1 til 14 af 14
Ég var 45 mínútur á hjólinu í vinnuna í morgun. Framan af voru allir stígar vel ruddir en þegar ég kom í Elliðaárdalinn versnaði í því og ég þurfti að teyma hjólið upp stokkinn. Restin af leiðinni var illa rudd og seinfær.
Ég er búinn að leggja grunninn að bestu harðsperrum sem hafa fundist í langan tíma, en ég var ekki enn laus við sperrurnar sem ég fékk á Taekwondo æfingunni á miðvikudaginn.
Ég verð 35 ára í vor. Stefnan er sett á að vera í mínu besta formi á þeim tímamótum. Þegar ég var 20 ára var ég í toppformi, 25 ára var ég með belg, 30 ára var belgurinn farinn en formið ekki komið. 35 verður formið komið aftur. Og ég er ekki að tala um hringlaga form eins og var vinsælt fyrir nokkrum árum.
Ég get ekki beðið eftir því að sækja börnin mín og fara með þau út í garð að byggja snjóhús.. nei snjókastala á eftir.
Only in America er stundum sagt þegar furðulegir hlutir sjást á neti eða í sjónvarpi.
Svona hlutir; og
sjá hér líka eru hins vegar hlutir sem gerir Þjóðverja svo skemmtilega.
Þetta lítur svo sannarlega út fyrir að vera gaman.
Í fjármálastofnunum og víðar starfar hópur löglærðra manna við að finna glufur í lagabókstafnum svo hægt sé að fara á svig við lög og reglur; oftast í þeim tilgangi að græða pening.
Hugmyndaflug þeirra sem semja lögin er hinsvegar takmarkað og við skulum bara segja það - oftar en ekki eru það ekki björtustu kertin á tertunni sem láta okkur lýðinn kjósa sig til stjórnunarstarfa.
Það er ágætlega tekið á þeim vanda í Hitchhiker's Guide to the Galaxy:
The major problem — one of the major problems, for there are several — one of the many major problems with governing people is that of whom you get to do it; or rather of who manages to get people to let them do it to them.
To summarize: it is a well known fact that those people who most want to rule people are, ipso facto, those least suited to do it.
To summarize the summary: anyone who is capable of getting themselves made President should on no account be allowed to do the job.
To summarize the summary of the summary: people are a problem.
Lög ætti því að setja þannig að þau tilgreini hvað má, en ekki reyna að hafa hugmyndaflug í að reyna að banna alla mögulega hluti.
Ef að lögin leyfa það ekki - er það bannað.
Umferðarlögin myndu þá fá sem dæmi eftirfarandi upplyftingu:
Það er bannað að keyra yfir á rauðu -> Það má keyra yfir á grænu.
Það er bannað að fara hraðar en 90 -> Það má keyra á allt að 90
Þannig hefðu dóttur- og systurfélög Milestone aldrei orðið til og ekki geta lánað hverju öðru hring eftir hring, því engum á Alþingi hefði dottið sú fásinna í hug að semja lög sem leyfðu slíkt rugl.
Konudagsbrjóst
Ritað þann: 22. febrúar 2010
Efnisflokkar: fjölskyldan
Ég gaf konunni minni brjóstahaldara í tilefni konudagsins. Eldaði svo spari kjúklingaréttinn okkar.
Að öðru leyti var dagurinn nokkuð hefðbundinn. Held samt að ég hafi staðið mig vel.
Við leigðum okkur starfsmannafélagsbústaðinn um helgina og lágum í hamborgurum, lambalæri og heitum pottinum alla helgina.
Krakkarnir lágu á bakinu í pottinum og góndu á stjörnurnar á laugardagskvöldið, sáu stjörnuhrap, glampandi tunglskin og önduðu að sér fersku jöklalofti.
Life is good.
Þessi Svarthöfða pistill er skyldulesning.
Venjulegt fólk situr á veitingastað og borðar pasta. Á næsta borði situr auðmannafjölskylda í loðfeldum með perlufestar um hálsinn og borðar heilsteikt kobe-naut með sáldruðu gulli yfir og svolgrar í sig hundrað ára gamalt rauðvín. Auðmennirnir ákveða að hlaupa út án þess að borga. Þjóninn útskýrir fyrir öðrum á staðnum að reglurnar séu að ef einhver stingi af dreifist reikningurinn á alla hina. Fólk verði að standa saman! Þannig varð til hundrað þúsund króna pasta. Í ljós kemur svo að auðmennirnir eiga veitingastaðinn. En reglur eru reglur.
Bruggtækin tekin fram
Ritað þann: 15. febrúar 2010
Efnisflokkar: neytendur
Samkvæmt
dómi sem féll í gær lítur allt út fyrir að við séum að verða búin að greiða bílinn okkar.
Ef dómnum verður snúið í hæstarétti verðum við að dunda okkur við að borga af honum til 2017 og þá skuldum við enn 900 þúsund.
Eða við verðum farin af landi brott.
Hæstiréttur - þitt er valið.
Hvar er veturinn?
Ritað þann: 11. febrúar 2010
Efnisflokkar: líðandi stund
Ekki það að mér finnist eitthvað leiðinlegt að hafa engan snjó og skafrenning - en hvar er eiginlega veturinn 2009-2010?
Þægilegur rass
Ritað þann: 08. febrúar 2010
Efnisflokkar: comics
Við "sváfum yfir" okkur í morgun. Þ.e.a.s. við snúsuðum til korter í átta. Heragi var því við morgunverðarborðið, nesti og leikfimisföt voru tekin saman með hraði og ég var á elleftu stundu í vinnuna - en ég reyni að vera ekki seinni en níu svo ég geti verið kominn heim á skikkanlegum tíma.
Ég var sestur í sætið mitt á Lynghálsi; nýsturtaður; með heitt kaffi í könnunni þegar það er hringt: Sæll Grettir. Við erum hér. Hvar ert þú?
Ég átti að mæta á fund klukkan 9 niðri í bæ, en var búinn að hjóla upp alla ártúnsbrekkuna að óþörfu.
Þetta ætti að kenna mér að lesa calendarinn áður en ég legg af stað.
6180
Ritað þann: 04. febrúar 2010
Efnisflokkar: börnin
Litli ormurinn minn sem var ekki nema 2440 grömm og 44 cm þegar hún fæddist er orðin 6180 grömm og 62 cm.
Hefði hún ekki skitið áður en hún fór í vigtun hefði hún verið yfir 6200 sem ég var búinn að veðja á.

Þórdís Birna: Jólin 2009
Um helgina var haldin árshátíð fyrirtækisins.
Ég var heiðraður fyrir 10 ára ötult starf í þágu fyrirtækisins.
Já þið lásuð rétt. 10 ár.
Mér líður eins og gaurunum í office space - sem kom einmitt út fyrir rúmum 10 árum.
Það eru næstum 10 ár síðan það var flogið á twin towers.
Það eru 10 ár síðan árið 2000 gekk í garð og tvöþúsund vandinn gerði það að verkum að dagsetningar á nokkrum vefsíðum sýndu 19100
Fyrir 10 árum var ég rúmum 10 kílóum þyngri en ég er í dag - enda nýútskrifaður úr háskóla og búinn að lifa á pizzum, bjór og pasta.
Já; ég útskrifaðist fyrir 10 árum.
Þá átti ég ekkert barn en nú á ég þrjú.
Hvaða undur skyldu næstu 10 færa mér? Helstu markmið:
- Ég verð kominn með svarta beltið í Taekwondo
- Ég verð skuldlaus
- Ég verð annaðhvort framkvæmdastjóri í fyrirtækinu sem ég vinn hjá nú eða í mínu eigin
- Allavega ein af þeim fjölmörgu hugmyndum sem ég er með í kollinum verður komin á markað
- Ég á þrjú næstum uppkomin börn
- Skemmtisigling um Karabíska hafið
2020; ég er að koma!