1 til 25 af 25
Bankinn minn
Ritað þann: 25. febrúar 2009
Efnisflokkar: pólitík
Ég var að hlusta á Kastljós viðtalið við Davíð áðan. Þar bað Davíð Sigmar um að fá að klára að tala því:
þú ert búinn að vera að reyna að sverta "bankann minn"
Þar höfum við það. Davíð víkur ekki því þetta er bankinn hans. Það kemur líka fram í lengsta
nei-i sem ég hef lesið, bréfi Davíðs til Jóhönnu.
Bréfið er auðvitað hundleiðinlegt í sjálfu sér og í því er talað um að Fjármálaeftirlitið hafi verið skilið eftir stjórnlaust og af því hafi hlotist mikill skaði.
Þeir sem hafa alltaf ráðið og aldrei "unnið á gólfinu" halda kannski að undirsátar þeirra setjist með hendur í skaut ef forstjóri eða yfirstjórn fer frá. Þetta viðhorf kom berlega í ljós í viðtalinu þegar Davíð sagði Seðlabankann hafa haldið greiðslumiðlun við útlönd gangandi dagana eftir hrun.
Ég er fullviss um að fólkið á gólfinu í Seðlabankanum hefði unnið sína vinnu alveg jafnvel þó að enginn hefði verið seðlabankastjórinn.
Sá tími sem hefur "farið til spillis" undanfarna daga við að berja saman frumvarpi um breytt stjórnskipulag Seðlabankans eru eins og nokkrar sekúndur í þessu hruni öllu. Hvað með allar vikurnar og mánuðina fyrir hrun og eftir þar sem ekkert sýnilegra var gert?
2 vikur í seðlabankafrumvarp
6 vikur í jólafrí
Hvaða tími er að fara til spillis?
Prinsessan og Hulk
Ritað þann: 25. febrúar 2009
Efnisflokkar: fjölskyldan
Við vorum vakin fyrir allar aldir í morgun. Ástæðan er öskudagur og búningarnir biðu við rúmgaflana.
Það var fjólublá prinsessa og grænn Hulk sem fóru út úr húsi í morgun.
Ég klæddi mig upp eins og forritari. Vona að það vekji lukku.
Góð ákvörðun í byrjun
Ritað þann: 24. febrúar 2009
Efnisflokkar: börnin
Þegar hún dóttir mín fæddist tókum við strax þá ákvörðun að hún yrði ekki hjónarúmsbarn.
Það var auðvitað erfitt stundum að þurfa að leggja hana frá sér í vögguna þegar hún var alveg að sofna til þess eins að láta hana venjast því að sofna sjálf í eigin fleti. Það viðurkenni ég vel. Og að rugga henni á nóttunni ef hún vaknaði í stað þess að kippa henni bara upp í.
Nú erum við að njóta ávaxtanna. Strax eftir breytingarnar á íbúðinni í fyrra fékk hún eigið herbergi. Þá 15 mánaða svaf hún ein í rúminu sínu í bleika herberginu sem eitt sinn var eldhús. Mikið fannst manni hún lítil.
Það liggur við að það sé hægt að telja það á fingrum annarar handar þau skipti sem það hefur verið vesen að fara að sofa. Maður einfaldlega leggur hana í rúmið og hún fer að sofa. Fólk sem passar hana lendir ekki í neinum vandræðum, hún sefur betur og það sem meira er; við sofum öll betur.
Í gærkvöldi burstuðum við tennur og hún labbaði sjálf rakleitt í rúmið sitt og var sofnuð eftir ca. 10 mínútur. Í morgun heyrðum við í henni þar sem hún var farin á fætur og byrjuð að leika sér í rúminu sínu með dúkkur.
Hjónarúmið er enda ekki barnaleikvöllur ;-)
Ég er að verða dáldið þreyttur á umfjöllun um umfjöllun alþingis á seðlabankafrumvarpi. Frumvarpi sem herra Geir Haarde var svo almennilegur að benda á að væri nær eingöngu smíðað til að bola gömlu vinnufélögum hans úr starfi (já döh).
Talandi um að persónugera vandann. Oh well.
Það þarf ekki nema eitt símtal í þjónustudeild og gera aðgangskort Davíðs óvirkt. Málið er dautt. Snúum okkur að næsta máli.
Amx pistlar
Ritað þann: 23. febrúar 2009
Efnisflokkar: kaldhæðni
Ef ykkur langar að komast í gott skap og hlægja, þá bendi ég ykkur á pistlana á amx.is
Þar eru samankomnir stuðningsmenn Davíðs, frjálshyggju- og öfgahægri skoðanirnar leka út um eyru pistlahöfunda.
Um daginn birtist hinn frægi
Skjöldur gegn skálmöld pistill sem gengið hefur um netið öllum til gleði. Ég vara ykkur við. Þetta er þriggja vasaklúta pistill.
Í dag birtist
Er þetta hin íslenska þjóð? eftir Hönnu Elíasdóttur, sem hefur litið upp úr tebollanum í fílabeinsturninum sínum og ekki líkað hvernig komið er fyrir þjóðinnni fyrir neðan hana.
Hún segir:
Hvaða fólk er þetta annars, ég spyr ? Er þetta fólk atvinnulaust ?
Ætti það ekki að vera i vinnu á virkum dögum? Eru þetta mótmælendur að atvinnu?
Já Hanna mín. Fólk er atvinnulaust. Spurðu vin þinn í Seðlabankanum. Hann segist vita eitthvað sem enginn annar veit.
Og hún heldur áfram:
Kommúnistar hafa kallað sig ýmsum nöfnum hér á landi í gegnum tíðina. Sagan sannar að kommúnisminn nærist á eymd og volæði og nú höfum við Íslendingar slíka stjórn. Já kommúnisminn lafir enn á Íslandi nútímans. Hugsa sér.
En Hanna. Kommúnistar komu hvergi við sögu í mesta hruni Íslandssögunnar. Það voru vinir þínir sem stýrðu okkur niður í drulluna.
Í Rússlandi á kommúnistatímanum hafði elítan það gott en almenningur skítt og borgaði brúsann.
Á Íslandi er komin upp sú staða að elítan hefur það gott og almenningur er á leiðinni að hafa það skítt og borga brúsann. Er Sjálfstæðisflokkurinn kommúnistaflokkur?
Að lokum segir Hanna:
Nú er litið niður á okkur fyrir skrílshátt og ruddaskap. Einnig fyrir að hafa látið græðgina ráða og gleymt góðum gildum sem í áranna rás hafa verið gott veganesti fyrir þjóðina í heild. Við erum sannarlega þjóð í vanda.
Já það er svo sannarlega litið niður á okkur. Fyrir að ræna sparifé erlendra viðskiptavina banka sem voru í eigu vina þinna í Sjálfstæðisflokknum. Fyrir að gera ekki neitt til að koma í veg fyrir að fénu yrði stungið undan og síðast en ekki síst fyrir að geta ekki losað okkur við óhæfan bankastjóra í seðlabankanum.
En þjóðin er á leiðinni út úr þessum vanda Hanna mín. Það verður ekki vinum þínum að þakka.
Konudagur á rólegri helgi
Ritað þann: 23. febrúar 2009
Efnisflokkar: börnin fjölskyldan
Konan mín var að vinna alla helgina svo ég var einn að dingla mér með börnunum á meðan.
Við fórum í fjöruferð á laugardaginn í mígandi rigningu, týndum skeljar og lékum okkur. Við fórum svo í Kringluna í nammiland og völdum líka flotta konudagsgjöf. Hittum systur mína og mág með litlu frænku.
Seinnipartinn horfðu börnin á Nemó á meðan ég vann smá aukaverkefni sem datt í fangið á mér.
Á sunnudaginn bökuðum við okkur skonsur og fórum í blómabúð. Við fórum í langa gönguferð um Miklatún í algeru vorveðri. Svo var okkur boðið í bollukaffi, því við kunnum ekki að baka bollur - ennþá.
Grátlegar bíómyndir
Ritað þann: 20. febrúar 2009
Efnisflokkar: kvikmyndir
The Curious Case of Benjamin Button er víst svakalega góð. Og maður heyrir sögur af fullfrískum karlmönnum brotna saman í gráti yfir henni.
Starfsmannafélagið er að bjóða okkur á
The Wrestler í kvöld en í henni grætur Mickey Rourke í spandex buxum.
Ég kemst ekki og missi af því. Ég er mjög leiður. Eiginlega gráti næst. Það virðist vera inn þessa dagana.
Ég fór með símann minn í viðgerð í síðustu viku og
fékk síma að láni á meðan viðgerð stóð.
Hátalarinn við eyra var bilaður, svo ég heyrði ekki í viðmælanda mínum án þess að vera með viðkomandi á "speaker" eða nota þráðlausan búnað - en í mínu tilfelli er þráðlausi búnaðurinn með þræði, sem ég flæki um mig allan, dett næstum um og er á allan hátt klaufalegur að vinna með.
Í morgun sótti ég svo símann og fer beint í mat. Í matsalnum hringir konan mín og ég svara - fullur tilhlökkunnar að heyra í henni í nýviðgerðum símanum.
Hæ..
Ekkert
Halló.. Margrét?
Ekkert
Þá ýti ég á "Speaker" og heyri ég þá hátt og snjallt í henni (og allir í matsalnum).
Hæ, heyrðu má ég heyra í þér á eftir? segi ég og er frekar spældur yfir því að síminn sé eins og áður.
Byrjar konan mín þá ekki að segja mér (og hinum í matsalnum) fullt af hressandi hlutum sem ég átti einn að heyra.
Ja, hver þarf símahleranir þegar hann á ónýtan Nokia síma?
Ajax - ekki bara góð lykt
Ritað þann: 17. febrúar 2009
Efnisflokkar: nördadót vefurinn
Ég tók mig til einhverja helgina þegar konan var að vinna og forritaði smá
AJAX virkni á grettir.net
AJAX gerir manni kleift að breyta gögnum á vefsíðu án þess að þurfa að hlaða allri síðunni niður aftur.
Nú er athugasemdakerfið orðið AJAX vænt, það er að segja þegar smellt er á linkinn um að skrá athugasemd, þá dundar browserinn sér við að sækja formið og teikna það fyrir neðan. Á meðan beðið er birtist mynd til að gefa í skyn að undur og stórmerki séu í nánd. Vistun athugasemdar og birtingin eftir á eru líka að gerast á sama hátt, þ.e.a.s. án þess að refresha alla síðuna upp á nýtt.
Þetta hefur ákveðna kosti í för með sér (fyrir utan að vera mjög svalt).
Erfiðara er fyrir spam botta að finna form til að pósta spammi á, því formið er ósýnilegt þar til einhver smellir á linkinn.
Notendur (þið kæru vinir) sparið bandvídd og vefsíðan hoppar ekki á byrjun eftir að búið er að pósta athugasemdinni.
Gallerý-inu er líka hlaðið inn svona.
Ég bætti líka við navigation efst á síðuna til að auðvelda flettingu í gömlum gögnum. Navigation hlutinn á að vera "smart" að því leiti að hann tekur tillit til þess ef búið er að velja mánuð/ár eða einhverja efnisflokka og birtir réttan fjölda pistla eftir filter.
Ég er þessa dagana að forrita svipaða virkni fyrir umsjónarkerfið til að stýra efnisflokkum (töggum) og editeringu á gögnum.
Þetta á eftir að nýtast mér vel í aukaverkum í vefsmíði - svona þegar kreppan klárast.
Bifvélavirkjahatturinn
Ritað þann: 17. febrúar 2009
Efnisflokkar: bmw-inn ég
Í kreppu er gott að geta bjargað sér með hluti sem annars kosta peninga. Verandi tölvunarfræðingur er ég oft með tölvukallahattinn, gerandi við tölvudrasl, stundum er ég með smiðshattinn og enn sjaldnar er ég með rafvirkjahattinn ef það þarf að hengja upp ljós eða tengja eitthvað smotterý.
Í gær setti ég upp bifvélavirkjahattinn.
Í nokkra daga hefur megn bensínstybba komið inn um miðstöðina á gamla bílnum, svo ég er búinn að vera "high on fumes" um nokkurt skeið.
Ég gægðist ofan í húdd einhvern tíma um daginn og sá sökudólginn á bólakafi ofan í vél - morkna bensínsslöngu. Ég keypti mér hálfan meter af slíkri slöngu fyrir helgi og réðist á vélina með topplyklasetti í gær eftir vinnu.
Það var auðveldara en ég hélt að tæta í sundur eina bílvél. Eitthvað dót skrúfaði ég í burtu, losaði nokkrar slöngur, tók burtu einhverjar hlífar og skipti um bensínslöngu. Svo endurtók ég leikinn aftur á bak og vélin fór saman, engin tannhjól í afgang (eins og þegar ég tók vekjaraklukkuna mína í sundur um árið) og vélin datt í gang og miðstöðin blæs fersku bensínfríu lofti inn í bíl.
Svo er spurning hvort bensínvíman hafi verið ástæðan fyrir góðum árangri í vinnu í síðustu viku?
Tík á fíkniefnum
Ritað þann: 16. febrúar 2009
Efnisflokkar: fréttir
Lögreglan á Selfossi rannsakar
dularfullan dauða tíkunnar sem leitar fíkniefna þar á bæ.
Það vita líklega flestir að fíkniefni eru ekki beinlínis heilsusamleg og ef vinnan þín felur í sér að hnusa uppi slík efni daglega, þá er ekkert skrýtið að þú drepist fyrir aldur fram.
Að vera tík verður ekki til bjargar við slíkar aðstæður.
Við enda regnbogans
Ritað þann: 16. febrúar 2009
Efnisflokkar: líðandi stund
Af hornskrifstofunni minni (lesist: básinn í horninu) sást þessi fíni regnbogi um hádegisbilið. Hann náði alveg frá Sundahöfn og í heilli línu endaði hann á hverfi upp á hól í Grafarvogi.
Í gamalli sögu er sagt frá því að við enda regnbogans leynist gull. Mér datt helst í hug að einhver útrásarvíkingurinn hefði byggt sér byrgi undir húsinu sínu og falið þýfið sitt.
Áður en ég náði að gera nokkuð í málinu var komin grenjandi rigning. Sem er slæmt, því minn fyrsti dagur í hlaupahóp er í dag.
Mig grunar að það verði ekki hlaupið mjög langt.
Grísinn á útsölu?
Ritað þann: 16. febrúar 2009
Efnisflokkar: neytendur
Hvernig væri að lækka verðið?
Að óbreyttu stefnir því í, að bændur verði að fara að farga svínakjöti á ruslahaugum.
Ég væri til í að fylla frystinn hjá mér af grísahnökkum, lærissneiðum og purusteikum fyrir sanngjarnt verð.
En það er víst betra að henda þessu á haugana.
Harður dómur vegna áhuga saksóknara á málefninu
Ritað þann: 16. febrúar 2009
Efnisflokkar: skandall
Í Kastljósi í síðustu viku var viðtal við dreng sem var dæmdur í 7 ára fangelsi í Færeyjum fyrir að "geyma" bakpoka með eiturlyfjum.
Hinn þungi dómur virðist eingöngu vera svo þungur vegna haturs saksóknara á eiturlyfjum af persónulegum ástæðum.
Það að dómur geti þyngst svo mikið vegna tengsl löggjafarvaldsins við það sem málið snýst um fær mann til að velta því fyrir sér hvers vegna barnaníðingar fá svo væga dóma á Íslandi.
Sex Drive
Ritað þann: 16. febrúar 2009
Efnisflokkar: kvikmyndir
Ég horfði á ágætis ræmu í gær,
Sex Drive.
Fyndin og heilalaus afþreying. Akkúrat það sem mann vantar þessa dagana.
Síminn minn er bilaður og fékk ég þennan fína Sharp síma að láni hjá Vodafone á meðan þeir laga minn.
Sá sem var með lánssímann á undan mér fór ansi oft til tannlæknis í síðasta mánuði samkvæmt dagbók símans. Ég hallast eiginlega að því að viðkomandi hafi étið gamla símann sinn.
Geir er mættur aftur til vinnu eftir aðgerð. Hann hefur
áhyggjur af seðlabankastjórunum.
Þetta eru gamlir vinnufélagar mínir, segir Geir.
Það er eins og þessir menn séu ekki jarðtengdir. Hvað um þá 14000 sem hafa misst vinnuna vegna lélegrar efnahagstjórnunar í boði Geirs, Davíðs og plebbana úr Framsókn sem hafa öllu ráðið undanfarin 18 ár? Hvaða andskotans máli skiptir það þó að 3 gamlingjar fari á ríkuleg eftirlaun ef það verður til þess að endurreisa traust á íslensku fjármálaumhverfi?
Eyddi út síðustu línunni þegar mér rann reiðin. Pólitík er fokk.
Við klæddum okkur upp og fórum á Miklatúnið í gær með krakkana og renndum okkur á bretti og snjóþotu. Ég var búinn að gleyma hvað það er hressandi að renna sér og leika í snjónum.
Væri ég kominn yfir sextugt í vanþakklátu starfi fengi ég mér snjóþotu og færi út að leika mér.
Pabbi kíkti óvænt í heimsókn. Krökkunum þótti það nú ekki leiðinlegt - enda ekki séð sjómanninn afa sinn síðan daginn fyrir gamlársdag. Þau höfðu frá mörgu að segja og kjaftaði á þeim hver tuska.
In which One has to Wonder
Ritað þann: 06. febrúar 2009
Efnisflokkar: comics
Orðsnilld Árna Mathiesen
Ritað þann: 06. febrúar 2009
Efnisflokkar: fyndið pólitík
Það verður seint sagt um Árna Mathiesen að hann kunni ekki að koma fyrir sig orði. Í
viðtali við morgunblaðið þann 1. febrúar lætur hann eftirfarandi snilldarummæli falla:
Hann telur verkefnaáætlun nýju ríkisstjórnarinnar óljósa og innihalda fátt nýtt frá stefnu fráfarandi stjórnar í efnahagsmálum.
Með öðrum orðum, verkáætlunin er drasl. Hún er alveg eins og hún var hjá okkur.
Fiktandi puttar
Ritað þann: 05. febrúar 2009
Efnisflokkar: börnin
Hún dóttir mín er búin að fatta hvernig á að ná athygli minni ef ég er niðursokkinn í vinnu eða sluks í fartölvunni.
Slökká töllunni segir hún og ýtir á power takkann. Gildir þá einu hvort maður hafi náð að vista þau skjöl sem eru opin. Vinnufriðurinn verður úti á engri stund og lítið annað að gera en að opna með henni bók eða fara í Dublo kassann.
Það er reyndar skemmtilegra en heimavinna, svo ég kvarta ekki.
Það voru alger mistök hjá Kára Stefánssyni að gera svona mikið úr því að gagnagrunnur hans á heilbrigðissviði ætti að vera dulkóðaður og háleynilegur.
Fólk er hrætt við eitthvað sem það þekkir ekki og mótmælti hástöfum. Enginn skyldi græða á því að meðhöndla persónulegar upplýsingar um það.
Svo kom Facebook. Og fólk mokar inn upplýsingum um sjálft sig inn í gagnagrunn sem það hefur ekki hugmynd um hverjir hafa aðgang að - og samþykkir að allskyns forrit fái aðgang að þeirra upplýsingum án þess að hugsa sig um. Fólk tekur þátt í allskyns leikjum og könnunum og til verða ítarlegar upplýsingar um hegðun og áhugamál fólks.
Þessar upplýsingar eru mikils virði fyrir þá sem setja saman markhópa í söluherferðum svo dæmi séu nefnd.
Kári Stefánsson hefði betur stofnað vefsíðu þar sem fólk gæti skráð sig ókeypis og tæki svo þátt í allskonar könnunum og inn á milli væru spurningar sem kæmu DeCode að gagni.
1) Hver er uppáhaldsbíómyndin þín?
2) Ertu með sykursýki?
3) Hvaða litur er mest töff?
4) Er einhver í ættinni með sykursýki?
Innan skamms væri Kári kominn með allar upplýsingar um Íslendinga án leyfis eða fjölmiðlafárs um "dulkóðun".
Mér sýnist á
fréttum í dag að Davíð ætli ekki að láta sér segjast.
Innt eftir því hvort henni hafi heyrst á Davíð að líklegt væri að hann myndi hætta án vandræða sagði hún að samtal þeirra hefði verði einkasamtal sem hún myndi ekki lýsa frekar.
Við þurfum röska leikskólakennara til að tjónka við Davíð, því hann hagar sér eins og óþekkur óalandi krakki.
Djúpsteiktur fiskur
Ritað þann: 02. febrúar 2009
Efnisflokkar: börnin matur
Við fengum djúpsteikingarpott í jólagjöf frá einum bræðra minna jólin 2005.
Þá vorum við ekki búin að koma okkur almennilega fyrir, vorum í íbúðaleit og einhvern veginn endaði potturinn inni í skáp ónotaður.
Núna um jólin fengum við annan pott frá öðrum bróður úr bræðrahópnum mínum og þá var okkur ekki til setunnar boðið. Við yrðum að djúpsteikja eitthvað.
Nýja pottinum var skipt fyrir eldhúshnífa og rykið strokið af þeim eldri og hellt í hann olíu.
Ilminn af steiktu kartöflunum mátti finna um allt hverfið það kvöldið.
Um helgina var Margrét að vinna og ákvað ég að djúpsteikja fisk fyrir börnin. Ég fann þessa fínu orly uppskrift á netinu og steikti ýsu.
Ég hef sjaldan séð mat hverfa jafnhratt og vel ofan í börnin. Ef ég vissi ekki betur hefði ég haldið að þau hafi ekkert fengið að borða alla helgina.
Hann er greinilega þarfaþing þessi pottur. Ég þarf bara að græja aðstöðu til að djúpsteikja úti. Ilmurinn í eldhúsinu er ekkert sérstaklega lokkandi.