1 til 12 af 12
Ég sá ekki rass út úr augum í morgun og var heilar 40 mínútur í vinnuna. Er vanalega 10-12 mínútur. Alger ófærð. Erfiðasti hjallinn reyndist að komast inn á bílastæðið í vinnunni, þar sem hinn myndarlegasti skafl hafði myndast í innkeyrslunni.
Bílastæðið var að sjálfsögðu fullt af jeppum þar sem allir heilbrigðir fólksbílaeigendur hafa greinilega ákveðið að halda sig heima í dag. Skynsamleg ákvörðun.
Annars jólin alveg splendid. Nóg að éta, fullt af pökkum og ég veit ekki hvað.
...
- grettir :: rauð jól my ass
Ég segi bara gleðileg jól
Ritað þann: 23. desember 2003
Efnisflokkar: líðandi stund

Nú er ég farinn í jólafrí og óska lesendum bara gríðarlegra hamingju jóla, borðið nú endilega yfir ykkur og hafið það bara skruggu gott yfir hátíðarnar. Vona að þið fáið sem flesta pakka og jólakort.
Ég þakka þeim sem hafa sent mér jólakort nú þegar. Ég er víst orðinn of seinn að endurgjalda kveðjuna, en ég lofa að muna um næstu jól. Þá kannski með mynd af stráknum, hver veit.
...
- grettir :: hamborgarahryggurinn bíður.
Bumbusöfnun
Ritað þann: 22. desember 2003
Efnisflokkar: fyndið íþróttir
Gym kortið mitt rann út á laugardaginn og nú þegar finn ég fyrir belgjasöfnun, bara við tilhugsunina.
Nú er ég hins vegar í smá klemmu. Ég er fluttur svo langt í burtu frá gamla sprikl staðnum og ég neyðist eiginlega til að skoða nýja möguleika.
Kostir sem nýr spriklstaður þarf að hafa:
- Flottar stelpur þurfa að æfa þar.
- Hann má ekki vera dýr.
- Flottar stelpur þurfa að æfa þar.
- Hann verður að vera í hæfilegri fjarlægð frá Framnesvegi.
- Flottar stelpur þurfa að æfa þar.
- Ég nenni ekki að bíða eftir tækjum í biðröð eins og álfur.
- Flottar stelpur þurfa að æfa þar.
Nema maður fari bara út að skokka á morgnanna. Eins og það sé kúl. Ef þið búið í Vesturbænum og farið að sjá furðufugl úti að hlaupa á morgnanna eftir jólin, þá megið þið alveg benda, flauta og gera almennt grín að mér.
...
- grettir :: það er nú samt skylda að þyngjast um jólin
I am so dead
Ritað þann: 17. desember 2003
Efnisflokkar: skóli
Því meira sem ég les, því sannfærðari verð ég um að ég skítfalli í þessu prófi í fyrramálið.
Oh, well.
...
- grettir :: meira kaffi...
Litlu jólin á föstudaginn enduðu án þess að neinn fengi glóðarauga eða yrði rekinn. Sem er gott.
Á laugardaginn hittumst við svo, ég,
Lubbinn og
Brynjar. Það var einkar gott og endaði með þessari líka fínu ölvun.
Ég var annars að vakna upp við þann vonda draum að ég á eitt próf eftir, það síðasta á námsferlinum. Í bili að minnsta kosti. Vondi draumurinn er eiginlega sá að ég kann ekki sjitt í þessu fagi og hef aðeins tvo daga til að hysja upp um mig. Áðan var ég að prenta út öll verkefni og lausnir við þeim og stóð til að massa þetta, klárast þá ekki blekið í fjandans prentaranum. Nú er ég bara með bunka af blöðum sem líta út eins og fimm ára krakki hafi slett á þau einhverri óskiljanlegri þvælu.
Hvað er málið með þessa heimaprentara? Þetta er algert einnota rusl. Lengi að prenta, prentar illa og allt í rassi. Blekið kostar álíka mikið og nýr, svo það liggur við að það borgi sig að henda draslinu og kaupa nýjan í hvert skipti.
...
- grettir :: *gubb* hvað ég er komin með leið á skólanum
Það hefur tíðkast hérna í vinnunni að halda svokölluð Litlu jól. Þetta er fínt heiti yfir það að hittast, éta á sig gat og drekka sig blindfullan. Sem er gott.
Í ár var bryddað upp á þeirri nýjung að halda skreytingarkeppni milli deilda og verð ég virkilega fúll ef ég vinn ekki, þar sem ég er búinn að vera með lítinn snjókall uppi á ljósinu á skrifstofunni síðan Jólin 2000.
Minnir mig á þegar ég setti jólaseríu í gluggann á herberginu mínu á Hótel Mömmu. Á hverju ári þurfti ég bara að setja hana í samband. Ég vil meina að það fari bara illa með jólaseríur að vera alltaf að pakka þeim ofan í kassa.
...
- grettir :: sjálfboðaliðar óskast til að skreyta íbúðina mína.
Keila og aðeins bjór
Ritað þann: 11. desember 2003
Efnisflokkar: fyllerý íþróttir

Fórum í keilu áðan. Sló mitt persónulega met og náði 158 stigum. Vil meina að bjórinn hafi eitthvað með það að segja.
...
- grettir :: verð með harðsperrur í puttunum á morgun.
Þoli ekki að fólk sé að fara á Muse
Ritað þann: 10. desember 2003
Efnisflokkar: tónlist
Ég er ýkt afbrýðissamur. Það fer þó enn meira í taugarnar á mér að til séu drulluháleistar sem keyptu miða bara til þess að selja á uppsprengdu verði. Trúi því ekki að fólk sé að kaupa miða af því skítapakki.
Þá held ég að maður skreppi nú frekar til Evrópu einhverja helgina og kaupi miða á 1000 - 1500 kall.
...
- grettir :: það koma tónleikar eftir þessa tónleika
Drepast í rassgatinu
Ritað þann: 08. desember 2003
Efnisflokkar: fyllerý
Fórum í eftirpartý á laugardagskveldið þar sem ég afrekaði að renna á rassinum niður eina hæð. Nú er ég með stærsta marblett í heimi á vinstri rasskinninni, með ægilega fínan verk í öxlinni og rispaður á úlnliðnum.
Við erum að tala um að ég verð að sitja allur skakkur í dag.
...
- grettir :: samt var gaman
Jólahlaðborð
Ritað þann: 06. desember 2003
Efnisflokkar: fyllerý
Í kvöld verður tekið á því með áti og drykkju á hinu árlega jólahlaðborði.
...
- grettir :: þá sjaldan maður lyftir sér upp
Slys á Framnesveginum
Ritað þann: 02. desember 2003
Efnisflokkar: líðandi stund
Brotnaði hjá mér tappatogarinn. Nú mega gjarnan einhverjir góðhjartaðir einstaklingar taka sig saman og gefa mér Wine Wizard tappatogara í jólagjöf.
Ég get lofað því að hann verður mest notaða eldhúsáhaldið hjá mér.
...
- grettir :: sakna gamla mikið, til dæmis núna.
Windows Longhorn
Ritað þann: 02. desember 2003
Efnisflokkar: nördadót
Á tæknisíðu mbl.is er
frétt sem segir að Longhorn sé komið á markað í Malasíu, ólöglega að sjálfsögðu, því Mekka sjóræningjaútgefenda er þarna austur frá.
Það sem mér fannst bráðfyndið var þessi klausa í fréttinni:
Stýrikerfið er hins vegar enn á frumstigi og talið að það sé áhættusamt að hlaða óstöðugu stýrikerfi í heimilistölvu.
...
- grettir :: svo það er það sem við höfum verið að gera rangt öll þessi ár.