1 til 23 af 23

Win XP snilld

Ritað þann:    31. mars 2005
Efnisflokkar:  fyndið  nördadót  

Stundum er XP svo mikil gúrka. Þessar "bubbles" sem eru að poppa upp í tíma og ótíma neðst til hægri.. til að láta mann vita að netkapallinn sé tengdur og þetta og hitt.

Nú var að poppa upp "You desktop contains unused icons."
Svo kemur e-ð "Click here to clean up your desktop now."

Á desktoppinu mínu eru eftirfarandi icon:
"My Computer"
"Recycle Bin"
"My Documents"

Ef ég mætti spyrja, hvað á að hreinsa upp? Myndina af henni Evu Longoriu? Held nú síður!

Og ekki láta mig byrja á helvítis leitarhundinum, for crying out loud. XP professional með einhverjum skrípó karakter til að leita fyrir mann!

...
- grettir :: Windows FB (for babies)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. mars 2005 ( Ósk ) [H]
Helvítis leitarhvolpurinn! Ekkert finnst og hann glottir framan í konu á meðan.

GLOTTIR!


 31. mars 2005 ( albin ) [H]
Er þetta ekki bara fyrir gúrkurnar sem nota XP? :p


 31. mars 2005 ( von ölves ) [H]
er þetta ekki bara af því það eru svo margir forritarar frá hveragerði?


 01. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Já, það er nú meira prumpið þessi leit :-|

Jú, það er bara fyrir gúrkur að nota XP, ég veit ekki hvað maður er að pæla..

von ölves, ég held að þú eigir kollgátuna. Þetta er líklega allt komið úr gróðurhúsunum þar :D


 03. apríl 2005 ( spritti ) [H]
er ekki bara flugna skítur þarna. Þarf ekki bara að hreinsa hann?


 04. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Jú og puttaför, haha..


All in one raunveruleikaþáttur

Ritað þann:    31. mars 2005
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Rakst á þetta í gær.. vel fyndið.

Ég er annars kominn með æluna á raunveruleikaþáttum. Ég meina, er þetta ekki trilljónasta serían af survivor? Sá einn þátt um daginn og þetta er alltaf eins.

...
- grettir :: nýtt trend, óraunveruleikaþættir!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. apríl 2005 ( finnur ) [H]
það er ekkert nýtt...... AllyMcBeal og annar álíka hroði


 04. apríl 2005 ( Gunnardo da Vinci ) [H]
Mig langar bara að vita hvaða snilling datt það í hug að kalla þetta raunveruleikaþætti. Þetta eru óraunveruleikaþættirnir. Raunveruleikaþáttur er frekar svona eitthvað um venjulega manninn sem á venjulega konu og þau eiga venjuleg börn og venjuleg gæludýr og lifa venjulega lífinu og borgar af lánunum sínum reglulega og venj........


 04. apríl 2005 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega.. djöfull yrði það dedd boring þáttur. Lufsast í vinnuna, sofna yfir fréttunum, fara á fyllerí um helgar, sofna ofan á einhverjum stelpum, fá áfall þegar Vísa reikningurinn kemur...
Wait a minute.. that''s my life!


Ríki mitt

Ritað þann:    30. mars 2005
Efnisflokkar:  ég  fyndið  pólitík  

Maður ætti kannski að taka U beygju í starfsframa og fara í pólitík.

Allavega gengur ríkið mitt á vefnum nokkuð vel, eftir nokkrar vel upplýstar ákvarðanir af minni hálfu.

Takið til dæmis eftir:
Grettirsbestistan's national animal is the hamster, which is also the nation's favorite main course

Hver væri svo líbó og skemmtilegur stjórnandi að hann leyfði át á þjóðarkvikindinu?

...
- grettir :: ég segi X grettir

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
sem einvaldur í ríki mínu The Republic of Olves býð ég þér í opinbera heimsókn í sendiráð mitt í þingholtunum... hinn mestmegnisnýmóðinsdrykkur kaffis verður þar á boðstólum.


 31. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Kaffis hljómar aldeilis vel!


Geisp..

Ritað þann:    29. mars 2005
Efnisflokkar:  djamm  efahyggja  ég  fyndið  

Það var með herkjum að mér tækist að snúa við sólarhringnum eftir letilega páska. Fór ekki nema eitt kvöld út að djamma. Hin kvöldin var eintóm leti, sjónvarpsgláp og nice.

Var að tala við félaga minn fyrir páskana og vorum að pæla í því hvenær væri opið og hvenær væri vænlegast að fara út á lífið og komumst að því að það er alltaf eins og þetta séu fyrstu páskarnir manns. Aldrei man maður stundinni lengur hvernig páskarnir í fyrra voru.

Og í tilefni páskanna tók ég próf sem ég sá hjá Ósk:

You scored as Satanism. Your beliefs most closely resemble those of Satanism! Before you scream, do a bit of research on it. To be a Satanist, you don"t actually have to believe in Satan. Satanism generally focuses upon the spiritual advancement of the self, rather than upon submission to a deity or a set of moral codes. Do some research if you immediately think of the satanic cult stereotype. Your beliefs may also resemble those of earth-based religions such as paganism.

atheism

100%

Satanism

100%

agnosticism

96%

Paganism

79%

Islam

67%

Buddhism

50%

Judaism

42%

Christianity

8%

Hinduism

0%

Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com



...
- grettir :: engir páskar hjá mér að ári..

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Framtal

Ritað þann:    21. mars 2005
Efnisflokkar:  djamm  peningar  

Fokk hvað er leiðinlegt að gera þetta skattframtal.

Fokk hvað ég var þunnur í gær.

...
- grettir :: dagpeningar, akstursdagbók, endurfjármögnun.. *æl*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Og enn batnar það. Tókst að hella úr kaffibollanum í fangið á mér. Glæsilegt. Held maður fari bara að koma sér heim.


 21. mars 2005 ( majae ) [H]
já ég er viss um að malibu-ið í blandaðan egils djús hafi hjálpað aðeins með þynnkuna !!!!!


 21. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Gæti verið :D En hann var þess virði.
Gruna líka vodka skotin í afmælinu hans Óla. Þau voru banvæn!


 22. mars 2005 ( majae ) [H]
já ég náði ekki svo langt. Fjóla sá um nærveru okkar vinkvennana fyrir mig bara. ;)

Hefði eflaust líka bara ælt yfir allt ef ég hefði farið útí eitthver vodka skot. Bjakk.


 27. mars 2005 ( Óli Fly ) [H]
Hey, þetta var Fishermans = rann ljúflega niður. Annars er það víst orðinn hefð að í hvert skipti sem ég held gleðskap, þá enda víst allir einhvernveginn totally á rassgatinu með þeim afleiðingum að skattframtöl, samræður og general socialising er eitthvað sem er ómögulegt daginn eftir...


 29. mars 2005 ( Lilja ) [H]
Það er naumast klaufaskapurinn!

En gleðilega páska, grettir minn ;***


 29. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það, þeir voru excellent þessir páskar. Maður er hálf latur að mæta aftur til vinnu...


Lífið verður bráðum gott að nýju

Ritað þann:    17. mars 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  

Bíllinn minn er næstum tilbúinn. Hann er reyndar búinn að vera næstum tilbúinn í heila viku, en mig er búið að vanta nokkra varahluti til að klára dæmið, eins og stefnuljós, plastdrasl framan á stuðarann, vatnskassaviðgerð og nýtt númer.

Búinn að vera að spranga um á VW Póló síðastliðinn mánuð. Ágætur bíll, en enginn Bimmi. Þar að auki beinskiptur, I'm getting to old for that shit. Setti einmitt í gang um daginn í gír og brunaði bara af stað. Kom sér vel að það var grænt á Framnes-Hringbraut.

...
- grettir :: það verður svooo gaman þegar hann er kemur *bruuuund*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. mars 2005 ( ægir ) [H]
ekki ertu að fá þér einkanúmer? nei ekki segja það?


 17. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Ertu frá þér? Það er eitthvað svo 1995.
Númerið að framan er einhversstaðar úti í vegkanti á milli Keflavíkur og Hafnarfjarðar. Nenni ekki að leita.


 17. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Fyrir utan svindlið að mega bara vera með 6 stafi. "gretir" er ekkert svalt einkanúmer.


 17. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
en GGROUP ... eða kannski bara GROUP með vísan til þess að þú ert bara aðal groupið á íslandi... ef ekki bara heiminum!


 17. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Ég meinti sko "groupies":
http://dictionary.reference.com/search?q=groupies
Hehe.
En group er hugmynd áður en einhver tekur það.


 18. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
ég náði því en það eru 8 stafir og það gengur ekki... númeraplötufasismi á þessu skeri!


 25. mars 2005 ( Baddi bíló ) [H]
Hvaða voða skran er þetta BMW! Alltaf bilað og svo bara í margar vikur á verkstæði. Ussuss, orðið allt of flókið drasl. Það er nú annað en gamli góði Moskvitzinn og Ladan sem ... nú jæja en það er nú önnur saga.


 28. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Hann var nú ekki bilaður blessaður... smá sprautun í gangi.


Allt í drasli

Ritað þann:    17. mars 2005
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  sjónvarp  

Sá endursýndan þátt um daginn á S1 sem heitir Allt í drasli.
Hræðilegur þáttur, en fékk mig til að líta aðeins og kringum mig og sá að ég þarf ráðskonu hið fyrsta, enda allt í drasli á Framnesveginum. Það er reyndar ekkert agalega skítugt, en það er bara dót út um allt.
Maður þarf eiginlega að flytja á tveggja ára fresti til að filtera út rusl sem maður er hættur að nota og skúra undir sófasettinu í leiðinni.

...
- grettir :: stefnir í boring daga framundan

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. mars 2005 ( Stranger ) [H]
Er þá ekki málið fyrir Gretti að skrá sig í þáttinn Allt í Drasli og fá Heiðar og Margréti í heimsókn?


 17. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei ætli það. Það þarf nú enga sérfræðinga til að sjá að hér nenna menn ekki að vaska upp á hverjum degi eða brjóta saman þvottinn.
Nei, hér er sko hreini þvotturinn á snúrunum þar til hann er notaður aftur og ekki vaskað upp fyrr en öll hnífapör eru komin í vaskinn. Sem betur fer á ég bara 4 gaffla, 4 hnífa og 4 skeiðar :-)


Dollar smollar

Ritað þann:    17. mars 2005
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  neytendur  peningar  

Þegar dollarinn var hár þá var kvartað og kveinað yfir því hvað allt væri ómögulegt, dýrt að flytja inn dót og allt í pati.

Nú er dollarinn lengst niðri og þá er kvartað og kveinað yfir því hvað allt er ómögulegt og ekkert fæst fyrir fiskinn sem fluttur er út. Aldrei hægt að gera þessu pakki sem stjórnar þessu landi til geðs.

Auðvitað kemur þá upp sú umræða á alþingi að fella gengið til að bjarga nokkrum kvótakóngum og vinum - en um leið hækka skuldir almennings, hækka vöruverð og allt sem því fylgir.

Ég sver það, ef þeir fella gengið, þá fer ég og sparka í púnga og píkubein þarna niður á Austurvelli.

...
- grettir :: hættið að skipta ykkur af, þarna banana lýðveldis apakettir!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Kardínáli og Da Vinci Code

Ritað þann:    15. mars 2005
Efnisflokkar:  efahyggja  fyndið  

Samkvæmt frétt á mbl.is hefur Kardínáli nú tjáð sig opinberlega um "lygarnar" í Da Vinci Code.

Segir þar meðal annars:
Bókin er alls staðar. Það er raunveruleg hætta á því að margir sem lesi hana fari að trúa því að lygasögurnar í henni séu sannar

Hmm.. þetta minnir mig á aðra bók sem er til á mörgum heimilum og margir sem lesa hana trúa því að lygarnar í henni séu sannar.

...
- grettir :: ætli kardínáli sé með einkarétt á lygasögum?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
símaskráin?


 15. mars 2005 ( Ægir ) [H]
á ekkert að minnast á hinar nýju skattahækkanir, breytingarnar á afnotagjöldunum???


 15. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Æ, ég ligg bara heima með kvef, rakst á þessa frétt. Ég þarf aðeins að hressast til að geta æst mig yfir þessum nefskatti og hversu mikið sökk þessi ríkisstjórn er að verða.
For crying out loud, þá erum við að borga bifreiðagjöld, meirihluti bensínverðs fer í vegskatt og þá stinga þeir upp á því að mælir eða GPS tæki verði sett í bíla til að rukka eftir notkun og nú þetta! Borga fyrir skítastöð sem er aldrei horft á.
Ég flyt til Ástralíu.

Haha, já hr. olves. Símaskráin er það. Eða ígildi hennar. Ég meina common, hvaða fullorðið fólk tekur upp á því að trúa því að skáldsögur hafi í alvörunni gerst?


Group er inn

Ritað þann:    14. mars 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Þegar fyrirtæki skipta um nafn þykir fínt að láta það enda á Group.

Ég hyggst bæta um betur og heitir grettir.net nú GN Groupies.

...
- grettir :: eða ekki

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
vúhú... og á hvað er hluturinn í því að fara þessa dagana?


 14. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Einn kaffibolla :-)


 18. mars 2005 ( WD group ) [H]
Ertu að segja að ég fari með 10-15 hluti í GN Groupies daglega.
Það er engin smá umsýsla :p


Aðeins utan við mig

Ritað þann:    11. mars 2005
Efnisflokkar:  ég  fyndið  

Stundum er ég ekki alveg í sambandi.

Áðan fór ég á fund sem á að vera á næsta mánudag. Ekki nóg með að ég færi á vitlausum degi, þá fór ég líka í vitlaust fyrirtæki.

Ég verð að fara fyrr að sofa á kvöldin.

...
- grettir :: rangur maður, á röngum tíma, í vitlausu húsi

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. mars 2005 ( majae ) [H]
bíddu er hægt að fara snemma að sofa í okkar húsi ?


 11. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Nei, einmitt!
Eyrnatappar eru samt hressandi, verst að maður vaknar þá ekki við klukkuna.
Spurning hvort við ættum að skilja græjurnar eftir í gangi á daginn til að halda grannanum vakandi?


Gillette svindl

Ritað þann:    10. mars 2005
Efnisflokkar:  ég  fyndið  neytendur  

Ég man ekki betur en Gillette hafi lofað því þegar ég keypti Mach 3, þá hafi allt skegg átt að fara. Þetta átti þriðja blaðið (þetta rándýra) að tryggja, en tvö voru víst ekki nóg, þrátt fyrir að því væri haldið fram áður en Mach 3 kom fram.

Núna er komin enn ein nýjungin og kalla þeir hana M3power (sem ég vil nú meina að sé BMW týpa, en látum það liggja á milli hluta) og er þetta nýja undur með batteríi.
Nú segja þeir að allt skegg eigi að fara, því Mach 3 var greinilega bara drasl sem virkaði ekki rassgat.

Ég hef gefist upp. Nú verður það bara Philips. Hún er með þar til gerðu hleðslu batteríi, hnífarnir endast í mörg ár og maður þarf ekki að splæsa í sápu ofan á allt annað (ég reyndar keypti raksápubrúsa úti í Bandaríkjunum í fyrrasumar og hann var í yfirstærð eins og allt í BNA og endist bara og endist).

...
- grettir :: Mr. Gillette, you're fired.. again

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. mars 2005 ( Ramage ) [H]
Ahh, var einmitt að vona að þú myndir kaupa BMW útgáfuna og geta sagt mér hvort hún væri betri.


 10. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
ég er löngu hættur að skipta við mr. gillette enda var ég alltaf rauður í framan og asnalegur þegar ég brúkaði þessháttar júnit... nú er ég stoltur viðskiptavinur sir philips og nýjasta apparatið er með svakalegum fídus sem smyr niveakremi um leið og rakstur fer fram... agaleg flottheit alveg hreint.


 10. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Það er engin spurning um það að BMW er alltaf betra :D

Annars var ég einmitt að pæla í að uppfæra Phillipsinn minn. Sá gamli er búinn að standa sig með prýði en er kominn til ára sinna. Hann er næstum jafngamall og Bimminn, en honum verður ekkert skipt út í bráð.


Hollir vinir

Ritað þann:    10. mars 2005
Efnisflokkar:  nöldur  sjónvarp  

Frekar færi ég nakinn í Bónus en að láta bendla mig við Hollvinafélag Ríkisútvarpsins.

For crying out loud, það má leggja þetta bákn niður fyrir mér, enda ekkert spilling og viðbjóður sem þrífst þarna, þetta fer alltaf langt framúr fjárlögum og enginn og þá meina ég ENGINN nennir að hlusta á hundleiðinlegt ávarp útvarpsstjóra á gamlárskvöld.

...
- grettir :: þetta crap er hvorki stillt í minni á útvarpinu í bílnum, né á imbanum

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Fischer Smischer

Ritað þann:    09. mars 2005
Efnisflokkar:  fréttir  neytendur  

Þó ég hafi lítinn áhuga á því að fá þennan skák apakött hingað á klakann, þá er eitt sem við gætum grætt á þessu máli.

Við setjum einfaldlega viðskiptabann á þessa fjandans Japani - sem augljóslega vita ekki að Dabbi er kóngurinn og allir eiga að sitja og standa eins og ríkisstjórnin leggur til - og losnum þannig við að flytja inn þessar Toyotu druslur. Þannig yrði kannski ekki helmingur af bílaflota landsmanna rauðar Corollur.

...
- grettir :: líta á björtu hliðarnar

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. mars 2005 ( Ægir pípari ) [H]
TOYOTU DRUSLUR !!!!!!!!!!
nei heyrðu mig nú góurinn ég veit ekki alveg hvað þú ert að fara með þetta mál en þér verður ekki boðið með í fleiri bíltúra í minni TOYOTU (hún er nú reyndar blá ) en samt. meintiruðu kannski þessar mözdu druslur já það hlýtur að vera já



 11. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, ég var búinn að gleyma að þú ættir Toyotu maður!

*hóst* auðvitað meinti ég Mözdu druslur. Hey, wait a minute. Ég átti Mözdu. Það var ágætis tík. Fokk it, ég meinti Toyotur, hahaha.


Fokk

Ritað þann:    08. mars 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Alltof mikið að gera. Hló samt þegar ég las fréttir af því að fjárfestingafélagið Grettir hefði keypt 34% í Keri.
Maður á að skilja Vísa kortið eftir heima á fylleríum. Ég finn ekki einu sinni þetta Ker.

...
- grettir :: Ker smér

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ekki fagna fyrr en maður kemur í mark

Ritað þann:    04. mars 2005
Efnisflokkar:  vinnan  

Það er búið að vera læviblandið andrúmsloft á skrifstofunni í dag. Einhver maður er hér að taka út gæðakerfið okkar og tekur stikk prufur af verkefnum og athugar hvort ekki sé unnið eftir gildandi gæðastöðlum.
Ég er verkefnastjóri í nokkrum verkefnum og því lá fyrir að góðar líkur væru á því að ég yrði tekinn til yfirheyrslu og látinn svara fyrir mín verkefni.

Nú er klukkan að verða fjögur og hann hefur ekki komið í heimsókn til mín ennþá. Spurning um að laumast snemma heim.

Líka spurning hvort ég hafi jinxað þetta með því að fagna of snemma. Oh, well.

...
- grettir :: já herra kerfiskall, ég geri alltaf svona og svona, jájá. Skjölun? Huh?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. mars 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Hvenær koma Rio myndirnar? Ég bíð svoooo spennt! :p


 08. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Heyrðu, ég er búinn að koma þeim fyrir, en það eru einhver stillinga vandræði svo það geta bara tveir skoðað í einu. Ég ætla að reyna að laga það í kvöld.


 08. mars 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Er ég alveg blind, eða af hverju finn ég ekki linkinn? :p


 09. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, ég er búinn að laga þetta, en gleymdi að kveikja á þessu dót, var orðinn sybbinn í gær, sjáum til í dag hvort þetta lukkast :-)


Helvítis

Ritað þann:    04. mars 2005
Efnisflokkar:  íbúðamál  

Í kvöld fá hausar að fjúka, Skodar verða lyklaðir og sprengd á þeim dekk... þessi fokking nágranni var með partý til þrjú í nótt.
Kannski var hann að fagna því að Skódinn fór í gang í gærmorgun, en það verður einhver bið á því að það gerist aftur.

Ég þarf eiginlega að redda mér próftöflunni hjá hávaðaseggnum, taka mér frí þá viku og skipta um parket og eldhúsinnréttingu - með loftpressu. Verst ég veit ekki einu sinni hvernig bjáninn lítur út, því ekki hafði hann fyrir því að kynna sig þegar hann flutti inn.

Ég ætla að vona að bróðir hennar Maríu haldi myndarlegt partý fyrir ofan hann alla helgina.

...
- grettir :: skipti nú ekki oft skapi, en það eru takmörk fyrir öllu

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
eigum við ekki bara að mæta með hryndeild ölfus og halda gott trommarapartý?... er metið ekki 4 sólarhringar... má ekki reyna að bæta það?


 04. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Velkomnir!


 08. mars 2005 ( majae ) [H]
málið er að ég held að honum sé alveg slétt sama !!!!

og er það bara ég, eða hefur hann verið furðulega hljóður uppá síðkastið?


 09. mars 2005 ( - grettir ) [H]
hehe, hann kannski skammast sín, þó ég efist um það.


Á rangri hillu

Ritað þann:    03. mars 2005
Efnisflokkar:  ég  

Maður á auðvitað ekki að trúa öllu sem maður les á internetinu og ekki treysta misgáfulegum prófum sem maður tekur, en þetta fannst mér áhugavert:





Your Dominant Intelligence is Linguistic Intelligence



You are excellent with words and language. You explain yourself well.
An elegant speaker, you can converse well with anyone on the fly.
You are also good at remembering information and convicing someone of your point of view.
A master of creative phrasing and unique words, you enjoy expanding your vocabulary.

You would make a fantastic poet, journalist, writer, teacher, lawyer, politician, or translator.



What Kind of Intelligence Do You Have?



...
- grettir :: tölvurgrúsk út og inn með ritvélina, það er metsölubók á leiðinni

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. mars 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Þetta var niðurstaðan hjá mér líka. Algert þvaður!


 03. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Fussum svei!


 03. mars 2005 ( hr.ölves ) [H]
og ég var tónlistarspekúlant!


 03. mars 2005 ( Ramage ) [H]
Fékk það sama og þú, eru til fleiri en tvær niðurstöður?


 04. mars 2005 ( Una ) [H]
Ég fékk sömu niðurstöðu og þú Grettir.


 08. mars 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Ég á að vera ráðgjafi, kennari, sölumaður eða viðskiptafræðingur! :-)


Ilmvatn

Ritað þann:    03. mars 2005
Efnisflokkar:  íþróttir  nöldur  

Djöfull fer það í taugarnar á mér þegar kellingar mæta með ilmvatn í gymmið. Maður stendur á öndinni í einhverju púli og svíður í augun og öndunarfærin af því að einhver illa lyktandi beygla nennir aldrei í sturtu og kæfir svitafýluna með ilmvatni.

...
- grettir :: common people

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. mars 2005 ( himmi ) [H]



 03. mars 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
það á nú ekki bara við um Gymmið...
að mínu mati almennt.. þegar konur OG menn halda að það sé ofsalega sniðugt að tæma ilmvatnsglasið&/eðarakspýrann yfir sig *æl*


 03. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Gott að ég er ekki einn um þessa skoðun, sé að Himmi vill banna þetta um leið og reykingarnar, haha.. góður.

Já, rakspíri er nú ekki skárri, nema síður sé. Oft eins og menn hafi legið í marineringu áður en þeir mæta á vídeóleiguna.


 03. mars 2005 ( Ramage ) [H]
Fór í Tollinn í morgun, fimm hæðir í mengaðri liftu eftir að kona fór úr.


Myndir frá Ríó

Ritað þann:    03. mars 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  myndir  

Jæja, ég er búinn að flokka og minnka Ríó myndirnar niður í viðráðanlegar dánlód stærðir. Nú þarf ég bara að koma þeim í eitthvað albúm hérna.

En smá forskot á sæluna. Hér er fín mynd af mér og Óla Fly.

...
- grettir :: hehe

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. mars 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Þú bjargaðir mér alveg, ég var nefnilega búin að lofa strákunum í vinnunni svona mynd en sveik það víst þannig að ég stal bara þinni og sýndi strákunum! :-)
Hlakka tli að sjá restina.


 03. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Mín var ánægjan, þó Finnur eigi allan heiður skilið fyrir þessa myndatöku. Við héldum í sakleysi okkar að við værum svona myndarlegir, en þá var hann að laumast til að taka rassamyndir.


 03. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
svo að nýja myndavélin hefur virkað svona vel!


 03. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Svona líka ljómandi.


 04. mars 2005 ( ægir ) [H]
hehe kannast við þessar myndatökur merkilegt hvað þessar myndavélar eru stundum þungar ætli maður þurfi ekki þrífót til að ná headshootum


 04. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta er auðvitað snilldar tekin mynd, svo mikil snilld að ég hef fengið hana í tölvupósti þar sem menn eigna sér heiðurinn og þykjast vera á staðnum.
En það kemur fátt í staðinn fyrir mig og Óla á Copacobana skal ég segja ykkur.


Skrökvandi vinnufélagar

Ritað þann:    03. mars 2005
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Ég er búinn að vera óhemju latur að vakna á morgnanna eftir Ríó rokkið um daginn og hef því þurft að vinna til sex sjö á kvöldin.
Vinnufélagarnir hafa verið að týnast heim milli fjögur og fimm og segja: "Svona er að mæta klukkan átta!" og gera grín að stráknum.
Well, guess what? Núna mætti ég átta, klukkan er núna hálf níu og það er enginn mættur.

Stundvísi er nefnilega bara listin að mæta rétt á undan öllum öðrum.

...
- grettir :: strákurinn verður líklega einn á leið út úr húsi rúmlega fjögur



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hitchhikers Guide

Ritað þann:    02. mars 2005
Efnisflokkar:  kvikmyndir  

Ég get ekki beðið eftir að Hitchhikers Guide komi í bíó. Ég er hreinlega að fá niðurgang af spenningi.

Nýi trailerinn er snilld ( ath. Hugi er svo bilaður að stundum verður að ýta tvisvar á linka þangað svo þeir virki ).

...
- grettir :: 42 42 42

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. mars 2005 ( 42Önd ) [H]
Verður snilld, Steven Fry er snillingur í þessum trailer.
Samt óttast að útvarpsleikritið gamla sé enn betra :)



 02. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Já, ég er dúndur ánægður með leikaravalið.. samt alltaf hætta á að maður verði fyrir vonbrigðum, sérstaklega þar sem maður hefur lesið skræðurnar 6 sinnum :D
En sjáum til..


Afmæli afmæli.. til hamingju öll

Ritað þann:    01. mars 2005
Efnisflokkar:  bjór  

Afmæli bjórsins í dag. Í tilefni dagsins ætlum við vinnufélagarnir að fá okkur öl í hádeginu.

...
- grettir :: bjór bjór bjór

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. mars 2005 ( hr. ölves ) [H]
gleðilega þjóðhátíð!!!


 01. mars 2005 ( Ægir ) [H]
jei og hvað er hann aftur orðinn gamall?


 02. mars 2005 ( Óli Fly ) [H]
hann er orðinn 16 vetra gamall


 02. mars 2005 ( - grettir ) [H]
Rétt hjá mr. Fly. Hann kom einmitt tímanlega á árinu sem presturinn kom manni á bragðið.