1 til 17 af 17
Íþróttamót
Ritað þann: 30. mars 2006
Efnisflokkar: ég íþróttir
Næsta laugardag verður svokallað Alucup, sem er frjálsíþróttamót fyrirtækja og verður haldið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Ég tek þátt í 60 metra hlaupi enda "ungi" maðurinn í liðinu.
Ég er ekki vanur að hlaupa svona spretti, enda finnst mér prýðilegt að skokka bara í rólegheitum með nýja iPodinn minn á hlaupabretti með heilalaust sjónvarpsefni fyrir framan andlitið á mér. Í gær fór ég því niður í Laugardal og tók eina létta æfingu.
Ég veit ekki hvort það var af því að ellin er byrjuð að færast yfir eða af því ég var nýbúinn að éta kjötsúpu sem ég ætlaði gjörsamlega að drepast eftir nokkra 60 metra spretti. Þetta er fjandanum erfiðara.
En góður var ég. Finn lyktina af Alucup bikarnum.
Fyrir 6 árum hefði ekki hvarflað að mér að taka þátt í svona rugli - enda með myndarlega skóla/bjórbumbu. Hún er ekki hér lengur, enda hefði verið erfitt að taka 60 metrana með 15 kílóa aukafarangur.
En ég hvet ykkur til að mæta í Laugardalinn á laugardaginn og hvetja ykkar mann - mig.
Það er bara alveg að koma að þessu. Þá er við hæfi að syngja "Song to say goodbye" með Placebo
You are one of God's mistakes
You crying, tragic waste of skin
I'm well aware of how it aches
And you still won't let me in
Now I'm breaking down your door
To try and save your swollen face
Though I don't like you anymore
You lying, trying waste of space
My, oh my
A song to say goodbye
A song to say goodbye
A song to say -
Before our innocence was lost
You were always one of those
Blessed with lucky sevens
And the voice that made me cry
My, oh my
You were mother nature's son
Someone to whom I could relate
Your needle and your damage done
Remains a sordid twist of fate
Now I'm trying to wake you up
To pull you from the liquid sky
'Cause if I don't we'll both end up
With just your song to say goodbye
My, oh my
A song to say goodbye
A song to say goodbye
A song to say -
Before our innocence was lost
You were always one of those
Blessed with lucky sevens
And the voice that made me cry
It's a song to say goodbye
Placebo
Ritað þann: 29. mars 2006
Efnisflokkar: tónlist
Placebo er svöl hljómsveit. Fjárfesti í nýjasta disknum þeirra um helgina, Meds. Ansi góður verð ég að segja. Rennur vel í gegn við fyrstu hlustun og ætlar bara að batna.
Ég var reyndar ekki hrifinn þegar ég sá að þeir voru búnir að troða einhverri afritunarvörn á kvikindið, því þá get ég ekki sett hann á iPodinn, en það tók ekki langan tíma að redda því.
Skilaði skattskýrslunni minni í gær. Erlenda íbúðalánið mitt hefur lækkað um milljón á einu ári. Sambærilegt lán í íslenskum hefur hækkað um 400 þúsund. Svo eru bankamenn með hræðsluáróðurinn hægri vinstri "þetta er svo mikil áhætta og bla bla bla".
Well screw them. Verðbólga og verðbætur eru áhætta.
Héðan í frá verður ekki ein króna tekin að láni. Aðeins rúblur og jen. Því áður en maður veit af, þá skuldar maður ekki eina krónu, heldur tvær eða þrjár.
Og hvenær ætlar þessi drullulýður við Austurvöll að afnema stimpilgjöldin? Eins og það sé dýrara að stimpla bréf upp á eina milljón eða tíu milljónir? Ekki eins og það séu sendir fleiri pappírar inn til sýslumanns. Það mætti halda að það kæmi pappír fyrir hverja krónu sem fengin er að láni þeir þurfi meira blek til að stimpla hærra bréf.
Hvaða rugl?
Fall er fararheill
Ritað þann: 22. mars 2006
Efnisflokkar: fyndið íbúðamál
Skrifaðu undir kaupsamning áðan. Þegar kom að því að greiða þá var ekki hægt að logga sig inn í einkabankann. Það sama gerðist síðast þegar ég keypti íbúð, svo það er spurning hvort maður verði ekki að láta tölvudeild landsbankans vita áður en ég fer í kaupsamning næst - svo þeir geti verið með aukavakt í gangi.
En anywho.. það var bara hringt austur fyrir fjall og millifært á gamla mátann og nú eigum við frúin glæsilegt hús á Háteigsveginum. Það er æðislegt. Byrjað verður á því að búa til pall og nýjar æðislegar svaladyr og þá verður þetta fallegasta húsið í 105.
Það er ljóst að ég fer að hringja inn nokkra greiða á næstu vikum, græja flutninga og málningu og svona. Be afraid.
Verður við að fara að sniðganga danskar vörur?
Hvaða stælar eru
þetta? Á leið í hyldýpið? Ef það er eitthvað sem á í hættu á að hverfa í hyldýpið þá er það þetta marflata skítakántrý sem Danmörk er. Kannski bræðum við bara Vatnajökul og hækkum þannig yfirborð sjávar um 10 cm og hver er þá á leiðinni í hyldýpið? Ha?
iPod
Ritað þann: 21. mars 2006
Efnisflokkar: tónlist tæki
Ég eignaðist iPod nano í gær. Hann er svalur.. pínupons en svalur.
Árshátíð
Ritað þann: 20. mars 2006
Efnisflokkar: djamm tónlist
Árshátíð starfsmannafélagsins var um helgina. Þar spilaði stórskemmtileg hljómsveit sem kallar sig "Hundur í óskilum".
Það er mögnuð hljómsveit. Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar þeir tóku "Final countdown" með blokkflautu eða einhverju álíka verkfæri.
Baugsmenn saklausir.
Ég vil að þessir blýantsnagarar hjá ríkinu verði hýddir opinberlega þar til hvers rassgat verði skinnlaust fyrir að bruðla svona með 60 milljónir.
Það mætti halda að starfsmenn bankanna væru í einhverju svitakófi yfir gengisfalli fjármálafyrirtækja á verðbréfamarkaði. Allavega gengur umsóknin um íbúðalánið á hraða snigilsins.
----
Maður: - Hvernig sofið þið á nóttunni eftir gengishrunið?
Bankamaður: - Eins og ungabörn
Maður: Í alvöru?
Bankamaður: - Já, vöknum 5-6 sinnum á nóttu grátandi, pissum undir og sjúgum á okkur þumalinn í fósturstellingunni
En gaman
Ritað þann: 10. mars 2006
Efnisflokkar: vinnan
Nú eru iðnaðarmenn mættir á svæðið með höggborvélar. Á hvaða verknúmer fer restin af deginum þá?
Sætu stelpurnar búnar
Ritað þann: 08. mars 2006
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Grænmetið
Ritað þann: 06. mars 2006
Efnisflokkar: matur vinnan
Grænmetissúpan fór eitthvað illa í mig. Það hristist allt og skelfur hérna.
Óskar
Ritað þann: 06. mars 2006
Efnisflokkar: kvikmyndir
Ekki er nú hægt að segja að ég sé menningarlega sinnaður. Allavega er ég ekki búinn að sjá nema eina
mynd á Óskars listanum og hún hlaut engan slíkan.
(Furðu)fuglaflensa
Ritað þann: 03. mars 2006
Efnisflokkar: ég fyndið slen
Ég tók upp á því að fá flensu á síðasta föstudag og lá alla helgina í aumingjaskap. Svo er ég búinn að vera slappur og sjoppulegur alla vikuna og fór því til læknis í morgun í von um bót meina minna og athuga hvort þessi hósti væri eitthvað alvarlegra en kvef.
Þegar ég var búinn að lýsa einkennum fyrir lækninum - þurr hósti í rúma viku, hiti og slappleiki um helgina og almennur ræfilsgangur sem virðist enga enda ætla að taka - þá segir læknirinn: "Já þú hefur líklega fengið flensu. Hver er spurningin?"
Fantastic Four
Ritað þann: 02. mars 2006
Efnisflokkar: ég
Óli skoraði á mig um daginn og hér kemur fernu listinn minn
Fjórar vinnur gegnum tíðina:
Bar út dagblöð
Keyrði lyftara í frystihúsi
Keyrði út bjór
Forrita stöff
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Dumb and dumber
Indiana jones myndirnar
Equilibrium
Pulp fiction
Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur:
Hitchhikers Guide to the Galaxy
Bróðir minn Ljónshjarta
Wulffmorgenthaler
Ilmurinn
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Þorlákshöfn
Eskihlíðin
Framnesvegurinn
Garðabær
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla:
Family guy
Simpson
Arrested development
Lost
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
San se Bastian, Spánn
Rio de Janeiro, Brazilía
Þórsmörk, Suðurlandi
Austurvöllur, 101 Reykjavík
Fernt matarkyns í uppáhaldi:
Lamba fille
Lasagne
Bjór
Allur grillmatur
Reykvíkingur að nýju
Ritað þann: 01. mars 2006
Efnisflokkar: íbúðamál
Gerði tilboð í íbúð í morgun. Bráðum kemst ég því vonandi til siðmenningarinnar að nýju. Það verður hressandi.
Ef gengið verður að tilboðinu á ég þá tvö stykki íbúðir. Ég er að pæla í að safna. Einni úr hverju póstnúmeri. Þó ekki hærra en 108. Nenni því ekkert.
Ekki það að ég hafi það eitthvað skítt hérna í Garðabænum, öðru nær. Maður fær bara einhvern miðbæjar stemmara eftir því sem sólin hækkar á lofti. Maður röltir ekki mikið hér.