1 til 16 af 16
Snilldar move hjá ríkisstjórninni að klína 3,5% ofan á bifreiðaskattinn í skjóli allra loforða um lækkanir, sem að sjálfsögðu tekur gildi strax, eins og allar olíuhækkanir á heimsmarkaði.
Þessi bifreiðaskattur er Jóni Baldvini að kenna og má hann eiga skömm fyrir. Gjaldið átti að vera tímabundið, en við erum svo miklir aumingjar hérna á skerinu að við förum alltaf í Apótekið og kaupum bara meira vaselín og höldum áfram að láta taka okkur í sparigatið.
Þrátt fyrir að vera mánudagur, þá er hann ekki alslæmur þessi dagur, því ég prófaði að fara með bílinn í skoðun eins og ég lofaði lögreglunni í síðustu viku.
Maðurinn á skoðunarstöðinni hefur annað hvort verið afspyrnu syfjaður, eða verið búinn að átta sig á því að ég er ekkert að fara að skrapa filmurnar úr. Hann setti því upp Davíðs sólgleraugun og kaus að taka ekki eftir einu eða neinu og fékk ég því skoðun athugasemdalaust.
Sem er snilld.
Helgin var meiriháttar, enda stórkostlegt afmæli
hjá Ómari á laugardaginn. Þar var úber hresst fólk í úber miklu glasi.
Minnir samt að ég hafi ekki gert neinn skandal, sem er líka snilld.
...
- grettir :: hress og skoðaður
Fékk sms um daginn til að minna mig á að nú væri kominn tími á að gefa blóð og að blóðbíllinn yrði í nágrenni við mig í dag.
Ég dreif mig og gaf blóð, notaði tækifærið og fór á rúntinn til að taka bensín (að sjálfsögðu hjá Atlantsolíu), náði í dót heim, skilaði íþróttadótinu og kúkaði myndarlega.
Á leiðinni í vinnunna aftur var ég hirtur fyrir of hraðan akstur. Var búinn að gleyma að ég er kominn á vetrardekkin og þá sýnir hraðamælirinn ekkert lengur 10 km of mikinn hraða, heldur bara akkúrat hraðann sem ég er á.
Og piltarnir tóku þá að sjálfsögðu eftir því að ég er ekki enn búinn að fara í skoðun - er bara með minn græna fimm eins og api.
Þegar ég sagði þeim að ég fengi ekki skoðun út af filmunum, þá sögðu þeir mér að prófa að fara með hann aftur í skoðun og fá þá grænan 12, en það gæti verið að skoðunargaurarnir yrðu með stæla af því að ég væri ekki búinn að taka filmurnar. Þeim væri svo sem alveg sama, maður yrði bara að vera með skoðun. Slepptu mér svo með því skilyrði að ég gerði eitthvað í þessu fyrir helgi.
Bentu mér svo á að það væri líklega hægt að ná þessu úr með því að hita þetta með hárblásara eða einhverju slíku.
Ljómandi. Og ég sem hélt að mér myndi leiðast fram að helgi.
...
- grettir :: átt þú hárblásara?
Ég er naut
Ritað þann: 22. nóvember 2004
Efnisflokkar: djamm
Einkar glæsileg stjörnuspáin mín á
mbl.is í dag:
Tengslin við aðra verða auðveldari og mun meira af sætu en súru í samskiptum á næstunni. Ástarplánetan Venus er beint á móti þínu merki og ýtir undir skilning og samúð.
Kemur sér sérdeilis prýðilega að ég er að fara á djammið um næstu helgi, en þá á enginn annar en
Ómar sjálfur afmæli. Það verður gott.
...
- grettir :: ekki það að ég trúi á stjörnuspær
Þarf mikið til að gleðja mig?
Ritað þann: 22. nóvember 2004
Efnisflokkar: vinnan
Nei, ekkert svo mikið. Ég verð til dæmis mjög kátur ef einhver skemmtileg(ur) hringir í mig, eða sendir mér skemmtilegan email eða sms.
Og þegar maður fær nýjan flatan 21 tommu skjá í vinnunni, þá brosir maður hringinn. Ef ég hefði ekki eyru væri ég eins og hamborgari.
Maður getur haft alveg hreint ótrúlega mikið af dóti opnu og það er endalaust pláss. Mig vantar bara stærri tölvutösku, því eftir að hafa unnið á svona myndarlegum skjá í nokkra daga, þá er ferðatölvuskjárinn eins og nálarauga í samanburðinum.
...
- grettir :: kátur sem slátur
I am so drunk
Ritað þann: 20. nóvember 2004
Efnisflokkar: djamm vinnan
Vinnu bingo, tell you all about it later..
Ég er ekki hannaður fyrir frost og kulda. Ef svo væri, þá liti ég út eins og selur, eða ísbjörn, eða mörgæs. Það eru kvikindi sem eru hönnuð fyrir kulda.
Ég er ekki eins og neitt af þessum kvikindum. Af því að ég er svo mikill sauður, þá hef ég ekki enn komið því í verk að tengja fjarstartið sem ég keypti um daginn og því var "manual" fjarstart brúkað í morgun. Það er þannig að maður hleypur út hálfklæddur (annars þarf maður að klæða sig tvisvar) og ræsir bílinn.
Það stunt hefur líklega kostað mig eitt kvef.
Við fórum í ægilega óvissuferð með vinnunni á laugardaginn. Fórum í Hveragerði, tókum þar nettan ratleik, renndum okkur á bandi yfir gilið (ég pissaði næstum á mig) og ætluðum svo í sund.
Nú, Hvergerðingar eru greinilega ekki vanir að fara í sund eftir 1800, því var búið að skrúfa fyrir allt vatn og setja slagbrand fyrir dyrnar á sundlauginni, þrátt fyrir að búið hafi verið að panta fyrir 30 manns í sund.
Business menn þarna fyrir austan, ekki hægt að segja annað.
Þá var lítið annað að gera en að renna á Selfoss og freista þess að komast í sund þar. Forstöðukonan fann hinsvegar bjórlykt af einhverjum í hópnum og setti stólinn fyrir dyrnar. Hvað þarf einn að gera til að komast í sund þarna úti á landi?
Það var nú ekki einfalt og endaði með því að yfirmaður sundmála í Árborg var kallaður út og bossinn okkar þurfti að leggja drengskap sinn að veði um að við myndum haga okkur skikkanlega.
Eftir sundið var svo farið á Eyrarbakka, snætt og drukkið í Rauða húsinu. Hressandi það.
...
- grettir :: mögnuð ferð
Hvaða hvíti skítur er þetta útum allt?!
Ég hefði átt að setja vetrardekkin undir í gær, *dæs*.
...
- grettir :: hvað gera bændur nú?
Digital Ísland
Ritað þann: 11. nóvember 2004
Efnisflokkar: sjónvarp
Þar sem þú ert í hópi okkar tryggustu viðskiptavina nýtur þú forgangs þegar við afhendum nýju stafrænu myndlyklana.
Þetta stóð í bréfi sem ég fékk fyrir helgi frá Íslenska útvarpsfélaginu.
Þetta reyndust ekki orðin tóm, því að í kvöld fékk ég heimsókn, lykillinn var settur upp og hann stilltur á kristaltæra útsendingu skrilljón stöðva sem ég hef frítt fram að áramótum.
Nú þarf ég bara að fara í búðina og versla nokkur tonn af poppi, boða veikindi í vinnunni, læsa mig inni og leggjast undir feld fram að áramótum, því þetta er eins og að eiga öll afmælin í einu!
...
- grettir :: hvaða stöðvar eruð þið með? Ég er sko með allar í HEIMI
Run Forrest, run!
Ritað þann: 11. nóvember 2004
Efnisflokkar: íþróttir vinnan
Fokk, náði 9 km í morgun, á 55 mín. Það er spurning um að taka þátt í Reykjavíkur maraþoninu að ári. Ég sé alveg fyrir mér sigurinn. Í beinni útsendingu, klýf sigurborðann tignarlega, þar sem félagarnir bíða með bjórkassa og vindil handa stráknum.
Það ætti að sýna þessum templurum að bjór bætir hressir kætir.
Reyndar gleymdi næríunum í morgun, svo það er bara commando dagur í dag. Ó boy, hvað vinnufélagarnir verða kátir þegar þeir lesa það. Vonandi verð ég farinn heim þá, híhí.
...
- grettir :: þetta er svo frjálslegt allt núna
Hversu svalt er þetta?
Ritað þann: 09. nóvember 2004
Efnisflokkar: töff
Í staðinn fyrir handfrjálsan búnað, þá ætla ég að fá mér
Pokia.
...
- grettir :: verður það svalara?
Þessi "samkeppni" á bankamarkaði ilmar öll af olíu.
Hérna er smá tilvitnun úr
samantekt Samkeppnisráðs:
...
Í október 1997 var fjallað um að taka þyrfti upp flutningsgjald á gasi á
landsbyggðinni. Rætt var um þetta innan Olíufélagsins og kom fram hjá tilteknum
starfsmanni að hann vissi til þess að áhugi væri hjá hinum félögunum um að hækka
verð með þessum hætti. Annar starfsmaður Olíufélagsins sagði um þetta í tölvupósti:
"Þetta væri hið besta mál, en mig vantar ennþá hugmyndafræðina sem þarf að
vera að baki, til þess að þetta verði ekki talið samráð. Verður ekki einn að
taka þá óvinsælu aðgerð að byrja á þessu og hinir fylgi síðan í kjölfarið?"
Forstjóri Olíufélagsins sagði í svari sínu að tryggja þyrfti eðlilega framlegð af gassölu.
Spurningin væri um aðferðarfræðina og Olíufélagið gæti
"byrjað og þá ef til vill á
einni stærð og haldið þannig áfram. Hin félögin gætu tekið einhverja stærðina."
...
Nú "keppast" bankarnir við að telja okkur í trú um að best sé að vera hjá þeim, þeir bjóða gull og græna í formi lágra vaxta og eftir 20 - 30 ár spái ég því að bankarnir eigi 70 - 80% allra fasteigna á Íslandi. Ég er til dæmis með debet kort frá tveimur bönkum og færslugjöld, seðilgjöld og skítagjöld eru upp á nákvæmlega sömu skítakrónutöluna.
Hvað er
þetta útspil hjá Íslandsbanka til dæmis?
Ok, svalt tilboð ekki satt.
Daginn eftir kemur
þetta tilboð frá Kb Banka.. Allt í fína, maður ætti auðvitað að hugsa:
Humm, svalt. Nú eru bankarnir í svaka samkeppni.
En haldið þið að bankastjórarnir hafi ekki verið búnir að hittast yfir Gala Dinner og ákveða þetta fyrirfram, ákveða hversu háa vexti ætti að setja á þetta, hvernig myntkarfan ætti að vera samsett og svo framvegis?
Ég er farinn!
...
- grettir :: skíta skíta bananalýðveldi!!!
Ég hef engan áhuga á að olíufélögin borgi ríkinu einhvern slatta af peningum í sektir, peninga sem ég á aldrei eftir að sjá - hvorki í lækkun skatta, né inni á mínum bankareikningi.
Ég vil að félögin verði skikkuð til að lækka líterinn niður í 50 - 60 kr. þar til þau eru búin að tapa sambærilegum pening og þau höfðu af okkur á þessum tíma.
Auðvitað eiga ekki allir eftir að fá sitt tilbaka með þessum hætti, en einhverjir eru betri en engir.
Alveg síðan Atlantsolía var stofnuð hef ég beint mínum bensín viðskiptum þangað, en hef keypt ýmsan neysluvarning á ræningjastöðvunum. Eftir að hafa lesið
samantektina frá Samkeppnisstofnun hef ég ákveðið að hætta algerlega viðskiptum við olíufélögin. Mér þykja Select pulsur góðar, en aldrei aftur fer eyrir út af mínum reikningi inn á þeirra.
Smurolía og rúðupiss verður keypt í Bílanaust og pulsur verða keyptar í Umferðarmiðstöðinni eða á Bæjarins bestu.
Maður vissi að samtaka króna og aurahækkunin væri mjög grunsamleg, en mann grunaði ekki að skíturinn væri svona mikill og djúpur.
...
- grettir :: ÞVÍLÍKU ræningjarnir
Enginn er fullkominn og þrátt fyrir að Þórólfur borgarstjóri sé flinkur að koma fyrir sig orði og hafi komið Tali á kortið í farsímabransanum, þá kemur fortíðin og bítur hann í rassinn.
Ég hef alltaf kunnað vel við Þórólf, þó ég sé hvorki Reykjavíkurlistamaður, né vinstri maður. (Ég er líka hættur að vera blár, svo ég býst við að ég verði sjálfur að bjóða mig fram næst og stofna minn eiginn lit og bókstaf). En ég gat nú ekki annað en hlegið að útúrsnúningunum í kallinum, þegar hann var spurður að því einfaldlega hvort hann hefði tekið þátt í ólöglegu athæfi þegar hann vann hjá (Esso/Olís/Shell, man ekki, allt sama gubbið hvort sem er).
Hann byrjaði eitthvað að þvæla um gott samstarf í Ráðhúsinu, hann væri að hugsa um fjölskylduna og ég veit ekki hvað.
Davíð var ennþá fyndnari, þegar hann sagði kokhraustur og skjaldkirtilslaus:
Þetta væri ekki svona ef þetta væri Sjálfstæðismaður.
Greinilega búinn að steingleyma því að Ingibjörg var flæmd úr Borgarstjórastólnum af því að það kvisaðist út að hún væri jafnvel að spá í að skrá nafnið sitt í baráttusæti til alþingis.
Halldór sló nú samt öll met þegar hann kom í viðtal í gær eftir að ljóst var að Bush myndi líklega vinna kosningarnar:
Koma þessi úrslit þér á óvart?
Ég átti nú ekki von á því að þau yrðu svona afgerandi, en auðvitað vissi enginn hvernig þetta færi, hvorki ég né aðrir.
Hvaða áhrif telurðu þessi úrslit kunni að hafa á varnarviðræðurnar við Ísland í náinni framtíð?
Ég held nú að þessi úrslit séu ekki afgerandi, það er hinsvegar kostur að ... blablabla
Öll fréttin
hér ef þið trúið mér ekki.
Þegar ég pæli aðeins í því, þá er ég hættur við að stofna flokk og bjóða mig fram. Maður virðist tapa öllu minni og rökhugsun. Eða verður maður kannski að gera það fyrst?
...
- grettir :: eða flýja land, líklega best
Taktísk mistök í morgun að fara í ljósan bol þegar maður tekur brennslu-prógrammið. Maður er með geirurnar í gegn.
...
- grettir :: svo snjóar bara :-|
Umferðarráð
Ritað þann: 02. nóvember 2004
Efnisflokkar: skandall
Umferðarráð hefur
áhyggjur af beltanotkun. Gott og vel. Þeir ættu kannski líka að hafa áhyggjur af því að Jón Ársæll lýsti því yfir í þætti Jóns Gnarr og Sigurjóns að hann væri alltaf að flýta sér svo mikið (verandi svo mikilvægur fréttamaður væntanlega) að hann mætti ekkert vera að því að fylgjast með hámarkshraða eða lit á umferðarljósum.
Hressandi. Maður á kannski von á því í fréttum að keyrt hafi verið á einhvern "ómerkilegan Íslending" því Jón hafi verið að flýta sér að taka viðtal við einhvern merkilegri.
Ég veit ekki hvort hann afsakaði þessi ummæli, eða sagði þau vera grín, því ég skipti yfir á geisladisk.
...
- grettir :: rautt þýðir stopp, Jón
Fokk hvað það er mikill mánudagur
Ritað þann: 01. nóvember 2004
Efnisflokkar: djamm þynnka
Það þarf nú gefa þessum krakka á hæðinni fyrir ofan mig eitthvað róandi. Byrjaður að hlaupa öskrandi, arfavitlaus út um allt upp úr sjö. Ég dreif mig því í gymmið. Þegar ég var orðinn allsber áttaði ég mig á því að ég gleymdi íþróttabuxunum.
Það var því lítið að gera en að bruna heim aftur. Það var ansi freistandi að leggja sig aftur en ég lét það ekki eftir mér.
Ég var alveg splendid ölvaður á laugardaginn. Svo magnað þunnur var ég svo í gær - að þegar ég vaknaði, fóru fyrstu 2 mínúturnar af nýfenginni meðvitund í að rifja upp afhverju ég væri þunnur. Það var gaman.
Man að einhver apaköttur var að reyna að espa mig upp í slagsmál. Það tókst ekki, enda er ég hvers manns hugljúfi og verður mér líklega boðið í afmælið hans næst.
...
- grettir :: skil ekki þessa slagsmála áráttu