1 til 11 af 11
Ætli minn hafi
farið á flakk eins og þessir? Ef svo er, þá má viðkomandi endilega greiða hann líka, því hann er feitur og pattaralegur eftir 18 daga travel á tímabilinu. Samt engann veginn nálægt metinu.
En ætli maður fái þetta ekki í hausinn fyrir rest, það er nú vaninn.
...
- grettir :: en hann var þess virði
Ég eyddi sunnudeginum í að horfa á
Extreme engineering ( mér leiddist ), snilldar þættir sem voru sýndir á Discovery einhvern tíma.
Mesta snilld sem ég hef séð er pælingin með City in a pyramid, en þá er byggður risastór ( 3000 fet á hæð ) pýramídi úr stöngum sem eru holar að innan fyrir lyftur og lestir. Inn í pýramídann eru svo "hengdir" skýjakljúfar.
Engir bílar og engin bílastæði, bara massamikið af húsnæði inni í risastórum pýramída.
Þetta á að vera til á hverju heimili.
Annars var helgin bara róleg. Fór í útskriftarveislu hjá mági mínum á laugardaginn, brauðréttir og kaffi, bara nice. Svo lá ég bara með tærnar upp í loft og hafði það gott. Vantaði bara eina brasilíska nuddkonu og þá hefði þetta verið fullkomið.
Ég teiknaði reyndar upp hugmyndir að breytingum á íbúðinni sem stendur jafnvel til að framkvæma næsta sumar. Þá verður tekin upp sleggjan og veggir látnir finna fyrir því.
...
- grettir :: einangra loftið í leiðinni
Fjúff, meira gluggaveðrið
Ritað þann: 25. febrúar 2005
Efnisflokkar: bjór
Ég svitna hérna eins og jólagrís.
Bara eitt í stöðunni, fara í Átvr, versla bjór og hætta þessari vitleysu.
...
- grettir :: öl öl öl
Vor í lofti :D
Ritað þann: 24. febrúar 2005
Efnisflokkar: bmw-inn ég
Ég er hreinlega ekki frá því að það sé farið að vora. Það er í það minnsta alltaf að verða bjartara og betra á morgnanna. Reyndar ekki að marka í morgun þegar ég setti Íslandsmet í því að sofa yfir mig. Munaði engu að það væri farið að dimma aftur, en það er önnur saga.
Bíllinn minn er fjarri góðu gamni þessa dagana, en hann lenti í árekstri á leiðinni á flugvöllinn þegar hann ætlaði að sækja mig eftir rokkið í Ríó. Í kjölfarið hefur fasteignaverð á Framnesveginum hríðfallið, enda mikil prýði að honum í hverfinu.
Nú er hann undir læknishöndum, en í gær náðist að klára að redda varahlutum. Ég ákvað að nota tækifærið og kaupa
svona sport dúllerí framan á vagninn til að freista þess að ná fasteignaverðinu upp á ný.
...
- grettir :: hálfur maður þessa dagana
Fokk á þetta eftir að verða löng nótt
Ritað þann: 22. febrúar 2005
Efnisflokkar: ég sjónvarp
Sofnaði yfir fréttunum og vaknaði rúmlega ellefu.
Núna er gott að vera með bíórásina.
Fokk hvað morgundagurinn verður syfjaður.
...
- grettir :: þetta er farið að minna á framhaldskólaárin, þegar maður var alltaf sofandi
Árshátíð starfsmannafélagsins var haldin um helgina með pompi og prakt á Hótel Borg um helgina. Mikið ljómandi var gaman. Þemað var bíómyndir og öll umgjörðin var eins og á Óskarsverðlauna afhending, þar sem allir dagskrárliðir voru kynntir eins og sigurvegarar eftir tilnefningu.
Þannig flutti ég til dæmis annál sem sigraði eftir tilnefningu í flokki annála. Mér leið eins og stjörnu.
Annars veit ég ekki alveg hvað ég á að gera í þessum annálamálum, ég virðist vera búinn að mála mig út í horn með þennan árlega flutning. Oh, well.
Þetta var fyrsta djammið eftir Brasilíu ferðina, enda kom ég heim á sunnudegi og er vanalega ekki mikið á djamminu í miðri viku, þó það komi vissulega fyrir og þá sérstaklega á sumrin.
En ég var gráti næst þegar ég fékk mér í glas á barnum og var minntur á það hvað Ginið kostar hér á klakanum.
Eitt kvöldið í Ríó vorum við á klúbbi sem ég man aldrei hvað heitir og hef kosið að kalla hossa boss. Þá fékk maður svona spjald sem var merkt inn á í hvert sinn sem maður fékk sér drykk. Allt kvöldið drakk ég Gin í tónik eins og ég fengi borgað fyrir það, bauð dömum í glas og varð ljómandi fullur.
Reikningurinn hljóðaði upp á tæpar 2500 kr. Þetta er svindl.
Við vorum eitthvað að ræða ferðalög og sumarfrí á Árshátíðinni. Það var eiginlega tekin sú ákvörðun að sleppa sumarfríi í sumar, taka einn og einn dag ef það gerir gott veður og fara frekar út í janúar, febrúar að ári.
Áfangastaður? Kúba baby! Maður verður nú að heilsa upp á gamla kallinn á Kúbu áður en hann drepst.
...
- grettir :: hver er með?
Skjár einn úti
Ritað þann: 17. febrúar 2005
Efnisflokkar: sjónvarp
Eftir að ég fékk Digital Ísland, þá er ég nánast hættur að horfa á Skjá 1. Maður þarf nefnilega að skipta yfir á hann með sjónvarpsfjarstýringunni og það er alltof erfitt þegar maður er búinn að koma sér fyrir með aðra hönd á pung og hina á bjórdós.
Í vikunni ákvað ég samt að teygja mig í hina fjarstýringuna og prófa gamla góða Skjáinn:
Ekki fara langt, næst á dagskrá er leikur í enska boltanum
*æl*
...
- grettir :: boltaskratti
Fékk bréf frá Sjóvá. Er með sparnaðarlíftryggingu þar á bæ. Þar stóð að miðað við 7% ársávöxtun kæmi ég til með að eiga 11 kúlur þegar ég sest í helgan stein.
Eini gallinn er sá að á síðasta ári var ávöxtunin aðeins 0.9%
Eitt árið var meira að segja tap á sjóðunum. Held að ávöxtunin hafi aldrei farið yfir 1% þessi 6 ár sem ég hef verið að leggja fyrir.
...
- grettir :: spurning um að segja þeim að stinga þessu upp í rassinn á sér?
Er þetta grín?
Ritað þann: 16. febrúar 2005
Efnisflokkar: líðandi stund
Er ekki verið að grínast í mér með þetta óveður? Ég hélt að puttarnir dyttu af mér í morgun, enda ekki með vettlingana mína, né sköfuna vegna óviðráðanlegra orsaka.
...
- grettir :: *snýt*
Jæja, búinn að koma mér fyrir aftur
Ritað þann: 14. febrúar 2005
Efnisflokkar: djamm ferðalög
Þá er bara allt að koma til hérna á heimilinu eftir tæplega þriggja vikna rokk.
Ferðalagið byrjaði í Nice sem sveik mig um góða veðrið, en þar var 7 stiga frost í góðu glensi og ég á bolnum (nánast). Ég fór svo tilbaka til London þann 26. jan. gisti eina nótt og hitti svo Ríó hópinn á Heathrow daginn eftir. Þar héngum við í bjór langt fram á kvöld, því fluginu til París seinkaði og seinkaði. Svo seinkaði því aðeins meir. Við þurftum því að hlaupa eins og brjálæðingar til að ná vélinni til Ríó.
Það hafðist, en gaurinn við hliðina á okkur var ekki yfir sig hrifinn að fá þrjá sveitta Íslendinga sér við hlið og var veikur hálfa leiðina og hélt fyrir mér vöku alla nóttina með einhverju brölti.
Þegar við komum til Ríó var ég ekki með neitt nema veskið, laptoppinn (eftir vinnuferðina í Nice, gerði geðveikt gagn í Ríó) og fötin sem ég var í, enda urðu töskurnar eftir á Charles de Gaulle, því franskir hleðslumenn eru ekkert á því að vinna hratt á kvöldin og eru með greindarvísitölu á við hamstur.
Með engin aukaföt þurftum við því að byrja á því að versla. Versla bjór, sveitt eftir flugið. Það er kostur númer eitt við Ríó. Bjórinn kostar 25 kr. út úr búð. Og 50 kr. af sveittum götusala sem er búinn að kæla hann og drösla honum út á götu í kæliboxi. Það tekur því varla að borga.
Þegar ég hef tíma hendi ég inn ferðasögu með myndum. Við brunuðum að sjálfsögðu lengst upp á fjall til að skoða jesú og eitthvað. Myndir segja mikið meir um það, ég á aðeins eftir að taka til, henda hreyfðum og þeim sem ég hef smellt óvart af með myndavélina miðaða á götuna, hehe. Later. Er enn að vinna mig í gegnum tölvupóst og beiðnir sem hættu ekkert að koma þó ég færi í frí.
...
- grettir :: útitekinn
Sunburn
Ritað þann: 02. febrúar 2005
Efnisflokkar: ferðalög
Ekki haegt ad segja annad en ad Rio de Janeiro fari vel med mann. 30 grádur og bongó blída, hehehe. Bara láta vita ad ég sé á lífi, síminn dedd.
...
- grettir :: Cobacobana baby!