1 til 15 af 15

Áramótaannállinn

Ritað þann:    30. desember 2004
Efnisflokkar:  annáll  

Jæja, er ekki klassískt að gera upp árið á þessum tímamótum. Eða áramótum eins og gárungarnir kjósa að kalla þetta.

Ég vildi að heimilisreksturinn hefði skilað hagnaði þetta árið. Mér tókst að eyða hverri einustu krónu, bæði í sjálfan mig, bílinn og íbúðina, en tókst þó að grynnka á gömlum skólaskuldum um einhver prósent.

Ég skipti um olíufélag á árinu. Samtals gerir það ca. 250 þúsund í kassann fyrir nýja olíufélagið og rúmlega 300 þúsund í mínus fyrir það gamla, því ég er einnig hættur að versla samlokur og hverskyns varning hjá gamla olíufélaginu ( viljandi eintala ).

Alls eyddi ég 31 degi í útlöndum þetta árið. Ég er ekki búinn að taka saman hversu marga klukkutíma ég sat í flugvél, en það voru nokkrar bækur sem það tók. Fór meðal annars í fyrsta sinn til Bandaríkjanna. Ekki einu sinni, heldur tvisvar. Sá feitt fólk fyrir alla ævina. Komst að því að ég er Evrópubúi og fíla það bara vel.

Ég náði mér ekki í konu á árinu. Það var eitthvað nart, en ég náði ekki að draga neina veiði í land. Varð tvisvar skotinn, en klúðraði báðum tækifærunum. Sem var kannski gott eftir á að hugsa, því þá slapp ég við að velja jólagjöf ( grín fyrir þá sem ekki þekkja mig ).
Ég verslaði mér reiðhjól á árinu. Það var hressandi. Lærvöðvarnir eru betri fyrir vikið.

Árið var magnað vinnulega séð. Kynnist fullt af nýju skemmtilegu fólki. Sumt á ég líklega ekki eftir að hitta aftur, en það er bara eins og það er. Annað á ég eftir að vera í enn meiri samskiptum við á næsta ári. Hressandi það.

Ég sleppti því að pissa undir á þessu ári.

Ég fékk tvær hraðasektir á árinu. Það var ekkert sérlega gaman.

Ég ætla að djamma feitt annað kvöld og enda þannig árið á sama hátt og það byrjaði. Og var eiginlega allt.

...
- grettir :: gleðilegt ár kæru lesendur

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. desember 2004 ( majae ) [H]
gleðilegt ár granni. blastaðu þakið af grannanum okkar ;)


 01. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Trúðu mér, það verður reynt ;)
Og gleðilegt árið.. svo er alltaf heitt á könnunni hérna niðri.


 01. janúar 2005 ( Ramage ) [H]
Gleðilegt ár 2005


 01. janúar 2005 ( albin ) [H]
Til hamingju með nýja árið, vona að það nýtist þér sem best.



 02. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
árið! takk fyrir það gamla... já og þau gömlu ár... betri samantekt en margar sem ég hef heyrt... batnandi mönnum best að lifa og allt það ha!


 03. janúar 2005 ( Lilja ) [H]
Gleðilegt nýtt ár, hnoðrinn minn, og takk fyrir frábæra lesningu á árinu sem er að líða.

Hlakka til meiri lesturs ;o)


 03. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Takk öll :-)


Nokkrar góðar ástæður til að flytja...

Ritað þann:    29. desember 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  klám  

... til Brasilíu!

30 dagar gott fólk, 30 dagar.. ég er að missa þvag af spenningi.

...
- grettir :: bleyjur anyone?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. desember 2004 ( Birna ) [H]
Á held ég einhversstaðar afganga síðan vigs var baby, en hef ekki "mælt" á þér rassinn í bleyjuhugleiðingum... hefði kannski átt að gera það :S en feel free to use em;)


 30. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D
Ég get líka farið í Krónuna og fengið fullorðins.


Hangiketið gengið niður

Ritað þann:    28. desember 2004
Efnisflokkar:  efahyggja  fréttir  líðandi stund  matur  

Auðvitað át maður sig meðvitundarlausan þessi jól eins og önnur. En einhverju er maður búinn að skila og er að verða öllu léttari á mér.

Fékk fullt af fínum pökkum líka og það var ferlega gaman. Ég á svo mikið af systkinum sem eru öll farin að gefa stráknum. Sérdeilis prýðilegt.
Við spiluðum Friends spilið á Aðfangadagskvöld. Nú er ég forfallinn aðdáandi þáttanna en ég skil ekki hvernig var hægt að klúðra "gameplay-inu" svona hrikalega og í þessu spili. Manni var skapi næst að dusta rykið af Trivial borðinu og nota Friends spurningarnar.



Rakst á mjög fyndna frétt á mbl.is þar sem fjallað er um biskup sem sá ástæðu til að hrekja þær samsæriskenningar sem koma fram í Da Vinci Code í jólaávarpi sínu.
Í fyrsta lagi verður maður auðvitað að átta sig á því að Da Vinci Code er skáldsaga (líkt og biblían), en í öðru lagi dettur manni í hug myndin Conspiracy Theory með Mel Gibson og Juliu Roberts, en þar er fjallað um sérkennilegan gaur sem setur fram allskyns samsæriskenningar í fréttablaði sem hann gefur út. Ein þeirra reynist rétt og reyna því vondu kallarnir að drepa hann.
Því spyr maður sig hvort einhver af kenningum Dan Browns í Da Vinci Code eigi við rök að styðjast og hafi komið við kauninn á kirkjunnar mönnum?
Sýnir manni enn og aftur að best er að trúa bara á sjálfan sig.

...
- grettir :: jólin eru hátíð áts og gjafa, no more - no less

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. desember 2004 ( majae ) [H]
mæli lika með 70 mín spilinu, það er bara snilld. en já leikurinn sjálfur í friendsspilinu er svooooldið mikið vírd


 28. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Já, frekar. En spurningarnar eru snilld! Maður kemst alltaf í gott skap við að rifja upp atriðin í kringum spurningarnar, magnaðir þættir alveg.
Ég þurfti að leika atriðið með Joey og "the identical hand twin". Bara fyndið.


 29. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
hressir þessir kirkjukallar!


 30. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Já, naumast menn verja sitt brauð.


Nú mega þessi jól koma fyrir mér

Ritað þann:    23. desember 2004
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Það hafðist í gærkvöldi. Allar jólagjafir komnar í hús. Nú þarf ég bara að pakka. Ég reyndi að kaupa pappír til þess arna í leiðinni en fann hvergi rúllu með fleiri en tveimur vafningum.
Hvað er málið með það? Er ekki hægt að fá rúllu af jólapappír sem hefur ekki dottið hálfkláraður úr rúlluvélinni? Svipað og maður keypti sér skeinir og það væru tvær blaðsíður á hverri rúllu.

Í gærkvöldi hjálpaði ég vini mínum að setja upp heimabíókerfi sem hann gaf sjálfum sér í jólagjöf. 1000 watta kvikindi sem hljómar anskoti vel. Þegar við lufsuðumst loksins niður í Kringlu var komið "Til Sölu" skilti í gluggana á íbúðunum í kring. Ég ætti kannski að fá mér eitt slíkt til að halda vöku fyrir grannanum á daginn svo hann sofi á nóttunni - það væri tilbreyting.

Í kvöld verður þegið boð um heitt kakó hjá Hr. Olves. Ég hef það á tilfinningunni að maður verði að fara annað til að fá skötu - Múlakaffi kannski? Nei, nú er ég að grínast. Lyktin ein fær mig til að æla og fá niðurgang, bæði í einu. Hræðilegt.
Ætli maður ráfi ekki þaðan eitthvað niður í bæ og kíki á jólastemminguna. Það er reyndar svo vangefið kalt núna að ég er hræddur um að tærnar detti af mér ef maður kemst ekki strax inn á kaffihús. Ég ætla samt ekki að gera þau taktísku mistök að fara niður í bæ á nýju skónum sem ég verslaði í gær. Það er ávísun á blöðrur fram á næsta ár - og tærnar detta af.

Jólasveinninn er ekki lengur vinur minn. Ég hef verið afburða þægur í ár og hvað hef ég upp úr krafsinu? Ekki eina karamellu!
Þetta segir mér bara að maður verði einfaldlega að trúa á sjálfan sig til að góðir hlutir gerist og það á ekki bara við um jólasveininn.

Jæja, gott fólk. Ég hef aflagt þann sið að senda jólakort. Svo ég segi bara við ykkur, gleðileg jól, hafið þið og ykkar fólk það sem allra best um jólahelgina og sendið áskorun til stjórnvalda um að setja lög þess efnis að ef frídagar eins og jól, nýársdagur og 17. júní ber upp á helgi, þá fái maður frí sem því nemur í vikunni á eftir.
...
- grettir :: gleðileg jólin krakkar mínir :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. desember 2004 ( Jónína Guðrún ) [H]
Gleðileg jól Grettir minn og hafðu það súper gott um jólin, ég ætla sko að gera það, en ég veit að það verður nú smá hasar á mínum bæ um jólin, engin rólegheit þegar maður er kominn með tvö börn :-)
Bið að heilsa öllum,
Jónína


 23. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
jólin og árið grettir minn!


 23. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það bæði tvö :-)
Gleðin hefur tekið öll völd hér á bæ, nýja digital myndavélin komin í hús!


 23. desember 2004 ( sjérann ) [H]
til hamingju með hátíðirnar og myndavélina og hafðu það ljómandi.


 23. desember 2004 ( majae ) [H]
ætli nágrananum sé ekki trúandi til að elda skötu bara til að pirra okkur aðeins meira ?

Annars hef ég lítið verið vör við hann eftir að ég fór niður og bað hann að taka bassaboxið úr loftinu hjá sér... færði hann það kannski á gólfið ?

Gleðileg jól :)


 23. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Það væri nú alveg eftir honum, haha. En gleðileg jól sömuleiðis, kæri séra og majae.


 23. desember 2004 ( Birna ) [H]
Gleðileg jól Grettir minn, hafðu það xtra gott um jólin ;)


 24. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
heyrðu... þú misstir af heitu súkkulaði og kælivökvanum frá kúbu í gær! en þá bara næst gamli...


 24. desember 2004 ( Dagný Ásta ) [H]
Gleðileg jól granni :)


Jólagjafahelgi

Ritað þann:    20. desember 2004
Efnisflokkar:  bjór  íþróttir  

Eyddi næstum heilum vinnudegi inni í Kringlu á laugardaginn. Sem er sérlega kellingalegt. Verslaði slatta af jólagjöfum, en meirihluti tímans fór í að drekka bjór og borða súpu á Hard Rock. Sem er sérlega karlmannlegt. Fyrir utan að jólagjafirnar verða mun veglegri ef maður er búinn með tvo bjóra.

Náði svo að "slasa" mig í ræktinni í morgun. Var eitthvað að hlaupa þegar ég finn að það er sandkorn eða eitthvað í skónum. Þar sem ég átti bara tvær mínútur eftir, beit ég bara á jaxlinn og böðlaðist áfram. Þegar ég kom inn í klefa var ég kominn með myndarlegt sár neðan á tábergið. Mikið verður þetta góður mánudagur.

...
- grettir :: haltur

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
þetta hefur verið karlmannlegur laugardagur eftir sérlega karlmannlegt föstudagskvöld!


 20. desember 2004 ( gisill ) [H]
Èg ætla bara ad vona ad thú verdir búinn ad jafna thig fyrir hlaupin á Thorláksmessu. Ja eda milli jóla og nýárs:) Vid verdum gódir, ég er ekki búinn ad hlaupa í tvo mánudi, "bilud øxl" en er blessunarlega búinn ad jafna mig. Og hvernig var thad, á ég von á ad sjá thig í Kirkjuhúsi thann annann?


 20. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Já föstudagskveldið var sérdeilis prýðilegt :-)

Ég mæti pottþétt í Kirkjuhús. Mér skilst að þarna verði allir mestu snillingarnir saman komnir. Ég verð að bísa mér frí í vinnu á mánudaginn bara.


 20. desember 2004 ( Ingvar J. ) [H]
Stefnirðu á Reykjavíkurmaraþon Gísill?


 21. desember 2004 ( gisill ) [H]
Thú ert ekkert ad fylgjast med Ingvar! Thad verdur barist á hlaupabrettunum í laugardal, um pylsu med øllu og svo er bjór í bodi hr. Ølves. Eda allavega sídast thegar ég vissi:-)


 21. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
það stendur enn... pylsa og öl fyrir þann sem sigrar!


 21. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Það er bara snilld. Ég sé hr. ölves alveg fyrir mér með pylsuna og bjórinn fyrir framan hlaupabrettin, eins og bóndinn með gulrótina fyrir framan asnana sína.
Það verður gaman!


 22. desember 2004 ( Halla ) [H]
Hjúkket að þú reddaðir þessu með bjór maður. Fólk gæti farið að halda að þú værir kelling. Það er ógeð. Láttu mig þekkja það :p
Annars tek ég undir orð um ánægjulegt föstudagskvöld. Endurtaka það hið fyrsta...


 22. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Það versta sem ég gæti hugsað mér við að vera kvenmaður er að þá þyrfti ég að kyssa gaura... yack
En við verðum í góðu glensi 8. jan., can't wait.


Veikjum krónuna!

Ritað þann:    17. desember 2004
Efnisflokkar:  neytendur  nöldur  peningar  

Meiru fíflin þessir bankaapakettir. Fyrst mæla þeir með því að fólk fjármagni íbúðirnar sínar í erlendum lánum, svo þegar krónan er orðin hress, á móti þeim endemis skeinir sem hún var á tímabili, þá verður allt í einu að veikja hana í snarhasti!
Til hvers? Til að setja þá á hausinn sem þegar eru búnir að endurfjármagna í erlendum lánum? Til að fólk rjúki til og taki ný lán svo þeir græði meira? Svo þessir bankaapakettir geti selt alla dollarana sína fyrir jólin og keypt jeppa, playstation og snjósleða fyrir hagnaðinn.

Herra Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB, þér eruð apaköttur.

...
- grettir :: nei takk

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. desember 2004 ( Hjalti Bró ) [H]
Grettir þegar þú ert orðinn ríkur og átt börn þá kaupir þú hann bara og lætur hann leika sér í playstation við krakkann þinn! það ætti að kenna honum...


 19. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, það er ein lausn.


 20. desember 2004 ( gisill ) [H]
Thad passar med námslánin hjá mér, er búinn ad vera ad lepja daudann úr skel med máttlausri krónu, og svo thegar madur á ad fara ad borga tilbaka thá styrkist óbermid. Èg man thegar ég var ad byrja í náminu 1999 thá fékk ég 10.800 dkr fyrir 100.000 isk, en thad var bara fyrstu ønnina og sídan hefur 100 thúsund kallinn oft farid undir 8000 danskar. Sucks...


 20. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Leggja þetta drasl bara niður og taka upp Brazilískar rúblur.


Nýtt uppáhaldsdót

Ritað þann:    16. desember 2004
Efnisflokkar:  fimmaurar  nördadót  

Lífið er búið að vera gott síðan ég setti upp Firefox. Engir popup gluggar og tóm hamingja. Extension dótið er líka æði.
Ég setti upp eitt extension sem er algjör snilld - ForcastFox - sem gefur manni veðurspánna beint á status barinn þarna niðri. Hentugt ef maður nennir ekki að kíkja útum gluggann, eða ef það er of dimmt (eins og er alltaf þessa dagana), eða ef maður vill hreinlega skipta um veður og stilla á Ríó de Janeiro veðrið.
Verst að maður getur ekki dánlódað sólinni yfir á skerið, þá væri lífið enn betra.

En hvað er maður svosem að kvarta, við fengum heila 8 daga af sól og hita í sumar. Nýtt met. Meiriháttar.

...
- grettir :: Firefox rúlar

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hinir feitletruðu og fallegu

Ritað þann:    16. desember 2004
Efnisflokkar:  bjór  djamm  sjónvarp  

Það er frábær grínþáttur á Stöð 2 á morgnanna sem kallast Hinir feitletruðu og fallegu (e. The bold and the beautiful). Þar er einhver glyðra búin að sofa hjá pabbanum og báðum sonunum. Þannig að nýji gaurinn sem hún er að sofa hjá er hálfbróðir dóttur hennar og föðurbróðir sonar hennar.

*æl*




Ég var eitthvað að spá í að byrja að taka til fyrir jólin í gær. Þá mundi ég allt í einu að ég er búinn að lofa að hýsa reunion partý á föstudaginn. Það hljómar eiginlega frekar eins og plan að þrífa bara eftir það. Kannski maður kaupi eins og eitt jólaseríu kvikindi í tilefni dagsins. Það er bara svo leiðinlegt að setja þetta upp og enn verra að taka þetta niður.
Maður á bara að hafa þetta uppi allt árið og stinga bara í samband þegar nær dregur jólum.

...
- grettir :: fékk ekkert í skóinn í nótt, svindlið eina!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
á maður að taka jólaseríuna úr sambandi?


 16. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Nei auðvitað ekki :D Bara þvaður í mér.


Slappur og tussulegur

Ritað þann:    14. desember 2004
Efnisflokkar:  slen  

Það er eitthvað skammdegis slen í mér. Eða ég er að verða veikur. Sem væri ótrúleg heppni - vera veikur yfir jólahelgina.
Það er þó enginn heppnari en Óli vinnufélagi og félagi. Missti af jólahlaðborðinu um helgina vegna hálsbólgu, braut gleraugun sín á sunnudaginn og nánast handabraut sig í knattspyrnu í gær.

Þá er nú skárra að vera með skammdegis slen.

...
- grettir :: hvar er lýsið?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. desember 2004 ( gisill ) [H]
Èg var í jólahladbordi daudans um helgina, thar sem einn félaginn á hardahlaupum í kringum jólahladbordid, med kærustuna vødlada utan um mittid, flaug á hausinn og tvíbraut á sér handalúkuna. Èg hélt ég yrdi brádkvaddur af hlátri. En ekki nóg med thad en gaurinn var ekkert ad flýta sér á slysavardstofuna, hélt áfram ad drekka til klukkan hálf sex um morguninn og svo í adgerd í gær:)


 14. desember 2004 ( gisill ) [H]
Náttúrulega bara bilad lid...


 14. desember 2004 ( - grettir ) [H]
ahhaha, þvílíkur klaufi.


 15. desember 2004 ( majae ) [H]
hehe talaði immitt við óla, ógisslega súran á lau kvöldið yfir að hafa verið að hjálpa við að skipuleggja og komast svo ekki..

ekki beint gaman.


 15. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Eins og þetta var nú velheppnað hlaðborð sem hann skipulagði :-)
Maður hefði átt að hafa með sér hundapoka :D


Ekkert handklæði

Ritað þann:    11. desember 2004
Efnisflokkar:  djamm  fyndið  íþróttir  

Það er fátt skemmtilegra en að vera orðinn allsber, kófsveittur inni í búningsklefa og uppgötva að maður hefur gleymt handklæði.

Þá þarf maður að klæða sig aftur í sveittu fötin og leigja sér handkl... ég meina, þvottapoka á staðnum.

Hvað er málið með þessi litlu handklæði? Afhverju eru þau á annað borð framleidd?
Maður strýkur þessu yfir hausinn á sér og þá er þetta orðið blautt í gegn. Eftir það er maður bara að dreifa bleytunni.

En nóg um það. Ég er að spá í að byrja að hella upp á mig. Þrír og hálfur tími í rútuferð út á land þar sem mín bíður hlaðborð af kræsingum.

...
- grettir :: later

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. desember 2004 ( Ósk ) [H]
Jáá.. ég lenti í þessu um daginn. Fór bara í úlpuna utan yfir æfingarfötin og druslaðist heim í sturtu. Hvernig er hægt að gleyma handklæði? Grrrr...


 13. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Ég veit það ekki, ég var einmitt að pæla í því þegar ég fór inn afhverju taskan væri svona létt og aumingjaleg. Hélt bara að ég væri orðinn svona sterkur á öllum æfingunum. Það reyndist misskilningur :-)


Grillkjöt næstu daga

Ritað þann:    11. desember 2004
Efnisflokkar:  fréttir  

Haldiðið að Nóatún hafi bara ekki brunnið fyrir utan hjá mér í gærkvöldi.
Ef ég hefði verið búinn að fá myndavélina gæti ég sýnt ykkur svalar myndir.

...
- grettir :: en crap, nú þarf ég bíl til að komast í Nóatún

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
verður þá ekki útsala á reyktu kjöti þarna í nóatúni?


 11. desember 2004 ( majae ) [H]
já uss. fékk nett áfall sá í anda söbvei og hróa brenna í einum grænum.

Það er spurning um að fjárfesta í nokkurhundruð slökkvuliðstækjum, og tja kannski tryggja sig i leiðinni.


 11. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Jú, Nóatúns hamborgarahryggirnir hækkuðu skyndilega í verði, því maður þarf ekki lengur að elda þá :D

Já, maður. Það hefði verið agalegt ef allir skyndibitastaðirnir í grenndinni hefðu brunnið líka. Þá dræpumst við úr sulti hérna á Framnesveginum :-|


 11. desember 2004 ( Dagný Ásta ) [H]
ja þetta var rosalegt...
skilst að þeir loki í allt að 3 mánuði!!!


 11. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Ég gruna Krónu-menn um græsku :-)
Allavega nenni ég aldrei að rölta framhjá Nóatúni og þangað yfir. Nú neyðist maður til þess.


Hún er mín

Ritað þann:    10. desember 2004
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  ljósmyndun  

Var að panta mér eitt svona kvikindi. Hressandi það. Kannski maður geti þá farið að taka einhverjar myndir við einhver skemmtileg tækifæri. Eða við hvert tækifæri.

Las á mbl.isbankarnir eru hressir og hækkanirnar þeirra farnar að minna á olíuhækkanir. Missti næstum því nýrun úr hlátri þegar einhver banka apaköttur neitaði ásökunum um samráð í sjónvarpsviðtali að það væri af og frá að þeir væru í einhverju samráði, þeir gætu sýnt fundargerðir til að sanna það.

Eins og einhver væri svo heimskur að setja viðræður um samráð í fundargerð? Bíddu.. jú, olíufurstarnir gerðu það. En þeir eru líka með olíu á milli eyrnanna.

...
- grettir :: jæja.. heim í helgarfrí, vúhú

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. desember 2004 ( Ramage ) [H]
Ertu ekki að fara út, og getur fengið án RÍKISSKATTS í
fríhöfninni?
Eða eru að koma jól og þetta er frá þér til þín?


 10. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Ég fæ þetta billegt, framhjá kerfinu. Ódýrara en í fríhöfninni, tíhíhí.
Annars hefði ég beðið.

Mér skilst líka að tollararnir séu farnir að bregða sér í gervi trölla og stela jólunum frá verslunarsjúkum Íslendingum sem eru að koma að utan. Common, trúa þeir því ekki að einn hafi farið í helgarferð með þrjár fullar ferðatöskur af Armani jakkafötum?


 11. desember 2004 ( Ramage ) [H]
Hey! Þó AMMA komi heim í minkapels og haldi á fartölvunni sinni ennþá í umbúðunum segir það ekki að hún sé að smygla, hún er bara rosa dugleg við að pakka öllu
aftur á sinn stað. Kannast þú ekki við það?
Muhahaha


 11. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Ójú, ég kaupi aldrei neitt í útlöndum. Allt sem ég er með í tollinum tók ég með mér út... fötin, geisladiskarnir, dekkin, bjórkippurnar, ginflöskurnar, dempararnir, extra tyggjóin, eas vörurnar, bartskerinn, mp3 spilarinn.
Hvað meiniði með því að ég hafi keypt þetta úber ódýrt í útlöndum? Það er ekki satt.


 14. desember 2004 ( hr ölves ) [H]
ég man ljóslifandi eftir því þegar ég skutlaði þér út á flugvöll með dekkin... aldrei að vita hvenær maður þarf á góðum dekkjum að halda!


Jólahlaðborð

Ritað þann:    09. desember 2004
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  fjölskyldan  

Bravó! Ég var næstum búinn að gleyma jólahlaðborðinu á laugardaginn. Var meira að segja búinn að ráðstafa kvöldinu í annað.

Í ár verður hlaðborðið með veglegra móti og á ég ekki von á því að þurfa að taka með mér veskið, sem er gott svona rétt fyrir jólin. Jólagefur og allt það.

Litla systir hringdi í mig um daginn og hvíslaði að mér að einn bróðir minn væri búinn að kaupa sjálfur það sem ég ætlaði að gefa honum í jólagjöf. Jæja, maður verður að finna eitthvað annað þá, en gott að hafa innanbúðar manneskju sem er manns augu og eyru á hótel mömmunni.

Nú eru 49 dagar í Ríó de Janeiro ferðina og ég er að missa þvag af spenningi! Sérstaklega þegar maður skoðar veðurspærnar og það er spáð rigningu fram í næstu viku hér á klakanum, en það er að vora þarna fyrir sunnan með 30 stiga hita. Púff.

...
- grettir :: verður maður ekki að taka nokkra tíma í magadansi?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. desember 2004 ( Írena systa ) [H]
huu litla systir hvað meinarðu ég næ þér bráðum og líka elsku litla systir takk


 09. desember 2004 ( Írena systa ) [H]
Ríó de Janeiro er pláss í ferðatöskunni því ég vil endilega fara


 09. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Haha, já, ég er víst hættur að stækka - elsku litla systir :-)


Vinn myrkrana á milli

Ritað þann:    06. desember 2004
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ekki að það segi mikið um vinnuálagið þessa dagana, maður gæti verið í hálfu starfi og samt unnið myrkrana á milli.
En það er ljómandi mikið að gera, sem er gott því þá líður tíminn hratt og áður en ég veit af verð ég kominn til Brazilíu á kjötkveðjuhátíð.

Ég ætlaði að vera hrikalega duglegur um helgina, vinna, taka til og gera og græja, en endaði á að gera ekki neitt. Sem var alveg ágætt.

Ég er aðeins farinn að spá í jólagjafirnar og er til dæmis búinn að finna jólagjöf handa sjálfum mér. Það verður uppþvottavél. Leiðinlegasta sem ég geri er að vaska upp. Það verður partý þegar hún verður tengt, bæði til að skíta út öll glösin og launa nágrannanum lambið gráa fyrir eftirpartíið sem hann hélt um daginn. Það verður rokk og gini verður slett í andlit.

...
- grettir :: júhú

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. desember 2004 ( ægir ) [H]
niður með kjötkveðjuhátíðir arrrggg....


 06. desember 2004 ( ægir pípari ) [H]
var nú að kaupa sjálfur uppþvottavél kíktu í expert


 06. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Nennirðu að tengja hana fyrir mig?

Ég er svo handlaginn nefnilega, sjáðu.. hehe.


 07. desember 2004 ( ægir pípari ) [H]
í það minnsta gefið einhver ráð um það hvernig skuli standa að því að fá iðnaðarmann í vinnu. hef samband eftir jól eða á næstu öld. nei annars no probl. Ætli maður skuldi ekki eitthvað fyrir tölvuaðstoð í gegnum tíðina


 07. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, takk fyrir það. Hlakka geðveikt til. Vaskurinn er að verða fullur as we speak.


Vann í Víkingalottó!

Ritað þann:    02. desember 2004
Efnisflokkar:  fyndið  

Eins og kom bersýnilega í ljós um daginn, þá er ég afspyrnu lélegur í bingó.

Nú hef ég fengið uppreisn æru, því það hefur komið á daginn að ég er mjög góður í Víkingalottó og hreppti ég því þann stóra í gær. Ég var aðeins búinn að vera að velta því fyrir mér hvað ég ætti að gera við peninginn, hvort ég ætti að endurnýja íbúðina, eða hreinlega að fá mér nýja, hvort ég ætti að fá mér nýjan Bimma eða bara láta minn duga og fara frekar í heimsreisu.

Það sem skyggði hinsvegar á gleði mína í morgun var að ég komst að því að fleiri en ég höfðu hreppt þann stóra, eða alls 436 manns og því fer ég með skarðan hlut frá borði og eftir nýjustu álögur ríkisstjórnarinnar lítur út fyrir að ég eigi varla fyrir vodkaflösku.

...
- grettir :: munaði ekki nema tveimur tölum

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. desember 2004 ( Birna ) [H]
Issss er það nú ...


 02. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Og enn versnar í því. Þetta voru ekki fjórir réttir, heldur þrír og bónustala. Ég er kominn niður í kippu!


 03. desember 2004 ( Birna ) [H]
herregúd


 05. desember 2004 ( LottóÖnd ) [H]
Þarf ekki að fara að stofna meðferðarstofnun fyrir tilvonandi lottóvinningshafa sem vinna svo einhverja þúsundkalla ?
Ég meina ímyndaðu þér hvað fólk verður stuðað ef það er kannski búið að eyða miljónum af vinningnum og vinnur svo bara einhverja þúsundkalla....



 06. desember 2004 ( - grettir ) [H]
Ég segi það. Ég var búinn að plana gríðarflottar jólagjafir og svo fæ ég þetta í andlitið :-)