagnrýni á orðafar eða efnistök fréttarinnar. Kaldhæðnislegt, því bloggararnir hika ekki við að eyða athugasemdum sem þeim finnst ekki tengjast sínum eigin skrifum eða eru ekki sammála.
Um daginn var einhver klaufavilla í kerfinu sem gerði það að verkum að lykilorð notenda birtust á bloggi viðkomandi. Menn urðu æfir og töluðu um dulkóðun og öryggisbresti eins og um fjólublátt öryggisstig væri að ræða.
Ég er með fréttir handa ykkur. Þetta er töff í smátíma, einhverjir ykkar koma til með að halda ágætum lesendahóp ef þið eruð smá fyndin, dass málefnaleg og prumpið ekki endalaust með trantinum.
Þið hin komið til með að renna út eins og gamalt skyr og fáið eina og eina heimsókn af því "að færslan ykkar birtist á forsíðunni".
Mig grunar að vísisbloggið verði svipað.
Mogginn var betri án þessa og mér finnst eins og þetta sé orðin einhver sprænukeppni milli mbl.is og visir.is hver fær flestu "hittin" á teljarana sína.
Ég kíkti á þjónustusíðu skattsins um daginn áður en nýju síðunni var komið í loftið. Ég mundi nefnilega ekki alveg hvenær ætti að skila.
Þá rakst ég á þessa
tilkynningu/auglýsingu í stjórnartíðindum. Takið eftir þessari klausu:
Framtölum manna, þ.m.t. þeirra, sem látist hafa á árinu 2006, skal skila til skattstjóra eigi síðar en 21. mars 2007.
Ekki nóg með að aðstandendur þurfi að standa í að grafa af manni hræið þegar maður hrekkur upp af, heldur þurfa þeir líka að skila fyrir mann skattframtalinu.
Klaufaleg auglýsingin frá Skífunni í gærkvöldi þar sem þeir sögðu frá því að 1. mars lækkaði virðisauki á tónlist, en þeir hefðu þegar lækkað - ætluðu ekki að bíða til mánaðarmóta.
Maður hefði kannski átt að banka upp á í gærkvöldi?
En lækkaður vaskur eða ekki, diskar eru of dýrir.