1 til 27 af 27

Hálf öld

Ritað þann:    31. október 2005
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Hún móðir mín náði þeim merka áfanga að lifa í hálfa öld síðasta föstudag. Þegar hún var á mínum aldri átti hún 3 börn og einbýlishús með bílskúr. Í dag á hún 6 börn, svo það er óhætt að segja að mamma mín sé hörkukvendi.

Í tilefni dagsins bauð hún börnum og tengdabörnum út að borða á Rauðará. Það var ansi hreint skemmtilegt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. október 2005 ( Fannar ) [H]
Það jafnast ekkert á við nautalund með humri ....mmmm..


 31. október 2005 ( von ölves ) [H]
svo eru gríðarhressir þjónar þarna á rauðará... eða voru það amk ;)
klassastaður!


 31. október 2005 ( Ósk ) [H]
Mmmm.. Rauðará er æðislegur staður. Fínn matur, fín stemming..


 31. október 2005 ( Hjalti ) [H]
Og djöfull át maður!! Frétti reynar ekki fyrr en daginn eftir að ef mér fannst ég ekki hafa fengið nóg að borða hefði ég getað beðið um ábót. Geri það næst :D


 01. nóvember 2005 ( Margrét ) [H]
Þetta var frábært kvöld, þú hlýtur að hafa fengið nóg að borða Hjalti.......


 01. nóvember 2005 ( Hjalti ) [H]
Já kannski ;)


 01. nóvember 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta var snilld. Nautaketið var æðislegt.


 02. nóvember 2005 ( ingunn ) [H]
ég er ennþá södd :)


 02. nóvember 2005 ( Írena ) [H]
JÁ ekki var lambaketið síðra,já eða súkkulaðið kakan haha


Hryllingur

Ritað þann:    27. október 2005
Efnisflokkar:  kvikmyndir  

Sá spennutryllirinn The Descent í gærkvöldi. Þetta er án efa með betri spennu/hryllingsmyndum sem ég hef séð. Og hefur ekki týpískan amerískan endi - því hún er jú bresk.

Ef þið viljið pissa í buxurnar af spenningi - fá saltbragð í munninn og enda með poppið frá næsta manni yfir ykkur öll, drífið ykkur í bíó.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. október 2005 ( Hjalti ) [H]
Ég mæli ekki með henni, Ég var svo hræddur að ég er búinn að vera í 2daga að jafna mig andlega.. :D


 28. október 2005 ( Fannar ) [H]
Þú mælir þá með snyrtilegum klæðnaði...


 28. október 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe..


 28. október 2005 ( Hjalti ) [H]
Kannski hafa með sér aukaklæðnað.... Til öryggis :D


 28. október 2005 ( Fannar ) [H]
Spurning að uppfæra í Alpina
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=12172


 28. október 2005 ( - grettir ) [H]
Já *slef* maður. Ég var búinn að sjá þennan. Kannski þegar ég verð ríkur.

Annars heyrði ég gott spakmæli í gær:
Það eru tvær leiðir til að verða ríkur. Eignast meira - eða langa í minna.


 29. október 2005 ( bmwÖnd ) [H]
Hef setið í þessum bíl, ég á sjálfur 190hö kvikindi en g-forcið í þessum er öllu meira :)


 31. október 2005 ( - grettir ) [H]
Því skal ég trúa, enda er þessi bíll fullorðins.

Vondar fréttir af mínum :-( Bakkað á mig á föstudaginn og hann er ekki fagur að framan í dag. Bróðir minn heldur að hann sé úr þýsku segulstáli.


Ragnarök

Ritað þann:    26. október 2005
Efnisflokkar:  fyndið  netið  

Snillingur

Svona svartsýnispésar eiga ekki að fá að nota blað og penna.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. október 2005 ( Hjalti ) [H]
Svo hækka líkurnar á sjálfsmorði af hans hálfu gríðarlega með hverjum deginum sem netið vex og tafnar.


 27. október 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei ætli hann sé ekki að finna eitthvað nýtt til að tuða yfir.


 27. október 2005 ( ægir ) [H]
jæja tölvudallar, hvað segið þið um endalok netsins af því að usa vill ekki sleppa tökunum af því samanber grein dv í dag fim.? fræðið mig nú aðeins einfaldan iðnaðarmann sem ég er


 28. október 2005 ( - grettir ) [H]
Les ekki Dv og hlæ nú að Usa.. um hvað var þessi grein?


Fuglaflensa

Ritað þann:    25. október 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Hvaða djöfuls hræðsluáróður er þessi fjandans fuglaflensufaraldur? Hafa 60 hræður drepist úr þessu frá upphafi? Meiri líkur á að maður breytist í grænmeti í bílslysi á leiðinni til og frá vinnu.

Þetta er plott lyfjafyrirtækjanna til að koma út einhverjum rándýrum lyfjum sem þau sitja með á lager. Mun nær væri að vera með hræðsluáróður gagnvart krabbameini. Eða AIDS. Eða hitabylgjum. Eða fellibyljum. Held að þessum asna sem situr í Hvíta húsinu væri nær að undirrita Kyoto bókunina og reyna að sporna við hitnun jarðar.
Hversu kaldhæðið er það að apinn sá sé nýbúinn að koma sínum manni að hjá sameinuðu þjóðunum til að reyna að koma í veg fyrir allar slíkar undirritanir og þá skella met margir fellibylir á suðurströndina - einmitt af því að Mexíkó flói er orðinn svo heitur og fínn.

Þessi fuglaflensa er bara prump.

Update:
Fann grein um þennan John Bolton, vin Bush:
In an extraordinary intervention, United States appointee John Bolton has sought to roll back proposed UN commitments on aid to developing countries, combating global warming and nuclear disarmament.
Vinalegur náungi. *gubb*

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. október 2005 ( Fannar ) [H]
Já gaman að vita hvar lyfjafyrirtækin eru staðsett sem eru að selja þessi bóluefni sem bretar eru að hvetja önnur ríki að byrgja sig upp af....

Það er vonandi að þessir fellibyljir opni augu ameríkana um alvarleika mengunar og að alheimsvandamál er einnig þeirra vandamál, ignorant bastards keyrandi um 3 tonna trukk og kvartandi yfir því að líterinn af bensíni skuli vera komin upp í 3$ per gallon (3,8 L)....


 25. október 2005 ( - grettir ) [H]
Já, þau skyldu þó ekki vera staðsett í Bretlandi?


Jeppar í þéttbýli

Ritað þann:    24. október 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  

Eins gott að ég er ekki með belg. Þá hefði ég þurft að taka strætó.


















Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. október 2005 ( ægir ) [H]
við þessar aðstæður hefur maður leyfi til að skella slummu á rúðuna og rispa hliðina með lykli eða hurð, þetta geri ég og fólk er alveg hætt að leggja fyrir framan útihurðina á blokkinni


 24. október 2005 ( Ásgeir ) [H]
Ef það er e-ð sem ég þoli ekki þá er það svona lið. Sem betur fer keyri ég oftast um druslu og spara ég ekkert að skella hurðinni utan í næsta Pajero sem leggur svona!


 25. október 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Hvenær á ég að flytja tannburstann minn á Framnesið?


 25. október 2005 ( - grettir ) [H]
Ég kann nú ekki við að rispa bílana hjá vinnufélögunum :-|

Er þér alvara Magnús? Ég hafði hugsað mér að tæma í desember.


 25. október 2005 ( Gúndi í Frumherja ) [H]
Kæri Grettir, ég sé að bíllinn þinn er ennþá með græna miðann sem ég setti svo lipurlega á númeraplötuna þína. Ef þú kemur ekki með bílinn í skoðun bráðlega, neyðist ég til að senda hand-skoðara á þig. ég meina það.


 25. október 2005 ( - grettir ) [H]
Hahaha.. já fjandinn. Hvar voru Davíðs sólgleraugun í ár? Ég er ekkert að fara að taka filmurnar úr Gúndi minn.
Verst að maður getur ekki fært viðskipti sín annað.


 25. október 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Þurfum að ræða þetta ég er að horfa í vestur


 25. október 2005 ( - grettir ) [H]
Það væri auðvitað eðall. Og það er gott að horfa í vestur. Allt í göngufæri.


 25. október 2005 ( von ölves ) [H]
ég héllt það væri "allir í austur"... tja þá nema magnús þá!


Hustl ársins

Ritað þann:    24. október 2005
Efnisflokkar:  djamm  

Fyrir þá sem eru á biðilsbuxunum, þá er kjörið að drífa sig niður í miðbæ núna. Tánið er fullt af kvenfólki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. október 2005 ( albin ) [H]
Meinar SKESSUM....


 24. október 2005 ( - grettir ) [H]
Hahaha!


 25. október 2005 ( von ölves ) [H]
halla var nú í sjónvarpinu... stóð sig vel!


 25. október 2005 ( - grettir ) [H]
Enda Halla mikill snillingur.


Af hverju er veðrið eins og það er?

Ritað þann:    24. október 2005
Efnisflokkar:  fyndið  netið  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Tíminn líður

Ritað þann:    24. október 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Það eru alveg að koma jól, pælið í því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ákvörðun hefur verið tekin

Ritað þann:    24. október 2005
Efnisflokkar:  íbúðamál  

Eftir músiktilraunir miðhæðarinnar aðfaranótt laugardags, til 7 um morgunin hefur verið tekin ákvörðun um að fóðra loftið með skriðdrekastáli og leigja síðan kofann út.
Vonandi finn ég leigjanda sem getur flæmt þessa tillitslausu apaketti í úthverfin.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. október 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Ekkert mál


 24. október 2005 ( - grettir ) [H]
Ráðinn.


 24. október 2005 ( Margrét ) [H]
Sátt við þessa ákvörðun :-D


 24. október 2005 ( - grettir ) [H]
Fæ ég að flytja til þín?


 24. október 2005 ( Margret ) [H]
Þú ert nú þegar fluttur, kroppur......


Private Number

Ritað þann:    20. október 2005
Efnisflokkar:  nöldur  

Einhver er búinn að hringja í tvígang í dag með Private Number. Mér dettur ekki til hugar að svara svoleiðis. Líklega sölupakk.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. október 2005 ( von ölves ) [H]
fólk með private number á ekki skilið að því sé svarað...


 21. október 2005 ( private number ) [H]
Já óþolandi fólk...


 21. október 2005 ( - grettir ) [H]
Hahaha


 21. október 2005 ( Margrét ) [H]
Þetta var ég ...... hi hi hi hi


 21. október 2005 ( Margrét ) [H]
Spaug....Svara ekki heldur svona aulum !


 24. október 2005 ( - grettir ) [H]
Gat ekki verið þú :Þ


Tískulögga

Ritað þann:    19. október 2005
Efnisflokkar:  fyndið  neytendur  

Sumir greiða heilmikið fé fyrir slitnar og sjúskaðar gallabuxur. Þess þarf ekki ef maður situr á rassgatinu allan daginn og forritar.

Get því tekið að mér að slíta gallabuxum fyrir fólk sem ekki hefur tök á því sjálft. Víddin sem ég tek að mér er 32-33 og sídd 34.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. október 2005 ( Margrét ) [H]
Nytsamlegar upplýsingar....... :-D


 20. október 2005 ( Fannar ) [H]
Tekur þú á hnjánum líka?


 20. október 2005 ( - grettir ) [H]
Já ég veit.. það eru að koma jól og svona...

Það er hægt að semja um hvernig ég sit :D


Land hinna frjálsu og málfrelsið

Ritað þann:    18. október 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Hermenn blogga.

I quote:
Margir þeirra halda vefdagbækur um þátttöku sína í stríðinu og hún er alls ekki alltaf í samræmi við hina opinberu útgáfu Bandaríkjastjórnar.

Maður spyr sig, hvað skyldi stjórnin hafa að fela?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. október 2005 ( von ölves ) [H]
þetta er svo dásamleg frétt... döh... ábyggilega í fyrsta skipti sem hermenn segja aðra sögu en opinberir aðilar!


 19. október 2005 ( - grettir ) [H]
Immitt. Það er nefnilega það sama að hanga í hvíta húsinu og liggja í einhverri skotgröf í Írak.


Arrested Development

Ritað þann:    18. október 2005
Efnisflokkar:  fyndið  sjónvarp  

Arrested Development er gott stuff.

Lögfræðingurinn Bob Loblaw (borið fram blabla) kemur sterkur inn:
Why should you go to jail for a crime someone else noticed? You don't need double talk, you need Bob Loblaw

Óborganlegt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hættuleg tónlist

Ritað þann:    17. október 2005
Efnisflokkar:  tónlist  

Einu sinni sem oftar var ég að hlusta á Smashing Pumpkins á leiðinni heim úr vinnunni. Að þessu sinni var ég búinn að hækka vel í Silverfuck af Siamese Dream, en það inniheldur langan svalan rólegan kafla.

Á sama tímapunkti og ég var í þann mund að skipta um akrein buldi við ægilegur trommugnýr og Billy gólaði eins og hann einn kann og gerir vel. Ég hélt ég hefði beygt í veginn fyrir einhvern, snarbeygði tilbaka, fékk svitadropa undir handarkrikana og hjartslátturinn óð í tæplega 180.

Það jafnast ekkert á við Smashing Pumkins.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. október 2005 ( sjérann ) [H]
amen


 18. október 2005 ( von ölves ) [H]
hehe. ég sé þetta fyrir mér... og þú hefðir getað sagt löggunni að þetta hafi allt verið jimmy og billy að kenna!


 18. október 2005 ( - grettir ) [H]
Mér brá ekkert smáræði. Svona eins og þegar ég heyrði Soma í fyrsta sinn. Lagið er úber rólegt og lágt fyrstu rúmar 3 mínúturnar. Þá er maður gjarnan búinn að hækka myndarlega. Svo dúndrast rokkið allt í einu yfir mann.
Good times!


Of heiðarlegur

Ritað þann:    14. október 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  djamm  ég  vinnan  

Það er búið að standa lengi til að strekkja á viftureiminni í bílnum, enda fátt meira þreytandi en viftuvæl árla morguns.

Í gær dreif ég mig því í Byko og fjárfesti í þessu fína verkfærasetti til verksins. Ég var líka búinn að komast að því að róin sem heldur þessu öllu á sínum stað var orðin ansi slitin og ákvað ég að splæsa á eina nýja bara. Bruðla svolítið.

Ein ró kostar 2.74 kr. og þegar ég kom með hana til starfsmannsins, þá fussaði hann og sveiaði: "Eina ró? Pokinn kostar 7 kr." og var greinilega hissa á því að ég hafi ekki bara látið hana í vasann.
Ég fékk því lúkufylli fyrir 10 kr.




Ég er að fara með vinnufélögunum í sumarbústaðaferð um helgina. Það stefnir í met mætingu. Þar verður grillað, spilað, sullað í pottinum og drukkinn mikill bjór.
Prýðilegt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. október 2005 ( von ölves ) [H]
heyrðu... þá getur þú haft með þér flotjúnitið frá RW fyrir bjórinn... vera tækni-grettir!


 14. október 2005 ( - grettir ) [H]
Heyrðu arg! Ég er kom ekki með nein svoleiðis heim. Nennti ekki að pakka þeim.


 14. október 2005 ( Ásgeir ) [H]
það er allt í lagi kæri síamsbróðir, því Ingvar og Olav tóku nokkra fyrir okkur...


 14. október 2005 ( Halla ) [H]
Ég er alveg á móti þessari bústaðaferð.
Ég hef startað átakinu: Gretti í Þverholtið!
Sem skilar vonandi jafngóðum árangri og Gretti á Þjóðhátíð hér um árið!!!


 14. október 2005 ( - grettir ) [H]
Unfortunately, þá er ég búinn að pakka, kyssa bless og verð sóttur eftir 9 mínútur ;-)

Það kemur partý eftir þetta partý, ég skal meira að segja vera gestgjafi.


Snilld

Ritað þann:    12. október 2005
Efnisflokkar:  fyndið  

Nú þarf maður ekki að hjakka í sömu stellingunni öll kvöld.

Ég kynni Pleasure Ball!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. október 2005 ( sandra björk ) [H]
Þetta er stórsniðugt... þarfaþing inná öll heimili! Ert þú að selja svona?


 13. október 2005 ( - grettir ) [H]
Haha, maður ætti kannski að fara að flytja þetta inn. Business í því.


 13. október 2005 ( von ölves ) [H]
ansans vandræði að vita ekki af þessu fyrr... fór í svo mörg brúðkaup í sumar og var alltaf að vandræðast með brúðkaupsgjafir.


 13. október 2005 ( Margrét ) [H]
Hi hi hi hi,
Ég sem var einmitt að kaupa mér eina svona :-D


 13. október 2005 ( Peeker ) [H]
Ég þakka fyrir brandarann... Það hjálpar mikið að fá sona... Bjargar deginum...


 14. október 2005 ( - grettir ) [H]
Velkomið.


Tímavél Iceland Express

Ritað þann:    12. október 2005
Efnisflokkar:  ég  ferðalög  fyndið  

Í mogganum í dag er heilsíðuauglýsing frá Iceland Express þar sem segir: "Við byrjum að fljúga til þessa áfangastaða 16. maí 2005. Ef þú bókar snemma færðu ódýrustu sætin".

Ég væri svo sem alveg til í að spóla til baka og upplifa febrúar 2005 aftur. Þá gæti ég bókað ódýrt og ekki má gleyma því að í febrúar var ég í sólinni í Ríó.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. október 2005 ( Ásgeir ) [H]
prentvillupúkinn er eiturlúmskur...


 12. október 2005 ( - grettir ) [H]
Það má segja það. Nema maður fljúgi með tímavél.


 12. október 2005 ( von ölves ) [H]
heyrðu.. förum til jún/júl 2005, á rock werchter... ég nenni því alveg núna!


 12. október 2005 ( - grettir ) [H]
Ég líka!


Nei!

Ritað þann:    12. október 2005
Efnisflokkar:  fréttir  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. október 2005 ( von ölves ) [H]
haha... já frábært... menn rugla þessum fyrirtækum alltaf saman... eins og sá sem skrifaði fréttina: "að Júmbó leggi á næstunni fram kauptilboð í Júmbó"... en hver á þá að eiga júmbó og hvar passar sómi inn í þetta?


 13. október 2005 ( - grettir ) [H]
Ég var ekki búinn að taka eftir þessu. Vönduð blaðamennska þarna á ferð :-)


Suðurnesin

Ritað þann:    10. október 2005
Efnisflokkar:  fréttir  

Ég kíki stundum á Víkurfréttir (ekki spyrja).

Þetta er hin hressasta lesning, enda önnur hver frétt af lögreglunni í Keflavík sem er ansi upptekin við að halda uppi lögum og reglu.

Dæmi um daginn í dag:

  • Klippurnar á lofti í nótt
  • Rauði krossinn safnar til hjálparstarfsins á skjálftasvæðum
  • Norðaustan átt og léttskýjað
  • Gripinn í bólinu eftir að hafa ekið niður umferðarskilti
  • Video: Bláa lónið stækkað
  • Hópslagsmál í Keflavík
  • Bjart og úrkomulaust í dag
  • Tilraunir með hreyfimyndir á vf.is
  • Dónalegir írskir rafstöðvasölumenn klagaðir til lögreglu

    Líf og fjör í Keflavík greinilega.

  • Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     10. október 2005 ( Peeker ) [H]
    Ég myndi vilja sjá fleiri brandara hjá þér kallinn...


     10. október 2005 ( Fannar ) [H]
    þetta eru nú heldur vægar fréttir, það hlýtur að hafa verið róleg helgi í keflavík....


     10. október 2005 ( Halla ) [H]
    Þú og ég og Þverholt næstu helgi? Ég gat ekkert lært í dag fyrir tilhlökkun!


     11. október 2005 ( Ásgeir ) [H]
    þetta lið þarna er náttúrulega alveg snar!!!
    Ég hef einusinni komið í Keflavík, þá 17 vetra, og eftir 10 mín. hafði fengið högg og blóðnasir... hef ég ekki látið sjá mig þarna eftir það...


     11. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Já brandararnir.. ég á eftir að klára það dæmi eftir að ég færði síðuna :-| Allt að koma :-)

    Já, eitthvað slappir þarna um helgina, hehe.

    Heyrðu ég kemst ekki í Þverholtið maður.. löngu planað að fara í bústað þessa helgi :-| Ferlegt alveg að missa af þessu.

    Þú hefur verið að reyna við einhverja lofaða kellingu Ásgeir, haha.


    Djöfulsins fokk

    Ritað þann:    08. október 2005
    Efnisflokkar:  íbúðamál  

    Meira hvað þessir grannar eru dedd. Ljómandi ömó tónlist glamrandi í kofanum við heimkomu.
    Sem betur fer á ég Interpol til að yfirgnæfa ófögnuðinn. Spá í að skilja það eftir á repeat og fara.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     08. október 2005 ( von ölves ) [H]
    helvíti ertu hress í dag!


     10. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Já vá.. þynnka dauðans í gangi á laugardaginn. Mér lá við andláti.


     10. október 2005 ( Margrét ) [H]
    Agalega slappur, greyið ;-)


     10. október 2005 ( Ingvar J. ) [H]
    Eitthvað á við sunnudaginn á Werchter??


     10. október 2005 ( von ölves ) [H]
    tæplega... það var geimsmet!


     11. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Rétt rétt.. það verður seint toppað. Og lyktin inni á Pita Pyramid.. *gubb*


     11. október 2005 ( von ölves ) [H]
    pita pyramid er einn af þessum stöðum sem er jafn frábær í ölvun og alls ekki frábær í þynnku... sbr hlölli.


     12. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Nákvæmlega. Og fjandi var hann góður kvöldið áður.


    Bremsur

    Ritað þann:    07. október 2005
    Efnisflokkar:  bmw-inn  fimmaurar  

    Kominn tími til að fara með bimmann í skoðun og að því tilefni dreif ég mig í að láta setja í hann bremsur.
    Þær eiga eftir að koma sér vel.

    Ég tognaði næstum í hálsinum þegar ég steig á þær í fyrstu ferð.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     07. október 2005 ( von ölves ) [H]
    spurnnig um að taka framrúðuna úr... nú eða keyra með hjálm?


     07. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Já, djöfull yrði maður svalur með reiðhjólahjálminn!
    Þetta er eitthvað sem ég verð að skoða.


     08. október 2005 ( von ölves ) [H]
    "aldrei of varlega farið"


    Detti mér nú allar dauðar

    Ritað þann:    07. október 2005
    Efnisflokkar:  líðandi stund  

    Byrjað að snjóa hérna uppi á Lynghálsi. Spurning um að leita sér að vinnu á suðlægari slóðum.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     07. október 2005 ( Margrét ) [H]
    Ekkert rugl........


     07. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Hehe


    Vinnustaðagrín

    Ritað þann:    07. október 2005
    Efnisflokkar:  djamm  vinnan  

    Í kvöld verður aðalfundur starfsmannafélagsins. Það stefnir í harðan kosningaslag um helstu embætti eins og vanalega og mikið verður drukkið af bjór.

    Um næstu helgi er ég svo að fara í sumarbústað með vinnufélögunum - pottapartý, grill og öl.

    Meiri bytturnar þessir vinnufélagar mínir. Sem er gott.


    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     07. október 2005 ( von ölves ) [H]
    já, þetta er afar bjórlegur dagur... best að fá sér bjór!


    Allt í tómu tjóni

    Ritað þann:    05. október 2005
    Efnisflokkar:  vefurinn  

    Ég verð að fjárfesta í almennilegri tölvu undir vefsíðuna. Þessi er að kúka á sig. Þegar ég kom heim áðan gaf hún frá sér hljóð eins og reykskynjari, en hún hafði ofhitnað í morgun.

    Sem er skrýtið, því ég er hættur að kynda.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     05. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Og nú er sjónvarpið dottið út.. nú vantar bara að trúbadorinn hefji æfingar og þá er dagurinn fullkominn.


     06. október 2005 ( von ölves ) [H]
    heimurinn versnandi fer... fórstu bara ekki í heimsókn eitthvað?


     06. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Jú, lét mig hverfa ;-)


     07. október 2005 ( majae ) [H]
    get nú ekki sagt að ég sakni eitthvers af framnesveginum, nema kannski´þín gretti minn ;)


     07. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Æj takk fyrir það :-)


    Rúv

    Ritað þann:    04. október 2005
    Efnisflokkar:  sjónvarp  

    Nú man ég afhverju ég horfi aldrei á Rúv.

    Það var að byrja bein útsending frá alþingi. *gubb*

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     06. október 2005 ( Fjóla ) [H]
    Það ömurlegast við að vinna á daginn er að missa af þessum umræðum.......gott var lífið þegar mar var í skóla og gat leyft sér að glápa á Alþingis-umræður allan daginn.


     06. október 2005 ( Fjóla ) [H]
    Fékk eitt sinn passa frá íslenska sendiráðinu í London til að fylgjast með umræðum breska þingsins, bæði fulltrúa- og lávarðadeild. Það var fjör, reyndar hafði ég ekkert vit á þessum umræðum....einhver innanríkis-bladíbla-mál.....en djö gaman að upplifa þetta.


     07. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Haha, já good times maður :D


    Klippi klipp

    Ritað þann:    04. október 2005
    Efnisflokkar:  ég  

    Fór í klippingu í dag. Enn á ný er ég orðinn bráðmyndarlegur.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     05. október 2005 ( albin ) [H]
    Hvað meinaru með "enn á ný" ég frétti að þú værir það vanalega...


     06. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Hehe.. ekki með hárlubba :-)


    Idolpartý

    Ritað þann:    03. október 2005
    Efnisflokkar:  djamm  sjónvarp  

    Með sama áframhaldi, þá verður Idolið beint frá Smáralindinni eftir áheyrnarprófin.

    Komust tveir í gegn? Þrír? Og Bubbi var verri en nokkru sinni.

    Anywho, þetta var hin mesta skemmtun. Við grilluðum heima og drukkum mikið öl með.

    Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

     04. október 2005 ( Ásgeir ) [H]
    Þetta Idol er það al-leiðinlegasta sem ég hef á ævinni vitað! Ég þakka guði fyrir að eiga ekki sjónvarp og get því drukkið öl og sungið sjálfur í staðinn.


     04. október 2005 ( - grettir ) [H]
    Það hljómar eins og hin besta skemmtun. Mæti til þín næst.


     04. október 2005 ( von ölves ) [H]
    við mætum þá allir til ásgeirs næst... kannski leuven-liðið og syngjum hressir... í vestum!!