1 til 12 af 12
Ég fæ útborgað 12 sinnum á ári. Hinsvegar eru 52 vikur deilt með 4 13 mánuðir.
Hérna er pottur brotinn.
Vinnuskylda mín á viku eru 40 tímar eða 160 tímar á mánuði miðað við að það séu 4 vikur í einum slíkum. Ég vinn hinsvegar að meðaltali rúmlega 173 tíma á mánuði ((40 tímar x 52 vikur)/12 mánuðum). Í rúmar 13 klukkustundir á mánuði sit ég frítt við tölvuna og skila 130 þúsundum í kassann fyrir mitt fyrirtæki eða rúmlega 1.5 milljón á ári.
Það gerir 9 milljónir á þeim sex árum sem ég hef unnið við það sem ég geri.
Maður þarf ekki að fara út á bensínstöð til að vera rændur. Maður þarf bara að skrifa upp á starfssamning þar sem greidd eru mánaðarlega 1 stk. mánaðarlaun en ekki sá tímafjöldi sem unninn er.
Ég kom heim úr vinnuferðinni seinnipartinn á föstudaginn. Í þetta sinn heimsótti ég París og Frankfurt, sem eru eins og dagur og nótt, bæði í verðlagi og viðmóti íbúa.
París:
Ég: Do you speak english?
Maður í búð: No
Ég: Not even a little bit?
Maður í búð: No
Ég: En íslensku?
Maður í búð: Excuse me?
Ég: Hmm, I thought you didn't speak any english
Frankfurt:
Ég: I'll have the steak
Þjónn: And what do you want to drink?
Ég skoða vínlistann í smástund og segi svo: I think I'll just have a beer, large one.
Þjónn: Marvelous.. excellent choice.
Á föstudagsmorgninum hafði ég smá tíma aflögu til að rölta um miðbæinn, fékk mér snúð og kaffi, skoðaði mannlífið og naut 25 stiga hitans sem lék um bæinn. Náði að versla slatta af fötum á góðum prís, bæði á konuna og börnin.
Ég tók eitthvað af myndum. Kannski skelli ég þeim inn í kvöld.
Við fórum á Hafið Bláa í gær. Mjög fín sýning.
Þar leikur Jónsi hetjuna og Selma leikur vondu skötuna sem étur hina fiskana.
Það virðist hafa gleymst að segja Jónsa að það er ljótt að hrinda óléttum konum.
Ég er að fara að vinna í París í næstu viku við mikinn fögnuð óléttrar konu minnar eins og þið getið ímyndað ykkur.
Efast um að ég hafi eins mikinn tíma til að skoða mig um í þetta skipti eins og
Hr. Hnakkus en það er svo sem aldrei að vita.
Ekki vissi ég að það hefði verið eitthvað launungarmál að menn hleruðu síma í gamla daga.
Með gömlu sveitasímunum og Bellu símamær gátu allir hlustað á alla.
Hver ætli nenni svosem að hlusta á gamla allaballa? Mér er nákvæmlega sama hvort menn hleruðu Jón Baldvin og finnst eiginlega verst að með hlerunum hafi ekki tekist að koma í veg fyrir að Jón setti bifreiðagjöldin á sem "tímabundinn skatt".
Jón, vertu úti.
Þar sem ég stóð í morgun með drengnum mínum og horfði út í garð að dáðst að fuglunum og haustlitunum sá ég kött setja sig í veiðistellingar. Við vorum ekki lengi að hlaupa inn í eldhús til að ná okkur í vatn og hlupum út í garð og reyndum að skvetta á ófétið.
Kötturinn slapp en fuglarnir sluppu líka, svo lætin voru ekki alveg til einskis.
Nú þarf ég að finna dótabúð og versla stærstu vatnsbyssu sem hægt er að fá án þess að þurfa til þess byssuleyfi. Þessi köttur á ekki von á góðu.
Suma daga
Ritað þann: 16. október 2006
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Suma daga væri ósköp gott að bera enga ábyrgð og þurfa ekki að hugsa neitt í vinnunni. Suma daga vildi ég óska þess að ég væri með skóflu að grafa skurð einhversstaðar.
Ekki í dag reyndar, það er svo fjandi kalt.. en suma daga.
Framnesvegur til leigu eða sölu
Ritað þann: 12. október 2006
Efnisflokkar: íbúðamál peningar
Íbúðin á Framnesveginum er að losna. Nú er bara spurning hvað skal gera. Á maður að halda áfram að leigja hana eða selja?
Það er freistandi að selja og losna við húsbréf, fasteignagjöld, hússjóð og slíkt úr greiðsluþjónustunni, en á hinn bóginn er ágætt að geyma peningana sína í steypunni.
Mér þætti gaman að sjá bankareikning sem hefði tvöfaldað peningana mína á þremur árum.
Þetta er eitthvað sem maður verður að sofa á. En ef þið vitið um einhvern sem bráðvantar húsnæði, þá má alveg athuga hvort maður leigi hana ekki bara áfram. Íbúðin er 60 fermetrar á besta stað í bænum, stutt frá Háskólanum og miðbænum, öll þjónusta er í göngufæri: Apótek, Nóatún, Krónan, Dominos, Bónusvídeó, Hrói Höttur og eitthvað fleira er þarna í JL húsinu. Og garður sem safnar grasi. Verður það betra?
Afritun
Ritað þann: 12. október 2006
Efnisflokkar: nördadót
Ég er almennt paranoid gagnvart gögnunum mínum og er með allt sem ég vil ekki missa í sjálfvirkri afritatöku með forriti sem heitir Cobian Backup. Einfalt, ókeypis og þrælvirkar.
Helst tek ég afrit af afritunum mínum. Ég væri ekki til í að vakna upp við það einn daginn að diskurinn á grettir.net væri dauður og allar myndir og allt væri bara gone. Nei takk.
Í vinnunni er allt á netdrifi sem kerfisstjórinn sér um að taka afrit af og hef ég því ekki verið að taka backup af lappanum eins oft og ég ætti að vera gera, því í gærkvöldi heyrðust brak og brestir í disknum og svo dó vélin. Endurlífganir báru ekki árangur fyrr en í morgun þegar ég mætti í vinnu og vélin ræsti sig eins og ekkert væri.
Engin mikilvæg gögn hefðu svo sem tapast, en allskonar stillingar í iTunes, Bookmarks í Firefox og fleira hefðu verið gone.
Nú er lappinn tengdur við grettir.net serverinn og er að moka inn á hann "My Documents" og fleiri "mikilvægum" gögnum.
Close call myndi ég segja.
Ég var aðeins að laga default útlitið á grettir.net þannig að það koma þrír dálkar í stað tveggja áður.
Ef þið sjáið síðuna alla í rugli, haldið inni Ctrl takkanum og ýtið á F5. (Ctrl og R ef þið eruð snillingar og notið Firefox).
Kosturinn við þessa breytingu er sú að nú eru myndir af handahófi til hægri og hlaðast inn síðast, svo efni síðunnar þarf ekki að bíða eftir myndum af
myndasíðunni sem er ansi hæg stundum.
Annars er ég að hressast þó ansi nefmæltur sé. Drullaði mér allavega í vinnuna þar sem bíða mín ótal misskemmtileg verkefni. Við það tækifæri er gott að nefna það að ég hata Oracle. Meira ruslið.
En það er gott að búa í Reykjavík. Byrjað að snjóa fyrir norðan og vestan. Hér er dáldið kalt, en ekkert sem drepur mann.
Svo eru kosningar í nánd. Sniðugir gaurar í ríkisstjórninni, að lækka matarskatta og tolla rétt fyrir kosningar svo sauðsvartur almúginn gleymi öllum skandölum kjörtímabilsins.
En við látum ekki plata okkur í þetta sinn. Meira um það síðar.
Eymingi
Ritað þann: 10. október 2006
Efnisflokkar: ég slen
Ég er búinn að vera með hálsbólgu og kvef síðan á laugardagskvöld. Er fyrst að verða góður núna. Er samt heitt í framan eins og þegar maður er með hita.
Ætla samt á einn fund sem er bókaður klukkan þrjú.
Fengum alla fjölskylduna í mat á föstudagskvöldið. Elduðum tortilla pönnsur sem gengu vel ofan í mannskapinn. Meira hvað það er næs að vera með svona borðstofu. Þá þarf maður ekki að stafla í eldhúsið.
Það var alveg kalt í morgun. Gott að vera með fjarstart á svona dögum.