1 til 12 af 12

Spilling Sjálfstæðisflokks

Ritað þann:    23. desember 2007
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  

Í skjóli jólainnkaupa er sonur Davíðs Oddsonar pólitískt ráðinn í 75% stöðu héraðsdómara á Norðurlandi Eystra og í 25% stöðu héraðsdómara á Austurlandi.

Nú kann einhver að spyrja: "Nú? Má ekki ráða son Davíðs í vinnu?"

Jú, það má. En ekki þegar þrír aðrir hafa verið metnir hæfari til starfans af óháðri nefnd. Björn Bjarna var sniðugur að víkja og láta Árna Mathiesen skrifa undir ákvörðunina. Hann yppir hvort sem er bara öxlum og spyr hvort menn sjái ekki veisluna á meðan biðröðin lengist hjá mæðrastyrksnefnd, ríkissjóður skilar meiri hagnaði en nokkru sinni og skattbyrði eykst ár frá ári. Veisla hjá vinum og kunningjum kannski, en ekki lúðunum sem borga skatta eins og asnar.

Í stuttri flettingu á moggablogginu, sem er morandi í sjálfstæðisplebbum og hallelúja liði er dauðaþögn. Ég rakst á eitt blog um málið þar sem Fréttablaðið er skammað fyrir að fjalla um málið því Baugsmiðlar "hata" Davíð svo mikið.

Það má sem sagt ekki fjalla um spillinguna ef maður "hatar" þann sem er spilltur. Hver á þá að fjalla um hana?

Þetta er svipað og ef ég labbaði inn í Hagkaup og myndi sækja mér vörur án þess að borga. Ef einhver öryggisvörður stoppaði mig yrði ég brjálaður yfir því að þeir væru að skipta sér af - því þeir "hötuðu" þjófa.

Það má "hata" spillta pólitíkusa.

Ég segi nú eins og Georg Bjarnfreðarson:
Ekki ætlið þið að kjósa yfir ykkur íhaldið einu sinni enn?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. desember 2007 ( Ægir pípari ) [H]
og fasteignagjöld hækka um ca 12% besti jólapakkinn í ár best að minnast ekki á restina af hækkununum.
gleðilag jól allir saman


Vetrarsólstöður

Ritað þann:    22. desember 2007
Efnisflokkar:  efahyggja  líðandi stund  

Nú getur þetta bara batnað. Eftir daginn í dag byrjar að birta og svo kemur sumar. Fyrst tökum við að sjálfsögðu upp pakkana til að fagna komu sólarinnar.

Af textavarpinu:

Í dag 22 desember eru vetrarsólstöður.
Þá hættir sól að lækka á lofti og fer
hækkandi síðan. Sólin er aldrei jafn
lágt á lofti á hádegi og í dag.
Náttúrulegt hádegi kemur inn á
Austurland rétt fyrir klukkan 13, fer
vestur eftir landinu og er í Reykjavík
klukkan 13:26.

Vetrarsólstöður var einn mesti
helgidagur manna víða um heim að fornu,
þegar menn fögnuðu endurkomu
sólarinnar. Hátíðin sem var haldin um
vetrarsólstöður breyttist síðar í
fæðingarhátíð Krists.


Það var sumsé jesú sem stal jólunum en ekki trölli og prestarnir stálu frasanum hátíð ljóssins, en þá er að sjálfsögðu verið að vísa til þess að dag tekur að lengja. Ekki neitt annað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jólakveðja til femínista

Ritað þann:    21. desember 2007
Efnisflokkar:  fréttir  nöldur  

Lengi vel hef ég fyrirgefið femínistum röfl og karp yfir hlutum sem mér finnst ekki skipta neinu máli því ég styð jafnrétti og lýðræði.
Þeirra réttur er að röfla og karpa yfir hlutum sem mér finnst engu máli skipta, en þeim finnst mikilvægir og halda vonandi að verði þeirra málstað til góða.

Nú er félagið hinsvegar búið að drulla upp á bak með nýjastu auglýsingabrellunni, jólakort sem á stendur:
Askasleikir óskar sér þess að karlar hætti að nauðga

Nú er ég karl og manni getur nú sárnað þó maður gráti ekki.

Því sendi ég Femínistafélaginu mína eigin jólakveðju:
- grettir.net óskar sér þess að femínistar í Femínistafélaginu hætti að vera röflandi þurrkuntur, hætti að hata karlmenn svona mikið og fái ekkert í skóinn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Mjólk er góð - eða ekki

Ritað þann:    21. desember 2007
Efnisflokkar:  börnin  

Dóttir mín stendur varla fram úr hnefa, svo smágerð er hún. Við erum búin að vera í basli með að láta hana þyngjast og höfum troðið hana fulla af skyri og rjóma, jógúrti og stoðmjólk, kartöflum og kjúkling en allt kemur fyrir ekki. Hún er rétt rúmlega sjö kíló, 1 árs.

Hingað til hafa læknar og annað fagfólk ekki haft áhyggjur því hún hefur ekkert dregist aftur úr í þroska og er á undan ef eitthvað er, farin að spjalla, ganga með öllu og vantar bara herslumuninn í göngutúr.
Þar til hún fékk gubbupest um daginn og ætlaði ekki að losna við hana.
Þá höfðum við og fagfólkið áhyggjur.

Það kom á daginn að mjólk er ekkert svo góð eftir allt saman. Hún er með ofnæmi fyrir henni og öllu sem unnið er úr slíku beljudjúsi.

Við fórum því í heilsuhornið í Fjarðarkaup og fylltum kerruna af soya vörum.

Nú eru liðnir 5 dagar og það er hægt að horfa á hana stækka. Maður hefur ekki undan að skera ofan í hana brauð með kæfu - aðra eins matarlyst höfum við varla séð. Það er eins og hún sé að vinna upp árs hungur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Mannrán

Ritað þann:    17. desember 2007
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Ekki það að ég sé að mæla með því að lögin séu tekin í eigin hendur, en þennan mann á ekki að fangelsa, heldur verðlauna.

Í stuttu máli "rændu" þrír gaurar stelpu. Fyrrverandi kærasti hennar tók þá og lamdi í köku með þeirra eigin golfkylfum.

Það getur vel verið að eitthvað meira liggi þarna að baki sem ekki er sagt í fréttinni, en 8 mánaða dómur fyrir að bjarga konu í neyð og refsa ræningjum hennar þykir mér helvíti hart, sérstaklega þegar barnaníðingar og slík ómenni fá 1-2 ár.

Það vantar greinilega fleiri talsmenn manna sem eru í handalögmálum í hæstarétt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skemmdir í óveðrinu

Ritað þann:    13. desember 2007
Efnisflokkar:  fréttir  

Við fórum ekki varhluta af óveðri sem gekk yfir landið í fyrrinótt. Það var ófögur sjón sem blasti við okkur í bakgarðinum í morgun.

Sólstóll hafði dottið á hliðina og poki af brauði sem við gleymdum úti í afmælisundirbúningnum um síðustu helgi hafði fokið út af borðinu og niður á pall.

Það verður því að gera ráðstafanir fyrir kvöldið - setja brauðið í frysti og setja stólinn upp við vegg.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Corner office

Ritað þann:    12. desember 2007
Efnisflokkar:  vinnan  

Í sjö og hálft ár hef ég unnið hjá sama fyrirtæki. Í sjö og hálft ár hef ég beðið eftir þessum degi.
Deginum þegar ég fæ hornskrifstofu með útsýni yfir Esjuna og sundin blá.

Í dag er sá dagur.

Sá sem segir að bás í horni sé ekki hornskrifstofa verður strikaður út af jólakortalistanum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. desember 2007 ( Ingunn ) [H]
til hamingju með nýju skrifstofuna :)


 13. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Takk takk :-)


 13. desember 2007 ( von ölves ) [H]
verða þá ekki stöðugar fréttir og uppfærslur af því hvort Esjan sé hvít eða blá...


 13. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Ég verð augu ykkar og eyru hvað það varðar..


Land hinna frjálsu

Ritað þann:    12. desember 2007
Efnisflokkar:  fréttir  skandall  

Svona er tekið á móti ferðamönnum.

Ég held að Evrópa verði fyrir valinu í verslunarferð í janúar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. desember 2007 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
hmmm ég er að fara til NYC núna 21. des, frábærar móttökur.


 12. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Þú ert hugrakkur :-)


Hækkun trygginga - Bótasjóðurinn fitnar

Ritað þann:    10. desember 2007
Efnisflokkar:  neytendur  

Tryggingafélögin eiga bágt núna vegna mikils taps á kaskótryggingum. Þetta er vegna fjölda lúxusbíla í umferð sem dýrt er að gera við.
Sjá frétt um málið á Rúv

Á vef Tryggingamiðstöðvarinnar má finna þessa frétt.

Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins var 1.873 m.kr. en hagnaður var á sama tíma í fyrra að fjárhæð 464 m.kr.


Og á vef Sjóvá má finna þessa frétt.

HAGNAÐUR Sjóvá samstæðunnar nam 11,9 milljörðum króna á árinu 2006 í samanburði við 3,76
milljarða árið á undan.


Engar upplýsingar um afkomu var að finna á vef Vís (eða undirsáta þeirra, Varðar) því þeim finnst væntanlega vandræðalegt að segja eitt í sjónvarpi þegar tölur segja annað.

Áramótin 2005-2006 voru bótasjóðir tryggingafélagana 42 milljarðar skv. Neytendasamtökunum en bótasjóðina nota tryggingafélögin til að safna fyrir tjónum sem þau þurfa hugsanlega að borga út þegar tjón er tilkynnt (mörg tjón eru aldrei borguð út og því gildnar sjóðurinn).

Af 42 milljörðum eru rúmlega 5 milljarða ársvextir miðað við vexti dagsins í dag.

Eru tryggingafélögin að búa sig undir að allur bílafloti landsmanna brenni?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. desember 2007 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Tja, fóru ekki "bara" 70 kúlur up in smoke um helgina?


 10. desember 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Held að VÍS sé búið að selja Vörð...
Maður tekur nú hæfilegt mark á afkomutölum tryggingafélaganna. Bótasjóðirnir taka helv. mikið til sín og gera ekkert annað en að stækka. Svo fjárfesta menn fyrir bótasjóðina og græða á þeim.


 10. desember 2007 ( Emil ) [H]
Eru þessar 70kúlur ekki eitthvað sem þarfnast ransóknar ?

Þarf ekki að breyta þessum sjálftökurétti hjá tryggingafélögunum þannig að þetta sé einhvernveginn tengt hagnaði ?
Hvernig má vera 11.9 milljarða hagnaður og þeir eru að tapa svo miklu að þeir verða að hækka iðgjöldin ??


 11. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Já, það þarf eitthvað að breyta þessu. Einkennilegt að hafa lög sem segja að bíleigendur séu skyldugir til að kaupa tryggingu og svo virðast einkaaðilar geta stýrt verðinu á þessari skyldutryggingu alveg sjálfir.

Það þarf þá að vera eitthvað þak á þessari lögboðnu skyldutryggingu.

Varðandi þessar 70 mills.. þá ná þeir þeim inn á nokkrum dögum í formi vaxta af bótasjóðs peningum. Eða neita að borga því vegna gruns um íkveikju.
Húsið græðir alltaf.


Barnaafmæli

Ritað þann:    08. desember 2007
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Hún dóttir mín á afmæli í dag. Við erum að fara að baka.

Fyrir nákvæmlega ári vorum við komin upp á fæðingardeild, en vorum send heim því ekki var nægileg útvíkkun í gangi. Tveimur tímum síðar var hún fædd og ég var heppinn að þurfa ekki að taka á móti henni á baðinu heima.

Nú stendur hún upp, labbar með öllu og ybbar gogg.
Gaman að því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. desember 2007 ( Hjalti Einarsson! ) [H]
Til hamingju með dömuna! :)


 08. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)


Trúleysinginn ég

Ritað þann:    07. desember 2007
Efnisflokkar:  efahyggja  nöldur  

Ég er trúlaus. Ég hef samt enga fordóma gagnvart þeim sem kjósa að trúa á eitthvað yfirnáttúrulegt og ég get alveg skilið að fólk sem komið er á grafarbakkann finni þörf á hjá sér að trúa því að einhver taki á móti því þegar hræið er urðað.

En að fullfrískt fólk á besta aldri skuli vera að velta sér upp úr þessu? Það skil ég ekki. Í stað þess að njóta lífsins eins og það er, þá er endalaust verið að bukta sig og beygja eftir einhverri ævagamalli skruddu sem búið er að þýða svo oft að upprunatextinn er löngu kominn úr öllu samhengi.

Þó ég sé trúlaus hef ég ekki nennt að skrá mig úr Þjóðkirkjunni og ég er því einn af þeim sem biskup telur að sé kristinn þó ég sé það alls ekki.
Ég tilheyri engum sérstökum hópi, hvorki trúaðra né vantrúaðra. Ég er bara ég. Hvorki meira né minna. Ég trúi því að fólki vegni betur í lífinu ef það treystir ekki í blindni á eitthvað óútskýrt, óáþreifanlegt yfirnáttúrulegt afl.

Undanfarin ár hefur kirkjan bara "verið þarna". Af gömlum vana. Fólk kíkir í messu á jólum og páskum af einhverri óútskýrðri skyldurækni - líklega meiri skyldurækni við ættingja, ömmur og afa sem eru að nálgast síðasta söludag - frekar en að það trúi á guð eða jólasveininn.
Nú hefur kirkjan hins vegar fært sig upp á skaftið og lærisveinar hennar hafa ráðist á það helgasta af öllu. Börnin okkar. Með trúboði í leikskólum.

Hvernig ætli prestum og biskum þætti ef ég myndi mæta með The Origin of species eftir Darwin í messu og kynnti þróunarkenningu fyrir þeim sem þar sætu?
Myndu þeir ekki vilja fá að vera í friði með sitt? Það sem er heilagt fyrir þeim er ekki heilagt fyrir mér, en börnin mín er heilögust af öllu í heiminum fyrir mér og það hefur enginn prestur leyfi til að valsa inn í leikskóla barnanna minna með einhverjar lygasögur af manngarmi sem var negldur á trjádrumb og á að hafa risið upp frá dauðum. Predikun biskups um daginn var vægast sagt fáránleg þar sem hann kvartar og kveinar yfir fámennum hópi sem er að ráðast á kirkjuna.
Kirkjan er ekki yfir gagnrýni hafin. Ekki á meðan hún er undir ríkinu. Þetta er svipað og skattstjóri kæmi fram opinberlega og klagaði yfir því að fólk væri að röfla yfir skatttöku.
Þetta röfl í biskup jók andúð mína enn frekar á þjóðkirkjunni og þeirri lygi sem hún stendur fyrir.

Ég meina hvaða maður með greindarvísitölu í meðallagi trúir því að einn náungi hafi byggt skip, safnað kvenkyns og karlkyns eintaki af öllum dýrum jarðar í það og bjargað á meðan guð lét reiði sína "rigna" yfir jörðina? Hver kýs slíkan guð sem sinn herra? Hvaða rugl?

Ef fólk vill að börnin sín læri um krist og kristin gildi, þá eru sunnudagaskólar til þess, haldnir í rándýrum húsum sem eru byggð fyrir skattpeningana mína og þína.

Ég kvíði því nógu mikið að segja mínum börnum að jólasveinninn sé ekki til, þó þetta bætist ekki ofan á lygarnar. Eini munurinn á jólasveininum og guði er sá að lygin um jólasveininn hefur aldrei orðið til þess að fólk er drepið í stórum stíl fyrir að trúa ekki á hann.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. desember 2007 ( HERMANN ) [H]
HALLELUJAH!


 07. desember 2007 ( teitur atlason ) [H]
Þú styður Þjóðkirjuna um 12.000.- krónur á ári þangað til þú verður urðaður...

Endilega lattu vera að því að skrá þig úr þessu óhræsis-apparati. : )


 07. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Það var alger klaufaskapur að gera það ekki fyrir 1. des, en það stendur til að redda því.


Snjór og rass

Ritað þann:    06. desember 2007
Efnisflokkar:  ég  fyndið  líðandi stund  

Ég var pínku glaður þegar ég sá snjóinn í morgunn enda nýkominn á vetradekkin.

Gleðin var stutt, enda var mér snarlega kippt niður á jörðina fyrir utan vinnuna í orðsins fyllstu merkingu þegar ég steig með annan fótinn út fyrir bílinn, fór í splitt og hlunkaðist beint á rassinn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. desember 2007 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Þú s.s. gleymdir að setja sjálfan þig á vetrardekkin ;)


 07. desember 2007 ( Hjalti Einarsson! ) [H]
Vandræðalegt :D

Gleðifréttir; Radiohead búinir að bóka sig á næstu Rock Werchter! Nú þarf að fara gera ráðstafanir ;)


 07. desember 2007 ( von ölves ) [H]
já júlíusson var fljótur að láta vita af því að radiohead yrðu á rw 2008... held það sé í lagi að byrja að gera ráðstafanir...


 07. desember 2007 ( - grettir ) [H]
Já, ég hefði þurft að vera á mannbroddum eða einhverju álíka töff.

Rock Werchter segið þið! Það væri ekki leiðinlegt skal ég ykkur segja.