1 til 15 af 15

Dýrt að búa á skeri

Ritað þann:    29. nóvember 2005
Efnisflokkar:  neytendur  nöldur  skandall  

Fyrir tveimur eða þremur árum (þegar FíB hætti að bjóða bílatryggingar), þá hækkuðu öll tryggingafélögin samtaka iðgjöldin af því að ungir ökumenn yllu svo miklu tjóni.

Í fréttum fyrir helgi kom fram að ungir ökumenn eru núorðið til fyrirmyndar og hefur tjóni af þeirra völdum fækkað umtalsvert.

Við eigum sem sagt von á því að tryggingarnar okkar lækki á næstunni?




Þegar dollarinn stóð í 108 kr hækkaði bíómiðinn í 800 kall og var dollarnum kennt um. Gott og vel.
Þegar hann lækkaði svo aftur og grettir.net hvatti fólk til að hætta að fara í bíó þangað til verð lækkaði, kom eitthvað montrassgat frá Sambíóunum og vældi í sjónvarpinu Menn virðast ekki vita hvernig kaupin gerast á eyrinni og meinti þá að kvikmyndir væru keyptar ári fyrir sýningar hér á landi - og skildi hreint ekki hvaða hvatir lægju að baki þessu "bíóverkfalli". Menn væru vísvitandi að skemma businessinn fyrir honum.

Ég hef eitt við þig að segja, montrassgat. Fyrir ári síðan var dollarinn 62 krónur. Og fyrir tveimur árum var hann 74 krónur. Svo ef bíómiðinn fer ekki að detta niður í fimm hundruð kallinn að nýju, þá kem ég aldrei oftar í bíó til þín. Þú ert sjálfur að skemma businessinn.

Hvað ætli start kostnaðurinn við að hefja bíósýningar sé mikill? Ég væri til að sjá einhverja samkeppni í þessum bransa - en ekki alltaf sömu djöfulsins skítamyndirnar í öllum húsum bæjarins.




Atlantsolía er að verða sama skíta batteríið og hin olíufélögin. Vegna frétta í gær um að krónan hefði veikst um 0.25% þá neyðast allir til að hækka - og Atlantsolía með.

Hvað um birgðir? Hvað um það þegar dollarinn kostaði 59 kr. í byrjun mánaðar?
Það þýðir ekkert að bjóða manni kaffi og kleinur á dælustað og vona að maður sæki bara vaselínið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
þetta er frelsið maður!


 29. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Ég held að þetta sé leti af okkar hálfu. Við nennum ekki að gera neitt, heldur látum þetta lið valta yfir okkur.


 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
já... ættum að sturta slori á götur rvk í mótmælaskyni... eða hvað?


 29. nóvember 2005 ( Ingunn ) [H]
Maður verður bara að hætta að fara í bíó og kaupa sér gott hjól :)


 29. nóvember 2005 ( ægir ) [H]
Ég hef nú alltaf sagt að það vanti að róttæklingar fari í læri til france og taki upp þesslags siði og eða já mið austurlöndin er ekki málið bara að sprengja eina bensinstöð, ræna bíóstjóranum og krefjast að lækkunar trygginga gegn því að honum verði skilað?


 30. nóvember 2005 ( Hjalti ) [H]
Og ef þeir ætla að rukka mann um 800 kall þá mættu þeir nú hafa betra úrval í bíóhúsum landsins. Ég fór í bíó í gær og fór að sjá A Sound of Thunder sem er án efa lélegasta mynd sem gerð hefur verið.. Framtíðarmynd og fólk labbaði útaf henni, Ég var orðinn einn í salnum þegar myndinni lauk!


 05. desember 2005 ( - grettir ) [H]
Gastu ekki lagt þig?


Email spam

Ritað þann:    29. nóvember 2005
Efnisflokkar:  nöldur  nördadót  

Djöfull væri ég til í að hitta anskotann sem skrifaði og setti af stað þennan email vírus sem er í gangi núna.

Ég myndi - með góðu sparki í púnginn - tryggja að helvítið myndi aldrei fjölga sér.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
ég hef trú á að þeir sem búa til vírusa séu bein sönnun þess að fólk sé í eðli sínu illt og óski meðbræðrum sínum illt... hvað annað gæti mögulega verið að baki þess að búa til vírusa?


 29. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta eru einhverjir sveittir tölvunördar sem búa ennþá hjá mömmu sinni.


 30. nóvember 2005 ( Srósin ) [H]
...og eru jafnvel á góðum launum frá Vírusvarnarforritsfyrirtækjum (vááá... langt orð!)
...varla er það slæmt með multi penge og lifa á Hótel mömmu!!


 05. desember 2005 ( - grettir ) [H]
Akkúrat það sem mig hefur grunað lengi. Ég er viss um að menn fá borgað fyrir að koma einhverju fári af stað sem vírusvarnarfyrirtækin koma svo með lausn við.


Fimm dimmalimm

Ritað þann:    29. nóvember 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Hressandi þetta myrkur langt fram eftir degi - eða þannig.
Væri ekki nær að reka þessi álfyrirtæki úr landi og nota rafmagnið til að lýsa upp landið yfir verstu vetrarmánuðina?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
og rækta paprikur á sandi!


 29. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Og brugga bjór!


Framkvæmdir

Ritað þann:    28. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fyndið  íbúðamál  íþróttir  

Eyddi helginni í að hljóðeinangra svefnherbergið í íbúiðinni minni. Tvöföld ull og gifsplötur. Ef það dugir ekki til, þá veit ég ekki hvað gerir það.
Annars skildist mér að það væri búið að vera óvenju mikil þögn undanfarna daga eftir að mágkona mín á þriðju hæð fór og lét í sér heyra.



Það gekk svo mikið á þegar ég pakkaði íþróttadótinu mínu í morgun að ég tók minnsta handklæðið í húsinu . Það var eiginlega þvottapoki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. nóvember 2005 ( Hjalti ) [H]
Hún á Hrós skilið að hafa þaggað niðrí þeim, Hún gerði hið ómögulega!


 28. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Svo sannarlega. Fáðu hana lánaða :-)


 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
nú!! lánast hún?


 29. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Haha.. til að skamma nágranna, já það hlýtur að vera.


 29. nóvember 2005 ( ægir húsbyggjandi ) [H]
Hei og nú fyrst þú ert komin í æfingu er þá ekki málið að skella sér uppá rauðavatn að hjálpa mér, þú getur komið með þessa frábæru bosch vél þína?


Þrír mánuðir

Ritað þann:    25. nóvember 2005
Efnisflokkar:  ég  íþróttir  líðandi stund  

Í dag eru þrír mánuðir síðan ég hætti að reykja - vonandi í síðasta skipti.
Ég reyndar stalst til að fá mér einn reyk í sumarbústaða partíinu í október og ældi næstum því.

Fyrir tveimur mánuðum byrjaði ég að finna allskonar bragð sem ég hef ekki fundið í mörg ár. Fyrir einum og hálfum fékk ég fulla tilfinningu í góminn og fyrir einum mánuði hætti ég að hósta upp reykingaslími á morgnanna og gat á svipuðum tíma hlaupið fimm kílómetrana á 24 mínútum. Stefnan er sett á 19 mínútur.
Lífið er gott án vindlanna verð ég að segja. Mér reiknast líka til að ég sé búinn að spara 33600 krónur á þessum tíma, sem gerir ca. 8,4 kassa af bjór - bjór sem á eftir að bragðast mun betur í nýjum og ferskum góm.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
hallelúja!... nú er ég sko ánægður með þig... þá getur þú líka fundið yndislegt bragðið af ali baba dürum kip ;)


 25. nóvember 2005 ( Fjóla ) [H]
Til hamingju með árangurinn, ég mun hætta á mánudaginn (hlakka til að vera laus við þessa byrði) :)


 26. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Takk takk :-)


 27. nóvember 2005 ( ægir ) [H]
En er ekki alltaf best að hætta á morgun?


 28. nóvember 2005 ( Ingunn ) [H]
Þú ert semsagt að fara finna bragðið af jólasteikinni í fyrsta skipti í mörg ár?? :)


 28. nóvember 2005 ( Margrét ) [H]
Ég verð þá að fara vanda mig við að elda....


 29. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Já það lítur út fyrir að jólasteikin verði betri í ár. Ætli ég verði ekki að sleppa skötunni í staðinn :-|

Ég kvarta nú ekki yfir eldamennskunni :-)


 29. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
nú er þetta svona mikil eðalkona að hún eldar fyrir þig grettir minn... þá þarf ég líklega að fara að hitta konuna.


Jólaskraut

Ritað þann:    25. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fyndið  netið  

Sko, ef þetta kemur fólki ekki í jólaskap, þá veit ég ekki hvað gerir það..

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jólatré

Ritað þann:    25. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  vinnan  

Nú stendur til að fara í vinnuferð eitthvað út fyrir borgina í þeim tilgangi að saga niður jólatré.

Sem er alger óþarfi. Ég sá að borgarstarfsmenn eru nýbúnir að planta þessum fínu jólatrjám meðfram nýju Hringbrautinni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
ég mana þig til að skreyta þau tré... það gæti verið svolítið hávaðasamt og kallt...


 25. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Ég var nú að meina að mæta bara með sögina niður á Hringbraut :D


Neighbor from Hell og aðrar fréttir

Ritað þann:    23. nóvember 2005
Efnisflokkar:  tónlist  

Þetta er granni frá helvíti.



Ég var að hlusta á nýja Rammstein diskinn, Rosenrot. Ansi góður! Ætli hann fáist í Skífunni? Einhvern veginn efast ég um það.

Ég fór í Skífuna um daginn með innkaupalista af góðum diskum sem mig vantar í safnið eða eru orðnir svo rispaðir að þeir eru ekki spilanlegir lengur.
Ekki einn einasti til. Svo þeir verða verslaðir á Amazon einhvern tíma í framtíðinni. Þangað til verð ég að láta mér nægja að hlusta á þá "ólöglega".


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. nóvember 2005 ( ægir ) [H]
hvaða diskar voru þetta ef maður skyldi nú getað létt biðina


 24. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
amazon er nú oft málið...


 24. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Sem dæmi, þá vantar mig nýjasta Guano Apes diskinn og svo hef ég lengi ætlað að kaupa Blue Man Group diskana.

Einhverjir fleiri voru á listanum, en meirihlutinn af búðarplássinu fer undir fokdýra DVD diska, tölvuleiki og íslenskt drasl.


 24. nóvember 2005 ( Ingunn ) [H]
talandi um Rammstein, þá eru myndirnar mínar frá werchter komnar í albúmið mitt...þitt gallerý var allt of flókið fyrir mig :) kv Ingunn
http://www.picturetrail.com/ingunnh


 24. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Hey kúl!


It is alive!

Ritað þann:    20. nóvember 2005
Efnisflokkar:  vefurinn  

Jæja, nú er elsku internet tengingin komin með mér á nýja staðinn og grettir.net fer því vonandi að hanga uppi.
Þegar ég stakk servernum í samband hérna í Garðabænum, þá sló nú barasta út rafmagninu. Eftir smá rannsóknarvinnu, þá kom í ljós að power supply draslið hafði ekki þolað flutninginn.

Nú er grettir.net í nýjum silfurlitum, hljóðlátari kassa undir borði í stofunni. Og líður bara vel. Og mér líka.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Og það er búið að vera bölvað vesen að koma þessu í gang. Gleymdi að ég er ekki með fasta ip tölu hérna þannig að grettir.net týnist endrum og eins á hinu stóra alneti.
En það stendur til bóta.


 23. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Lítur út fyrir að þetta sé komið. Góðir krakkar að vinna þarna hjá OgVodafone.


Flutningar

Ritað þann:    10. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fjölskyldan  íbúðamál  

Nú er mikið í gangi á heimilinu. Er á fullu að pakka saman mínu hafurtaski og er að flytja. Er búinn að ná mér í fína konu sem hefur boðið mér að búa hjá sér.
Það er bara hið besta mál, enda fyrirmyndar kvenmaður þar á ferð.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
hananú!... það er ekkert minna... og fer maður ekki að fá að hitta þessa konu?


 11. nóvember 2005 ( Fannar ) [H]
Til hamingju með kvonfangið og frelsun frá háværum trúbadorum ... þú verður nú að skilja græjurnar eftir í hámarks volume og repeat þangað til þú færð leigjendur


 11. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Jú, maður verður að fara að kynna :-)

Búinn að finna leigjanda og ég treysti honum alveg til að hafa hemil á liðinu.

Síðan verður svona ups and down á meðan ég er að koma græjunum fyrir, en vonandi fer þetta að komast í lag.


 11. nóvember 2005 ( Halla ) [H]
Damn, ég sem var alltaf ákveðin í að giftast þér. Fjárans klúður.

En fyrst ég er búin að tapa, hvenær á að halda partí til að kynna bestu vinkonu sína fyrir konunni?


 12. nóvember 2005 ( Ingvar J. ) [H]
Ætli nýi leigjandinn geti ekki staðið fyrir sínu í að búa til hávaða ef með þarf... Bara hækka Slayer eða Stooges í botn og málið er dedd...


 23. nóvember 2005 ( Írena litla ) [H]
já hún er frábær..!! ekki er strákurin síðri


Heitar grænmetisætur

Ritað þann:    08. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  netið  

Grænmetisætu fegurðarsamkeppni!

Ég verð nú að segja að kálhausar sem japla eintómt grænfóður eru ekki að heilla mig.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. nóvember 2005 ( Margrét ) [H]
Það verður nú seint hægt að kalla þig grænmetisætu greyið mitt, enda er bannað éta frá dýrunum eins og Daði segir þegar það er full grænn matur í boði.....


 10. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega. Ekki er ég kanína!


Skortur á postulíni

Ritað þann:    07. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Það vantar fleiri klósett hérna í vinnunni. Nú er búið að vera "rautt" alveg síðan á hádegi. Ætli það yrðu settar upp fleiri skálar ef ég fer út á svalir og bý til gulan poll sem frýs fyrir framan dyrnar?
Eða yrði ég kannski bara rekinn fyrir attitute problems?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. nóvember 2005 ( Ægir Pípari ) [H]
mæli með að þú notir fötu og geymir allt góssið bara út á svölum


 08. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Píparinn talar af reynslu :-)


Jólahjól

Ritað þann:    07. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Þetta er snilld. Jól á réttum tíma!

Mér finnst að jólaauglýsingar eigi ekki að fá að fara í loftið fyrr en fyrsti jólasveinninn kemur til byggða. Sem minnir mig á það. Sveinninn sá er búinn að svíkja mig ítrekað eftir að ég fór að búa einn.

Bastard!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
ágætt að hafa þetta bara eins og danmörku... þegar að jólabjórinn fer að fást... annars er ég á því að miða við aðventuna... þá er maður ekki orðinn dauðleiður á jólastússinu um miðjan desemb.


 08. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Jólabjór! Nú erum við að dansa..


Flottur fídus

Ritað þann:    03. nóvember 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  


Í glæpamyndum þar sem ódæðismennirnir eru að millifæra illa fengið fé, þá kemur alltaf svona progress bar meðan verið er að færa fé á milli. Eins og það sé færð ein króna í einu. Svo kemur "Tranfer completed" þegar féð er komið í þeirra hendur.

Ég þarf eiginlega að kvarta við bankann minn vegna þess að það er ekki nógu kúl að smella bara á einn takka og allur peningurinn fer bara í einu. Það er eiginlega bara frekar lummó.







Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. nóvember 2005 ( Finnur ) [H]
Þetta er hárrétt hjá þér. Ég ætla að nefna þetta við bankann minn líka. Þetta mundi gera húsnæðiskaup miklu meira spennandi. Glatað að millifæra milljónir og sjá engan progress bar.


 03. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
er það ekki bara svo að þetta eru svo lágar upphæðir sem við erum að millifæra... kannski kæmi svona júnit ef við millifærðum einhverjar skrilljónir!


 04. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Alveg glatað.


 07. nóvember 2005 ( albin ) [H]
Já það er bara alveg út í hött að maður sé jafnlengi að millifæra 500 kall og 100.000 kall...


Vetrardekkjasparnaður

Ritað þann:    02. nóvember 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  fyndið  

Ég er með vetrardekkin á felgum og skipti því sjálfur. Þannig hef ég sloppið við langar biðraðir á dekkjaverkstæðunum og hlæ gjarnan illgjörnum hlátri þegar ég sé aulana í sjónvarpinu - í gúrkufréttum - búna að bíða klukkutímunum saman.

Áðan ákvað ég að tími væri til kominn að skipta. Það gekk hins vegar ekki þrautalaust.

Ég náði að snúa upp á felgulykilinn minn. Býst við að ég megi fara að slaka á í ræktinni - en það er greinilegt að lykillinn var búinn til úr innfluttu stáli en ekki þýsku skriðdrekastáli. Svo ég trítlaði út í Byko og verslaði nýjan og betri.

Með nýja lykilinn að vopni réðist ég á sumardekkin að nýju en einn bolti neitaði úr. Ég stóð ofan á lyklinum og togaði á móti. Þegar hann losnaði, hlunkaðist ég á rassinn, fékk slynk á hendina (svona eins og þegar maður lemur með járnstöng í annað járn) og þjófavarnarkerfið rauk í gang.

Þegar allir boltar voru á gangstéttinni vildi felgan ekki af. Ég togaði af öllum lífs og sálarkröftum, án þess þó að toga bílinn af tjakknum. Þá fann ég rekavið sem ég gat notað til að berja lárétt undir bílinn og neðst í felguna. Árangur! Felgan rúllaði af og út á götu.

Að ári verð ég með hinum Cocoa Puffs krökkunum í biðröðinni fyrir utan dekkjaverkstæðið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. nóvember 2005 ( von ölves ) [H]
ég stóð í þessu þegar ég átti vw bjölluna hérna í denn... það var sko alvöru þýskt skriðdrekastál enda var hægt að taka á því... núna þorir maður varla að hósta á þetta japanska dót.


 04. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Japanskt er prump.