1 til 11 af 11
Alltaf fækkar valmöguleikunum í komandi kosningum.
Netlögga? Ég hefði trúað Birni Bjarna til að koma með slíka ritskoðunar/hlerunartillögu og ekki brugðið, en ég hef svo sem fyrir löngu ákveðið að kjósa aldrei þann skítaflokk aftur.
Auðvitað þarf lögregla að geta skoðað ef eitthvað ólöglegt er í gangi, en að ritskoða/sía efni sem streymir til landsins minnir mann á einræðisríki með engin mannréttindi í boði.
Og fyrir teprurnar, þá snýst þetta ekki um aðgang að klámi, heldur hvað næst? Verða síaðar út fréttir sem henta ekki fasistastjórninni sem er að myndast hérna á Íslandi? Verður lokað á galgopa eins og mig sem segir það sem honum finnst?
Og fyrst við erum farin að tala um það sem mér finnst, þá finnst mér algerlega óásættanlegt að fólki sé meinaður aðgangur að hótelgistingu á landinu vegna þess að atvinna þess er ólögleg hér á landi. Yrði hvalveiðimönnum frá Íslandi úthýst í öðrum löndum?
Nei, en komu þeirra yrði hugsanlega mótmælt. Slíkt hið sama átti að gera hér. Taka á móti perrunum og mótmæla ef fólki sýndist svo. Þannig virkar lýðræði og ferðafrelsi í þeim löndum sem er ekki stýrt af aumingjum. Aumingjum sem leyfa ekki Falun Gong, atvinnumótmælendur eða perverta.
En bjóðum endilega forseta Kína. Hann er svo hress!
Að þessi klámráðstefna skyldi rata inn í þingsali og borgarstjórn er algerlega fáránlegt. Að ákveða hvort ætti að styðja geðsjúklinginn G. Bush í því að ráðast inn í Írak var ekki rætt en þetta er mál sem þingheimur hefur áhuga á!
Þurfum við kannski að sía adsl tengingarnar hjá þessum pervertum þarna niður á Austurvelli?
Klámið úti - bændur inni
Ritað þann: 22. febrúar 2007
Efnisflokkar: fyndið klám nöldur
Framleiðendum klámefnis vísað frá Hótel Sögu
Með þessu vilja Bændasamtökin lýsa vanþóknun sinni á starfsemi þeirri sem ofangreindur hópur tengist.
Ég lýsi nú bara vanþóknun minni á þeirri starfsemi sem bændasamtökin standa fyrir í formi verndartolla og almennu okri.
Að því tilefni er við hæfi að benda á þessa teiknimyndasögu:
Fundur hjá bændasamtökunum.
Það verða svínahakksbollur í matinn í kvöld í tilefni bolludags, heimatilbúin uppskrift sem við erum búin að vera að þróa hérna á Háteigsveginum lengi. Meiriháttar góðar þó ég segi sjálfur frá.
Við erum þessa daga að reyna að venja einkadótturina á snuð. Ég hef hingað til haldið að snuð og barn væri svona Plug-and-Play. Maður setti einfaldlega snuðið í vælugatið á barninu og þar með væri málið leyst.
Ég gæti ekki haft meira rangt fyrir mér. Það er eins og maður sé að gefa henni gamlan lauk. Fyrst kemur ægilegur skelfingarsvipur, þá skeifa og loks skaðræðisöskur líkt og maður hafi klipið hana að gamni sínu.
Horfandi á snuðið skil ég hana vel. Umbúðirnar utan um brjóstamjólkina eru töluvert meira aðlaðandi en gúmmísnuð. Þess vegna hef ég oft pælt í því hvort ekki væri sniðugt að koma við í hjálpartækjabúð, kaupa þar uppblásna dúkku og skera af henni mjólkurfernurnar og búa til snuð sem lítur út fyrir vera eins og snuð eiga að vera.
Bara hugmynd.
Rembuleikar 2007
Ritað þann: 15. febrúar 2007
Efnisflokkar: fyndið íþróttir
Ég er búinn að standa mig svo vel í ræktinni undanfarnar vikur, enda til mikils að vinna, að ég get gyrt niður um mig án þess að hneppa frá.
Þetta er einkar heppilegt þegar maður er eins tímabundinn og ég er. Ég get hysjað niður um mig, sprænt og hysjað upp um mig áður en viðstaddir átta sig því hvað gerðist. Hvaðan kom þetta piss gætu viðstaddir sagt. Ekki horfa á mig segi ég þá, ég er með buxurnar hnepptar.
Ég er að verða eins og Hiro í Heroes. Tíminn hefur ekki lengur áhrif á mig.
Ég get múnað á dónalega ökumenn og gert það svo snögglega að menn átta sig engan veginn á því hvað gerðist. Ég planta einfaldlega rassinum á mér í undirmeðvitund ökumannsins. Næst þegar sá hinn sami ætlar að svína á annan ökumann minnist hann myndarinnar sem hann geymir djúpt í sálartetrinu og hagar sér skikkanlega.
Þetta skapar reyndar vandamál þegar ég múna á kvenkyns ökufanta. Þetta verður þeim eins og koffein á morgnanna - þær vilja alltaf meira.
Stríð við bændasamtökin
Ritað þann: 13. febrúar 2007
Efnisflokkar: vefurinn
Einhver á vegum bændasamtakana hefur mætt með heykvísl í símstöðina hérna úti í götu í mótmælaskyni við síðasta pistil hérna á grettir.net og hvarf vefurinn af alnetinu í næstum sólarhring.
Áfallahjálp verður ekki í boði, en ég bendi fólki á Blóðbankann ef fólk vill minnast upprisu síðunnar.
Vodafone reddaði málunum eins og vanalega. Enda aðalstyrktaraðili Blóðbankans.
Hrædd Bændasamtök
Ritað þann: 08. febrúar 2007
Efnisflokkar: neytendur nöldur
Ég verð nú að segja að mér finnst skrýtið ef það á að vera á ábyrgð Bónus að
lækka innlendar búvörur. Lítur út fyrir að Bændasamtökin séu hrædd um að ef við fáum að smakka ódýrt lambakjöt frá Nýja Sjálandi komumst við að því að íslenska rollan er ekkert best í heimi þrátt fyrir að henni hafi verið troðið ofan í kokið á okkur í öll þessi ár - búin að tvíborga hana.
Hvernig væri nú að þessi anskotans bændasamtök myndu nú beita sér fyrir því að gera íslenskar búvörur samkeppnishæfar í verðum án þess að við þurfum að borga bændum fyrir vöruna í formi styrkja og milliliðnum með álögum í búðinni.
Hvernig væri það?
Stöð 2
Ritað þann: 05. febrúar 2007
Efnisflokkar: sjónvarp
Verandi nýkominn úr fæðingarorlofi hef ég glápt mikið á sjónvarp undanfarnar vikur. Það kom mér nokkuð á óvart hversu lítið ég horfði á Stöð 2 sem ég þó borga mest fyrir.
Ég horfi á fréttir sem eru óruglaðar og mér finnst eins og í hvert sinn sem ég svissa yfir á stöð 2 sé verið að sýna Bold and the Beautiful. Sem mér finnst ekki skemmtilegt by the way. Ég var ægilega feginn á sínum tíma þegar helgarsportið var fært yfir á Sýn, en er þá ekki bara Bold og Nágrannar endursýnt allan helvítis daginn. Að maður tali nú ekki um þessa anskotans raunveruleikaþætti, American Idol, X-Factor og Slut Swap.
Á Stöð 2 Bíó er spólan búin. Ég veit ekki hvað þeir eru búnir að sýna Marine Life, Truman Show og Good Advice oft á síðustu 8 vikum. School of Rock er meira að segja orðin þreytt. Endalausar endurtekningar viku eftir viku. Hversu oft nennir maður að horfa á Pixel Perfect eða Scorched? Ég get alveg eins horft á málningu þorna.
Ég ákvað því að sleppa því að borga þennan mánuðinn. Ég var undirbúinn því að stöðin myndi sýna einhverja dúndur framhaldsmynd mánaðarins og ég þyrfti nauðsynlega að borga til að sjá seinni helminginn, en þeir sýndu sem betur fer einhverja hræðilega mynd um Elvis sem ég gat alveg verið án.
Stöð 2 slokknaði svo í dag. Tilfinningin var skrýtin, enda búinn að vera áskrifandi í 8 eða 9 ár og búinn að borga ca. hálfa milljón fyrir. Ég skipti feimnislega yfir á Rúv, bara til að tékka á því hvernig tilfinning það væri að breytast í gamalmenni - glápandi á Rúv á mánudagskvöldi. Ég komst að því að Bjarni Fel er enn á lífi. Ég hafði ekki heyrt í honum frá því ég var ungur drengur, þegar það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og enski boltinn alla laugardaga.
Ef það var rigning, neyddist maður til að hlusta á Bjarna Fel lýsa þeirri ömurlegu íþrótt sem fótbolti er.
Ég skipti því fljótlega yfir á Skjá 1 sem er ókeypis. Kannski kemst ég að því að ég get ekki verið án Stöðvar 2. Kannski ætti ég að horfa minna á sjónvarp.
Spammera fokkerar
Ritað þann: 05. febrúar 2007
Efnisflokkar: nöldur vefurinn
Vá hvað ég er orðinn þreyttur á þessum endalausu tilraunum
til að spamma commentakerfið hér.
Eins og ég hef einhvern tíma talað um, þá skrifaði ég þessa síðu sjálfur og hafa þessir andskotar því þurft að sér forrita spamtól til að reyna að koma ruslinu sínu á framfæri. Ekkert af því hefur komist í gegn ennþá, en önnur til þriðja hver heimsókn hingað er spammari sem reynir að koma ruslinu sínu hérna í commentin.
Frá miðnætti til hádegis í dag hafa rúmlega 400 tilraunir verið gerðar og þetta eru tilraunir sem ekki eru stoppaðar áður en þær komast að vefþjóninum , einhver slatti er stoppaður í eldvegg (ip block). Nú er ég með um það bil 1300 ip tölur á bannlista og virðast þessar 400 tilraunir í dag vera að koma frá nýjum ip tölum sem ég er ekki búinn að keyra inn í eldvegginn.
Eins og staða er í dag eru spænskar ip tölur flestar eða rúmlega 200. Næst á eftir eru ip tölur frá N- og S- Ameríku. Ég er alvarlega að spá í að þrengja útsendingarsvæði síðunnar og loka á þessi lönd. Ef menn kunna ekki að hreinsa út vírusa af vélunum sínum sem dreifa svona rusli þá geta menn bara farið í rassgat. Ekki eins og þetta lið kunni íslensku.
Það var ekki fyrr en bankarnir voru einkavæddir að þeir fóru loks að græða. Áður voru með menn bara að spóka sig í laxveiði og bora í nef og rass.
Nú erum við að fá meiri skatttekjur af hagnaði bankanna í ríkiskassann en sömu bankar voru að skila í hagnað áður.
Þetta segir mér bara að vanhæfir stjórnendur eru við stjórnvölinn á Austurvelli. Senda óhæfa og úr sér gegna stjórnmálamenn til að stýra fyrirtækjum í eigu ríkisins. Það væri eins og ég myndi biðja ömmu að leysa mig af við forritunarverkefnin mín á meðan ég tæki mér frí.
Ég vil því að byrjað verði á því að einkavæða seðlabankann og hann svo lagður niðir. Næsta skref verður að einkavæða Alþingi. Við - fólkið í landinu - kjósum þá einstaklinga í stjórn (líkt og hluthafar kjósa sér stjórn í sitt fyrirtæki), stjórnin ræður svo forstjóra sem ber ábyrgð á því að ráða sér undirmenn og breytir ráðuneytunum í deildir innan Alþingis hf.
Allir Íslendingar eiga svo hlut í fyrirtækinu - óseljanlegan - mætum á hluthafafundi og fáum arð.
Þannig komum við í veg fyrir að stjórnmálamenn með hestagleraugu fái þá flugu í höfuðið að byggja "Hátæknisjúkrahús" vegna þess að þeir urðu veikir einu sinni og fatta ekki að það vantar fólk til starfa við "Hátæknisjúkrahúsið" sem þegar í notkun.
Auðkennislykillinn
Ritað þann: 02. febrúar 2007
Efnisflokkar: nördadót
Flestir ættu nú að vera búnir að fá Auðkennislykilinn sendan og byrjaðir að nota hann til að komast í netbankana.
Þetta gekk vel fyrir sig og mér finnst ekki muna neitt um að slá inn þetta aukanúmer, enda nota ég bankann nánast bara um mánaðarmót til að borga reikninga.
En..
Það hefði verið ótrúlega snjallt að innleiða þetta sem valmynd í gsm síma. Maður hefði þá skráð gemsanúmerið í bankanum, farið svo á heimasíðu Vodafone eða Símans og fengið auðkennisforritið sent eins og hvern annan leik eða eitthvað drasl.
Þegar "lykillinn" væri kominn í símann þyrfti maður bara að smella á nýtt númer eða e-ð og voila.. maður er alltaf með símann og þarf ekki að "burðast" með aukahluti á lyklakippunni.
Í fyrrasumar fengu ég og konan borðstofuborð og stóla í innflutningsgjöf frá tengdó. Við völdum þetta borð því við sáum margt töff í búðinni sem gæti passað við borðið og við höfðum hugsað okkur að kaupa seinna meir.
Um jólin hafði einhver orð á því að einn fóturinn væri laus, en við gleymdum að kíkja á hvert vandamálið væri, enda borðið ekki notað nema spari.
Í vikunni vorum við að færa til húsgögn hjá okkur og þá datt fóturinn undan og þegar betur var að gáð kom í ljós sprunga í festingunni undir borðinu og hafði skrúfan sem hélt fætinum slitnað út úr festingunni.
Við ákváðum því að hringja í búðina og segja frá þessu, töldum borðið vera gallað og sjálfsagt að láta skoða það áður en við færum að gera við þetta sjálf.
Aldrei á ævinni höfum við fengið svo dónalegar viðtökur:
- eitthvað hlýtur nú að hafa gengið á..
- þið hljótið að hafa rekið ykkur í fótinn.
- við erum sko búin að selja tugi af svona borðum og aldrei verið neitt vandamál
Við æstum okkur auðvitað við svona skítkast og sögðum að það hefði ekki neitt gengið á, við hefðum verið að færa borðið, 6 mánuðir væri engin ending, það hlyti að mega reka sig í lappirnar á helvítis borðinu og þó þau væru búin að selja 100 svona borð, þá gæti alveg eitt þeirra verið gallað.
Svona þurftum við að þrasa í lengri tíma, taka myndir og senda þeim og verulega farið að síga í mig. Það var ekki fyrr en við hótuðum að koma með borðið og henda því inn á gólf hjá þeim að við fengum loks í gegn að einhver kæmi að skoða borðið.
Ekki tók betra við þá. Einhver maður mætir, skoðar þetta og segir að við höfum sett það vitlaust saman, hert þetta alltof mikið (ekki nóg samt, því helvítis löppin datt af!) og ég veit ekki hvað. Ég sagði honum að það væri helvíti skítt að borðstofuborð og stólar fyrir 100 þúsund entust ekki nema 6 mánuði, standandi á sama stað allan tímann á meðan Ikea dótið færi búið að fylgja manni í mörg ár og sæi ekki á því.
Þá mótmælir hann eitthvað verðinu, það hafi ekki verið nema svona og svona mikið með afslætti og án skatts! Við skyldum ekki vera að með derring, hann væri kominn hérna til að skoða hvað hann gæti gert fyrir okkur og myndi ekki gera neitt ef við værum með kjaft.
Ég benti honum á að við hefðum verið sallaróleg þangað til það hefði verið hraunað yfir okkur í símann og okkur kennt um að fara illa með borðið. Það sá ekki á borðinu. Vantaði bara á það einn fót.
Nei, þá hafði hann ekki trú á því að neinn hefði verið dónalegur við okkur í símann og vændi okkur þannig einnig um lygi.
Það varð úr að hann mætti daginn eftir með smið og þeir löguðu borðið og það er eins og nýtt. Heildartíminn sem tók að gera við borðið var í mesta lagi 20 mínútur þannig að ef:
- Konan í símanum hefði sagt: Nú, datt fóturinn af? Ég skal senda mann að skoða það
- Maðurinn sem kom hefði sagt: Já, það hefur bara sprungið hérna festingin. Ég skal bara koma með smið á morgun og laga þetta
þá hefði þessi pistill verið um það hversu frábær þjónusta væri hjá þessari verslun. Ég væri með heilt borð og allir glaðir. Nú er ég með heilt borð, fékk þjónustuna sem mig vantaði en ég á aldrei eftir að stíga fæti inn í þessa verslun aftur. Maður hefði kannski átt von á svona kjaftbrúki í einhverri skransölu í Tyrklandi, ekki fínni húsgagnaverslun á Íslandi.
Ef eigendur verslunarinnar (konan í símanum og maðurinn sem kom með smiðinn) lesa þetta þá langar mig að benda á eitt, ánægður viðskiptavinur segir kannski 10 manns frá en óánægður kannski 20-30 manns frá. Ég er mjög óánægður. Ekki með vöruna. Ekki með smiðsverkið sem ég fékk fyrir rest, heldur viðtökurnar í síma, að vera vændur um lygi og að vera meðhöndlaður eins og ég væri að reyna að stela einhverju af ykkur.