1 til 7 af 7
Ég var að smíða millivegg um helgina. Fyrsti milliveggurinn sem ég smíða á ævinni og hann heppnaðist nokkuð vel þó ég segi sjálfur frá.
Í vegi þessa ágæta milliveggs lá símasnúra. Hana klippti ég í sundur. Samstundis varð vefþjónninn minn sambandslaus við umheiminn.
Grettir trésmiður 1 - Grettir símvirki 0
Nú erum við búin að vera í rúmar 6 vikur í framkvæmdum á íbúðinni okkar, en upphaflega planið var að klára þetta á einum mánuði.
Það kom bara í ljós að það þurfti að gera töluvert meira en við gerðum okkur ljóst í upphafi.
Nú er búið að flota gólfið, við erum búin að grunna múrviðgerðir og klæðningar eru að verða klárar á þá veggi sem þarf að klæða.
Upphaflega átti að færa eldhús úr einu rými í annað og fá þannig barnaherbergi, skipta um parket og stækka hurðargat.
Þegar þessu verður lokið erum við búin að flota allt gólfið ásamt því að skipta um allt rafmagn, pípulagnir, ofna, parket og skápa á ganginum ásamt því að setja upp nýja eldhúsinnréttingu, laga hurðargat í forstofu, klæða veggina í barnaherbergjunum, skipta um flísar í forstofu og á baði, setja næturlýsingu á ganginn og eflaust er ég að gleyma einhverju.
Íbúðin verður eins og ný í gömlu vel byggðu húsi.
Dagarnir eru langir núna og við erum farin að hlakka til að geta legið fyrir framan sjónvarpið á kvöldin.
Í miðjum þessum framkvæmdum tókst mér að gera vefverslun fyrir
Tækniþjónustu Bifreida og finnst hafa tekist nokkuð vel til þó ég segi sjálfur frá. Ekki er leyfilegt að finna galla á vefnum fyrr en ég hef tíma til að gera við þá :-)
Ég tók ákvörðun í dag sem hefði hugsanlega kostað fyrirtækið stórfé hefði hún náð fram að ganga. Einhverjir vinir mínir hefðu kannski orðið ríkir, en eigendurnir voru ekkert sérlega hressir með mig.
Það er allt í lagi, ég baðst bara afsökunar á því. Ég tók ekki í mál þegar ýjað var að því að ég ætti kannski að hætta. Ég hef skyldum að gegna, skrifaði undir ráðningarsamning og svona. Ég er búinn að axla ábyrgð, missti leyfi til að taka ákvarðanir - í bili. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri í framhaldinu. Mæti bara í vinnuna og svona.
Þegar ferli undanfarinna vikna er snúið upp á venjulegan launþega, þá lítur þetta býsna fáránlega út. Fyrir þá sem ekkert fylgjast með, þá var ofangreint að sjálfsögðu grín í boði borgarstjórnarinnar.
Á meðan ég man, getur maður séð þessa margumtöluðu afsökunarbeiðni einhversstaðar? Eða er bara nóg að tönnglast á því endalaust að maður hafi beðist afsökunar og þá fara bara allir að trúa því að afsökunar hafi verið beðist?
Windows Live
Ritað þann: 11. febrúar 2008
Efnisflokkar: nöldur nördadót
Ég er að reyna að setja upp messenger og ná mér í Windows Live ID.
Ég hef ekki loggað mig inn á messenger í marga mánuði, búinn að gleyma lykilorðinu og ætlaði að sækja mér nýtt ID á nýju emaili.
Það er bara ekkert hægt!
Ég er búinn að setja upp messenger en alltaf þegar ég fer í Sign Up, þá opnast alltaf sama síðan (
http://get.live.com/) þar sem ég fer í install aftur. Sama gerist ef maður fer í Sign Up af forsíðu live.com
Ég held ég sendi konunni minni bara invite á gmail og við getum þá chattað á Google Talk. Ég hef gefist upp á þessu messenger rusli.
Í gær þurfti ég að ýta Toyotu Corollu í burtu svo ég kæmist leiðar minnar á BMW-inum sem ég er sannfærður - eftir gærdaginn - að fer allt.
Galdurinn við að komast leiðar sinnar er ekki flókinn. Vera á góðum dekkjum, hafa smá lint í þeim, setja í vetrastillinguna á sjálfskiptingunni og svo spillir ekki fyrir að 17 ára gamla vélin er orðin svo máttlaus að hún nær ekki að spóla ef öll ofangreind atriði eru uppfyllt.
Ég var eins og jarðýta í gær, fyrir utan leikskólann og uppi í Norðlingaholti þar sem dóttir mín er í dagvistun. Það sá ekki í ljósin á BMW-inum þegar hann hafði rutt sér leið um bæinn.
Drengurinn minn sér ekki sólina fyrir mér í dag og sagði öllum sem vildu heyra að pabbi hans hefði sko ýtt bíl úr skafli og keyrt svo yfir skaflinn á gamla bílnum.
Nýji BMW-inn kemst hinsvegar ekki neitt og sat á bumbunni í stæðinu sínu í gær. Hann nýtur sín betur á auðum götum og nýtur sín vel þannig.
Valkvíði
Ritað þann: 06. febrúar 2008
Efnisflokkar: nördadót
Mig vantar nýjan síma. Sá gamli er farinn að skella á fólk upp úr þurru þegar honum finnst ég vera búinn að tala nóg.
Vandinn er bara sá að ég get ekki ákveðið mig. Mig langar í síma sem getur spilað músik, er með þráðlausa nettengingu og allt í lagi myndavél.
En verandi búinn að þvo gamla símann tvisvar er ég ekki viss um að það sé svo góð hugmynd að eyða of miklu fé í símtæki.
Gamli síminn minn er fjögurra ára, svo ódýrasti síminn í búðinni er mörgum númerum meira töff en hann. Ég get bara ekki ákveðið mig.
Eitthvað sérstakt sem þið mælið með?
Ég er eyðilagður
Ritað þann: 04. febrúar 2008
Efnisflokkar: fyndið