1 til 14 af 14

Smurstöðin Klöpp er málið - Kaupþing ekki

Ritað þann:    28. nóvember 2003
Efnisflokkar:  ég  neytendur  peningar  

Ég er svo vanafastur að ég læt alltaf klippa mig eins og á sama stað, versla alltaf í sömu búðinni og alltaf það sama. Ég kaupi alltaf bensín á sama stað og læt alltaf smyrja bílinn minn á Smurstöðinni Klöpp, Vegmúla ( á bakvið Kaupþing, ótrúlegt en satt ).

Þeir hafa reynst mér vel, maður fær fljóta og góða þjónustu, því sé ég enga ástæðu til að breyta þó ég þurfi að leggja á mig smá krók til að komast þangað. Og annað sem mér finnst skipta gríðarlegu máli, þeir eru með eitt hreinasta klósett sem ég hef á ævinni séð. Vanalega eru klósett á verkstæðum svört af drullu, en ekki þarna. Skínandi fínt. Ekki það að maður geti ekki haldið númer 2 inni rétt á meðan bíllinn er smurður, en það er ágætt að hafa möguleikann á því ef í nauðirnar rekur.

Áðan var ég í veseni þegar viftureimin byrjaði að væla ef ég setti miðstöðina í botn ( eins og þarf þessa dagana ) og afturrúðuhitarann í gang á sama tíma ( þess þarf líka þessa dagana ).

Nema hvað, ég smelli mér í Vegmúlann og fékk strekkingu á reiminni. Þeir tóku ekki í mál að ég greiddi fyrir viðvikið, enda farnir að kannast við smettið á mér. Þetta þýðir bara eitt. Um aldur og ævi mun ég láta smyrja bílinn minn þarna og aðeins þarna.

Þetta er hlutur sem þjónustuaðilar eru ekki að fatta. Það þarf oft svo afskaplega lítið til að gleðja kúnnann ( allavega mig ). Að sama skapi þarf mjög lítið til að styggja kúnnann ( mig líka ).

Og ég er óskaplega þakklátur og kurteis kúnni líka. Ef mér mislíkar þjónusta, þá einfaldlega hætti ég að mæta. Ef þjónustan er góð, þá þakka ég kærlega fyrir mig og mæti aftur og aftur.

Ég sagði upp aukalífeyrissparnaðinum hjá Kaupþingi í gær. Það er greinilegt að óánægðir kúnnar hafa ausið úr djúpum skálum reiði sinnar yfir blásaklaust starfsfólkið undanfarna daga, því möglunarlaust og án söluræðna er ég nú ekki lengur í viðskiptum við Kaupþing-Búbba. Ég skammaði engan og lét enga fyrirlitningu í ljós, enda veit ég vel að sá sem tók við uppsögninni er áreiðanlega jafn fúll yfir þessu og aðrir.

Ímyndið ykkur hvað það verður erfitt fyrir sölumennina þeirra að pranga þessu inn á fólk á næstunni.

Annars ætla ég nú svosem ekki að taka upp hanskann fyrir sölumenn, þar sem ein af ástæðum þess að ég sagði þessu upp er í sæti númer tvö af þremur ástæðum:

1) Ég var að kaupa íbúð og get alveg notað þennan pening til að borga eins og eitt húsbréf á mánuði þessa dagana.

2) Sölumaðurinn sagði mér að þeir byðu upp á mjög hagstæð lífeyrissjóðslán ef ég myndi færa skylduna til þeirra sem ég gæti nýtt mér strax, þegar ég tjáði honum að ég þyrfti eitt slíkt til að fjármagna íbúðarkaupin. Það reyndist ekki rétt og fær hann hérmeð eina löngutöng í kaupbæti. Lífeyrissjóður Verslunarmanna hefur því fengið viðskipti mín að nýju.

3) Síðast en ekki síst og dropinn sem fyllti mælinn, tæpur milljarður í kaupréttarsamning handa hvorum kjána. 10 mills og þrjár þá í gróða hefði verið allt í lagi. Ég hugsa að maður hefði ekki eipað yfir 100 mills, þó maður hefði bölvað. En 950? Eat shit and die.

Niðurstaða þessa gríðarlanga pistils er því að við ættum að senda plebbana í smurolíuna.

...
- grettir :: já, og á síðasta ári var mínus ávöxtun. Zero tolerance gagnvart mínus vöxtum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. nóvember 2003 ( Birna ) [H]
Jáhá... ég hef ekki enn fært mig úr ávöxtunninni þeirra.... en ég er svona líka... góð þjónusta...I´LL be back!!


 28. nóvember 2003 ( Raggi ) [H]
Ég skil ekki hvað þið hafið á móti Kaupþingi.
Kærastan er með sitt þar. tapaði reyndar um 30000
kr. en fékk sent flís-teppi um síðustu jól.
Er hægt að kvarta?


 28. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Hehe, always look on the bright sight of life..


 29. nóvember 2003 ( Hlutafjáreigandi í Kaupþingi-Búnaðarbanka ) [H]
Mér sýnist þú, eins og svo margir aðrir, ekki skilja að fullu kaupréttarsamninginn. Lestu til dæmis þetta.


 29. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Sigurður? Nei anskotinn.

Jú kæri hlutafjáreigandi. Ég skil alveg út á hvað kaupréttarsamningar ganga. Spurningin er einungis hvort þér sem hluthafa og mér sem viðskiptavini finnist eðlilegt að bankinn láni tæpan milljarð til téðra kaupa og með því eignist einn aðili um 1,5% í bankanum.

Ég hefði eflaust tekið þessum samningi sjálfur. Er þá ekki við bankann sjálfan, þ.e. stjórn hans, að sakast?

Helstu rök þeirra félaga eru að bankinn sé að vinna í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi þar sem slíkar upphæðir eru í boði. Eins og Kastljós Sigmar spurði þá: Af hverju eru ekki útlánsvextir bankans miðaðir við sama samkeppnisumhverfi?


 29. nóvember 2003 ( Hlutafjáreigandi í Kaupþingi-Búnaðarbanka ) [H]
Ég er sammála því að upphæðin var há og mér finnst lélegt að þetta skyldi ekki fara fyrir hluthafafund en að öðru leyti tel ég þetta bara öfund í fólki, það má enginn gera það gott í þessu landi án þess að fólk rísi upp og öskri "Svindl, hann er að græða meira en ég! Búhúhú".


 30. nóvember 2003 ( Gamli ) [H]
auðvitað er öfund í fólki, og ekki getur þú minn kæri hlutafjáreigandi reynt að ljúga því að mér að þú sért ekki öfundsjúkur út í þessar blóðsugur, ég veit það að bankareikningurinn minn er alveg grænn af öfund, og ekki eru vextirnin að hjálpa honum með þá krísu............


 30. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Ég er abbó. Eins og ég sagði, þá hefði ég örugglega tekið þessum samning sjálfur.


 30. nóvember 2003 ( GráðÖnd ) [H]
Hvað er þá málið strákar, afhverju erum við þá að böggast út í þessa forstjóra... Ég skal reyndar viðurkenna að líkurnar á að maður lendi í sambærilegum valréttarsamningum eru fjarstæðukenndar.
But really, það má ekki gleymast að bankinn hagnaðist um 5+ milljarða.....
Hinsvegar aulaskapur í þeim , það neistaði á þjóðfélaginu þegar Sigurður fékk hva, 70milljóna kaupauka og þeir halda að fólk sé bara í stuði og sátt með margfalda þá upphæð ? :)


 01. desember 2003 ( Óskar ) [H]
Ég er gjörsamlega sammála með samhengið á milli þess hvort við fáum góða þjónustu og hvort við komum til baka á þann stað.

Hitt dæmið þekki ég ekki en finnst upphæðirnar sem um ræðir skuggalegar


Heimskt fólk fer í mínar fínustu

Ritað þann:    27. nóvember 2003
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  

Til stóð að bakka í stæði fyrir utan húsið mitt. Í fjarska sá ég að bíll var á leiðinni, svo ég gef stefnuljós til hægri og set í bakk til að það færi nú ekki á milli mála hvað ég ætlaði að bralla. Þá gæti sá sem var á leiðinni einfaldlega tekið fram úr, eða einfaldlega beðið í 10 sekúndur á meðan ég kæmi mér fyrir.

Hvað gerir hann? Auðvitað keyrir alveg upp að rassgatinu á mér svo ég komist örugglega ekki afturábak. Ég læt mig renna aðeins aftur, til að sýna að ég væri að fara að bakka í stæðið sem hann er búinn að dekka, þá flautar bastarðurinn bara.

Ef það er einhvern tíma ástæða til að gefa mönnum fingurinn, þá er það í svona tilvikum. Ég skrúfaði því niður rúðuna og sýndi löngutöng í allri sinni dýrð.

Ef þú varst á ferðinni um hálf sex á Framnesvegi og kannast við atvikið, seldu bílinn og keyptu strætókort. Svona fífl eiga ekki að hafa bílpróf.

...
- grettir :: þetta var sko ekkert gamalt fólk

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. nóvember 2003 ( BílaÖnd ) [H]
Alltaf gott að kunna skilmerkilegt táknmál.....


 27. nóvember 2003 ( Dagný Ásta ) [H]
hahah, framnesvegurinn er horror í bílastæðamálum... plain and simple... t.d. er mjög oft búið að leggja mjög samviskusamlega fyrir innkeyrsluna hjá okkur þannig að HVORUGUR bíllinn komist nú út úr stæðinu :)


 27. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Greinilega tómir snillingar sem búa þarna :-)

En þetta er í annað skiptið sem ég lendi í þessu, er að byrja að bakka og þá keyrir einhver alveg upp í púst. Í fyrra skiptið fattaði reyndar bílstjórinn hvað var í gangi, bakkaði aðeins og fór svo framúr. En þessi var bara alveg tómur..


 27. nóvember 2003 ( Ægir ) [H]
þegar ég kemst til valda þá verður svona ekki leyft og menn gerðir út til að taka á þessum málum eins og þessu og einnig nagladekkjum salti aftaníakstri þegar það er ekki ég og jeppaköllum á gangstéttum
já tökum þetta fólk endanlega úr umferð takk



 27. nóvember 2003 ( Ægir ) [H]
finnst nú eiginlega að þú ættir að vera með síu einhversskonar til að stövða fók eins og mig að skrifa í þetta þvaður


 27. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
bara bakka á þetta lið...


 27. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Já og segja svo að hann hafi keyrt aftan á mig !! Geri það næst :-)


 28. nóvember 2003 ( gunna ) [H]
bjó fyrir 10 árum fyrir miðjum Framnesveginum, ef maður kom seint heim varð maður að leggja beint við hliðina á "bannað að leggja" skiltinu til að komast heim á innan við 5 mínútum og stökkva síðan út fyrir 9 til að verða á undan stöðumælaverðinum.......... þá er nú blessaður austurbærinn betri.....


 28. nóvember 2003 ( EstHer ) [H]
Langaði nú bara að segja "Hæ" enda langt síðan ég hef kíkt, en hef ekkert að segja um bastarða á Framnesveginum...sorry ;)


 28. nóvember 2003 ( Esther aftur ) [H]
já og eitt, ég hef ekki bloggað í bráðum ár..held að það sé komin tími á að taka linkin á mig út :D

p.s það er eins og þú sért að míga á mann á þessari mynd, svona ef mar lítur hratt á hana. http://www4.mmedia.i s/grettir/images/gre ttir.jpg


 28. nóvember 2003 ( Henry Ford ) [H]
Og hvað? Hvernig endar þessi saga, Grettir? Komstu í stæðið? Bakkaði hann og fór? Kom hann út og lamdi þig? Fórst þú út og lamdir hann? Fóruð þið í sjómann á húddinu? Var þetta langur flautukonsert? Rædduð þið lengi saman á fingramáli?
Ekki skilja okkur eftir í lausu lofti, við viljum fá botn í söguna.


 28. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Það endaði nú með því að ég varð svangur og keyrði aðeins áfram, enda vil ég meina að sá vægi sem vitið hefur meira og er með stærri löngutöng.

Þessi mynd, Esther, er tekin klukkan fimm að morgni eftir langt Vodka-Redbull kvöld í Madrid :-) Svo maður er ansi tussulegur, svo ekki sé kveðið sterkara að orði.


Leið eins og karli með hatt

Ritað þann:    26. nóvember 2003
Efnisflokkar:  bmw-inn  ég  kjánalegt  

Lenti í alveg vandræðalegu atviki áðan. Stopp í brekku að bíða eftir umferð á móti og sat svo bara fastur þegar leggja átti í'ann. Auðvitað bíll alveg í rassinum á mér svo ég gat ekki bakkað. Svona er maður nú heppinn. Komst fyrir rest þegar ég náði að láta mig renna pínu afturábak.

Annars var Óli að rifja upp ansi hreint óheppilegt atvik sem gerðist í leikfimitíma í gamla daga, en þá afrekaði ég það að hlaupa á badmintonsúlu og brjóta í mér aðra framgeifluna. Það var nú gaman. Næstum því jafn gaman og þegar ég missti putta hérna um árið. Það náðist reyndar að gera við hvoru tveggja, annars liti strákurinn nú ansi ógæfulega út: Fastur í brekku með engan hægri þumal og bara eina framtönn.

...
- grettir :: hræðileg sjón sem það væri

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. nóvember 2003 ( Birna ) [H]
Eflaust.... horrifying...!


 27. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
ekki hressandi...


 06. desember 2003 ( BhZZ ) [H]
Áts...?


 06. desember 2003 ( - grettir ) [H]
I know. Alveg vont.


Húrra

Ritað þann:    25. nóvember 2003
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Mikið var að það drullaðist til að snjóa svolítið duglega. Ég var farinn að halda að skafan yrði ekkert notuð í vetur. Gladdi mig óskaplega að sjá myndarlegan snjóbing á framrúðunni svo maður geti nú verið blautur og kaldur snemma morguns, þeim til samlætis er biðu eftir strætó fyrir utan húsið mitt.

...
- grettir :: eða ekki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. nóvember 2003 ( gamli ) [H]
það var yndislegt að brjóta geisladiska á framrúðunni í morgun


 25. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
hahha, vona að þetta hafi verið vondur diskur.


 26. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
geirmundur the VERY best off III...


Vantar stundum blaðsíður

Ritað þann:    23. nóvember 2003
Efnisflokkar:  skóli  

Ég get stundum verið svo mikill Alzheimer sjúklingur að það er ekki fyndið.

Á þessari önn er ég í einum kúrs í skólanum ( I know, ég er eilífðarstúdent ) og ætti ekki að vera neitt mál að massa það inni í schedule-ið. Á önninni gleymdi ég að mæta í miðannarprófið. Einn morguninn vaknaði ég bara, ætlaði að fara að prenta út glærur fyrir tímann, þá er bara miðannarpróf í góðu sprelli.

Skyrið stóð í mér og ég ákvað að sleppa því bara, enda ekki búinn að lesa staf.

Nú er ég að læra fyrir lokapróf í faginu og stóð í þeirri meiningu að prófið væri á þriðjudag. Ætlaði að nota morgundaginn til að læra. En surprise surprise. Prófið er víst á morgun. Nú verður maður bara að hella upp á kaffi, hætta að fikta í typpinu á sér og fara að gera eitthvað.

...
- grettir :: damn, hvað maður getur verið vitlaus.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. nóvember 2003 ( Birna ) [H]
Þúrt karlmaður... getur ekkert að þessu gert... *knús*


 23. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Sekur, hehe.


 24. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
og hvernig fór þetta svo kallinn minn?


 24. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Best að spara stóru orðin þar til dómur verður upp kveðinn... nei fjandinn.. þetta var bara brill.


 25. nóvember 2003 ( Birna ) [H]
Ahhhhhh til hamingju:)


 25. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Þakka þér *hneigj*


 25. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
congratz!


Bankabrandari

Ritað þann:    20. nóvember 2003
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  

Sönn bankasaga.

Ég er í stjórn ágæts félags sem veltir uþ.b. 2.2 milljónum á ári. Félagið er aldrei í mínus og langoftast er góður slatti inn á reikningnum. Á árinu heldur þetta ágæta félag nokkra viðburði og millifærir þá beint inn á þann sem veitir félagsmönnum þjónustu.
Í hverjum mánuði kemur ein innlögn frá félaginu inn á reikninginn, samtals 12 stykki innlagnir.

Í ársreikningum félagsins kemur fram að bankakostnaður hafi verið 1200 kr. ( u.þ.b. ) og vextir 600 kr. SEX HUNDRUÐ KRÓNUR.

Nú þýðir ekki að einhver rotinn pólitíkus komi í sjónvarp og segi mér að bankarnir séu bara að græða á gengishagnaði og bréfabraski.

Nú ættum við að taka okkur saman og stofna launareikninga erlendis. Minnsta mál er að stunda öll sín bankaviðskipti í gegnum erlenda banka og gefa þessu drulluháleistum fokk fingurinn. Ég er ekki í nokkrum vafa um að erlendir bankar væru til í að veita manni lán á góðum kjörum til að losna undan vaxtaokri glæpastofnanna hér á landi.

...
- grettir :: vaselín?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
hananú... það er ekkert minna... já ég held að góður slatti af vaselíni sé við hæfi.


 20. nóvember 2003 ( Stóriböllur ) [H]
Ég hef huxað með að taka langt tilhlaup og sparka eistunum á þessu bankahyski upp í haus. Þvílíkir helvítis ræningjar, þeir eiga skilið að brenna í helvíti yfir hægum eld þessir skíthausar. Annars er langt síðan ég opnaði reikning í útlandinu.


 21. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Og nú þurfa líka allir sem eru með einhver viðskipti við Kaupþing að segja því upp með rakettureyk! 300 milljóna bónusar. Er ekki í lagi.


 21. nóvember 2003 ( Raggi ) [H]
Er að hugsa um að selja mín 49.9% í þeim.


Slys í tranti

Ritað þann:    17. nóvember 2003
Efnisflokkar:  ég  kjánalegt  

Alvarlegt umhverfisslys átti sér stað í kjammanum á mér í kvöld þegar ég var að háma í mig kótelettur, a la grettir.

Lítil beinflís kom sér pent fyrir ofan á einni fyllingu í trantinum og urðu áhrifin svipuð og þegar maður missir sjampóbrúsann í baðkarið. Svona sulluáhrif. Vatn jafnar sig fljótlega. Tannfyllingar augljóslega ekki.

Nú er fyllingin eins og drullumall sem slettst hefur í allar áttir en hætt við á miðri leið.

...
- grettir :: og ég sem er nýkominn frá tannsa.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. nóvember 2003 ( Birna ) [H]
Awwwwwwwwwwwwwwwwwww........ *hugg*


 21. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Takk takk. Ég var farinn að halda að öllum væri sama um mig og minn trant *sniff*


Nýjabrumið fljótt að fara

Ritað þann:    17. nóvember 2003
Efnisflokkar:  fyndið  kjánalegt  líðandi stund  

Á föstudaginn sá ég í fyrsta sinn vetnisstrætó taka vetni án þess að múgur og margmenni væri með nefið og myndavélar á staðnum.

Þetta minnti mig á þá gömlu, blautu, köldu og vægast sagt ömurlegu daga þegar ég vann í frystihúsi. Ef keypt var ný vél á staðinn, stóðu apakettirnir í hvítu sloppunum og fylgdust spenntir með hvernig græjan vann.. í nokkra daga. Svo var ekkert skemmtilegt lengur. Bara venjuleg vél sem spændi fiskinn í sig hraðar en gamla vélin sem var komin út í horn. Svo kláraðist alltaf fiskurinn fyrir rest og þá var hægt að senda alla heim degi fyrr en ella.

Svona eru vetnisstrætóarnir að verða í dag. Bara venjulegir lummó strætóar sem menga ekkert þegar þeir keyra tómir um göturnar. Og enginn nennir lengur að horfa á þegar þeir eru fylltir.

...
- grettir :: iss

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. nóvember 2003 ( Srosin ) [H]
Já....það var nú spennandi að fá nýja vél í frystihúsið, lítið annað sem gerðist....hehe


 21. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega. Those were the days..


 24. nóvember 2003 ( Brynja ) [H]
Ég sá líka vetnisstrætó taka vetni. Er það merkilegt??? Og ég sem var með myndavélina....


 25. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Það virðist vera. Um daginn var heill hópur af Japönum að mynda atburðinn.


Heimskur, heimskari?

Ritað þann:    17. nóvember 2003
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Ég held að Íslendingar séu að verða vitlausari með hverju árinu. Það sem er af haustinu hef ég séð tvo þætti af Viltu vinna milljón og í báðum hefur keppandi farið út með núll krónur.

...
- grettir :: spurning um að láta ljós sitt skína?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. nóvember 2003 ( Tobbi ) [H]
Held að það sé öruggara að vera sófabesservisser eins og ég. Það er ótrúlega ljúf tilfinning að láta frá sér setningar eins og: "hva! vissi hann þetta ekki", "Þetta eiga nú allir að vita" eða "auðvitað Truffla sveppur"!!!!!!! Annars held ég að það sé ekki heiglum hent að reyna stara 68-uppskafninginn niður í gólfið. Svona álíka tilgangslaust og fara í störukeppni við Barbie-dúkku.


 17. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Það er frábært að vera sófabesservisser :-)

En veit einhver hvernig þessi sms leikur virkar?


 17. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
já ég hef orðið var við mikið að heimskum ökumönnum að undanförnu... gríðarlega pirraður á þessu...


Vinna lengi. Það er málið.

Ritað þann:    12. nóvember 2003
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Þar sem ég er óttalegur svefnpoki þarf ég oftar en ekki að vinna til sex eða sjö til að covera daginn.

En stundum getur verið gott að komast heim og hafa það þægilegt fyrir framan sjónvarpið með þeim sem manni finnst vænt um (mér), en það er bara ekkert hægt. Hin viðbjóðslega Oprah er á Stöð 2, barnatími í Ríkiskassanum og nú hefur Skjár Einn tekið upp á þeim ósið að hafa hinn ömurlega Dr. Phil á þessum tíma. Þessi Dr. Phil er það versta sem hefur komið fyrir sjónvarp í langan tíma.

...
- grettir :: pikk tíví kemur sterkt inn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. nóvember 2003 ( Ósk ) [H]
ææææji já. Ég varð fyrir því óláni um daginn að horfa á fyrstu mínúturnar af einum þættinum, þar sem ég fann ekki fjarstýrelsið. Ég er skemmd á sálinni, en get ekki leitað til sálfræðiaðstoðar, þar sem ég hef, eftir þessar fyrstu mínútur af Dr.Phil þætti, þróað með mér viðbjóð á öllum sálfræðingum..


 12. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
bara viðbjóður..


 12. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Gott að heyra. Ég hélt að ég væri eitthvað afbrigðilegur.


 13. nóvember 2003 ( LaLibra ) [H]
Hvað meinið þið ..? DrPhil er snillingur, hann hefur sýnt mér villu míns vegar... Nú veit ég hvað ég er að gera rangt allsstaðar... Ég er allveg að verða að kana ... Shibbý


 13. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Hahah, það er nú ekki gott að breytast í Kana.


 16. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
nei það er ábyggilega ekki hressandi...


Matrix completed

Ritað þann:    11. nóvember 2003
Efnisflokkar:  kvikmyndir  

Í gær fór ég og fullkomnaði Matrix seríuna þegar ég sá þá þriðju, Matrix Revolutions. Ég verð nú að segja að ég var ekki yfir mig spenntur þar sem mynd númer tvö voru mikil vonbrigði. Og dómarnir hafa ekki beint verið til að hrópa húrra yfir.

En maður getur nú ekki misst af endinum, eða hvað.

Kannski voru það litlar væntingar sem urðu til þess að mér fannst þetta bara tussugóð ræma. Aksjón út í gegn. Mikið af flottum bardagaatriðum og ekki hægt að segja að manni hafi leiðst eins og yfir mynd númer tvö.

Kannski eru ekki allir á eitt sáttir með hvernig sagan "endar", en ég er ekki það forfallinn Matrix aðdáandi að ég hafi verið búinn að spá og spekúlera í það hvernig plottið ætti eftir að verða, merkilegt eða ómerkilegt. Þetta er bara skemmtun. Get a life.

Og þetta er "Bíómynd". Ekki bíða með að sjá hana á vídeó, nema þið eigið þeim mun stærra sjónvarp sem framleiðir þeim mun meiri hávaða.

...
- grettir :: bara nokkuð sáttur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
já þetta var bara allt í lagi.. held samt að binni hafi átt orðið...


Idol

Ritað þann:    06. nóvember 2003
Efnisflokkar:  nöldur  sjónvarp  

Samkvæmt Tónlist.is hefur einum keppanda idol verið vísað úr keppni fyrir að brjóta fjölmiðlabann sem á að tryggja jafnræði allra keppenda, í ljósi þess að það eru áhorfendur sem velja. Og hvern eru þeir líklegir til að velja? Nú, það andlit sem þeir hafa séð oftast býst ég við.

Nú finnst mér þetta einkennilegt, þar sem að í þáttunum hefur ákveðnum keppendum verið gert mun hærra undir höfði en öðrum, með spjalli og vitleysu í nánast hverjum þætti; sbr. sjóarinn og stelpan með spangirnar frá Akureyri; á meðan aðrir eru nánast að sjást í fyrsta skipti þegar þeir syngja fyrir áhorfendur. Ekki það að þau sem ég nefndi eigi ekki alveg skilið að vera í úrslitum, en verður ekki að gæta sanngirni?

...
- grettir :: maður spyr sig...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. nóvember 2003 ( Síldardrengurinn ) [H]
Segðu, segðu
Þessir þættir eru annars farnir að vera frekar leiðinlegir. Þeir voru miklu betri fyrst.
- finnst mér


 07. nóvember 2003 ( Brynja ) [H]
Ég held að Ísland sé of lítið fyrir svona Idol keppni. En Sigga hefur samt bætt sig mikið og gæti bara orðið mjög góð með tímanum. Hmm.....eða?


 07. nóvember 2003 ( sérann ) [H]
innilega sammála þér minn kæri herra grettir.net. það fer soldið í taugarnar á mér hvernig athyglinni er dreift í þessu óforskammaða sjónvarpsefni. Hinn aldraði Sir George Martin, fyrrum upptökustjóri Bítlanna, finnst Idol serían grimmdin uppmáluð. Þar sem hann er aldraður, þá er hann gárungur, og ef hann er gárungur þá hefur hann rétt fyrir sér því, eins og allir vita, hafa gárungar ALLTAF rétt fyrir sér.


 07. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Það var fjallað um þetta í Íslandi í dag í gærkvöld. Þá kom nú í ljós að einn keppandinn var búinn að fara í moggaviðtal, en það var "fiffað" þannig að allir keppendur fengju að fara í moggaviðtal.

Skítalykt?


 07. nóvember 2003 ( Tobbi ) [H]
Jerry Springer í karíókí!!!!


 08. nóvember 2003 ( Maggi Ársæls ) [H]
Já er ógeðið komið til Thúle? Þessi ræpa er hér á norsku, sænsku og dönsku. ég hef enn ekki fattað hvað er svona æðislegt við þetta og frekar horfi ég á Eraserhead 2svar á dag og Ann Nicole Smith Show en að fara stilla mig eftir þessu. Þetta þema er svipað þreytt og Bingolottó eða eitthvað.
Kv
maggi


 08. nóvember 2003 ( Ingvar J. ) [H]
Spurning um að láta Bingó Bjössa mæta í Idol til að hressa upp á þetta.


Nokkur verkefni í pípunum

Ritað þann:    06. nóvember 2003
Efnisflokkar:  vinnan  

Í mínum geira finnst fólki ákaflega skemmtilegt að halda fundi. Það eru starfsmannafundir, framvindufundir, vinnufundir, kickoff fundir og ég veit ekki hvað. Á myndinni til vinstri tákna feitletruðu dagarnir þá daga sem ég er á fundum þennan mánuðinn, oft tveir á dag. Það væri frábært að eiga ekki bíl og þurfa að ferðast með strætó út um allan bæ. Það tæki allan daginn og á þyrfti ég ekki að gera neitt nema að mæta á fundi.

Sé það fyrir mér:

Grettir, hvernig er staðan á verkefninu frá þér séð.

Ég er ekki búinn að gera neitt nema að koma mér á milli funda frá því síðast. Vantar nefnilega nettengingu í leið 12

...
- grettir :: zzZzzz

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
já eins gott að bimminn er á negldum


 07. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Já, eins gott :-)


Fastur í Vesturbænum

Ritað þann:    04. nóvember 2003
Efnisflokkar:  bmw-inn  matur  vinnan  

Ég sé ekki að maður komist mikið til vinnu í dag. Kyngir svoleiðis niður snjónum. Býst við að maður neyðist til að fjárfesta í vetrartúttum í dag. Ái. Þá verður manni sko illt í veskinu.

Annars var helgin bara bærileg, aðalfundur starfsmannafélagsins var haldinn á föstudaginn með tilheyrandi húllumhæi. Eins arfaþunnur og ég var á laugardaginn mætti ég galvaskur í skvass eins og ég var búinn að lofa. Fékk vöfflur í sárabætur hjá Ægi og frú.
Svo var farið í að tappa jólarauðvíninu á flöskur. Það er varla að maður tími að opna þetta, svo aðdáunarverð eru vinnubrögðin. Miðar og hettur og hvaðeina.

...
- grettir :: smá vottur af jólafíling mættur á svæðið

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
þá er líklegt að allt "jól" verði búið þegar kemur að blessuðum jólunum


 04. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Það er nú vanalega þannig.

En nú mega lesendur eiga von á vorblíðu næstu daga því ég fjárfesti í nýjum vetrardekkjum.. sem leiðir til þess að ég verð að lifa á núðlum það sem eftir lifir mánaðar.


 04. nóvember 2003 ( Skapti ) [H]
Kemur kúkurinn ekki í löngum mjóum ræmum þegar innbyrt er mikið af núðlum eða er það bara goðsögn. Sem minnir mig á nokkuð, EKKI innbyrða mikið af Gevalia bónuskaffi á fastandi maga fyrstu fjóra tíma dagsins. En fyrir áhugamenn um þynningaráhrif kaffidrykkja gæti slík lífsreynsla verið athyglisverð. Nú fyrst maður er að spjalla um þetta þá er ekki úr vegi að minnast á loftræstiáhrif eggja og kaldra pizzubotna. Hvort um sig er með öllu skaðlaust en sé þessum tveimur fæðutegundum blandað eru áhrifinn oftar en ekki áhrifarík.


 04. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Haha, jú. Ég kýs að kalla svoleiðis lakkríslengjukúk.


 04. nóvember 2003 ( Skapti ) [H]
Já og þú getur ímyndað þér að þú sért TF-líf og sért að slaka sigmanninum niður.


 04. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Frábær hugmynd. Þetta er líka álíka hættulegt. Ef spottinn slitnar, þá dettur sigmaðurinn í sjóinn... ef maður klemmir of snemma, þá klínist út um allan rass.


 04. nóvember 2003 ( Stóriböllur ) [H]
Fáðu þér bara jeppa og gefðu mæðrastyrksnefnd þessa óskoðuð BMW dós. Allir alvöru sjálfstæðismenn eru á jeppum.


 05. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
hehe, eina gagnið sem ég hefði af jeppa væri að þá kæmi ég fleiri bónuspokum fyrir í hverri ferð.

En hvernig veist þú að Bimminn er enn óskoðaður? Þú hefur greinilega betri gleraugu en lögreglan. Hún mætti nú í götuna hjá mér um þar síðustu helgi að hirða róna sem var búinn að kíkja í alla bíla í götunni. Ekki sá hún græna fallega miðann minn.


 06. nóvember 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
nei þeir geta ekki gert svo marga hluti í einu... hirða róna og kíkja á miða... það er erfitt maður