1 til 13 af 13
Sögufrægur kofi
Ritað þann: 29. febrúar 2004
Efnisflokkar: íbúðamál
Ég hrekk nú alltaf við þegar heimasíminn hringir, enda hringir enginn í hann nema viðkomandi sé að reyna að pranga einhverju inn á mig (nú er ég kominn með bannmerkingu, svo þetta er að hætta).
En áðan hringdi einhver kona og var að biðja um leyfi til að skrifa um kofann minn og setja í einhverja bók, því kofinn er víst stórmerkilegur. Hér bjó víst einhver skáldkona í gamla daga.
Ætli húsfriðunarnefnd komist ekki í málið og kotinu verði breytt í safn?
...
- grettir :: ég fer ekki fet..
Ég er að fara í skautaferð með vinnunni á morgun og til stendur að keppa í hokkí.
Nú er ég ekki sá allrabesti á skautum; og ef ég þarf að fara að sveifla einhverri kylfu í leiðinni, þá er ekki von á góðu.
...
- grettir :: hjálmur -> checked
Áts...
Ritað þann: 24. febrúar 2004
Efnisflokkar: netið
Það verður bið á því að
þessi bjóði kærustum hring, jafnvel aldrei....
...
- grettir :: it hurts
Nú er mér illt í veskinu
Ritað þann: 24. febrúar 2004
Efnisflokkar: bmw-inn neytendur
Ónýtir báðir afturdempararnir hjá mér. Og í þessum nýstingskulda sem bylur á landinu, þá er eins og maður sé á hestakerru, slíkur er hossingurinn.
Stutt verðkönnun segir 50 þúsund rúblur, í landi ofurtolla og ókaupandi lambakets, þrátt fyrir meðlagsgreiðslur upp á milljarða.
Í landi heimskra, feitra hvítra manna kosta þeir hins vegar ekki nema 13-16 þúsund rúblur.
Er einhver á leiðinni vestur yfir haf sem nennir að kippa með sér tveimur hossistoppurum?
...
- grettir :: illt í bossanum
Keypti búðarbollur í Nóatúni í gær. Skemmst frá því að segja að þær eru meiriháttar vondar. Til að bjarga bolludeginum höfum við systkinin ákveðið að fara í hópferð til mömmu og fá okkur almennilegar Kitchen Aid hrærðar bollur, með alvöru rjóma.
...
- grettir :: búðardrasl
Ég las stupid white men í vélinni á leiðinni heim. Eftir lesturinn fer ég ekki ofan af því að það þarf að losna við Bush hið snarasta úr embætti. Ef ég gerðist nú bandarískur ríkisborgari (yeah, sure), þá væri ekki séns í helvíti að ég kysi hann og hans stjórn.
Helvíti góð klausa um hve ánægður Bush er með það hversu mikill vitleysingur hann er í raun, en þá var apakötturinn að halda ræðu í einhverjum skóla sem ég man ekki hvað heitir og sagðist aldrei hafa gengið vel í námi. Þetta átti að vera stuðningsræða fyrir C námsmenn; þeir gætu orðið forsetar eins og hann. Það sem Mr. Moore bendir á, réttilega, er að ekki allir C námsmenn eiga fyrrverandi forseta sem pabba, bróðir sem getur látið "óhagstæð" atkvæði hverfa úr heilu fylki og vini pabba í hæstarétti sem stöðva endurtalningu.
Mæli með þessari bók.
Annars var ég að lenda bara í góðu glensi. Náði að klára verkefnalistann úti og átti heilan einn og hálfan tíma í afgang til að rölta niður Strikið, skoða einhverja merkilega höfn og aftur tilbaka. Nokkuð gott.
Að sjálfsögðu lenti ég í tékki, as always. Ég vonaði svo innilega að gaurarnir myndu fara að róta í töskunni og finna ekkert nema sveitta sokka og notaðar næríur.
...
- grettir :: well, the bubble bath is waiting..
Flensa yfirvofandi
Ritað þann: 17. febrúar 2004
Efnisflokkar: ferðalög slen
Ég er aftur kominn til Köben. Hérna eru bara allir með kvef og hnerra og skyldi engan undra þó ég kæmi með einhverja fuglaflensu til landsins.
...
- grettir :: jatsjú maður
Ég fer ekki ofan af því að í fréttum í gær höfum við fundið mesta snilling í sögunni. Gaur sem ætlaði að rífa húsið sitt á Bergstaðarstrætinu og byggja þriggja hæða "háhýsi", en nágrannarnir komu í veg fyrir það með hefðbundnum smáborgaramótmælum eins og Íslendingum er einum lagið.
Hvað gerir minn maður? Leyfir bara útigangsmönnum að dvelja í kofanum, nágrönnunum til mikillar ánægju, eða þannig. Þetta toppar hefnd Björgólfanna, sem keyptu bara bankakvikindið sem kom þeim á hausinn á sínum tíma.
En hvað er málið með Íslendinga? Það má aldrei byggja kúl háar byggingar hérna án þess að allt verði vitlaust! Ég segi enn og aftur, flytjið út í sveit ef þið viljið sjá sjóndeildarhringinn út um stofugluggann hjá ykkur. Borgir eru greinilega ekki ykkar tebolli ef það má ekki byggja neitt nema einbýlishús í kringum húsið ykkar.
Ég vil fá alvöru miðborg, með háhýsum og alvöru mannlífi.. ekki einhverjar lengjur af ljótum steypuklumpum, pínkulitlum íbúðum, sem enginn sér hvort eð er neitt út um.
...
- grettir :: lúðar
Silki boxer
Ritað þann: 12. febrúar 2004
Efnisflokkar: ég
Silki boxerar eru málið. Tilfinningin er eins og maður sé ekki í neinu, en er það samt. Allt svo frjálst og hressandi eitthvað.
...
- grettir :: og mínar eru með mynd af garfield
Erfið jöfnun
Ritað þann: 10. febrúar 2004
Efnisflokkar: sjónvarp þynnka
Jöfnunin eftir þessa helgi hefur verið með þeim erfiðari og spilar þar margt inn í. Úldið tros líklega einna stærsti hlutinn. Og ómælt magn áfengra drykkja.
En ég er nú eitthvað að skríða saman, en það kæmi mér ekki á óvart þó þetta hafi verið síðasta þorrablótið í bili. Allavega á þessu ári skulum við segja.
Annars notaði ég þynnkudaginn til að horfa á
Coupling sem var sýnt á Stöð 2 fyrir ekki svo löngu og er verið að endursýna þessa dagana. Ég verð nú að segja að þátturinn "The Man With Two Legs" er bara fyndnasti skítur sem ég nokkru sinni séð. Mæli með þessu.
...
- grettir :: og hvað á maður að gera um næstu helgi? hmmm *hugsi*
Dusta rykið af svuntunni
Ritað þann: 05. febrúar 2004
Efnisflokkar: ég matur vinnan
Sá siður hefur tíðkast hér í vinnunni að skiptast á að vera með föstudagskaffi. Ég á að koma með bakkelsi á morgun og held ég að tími sé kominn á að setja nýjan standard á þetta annars ágæta kaffi.
Ég er nefnilega að spá í að baka fyrir morgundaginn. Þegar ég tók stúdentinn, átti ég svo ótrúlega fáar einingar eftir á lokaönninni að ég tók matreiðslukúrs þar sem ég lærði meðal annars að baka.
Engin spurning um að þetta á eftir að skapa þó nokkur stuðprik í prika bókina.
...
- grettir :: nú vantar mig bara Kitchen Aid hrærivél
Hvernig er það, er ekki hægt að
reka svona gaura sem eru bara að dandalast í útlöndum með frúnni þegar þeir eiga að vera í vinnunni?
...
- grettir :: ég kæmist allavega ekki upp með svona.
e - puttinn bilaður
Ritað þann: 02. febrúar 2004
Efnisflokkar: ég fyllerý matur
Skar mig framan á löngutöng á þeirri vinstri í gær. Þetta er ansi bagalegt þar sem þetta er puttinn sem ýtir á "E" á lyklaborðinu, en það anskoti algengur stafur skal ég segja ykkur.
Annars var ákveðið á föstudaginn að skella sér á þorrablót um næstu helgi. Þar stendur til að slátra einni Captain Morgan eða svo og éta úldið tros, eins og apakettirnir sem ösnuðust til að nema hér land gerðu til forna.
...
- grettir :: afhverju fann Ingólfur Arnason ekki Ástralíu... eða Nýja Sjáland