1 til 16 af 16
17 stig
Ritað þann: 31. mars 2004
Efnisflokkar: ferðalög
Það er sko komið sumar hérna í London. Sautján stiga hiti, eða svipað og við getum aðeins látið okkur dreyma um að BESTI dagur ársins verði á klakanum. (Þar sem mér skilst að sé byrjað að snjóa. Er þetta satt? Verð ég að taka FlyBus?)
Anyways. Þjóðerniskenndin, ættjarðarástin og öll þessi stóru orð sem gamlir kjánar hafa notað í ljóðabækur í gegnum tíðina, eru komið beint í niðurfallið. Hvern erum við að gabba?
Háir skattar, háir tollar, niðurskurður á spítölunum, lummó stjórnmálamenn og síðast en ekki síst: ömurlegt veður.
Ok, gott vatn.. that's about it.
...
- grettir :: spurning um að fara að leita sér að íbúð erlendis.
London Baby
Ritað þann: 29. mars 2004
Efnisflokkar: djamm ferðalög
Eftir óhemjugott grill með rembufélögunum
Olav, Gísla, Eiríki, Ingvari,
Jóni Óskari og Tobba var ég geimvísindalega þunnur í gær, enda mikið drukkið þegar félagskapurinn er svona hress.
Rúmlega hádegi þurfti ég svo að drífa mig uppá völl og skunda til Lundúna. Flug í þynnku er ekki prýðilegt.
Enginn tími fyrir Ken og ekki neitt. Náði að koma niður einum bita af Júmbó samloku og ældi næstum því. Maginn er bara búinn að ákveða að ekkert skuli inn á slíkum dögum annað en fitugir kjúllar.
...
- grettir :: nú er bara að finna góða krá..
Arabar hafa fundið grettir.net. Fékk heimsókn frá google sem lítur
svona út.
Samkvæmt þessu staðfestist það sem mig hefur alltaf grunað, Arabar eru öfugir. Bæði skrifa þeir asnalega og afturábak, láta konurnar í löndum sínum hylja sig frá toppi til táar og hvað gera þeir svo þegar þeir komast á netið? Leita að kellingum með typpaling!
...
- grettir :: olía fer greinilega illa með heilann
Grænmeti er óhollt
Ritað þann: 25. mars 2004
Efnisflokkar: íþróttir
Þegar það er eintómt grænmeti í matinn, þá fer ég alltaf og fæ mér sveittan hamborgara.
Af því má sjá að grænmeti er alls ekkert hollt.
Þess vegna verð ég líka að fara að endurnýja bumbukortið mitt. Ég var að spá í að kaupa í Þrekhúsinu þetta árið, því þeir eru jú nánast í næsta húsi. Einhver að æfa þar sem getur sagt mér hvernig aðstaðan er?
...
- grettir :: púla... púla... úff, hvíla... hvíla...
Ég er að fara á Pixies
Ritað þann: 24. mars 2004
Efnisflokkar: töff tónlist
Ég á bestu hárgreiðslukonu í heimi. Hún fór að kaupa miða á Pixies í morgun og verzlaði fyrir okkur Ægi.
Núna fær Winampinn að svitna næstu vikurnar, því fátt annað verður spilað til upphitunar fyrir tónleika aldarinnar. Verst hvað vínillinn passar illa í tölvuna.
...
- grettir :: spurning um að koma plötuspilaranum í lag
Með þriggja mínútna millibili fékk ég tilboð frá óprúttnum sölumönnum Viagra með þessu subjecti.
Það ætti kannski að benda þessum apaköttum á að þar sem ég er single í augnablikinu, þá væri það eina sem ég hefði upp úr því að versla við þá væri myndarlegur tennisolnbogi.
...
- grettir :: nei takk
Græðgi 101
Ritað þann: 22. mars 2004
Efnisflokkar: djamm fyndið
Í þynnku er fátt betra en að fá sér djúpsteiktan fiðurfénað. En ætli maður sé ekki að panta of mikið þegar afgreiðslustúlkan réttir manni pokann og segir verði ykkur að góðu?
Það er bara svo gott að liggja fyrir framan kassann og kroppa í kjúklingabita allan daginn.
Við fórum í paintball á laugardaginn og ég verð að segja að það er einkar hressandi. Ég lenti í frekar fyndnu atviki. Gleymdi að læsa símanum og hann tók upp á því að hringja í miðjum bardaga. Og hvert hringdi hann? Nú auðvitað í mömmu!
Hversu lúðalegt er það. Í miðjum byssuleik og hringja í mömmu. Hún hélt auðvitað að ég væri í vanda staddur, heyrði ekkert nema öskur og byssulæti og var nærri því búin að hringja í Víkingasveitina. Það hefði nú verið skemmtilegt.
...
- grettir :: slapp ómeiddur
Skattframtalið
Ritað þann: 19. mars 2004
Efnisflokkar: fyndið vinnan

Sænsk mágkona mín fékk sent skattframtal eins og aðrir um daginn. Sem væri vart í frásögur færandi nema fyrir þá fáránlegu staðreynd að framtalið er á íslensku.
Og hún sem hefur búið hér í nokkra mánuði skildi auðvitað ekki staf, sem er ekki skrýtið, því þessi snepill vefst nú ekki síður fyrir innfæddum.
Nú er árshátíð á morgun og ég hef lokið við að skrifa annálinn (þetta er að verða ferlegt með mig og grín skrif á samkomum fyrirtækisins, lít ég út fyrir að vera sprelligosi?).
Til stendur að fara að í paintball um daginn til að lumbra aðeins á samstarfsfélögunum, íha...
...
- grettir :: þetta verður meirisháttar
DV og Fréttablaðið
Ritað þann: 19. mars 2004
Efnisflokkar: fréttir
Ég minntist á það einhvern tíma um daginn að ég fékk "ódýra" áskrift að DV vegna smáauglýsngar sem ég keypti hjá þeim í fyrra.
Þegar þeir fóru að heimta fullt verð fyrir snepilinn ákvað ég að hætta áskriftinni. Fyrir utan það að ég var hættur að nenna að lesa það.
Undarlegast þótti mér þó, að eftir að DV hætti að berast, þá hætti Fréttablaðið líka að berast. Einhver hefur farið í fýlu þarna í Skaftahlíðinni og þurrkað mig út af listanum yfir gott fólk.
Þess vegna hef ég verið að kíkja á
vísir.is öðru hvoru undanfarið, sjá hvort maður er að missa af einhverju.
Núna eru þeir komnir með nýjan fídus, sem lýsir sér þannig að öllum greinaskilum og slíku er sleppt, líklega til að spara "vefpappír". Árangurinn er ótvíræður. Maður nennir ekki að lesa fréttirnar þeirra og fýlupúkinn í Skaftahlíðinni hefur endalega náð að loka mig úti.
...
- grettir :: mogginn rúlar
Leiðinda aukaverkanir sumarsins eru viðbjóðslegar flugur og pöddur sem halda að þær megi bara kíkja í kaffi þegar þeim sýnist.
Nokkrar flugur hafa gert sig heimakomna í stofunni hjá mér og í gærmorgun sá ég einhverja pöddu inná baði sem ég kann ekki að nefna. Hún varð bráðkvödd í fallegu drullumalli á miðju gólfinu.
Ég var að pæla í að byrja að rækta köngulær. Ég verð bara að yfirstíga gæsahúð og hroll sem ég fæ í hvert skipti sem slík kvikindi mæta á svæðið. Köngulær hafa nefnilega marga kosti. Þær fljúga til dæmis ekki. Og eru einkar duglegar að éta önnur og leiðinlegri kvikindi. Ég er ekki að tala um að hafa köngulóarheimili inni í svefnherbergi. Kannski í geymslunni og í garðinum.
Ef ég kem mér upp svona 50 köngulóm, þá mega nú anskotans geitungarnir fara að vara sig.
...
- grettir :: pöddur eru ekki minn tebolli
Season tickets
Ritað þann: 17. mars 2004
Efnisflokkar: tónlist
Það lítur út fyrir að maður verði að kaupa sér einhversskonar grænt kort fyrir alla þessa tónleika sem stendur til að halda á árinu. Ekki nóg með að Pixies sé að koma og Placebo, þá er Violent Femmes að mæta á svæðið líka.
Ég er búinn að halda svo lengi upp á Pixies að ég á allar "plöturnar" þeirra. Vínillinn klikkar ekki (hvað er vínill kunna einhverjir að spyrja, æj, það er þarna svarta draslið á undan geisladisknum).
En Violent Femmes er auðvitað bara mesta snilld í heimi, ef ekki geimi. Eitt sumarið vorum við nokkrir að vinna saman á næturvöktum og hlustuðum á Hallowed Ground í lúppu allar vaktir vikum saman. Those were the days.
...
- grettir ::
never tell
Ég hef ákveðið að vorið sé komið og smellti því sumartúttunum undir bílinn í síðustu viku. Búið ykkur því undir versta páskhret í manna minnum.
Annars komu tútturnar illa undan vetri. Tvö vindlaus og þar af er annað þeirra líklega ónýtt. Einhver blöðrubólga í gangi og er bíllinn því með sjálfstæða hugsun um hvert skuli beygja ef maður vogar sér að gefa eilítið í. Merkilegt að þetta skuli byrja að leka um leið og maður setur þetta í geymsluna.
Vinnuferð til USA var frestað eina ferðina enn um eina viku og því hangi ég bara á skrifstofunni að mygla í þessu fína gluggaveðri.
...
- grettir :: spurning um að fara að þurrka af garðhúsgögnunum?
Ekki sama hvar vond verk eru framin
Ritað þann: 11. mars 2004
Efnisflokkar: fréttir skandall
Ég á dálítið erfitt með að átta mig á muninum á World Trade Center hryðjuverkunum og Madrid sprengingunum í dag.
Er það fjöldi fórnalamba sem skiptir máli?
Fyrir tveimur og hálfu ári var allri dagskrá sjónvarpsstöðvana vikið til hliðar, beinar útsendingar hægri vinstri og í þrjár vikur var nánast ekkert annað í fréttum. Fengnir voru misgáfaðir spekingar til að ræða málin fram og tilbaka, opnaður var undirvefur á mbl sem fjallaði ítarlega um hryðjuverkin. Búin voru til skýringarmyndir fyrir lesendur til að allir myndu skilja hvað gerðist.
Í Madrid sprungu lestir og tala látinna fer sífellt hækkandi. Jú, slatti af fréttum á mbl... þrjár mínútur í fréttum stöðvar 2.
Rúv virðist gera þessu aðeins meiri skil. Heilar tólf mínútur. Þeir taka meðal annars viðtöl við Björn Bjarnason og Halldór Ásgrímsson. "Hörmulegir atburðir", "við höfum sent samúðarkveðjur".
...
- grettir :: hvað er í gangi?
Það hefur ákveðna kosti að vera í stjórn starfsmannafélagsins. Einn af þeim er matarsmakkið fyrir árshátíðina. Til stóð að smakka klukkan sex, en einhver misskilningur var á ferðinni og fengum við bara vínsmakk.
Matarsmakkinu var því frestað til mánudags, svo við fengum rauðvínið á fastandi maga. Sem kickar þokkalega.
En ég verð líklega farinn til Baltimore á mánudaginn, svo maturinn verður bara surprise fyrir mig eins og alla aðra á sjálfri árshátíðinni.
Að öðrum fréttum.. ég að enn að dunda mér við skattframtalið. Það kemur manni augljóslega í koll að hafa ekki fyllt út aksturdagbókina jafn óðum og lítur allt út fyrir að maður fari út í það að sækja um frest til að klára dæmið. Sem betur fer á ég allar ferðirnar inn í Outlook calendar-inu, en þetta er bölvað maus og vesen.
...
- grettir :: best að elda eitthvað
Hin árlegu veikindi létu ekki á sér standa frekar en fyrri daginn, en ég er loks risinn upp frá dauðum. Búinn að liggja marflatur í heila fjóra daga með snýtubréf í annarri og panodil hot í hinni. Sérdeilis hressandi eða þannig. Hef líka þurft að færa svefnherbergið inn í stofu þar sem granninn hefur tekið upp á þeim ósið að æfa sig á gítar á nóttunni beint fyrir ofan svefnherbergið mitt. Hef bara ekki haft orku í að fara upp og spyrja hann út í þetta.
Annars er ekki eðlilega hljóðbært á milli og nokkuð ljóst að maður verður að gera eitthvað í þessu, fóðra loftið eða eitthvað. Geri það kannski í sumar. Bý þá bara í tjaldi í garðinum á meðan.
Var orðinn nokkur sprækur í gær og notaði því tækifærið og kíkti á
Torque sem er verið að sýna í Sambíóunum núna. Tímasóun dauðans. Eina almennilega við myndina er
Monet Mazur sem er bara flott. Annars vil ég fá þennan tæpa einn og hálfa tíma af lífi mínu tilbaka.
Þegar ég var að fletta mogganum á laugardaginn rakst ég á þá fáránlegustu grein sem Velvakandi hefur birt lengi. Hún var frá einhverjum sem kallar sig Björn og fjallar um "létta fólksbíla" í hálku. Þar segir hann að það ætti að banna þessa stórhættulegu "léttu bíla" á hálum vegum landsins. Björn segir orðrétt: "Notum jeppana öryggisins vegna."
Nú veit ég ekki með ykkur, en ég luma nú ekki á jeppa svona til að nota til vara ef það skyldi koma hálka. Fyrir utan það hversu fáránlegt það er að halda því fram að jeppar séu eitthvað öruggari í hálku en aðrir bílar. Þetta er bara spurning um að vera vel dekkjaður og keyra eftir aðstæðum. Oftar en ekki sér maður einhverja jeppavitleysinga keyra eins og bavíana af því að þeir halda að þeir séu svo öruggir og hressir. Eðlisfræðin segir manni að þeim mun þyngri sem bílinn er, því lengur er hann að stoppa.
Eina hættan sem stafar af því að keyra "léttan fólksbíl" út á þjóðvegi er að maður fái einhvern apakött á jeppa framan á sig. Nú er ég ekki með tölurnar á hreinu, en mér finnst ansi oft þegar maður heyrir fréttir af alvarlegum slysum úti á vegum að jeppi komi þar við sögu. Sérstaklega ef um banaslys er að ræða.
...
- grettir :: fleira var það nú ekki í bili
Næ ekki andanum fyrir sýklum sem hafa tekið sér bólfestu í nefi mínu og hálsi. Ég geri mitt besta til að hnerra og hósta óþverranum í burtu en allt kemur fyrir ekki. Þetta er bersýnilega komið til að vera.
Góðu fréttirnar eru þær að búið er að staðfesta ferð til US þann 15. Eins gott að maður verði orðinn sprækur þá. Annars verður maður handtekinn, grunaður um sýklavopnahernað.
Ég ætla að misnota ferðina til að versla dempara í bimmann. Þeir hljóta að komast í ferðatösku? Það kemur í ljós.. við erum að tala um 60 þúsund kall í sparnað. Munar um minna.
Annars var ég að byrja á skattframtalinu og það er tussu flókið þetta árið. Endalaus húsbréf og vitleysa. Að sjálfsögðu er búið að lækka vaxtabæturnar, mín heppni í hnotskurn.
...
- grettir :: skattmann er óvinurinn þessa dagana