1 til 15 af 15
Jólin góð
Ritað þann: 28. desember 2005
Efnisflokkar: fjölskyldan
Ég hafði það verulega gott um jólin. Borðaði mikið af góðum mat, fékk verulega fína pakka og hafði það virkilega gott með bæði gömlu góðu fjölskyldunni og þeirri nýju.
Nýja árið leggst vel í mig.
Ég keypti Simpsons, season 5 um daginn í BT. Með extra desember álagningu auðvitað, en Visa fólkið er hvort sem er búið að opna kampavínsflösku mér til heiðurs, svo einn fjólublár til viðbótar sakar ekki.
Ég stóð í þeirri meiningu að Dvd diskar á Íslandi væru svona dýrir því einhverjir sveittir þýðendur væru búnir að setja íslenskan texta á þetta allt, en nei. Enginn íslenskur texti. Þó kostaði serían 5000 kall eða 55% meira en á Amazon.
Og ekki nóg með að enginn væri íslenski textinn, heldur var búið að troða einhverri bíómynd frá Smáís fremst á diskinn "Þú skalt ekki stela" og þá verið að tala um ólöglegt niðurhal á bíómyndum og drasli. Ég veit ekki betur en að þeir sem sjái þá mynd séu þegar búnir að versla heiðarlega - með 55% álagningu - helvítis Dvd diskinn.
Kannski þar sé skýringin á álagningunni. Það er svo dýrt að troða þessum áróðri fremst á diskinn.
Svo keypti ég mér einhverja mynd í Bónus (alltaf ódýrastir). Sá svo í blaðinu daginn eftir að sami diskur var 500 kr. ódýrari í Elko.
Það þarf vart að taka það fram að Smáís áróðurinn var líka spilaður þegar sá dýri diskur var settur í tækið.
Eftir þessar hremmingar hef ég tekið þá ákvörðun að kaupa aldrei Dvd myndir eða þætti hérna heima framar.
Ef mig langar að eiga eitthvað, þá versla ég það á Amazon - annars leigi ég bara fjandans diskinn. Ekki er þessi Smáís áróður á leigudiskunum.
Hagkaup er líka komið á svarta listann. Keypti eitthvað Legó dót 3000 kr. dýrara en ég sá það inni í Dótabúðinni í Smáralindinni.
Hagkaup er því algert öfugnefni. Okurbúlla væri betra.
Að öðru leyti er ég kominn í jólaskap :-) Til stendur að fara í skötuveislu annað kvöld þaðan sem leið liggur niður á Laugaveg með viðkomu á Baldursgötunni hjá
Von Olves þar sem mér skilst að verði heitt kakó á boðstólnum. Það verður splendid.
Jólagefur
Ritað þann: 20. desember 2005
Efnisflokkar: fjölskyldan
Fer í jólasveinaferð austur fyrir fjall á eftir, með fullt skott af jólagefum fyrir mömmu, pabba og systkinin öll. Þetta er svo myndarlegur hópur að engu munar að ég þurfi að leigja sendiferðabíl.
Gaman gaman.
Á þessum árstíma er alltaf gert mikið úr því í fréttum að jólastressið sé að ná hámarki. Svo fer maður í Kringluna, niður á Laugaveg eða bara hvert sem er og allir eru sallarólegir. Fólk röltir milli búða, hittir vini, sest niður og fær sér kaffibolla - sauðslakir alveg hreint.
Sér ekki stress á nokkrum manni. Ekki er ég stressaður.
Æðisleg forsíðan á DV í dag. Þar er vitnað í prest sem segir: "Jólasveinninn er ekki til" og undirmálsgreinin "Ég get ekki hugsað mér að ljúga að börnunum"
Og þetta segir gaur sem byggir starf sitt á stærstu lygi mannkynssögunar.
Hettusótt
Ritað þann: 15. desember 2005
Efnisflokkar: ég slen
Mér skilst að Hettusótt sé að ganga þessa dagana. Fyrir mig er það mjög slæmt - kominn á gamalsaldur og hef ekki fengið hana.
Ég dreif mig því á heilsugæsluna mína og lét sprauta mig gegn óværunni.
Ég hef ekki fengið rauða hunda heldur, en ég fékk hlaupabóluna í kringum fermingaraldurinn. Gleymi því aldrei. Fékk 7700 bólur sem voru í keppni hver gæti látið mig klæja mest. Ég svaf í talkúmi og kartöflumjöli í 10 daga.
Hvaða orðrómur er þetta um að Jón Baldvin ætli að fara að skipta sér aftur af stjórnmálum? Vita menn ekki að það er honum að kenna að við erum að borga bifreiðagjöld? 20 þúsund á ári, spank you very much. Það eru ca. 120 bjórar, eða 2,3 bjórar á viku.
Eða 170 skyrdósir, ef þið hugsið þannig. Það eru 0,65 skyrdósir á hverjum vinnudegi ársins.
Jón Baldvin hafði af okkur morgunmatinn! Viljum við mann í stjórnmál sem er á móti morgunmat?
Ekki ég.
Auglýsingar
Ritað þann: 14. desember 2005
Efnisflokkar: nöldur
Ljómandi er þessi flash auglýsing frá Iceland Express á visir.is þreytandi. Maður verður að hætta að lesa síðuna á meðan hún gengur yfir. Og að sjálfsögðu sleppa því að versla við Express.
Fór með vinnunni á jólahlaðborð á laugardaginn í Fjörukránni. Aldeilis fínt.
Hefðu mátt vera þægilegri stólar, en alvöru víkingar kvarta nú ekki yfir bakverkjum og rasssæri.
Það besta síðan sneitt fransbrauð
Ritað þann: 08. desember 2005
Efnisflokkar: tónlist
Pandora er alger snilld. Maður slær inn einhverja hljómsveit sem maður fílar, vefsíðan byrjar þá að spila lag með þeirri hljómsveit og leitar svo að svipaðri tónlist.
Þannig uppgötvar maður grúppur sem maður vissi ekki að væru til. En þær eru til. Þó að þær fáist ekki í Skífunni.
Allir í Garðabæ settu jólaseríurnar í samband á sama tíma í gær.
Allt rafmagn fór af og vatnið fór af Mosfellsbænum.
Þetta kallar maður að búa í sveit.
Ég er ekkert svo viss um að gullfiskar muni bara nokkrar sekúndur. Gullfiskarnir hérna verða rosa kátir þegar maður tekur upp matarbrúsann, þeir vita sko alveg hvað er að fara að gerast.
Hins vegar eru stjórnmálamenn með stysta minni í heimi og muna ekki daginn eftir kosningar hverju þeir lofuðu. Þar á eftir koma kjósendur - sem kjósa trekk í trekk sömu fíflin - aftur og aftur, í stað þess að bjóða sig einfaldlega fram því úrvalið inn á þing eða í borgina er ekkert.
Lakkrís
Ritað þann: 02. desember 2005
Efnisflokkar: fimmaurar
Það kæmi mér ekki á óvart þó að einhver væri búinn að opna lakkrísverksmiðju hérna uppi á hálsum.
Það er svo mikil nammilykt úti að það liggur við að maður fái niðurgang af lyktinni einni saman.
Á morgun fer ég með vinnufélögunum eitthvað út í skóg til að saga niður einhvern málleysingja til að hafa til skrauts í stofunni yfir jólin. Það verður hressandi.
Jólaskapið að koma
Ritað þann: 01. desember 2005
Efnisflokkar: fyndið tónlist
Hið árlega
aðventulag Baggalúts kemur manni til að brosa og í gott (jóla)skap.
Ó, Jósep sendi SMS.
Ó, María, var bara furðu hress.
Ó, barnið lá og snuðið saug
með bros á vör – og soldinn geislabaug
Verður það betra?