1 til 17 af 17
Erfið nótt
Ritað þann: 26. nóvember 2009
Efnisflokkar: börnin
Yngsta dóttirin sofnaði ekki fyrr en eitt í nótt. Klukkan hálf tvö vaknaði sú eldri og vildi ekki að sofa lengur - eða eins og hún orðaði það: pabbi, ég nenni ekki að sofa lengur. Um tvö vaknaði hún aftur, kom á harðahlaupum eftir ganginum og þurfti að pissa.
Um fjögur kom elsta barnið og hafði dreymt hræðilegan draum.
Mig svíður í augun af þreytu.
Svefn er vanmetinn.
"Þá deyr engill"
Ritað þann: 25. nóvember 2009
Efnisflokkar: börnin efahyggja
Í frístundastarfinu í skólanum geta börnin valið að fara í kirkjustund eins og ég hef
sagt frá áður og er ekki hrifinn af, en sem betur fer hefur drengurinn minn ekki sóst sérstaklega eftir því að fara í kirkjuna - finnst það leiðinlegt og lái ég honum það ekki.
Í gærkvöldi hafði hann hinsvegar einhverjar áhyggjur af langafa sínum sem dó í sumar. Langamma hans hafði huggað hann með því að afi væri nú orðinn engill á himnum, en áhyggjurnar snérust um það hvað yrði um engla þegar þeir dæu.
Presturinn sagði okkur nefnilega í dag að ef maður lýgur eða svíkur, þá deyr engill... getur afi dáið aftur?
Þvílíkt bull hef ég nú aldrei heyrt. Þegar maður drepst verður maður engill og svo lýgur einhver eða svíkur og þá drepst maður. Aftur. Þetta er vonlaus staða! Hvernig er hægt að
vera svona vitlaus? segja svona vitleysu við börn?
Ég sagði drengnum mínum nú bara hreint út að þetta væri tóm þvæla í prestinum. Hann fengi borgað fyrir að segja skrökusögur. Það væri vissulega ekki fallegt að ljúga og svíkja, en það vildi nú enginn leika við börn sem það gerðu.
Hann viðurkenndi það fyrir mér að honum hefði nú fundist þetta eitthvað skrýtið, þess vegna ákvað hann að spyrja mig nánar út í þetta.
Ég var ánægður með það. En ég hugsaði prestinum þegjandi þörfina.
Eftir að hafa labbað um allt hverfið í gær og fullvissa mig um að hjólið lægi ekki í garði í grenndinni var ég orðinn frekar dapur yfir örlögum þessa ágæta reiðhjóls. Og nokkuð viss um að ég hafi nú ábyggilega gleymt að læsa fáknum.
Í morgun er ég að nýbúinn að raða krökkunum mínum í bílinn og er að fara að skutla þeim í skólann þegar ég sé herramann á hjóli. Hjólinu mínu!
Ég hringdi á lögregluna og elti manninn. Lögreglan mætti skömmu síðar, gerði hjólið upptækt og skutlaði því heim. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir!
Krakkarnir höfðu frá mörgu að segja þegar þau mættu í skólann - allt of seint.
En það er á hreinu að maður klikkar ekki á því að læsa hjólinu aftur. Ég hafði verið að smyrja það og stilla bremsur þarna um kvöldið og hef greinilega ekki munað eftir því að læsa.
Í nótt var fjallahjólinu mínu stolið úr garðinum við Háteigsveg. Um miðnætti í gærkvöldi heyrði ég umgang við húsið, athugaði málið og þá var hjólið horfið.
Hjólið er svart og dökkgrátt Trek 4300 hjól árgerð 2004. Á hjólinu er lítill Cat Eye hraðamælir og á því eru svört plastbretti. Á rörinu fyrir framan afturhjólið er grá festing fyrir barnastól.
Þetta er frekar bagalegt þar sem ég nota hjólið til að komast í og úr vinnu.
Hérna er nýleg og frekar léleg mynd af hjólinu:
Allar upplýsingar eru vel þegnar og má senda mér tölvupóst á fjallahjol hjá grettir.net
(setjið @ merkið í stað "hjá")
Breytingar á vinnustað
Ritað þann: 18. nóvember 2009
Efnisflokkar: vinnan
Fyrirtækið sem ég hef unnið hjá undanfarið 9 og hálfa árið verður lagt niður í núverandi mynd frá og með deginum í dag og
sameinað 3 öðrum.
Nú vinn ég hjá SKÝRR
Ég hef þá starfað fyrir 5 fyrirtæki á ævinni. Vonandi verður þetta bara byrjunin á einhverju góðu.
Ef engar eru breytingarnar fær maður bara rasssæri og kynnist engu nýju.
Á mínum gamla vinnustað er sú hefð að starfsmenn fái virðulegan ágrafin stein á 10 ára starfsafmælinu (gengur undir viðurnefninu legsteinninn).
Ég vona að það hafi verið búið að panta steininn minn.
Fjölskyldu hittingar
Ritað þann: 17. nóvember 2009
Efnisflokkar: fjölskyldan matur
Við fengum næstum alla fjölskylduna mín megin í heimsókn í gærkvöldi.
Að því tilefni fórnuðum við kind, veltum lærum hennar upp úr salti, pipar og Timian og skelltum á grillið.
Einungis vantaði yngsta bróðurinn og pabba (sem á afmæli í dag).
Þjóðarhagur að eiga Haga
Ritað þann: 16. nóvember 2009
Efnisflokkar: fréttir
Vefsíðan
Þjóðarhagur er að safna almenningi saman til að kaupa Haga (sem reka Bónus, Hagkaup og fleira) af Kaupþingi - enda hefur sýnt sig að núverandi eigendur eru með allt niður um sig þegar ekki er hægt að slá á lán til að sýnast ríkur.
Vefmiðlarnir fjalla um málið (á mismunandi tíma, svo tölurnar eru á leiðinni upp):
mbl.is -
677 vilja kaupa Haga
dv.is -
Hátt í þúsund hafa áhuga á að kaupa Haga
visir.is -
Tvö þúsund ásælast Haga
Einu sinni trúði ég því ekki að fjölmiðlarnir hérna á Íslandi væru hlutdrægir en með Jón Ásgeir í Skaftahlíðinni og Davíð í Hádegismóunum sér það hver maður að hér er ekki neitt sem heitir hlutlaus fréttamennska.
Upprúllaður kanínuskítur
Ritað þann: 16. nóvember 2009
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Á
dv.is er ansi hress frétt af því þegar tollverðir gerðu upptækar falsaðar sígarettur á Spáni. Úr kanínuskít. Eða eins og tollvörðurinn orðaði það:
Þær lykta ekki aðeins illa, heldur eru þær líka eitraðar
Annað en vellyktandi heilsusamlegu ófölsuðu sígaretturnar sem seldar eru dags daglega.
Sótti bílinn á verkstæði í gær og skellti vetradekkjunum undir í leiðinni. Ótrúlega gott að keyra bílinn á þeim - mjúk og hljóðlát.
Annað en helvítis low profile draslið. Grjóthart og ekkert nema hávaðinn.
Við gerðum okkur ferð í Lýsingu í morgun og fengum greiðsluaðlögun. Eins og planið er núna lengist lánstíminn um 3 ár og þá stendur eftir 1 milljón.
Árið 2017 get ég valið um að borga Lýsingu milljón krónur eða skila leigumuninum sem verður þá 14 ára og ekki einu sinni milljón króna virði.
Við gefum þessu ár í viðbót. Ef við sjáum fram á að engin hreyfing verður til hins betra mega þeir fokka sér og við fáum okkur Lödu.
Smáa letur tryggingafélagana
Ritað þann: 11. nóvember 2009
Efnisflokkar: neytendur
Sjóvá auglýsir duglega núna svokallaða vegaaðstoð. Í einni auglýsingunni má sjá mann sem hefur keyrt í snjóskafl og hringir inn til að fá aðstoð - en af þeirri auglýsingu má skilja sem svo að viðskiptavinir get hringt inn ef þeir lenda í óvenjulegum aðstæðum á vegum úti.
Ég hringdi því og bað um aðstoð þegar bíllinn minn bilaði fyrr í vikunni en er tjáð að
vegaaðstoðin nái eingöngu til eftirfarandi:
Aðstoð við útfyllingu tjónstilkynningar
Sprungið dekk
Straumleysi
Bensínleysi
Frekar fúll með það sagði ég vinnufélögum mínum frá þessari "aðstoð" sem ég fékk og barst talið að því hvernig tryggingafélög virðast alltaf ná að komast upp með að sleppa því að borga tjón og/eða veita þá þjónustu sem þeir auglýsa.
Einn vinnufélagi minn sagði mér þá sögu sem lýsir tryggingafélögum ansi vel. Sá bjó úti í Kuwait til nokkurra ára og hafði sænskt tryggingafélag náð að selja fjölskyldu hans svokallaða stríðstryggingu en sú trygging átti að bæta það tjón sem yrði af völdum stríðstóla, sem svíar framleiða svo heppilega í tonnatali.
Nú gerist það að Írakar ráðast á landið og hús hans er sprengt í loft upp og allt innbú með.
Þegar tryggingafélagið er krafið um bæturnar benda þeir á örsmátt letur á kafi í samningnum:
Gildir ekki í stríði
Þetta er svipað og ef brunatryggingin gilti ekki í bruna.
Af því að það er kreppa og hart í ári ákváðum við að gera eitthvað frumlegt þessi jól og smíða og föndra jólagjafirnar. Nákvæmari lýsingar get ég ekki gefið á þessari stundu enda eiga jólagjafir að koma á óvart.
Okkur vantar ákveðið efni til jólagjafagerðar sem er ekki fáanlegt á landinu og ekki útlit fyrir að það fáist gjaldeyri til að flytja það inn. Lúxusvara segja þeir.
En vilji maður kaupa eitthvað leikfangadrasl framleitt í Kína, þá eru einokunar hillurnar hans Jóns Ásgeirs fullar af því.
Svona er tilveran utan ESB í dag.
KSÍ strippferðir
Ritað þann: 09. nóvember 2009
Efnisflokkar: fréttir skandall
Burt séð frá því hvort það er algerlega siðlaust að fara með kreditkort íþróttafélags á strippbúllu og sulla í kampavíni þar til maður sofnar, þá er eitthvað verulega grunsamlegt við það að handhafi kortsins skuli hafa boðist til að borga reikninginn.
Ef kortinu var stolið eða tekið óhóflega út af því í leyfisleysi, þá tilkynnir maður kortafyrirtækinu það einfaldlega og kortafyrirtækið sér um að halda fénu hjá sér en borga það ekki út til fyrirtækisins sem um ræðir - ef um svindl er að ræða
En ef einn maður eyddi öllum þessum peningum og kvittaði fyrir það - þá getur sá hinn sami varla annað en borgað reikninginn og farið svo í mál við fyrirtækið fyrir okur.
Leigumunir Lýsingar
Ritað þann: 09. nóvember 2009
Efnisflokkar: bílar
Bíllinn "okkar" bilaði í gær. Við urðum var við vatnsgufu á ljósunum við Kringlumýrarbraut og þegar við komum að Stakkahlíð kviknaði hleðsluljósið og við stoppuðum við 365.
Þegar húddið var opnað sást hvar viftureimin var vafin utan um háls viftunnar og allt vatn var á góðri leið með að leka af bílnum.
Bilanagreining leiðir í ljós að vatnsdæla er brotin og reimarstrekkjarar einnig. Annað hvort hefur bilað og brotið hitt. Með vinnu er þetta tæplega 90 þúsund króna viðgerð.
Í öllum okkar samskiptum við Lýsingu hf. tala þeir um leigumuninn þegar þeir eru að vísa til bílsins.
Ef ég leigi íbúð og vaskurinn lekur sendi ég reikninginn á húsnæðiseiganda.
Auðvitað ætti ég að senda reikninginn til Lýsingar. Þetta er þeirra bíl. Ég er bara með hann á leigu, get lengt í leigusamningnum og skilað leigumuninum ef leigusamningurinn verður lengri en 3 ár umfram upphaflega áætlaðan leigutíma.
Bólusettur
Ritað þann: 09. nóvember 2009
Efnisflokkar: ég
Ég fékk svínaflensubóluefni í morgun. Ég tóri þá eitthvað lengur þrátt fyrir faraldur.
4225
Ritað þann: 05. nóvember 2009
Efnisflokkar: börnin
Dóttir mín er orðin 4225 grömm. Hún hefur næstum því tvöfaldað þyngd sína frá því að hún fæddist.
Við vorum með smá veðmál í morgun hversu þung hún yrði í þessari 9 vikna skoðun og ég var ansi nálægt því.
Best að fara að drífa sig heim og innheimta verðlaunin.
Slumma í hárinu eða horköggull í nös
Ritað þann: 05. nóvember 2009
Efnisflokkar: ég líðandi stund
Í allan gærdag gekk ég um gangana með slummu af hárgeli á hausnum. Eitthvað hafði snyrtingin eftir morgunsturtuna farið fyrir ofan garð og neðan og ekki dreifst nógu vel úr efninu.
Enginn í vinnunni hafði kjark til að benda mér á þetta - eflaust af ótta við að særa tilfinningar mínar. Fólk er þannig. Ég líka. Maður er ragur við að benda á það sem aflaga fer í fari fólks af ótta við að fólk verði sært, reitt eða vandræðalegt.
Þessu ætla ég nú að breyta.
Ef vinnufélagi/vinur minn er með hor þá segi ég einfaldlega: Þú ert með hor
Betra fyrir viðkomandi að vera vandræðalegur í nokkrar sekúndur, fjarlægja horið og verða sér ekki til skammar það sem eftir lifir dags.
Ég kláraði að rífa gamla bílinn minn um helgina og skildi afganginn af honum eftir fyrir utan Vöku.
Færri fengu hluti úr honum en vildu, en það seldist nánast hver einasta skrúfa enda bílavarahlutir orðnir dýrir. Ég hjólaði svo við hjá Vöku í morgun og sótti mér kvittun fyrir skilunum.
Þetta var dáldið táknrænt. Að koma hjólandi og skila bílnum til endurvinnslu. Nýjir tímar.
Drengurinn minn hafði svo miklar áhyggjur af því að mér yrði kalt á hjólinu í vetur að þegar krakkarnir lærðu að prjóna í skólanum, prónaði hann trefil fyrir mig :-)
Það væri gaman að vita hversu miklu hækkun bifreiðagjaldsins og auknar álögur á eldsneyti skilar í ríkissjóð. Á mínu heimili sáum við að það væri óþarfa lúxus að eiga tvo bíla og hækkanir á tryggingum og bifreiðagjöldum áttu sinn þátt í að auðvelda þá ákvörðun og hærri álögur skila sér þá í minni tekjum frá okkur að minnsta kosti.