1 til 19 af 19

Skrapp í sveitina í dag. Svona var blíðan uppi á fjalli.
Mér var ekki skemmt. Á sumartúttunum er ég eins og belja á svelli. Ekki það að ég viti hvernig beljur bera sig að á svelli, en það hlýtur að vera ansi hreint mögnuð sjón.
Á leiðinni tilbaka lenti ég á eftir flutningabíl sem nennti varla upp brekkuna. Það var gaman. Ég notaði tímann til að lesa góða bók, enda ekki á hverjum degi sem maður getur dundað sér á fimm kílómetra hraða á þjóðvegum landsins.
...
- grettir :: eðal meðal
Sumir dagar...
Ritað þann: 28. október 2004
Efnisflokkar: íbúðamál vinnan
... fara í það að svara tölvupósti um það hvernig maður ætli að leysa hina og þessa hluti. Gallinn við þessa leið er manni gefst ekki tími til að leysa hlutina á meðan.
Eða hanga á netinu.
Fékk til mín fasteignasala í gær og lét hann endurmeta kofann. Er í smá vangaveltum sjáiði. Góðu fréttirnar eru þær að íbúðin hefur hækkað um tvær mills. Vondu fréttirnar eru náttúrulega þær að ef maður selur, þá þarf maður bara að kaupa aðra íbúð sem hefur líka hækkað.
...
- grettir :: flytja út á land? Nób. Aldrei.
Fyrir tveimur vikum fór vinnufélagi minn á Kebab húsið niðri í bæ. Kostaði það heilar 800 spírur.
Um morguninn er hann búinn að fá sms frá kortafyrirtækinu um að símgreiðsla hafi borist frá Kebab upp á 1300 spírur (stilling sem hægt er að velja svo maður viti þegar kortið er notað án þess að maður sé á staðnum, eins og ef maður verslar á netinu og slíkt).
Á yfirlitinu var 800 kallinn ekki kominn inn, svo hann hélt að mistök hefðu átt sér stað á staðnum, en núna eru báðar færslurnar búnar að skila sér og því klárlega engin mistök þar á ferð.
Það verður því ekki verslað á þessum stað aftur.
...
- grettir :: olíufélögin hvað?
Smá pælingar varðandi kennaraverkfallið
Ritað þann: 23. október 2004
Efnisflokkar: handbók kjósandans
Þegar ríkið dumpaði grunnskólunum yfir á sveitarfélögin, lækkuðu skattarnir ykkar?
Ekki gerðu mínir skattar það. Nú vil ég að ríkið grafi upp peningana sem ég er búinn að borga og "hefðu" átt að fara til grunnskólana og leggi þá í púkkið.
Og ég vil að kennarinn sem fær þann pening hætti að borga í verkfallssjóð. Samtals ætti þetta að vera ágætis summa.
Ef allir peningarnir sem "hefðu" farið í grunnskólana verða nú lagðir inn í kjarabaráttuna og allir kennarar hætti að borga í verkfallssjóð, þá held ég að kennarar séu bara í býsna góðum málum. Og allir krakkarnir - sem ráfa nú um göturnar, leitandi að afþreyingu. Og enda líklega í tómu rugli.
Hvað er að? Getur ríkið sagt: "Mér kemur þetta ekki við" ?
Hverjir borga skatta eftir 10 - 20 ár? Eða verða á bótum frá ríkinu? Krakkarnir í verkfalli? Hvort er betra? Eiga allir kennarar að vera á sömu launum? Líka þeir lélegu? Af hverju ætti einn þá að reyna að vera góður kennari?
...
- grettir :: enn og aftur segi ég: skítapleis þetta Ísland
Heim heim heim
Ritað þann: 22. október 2004
Efnisflokkar: ferðalög vinnan
Var að klára vinnuna. Saga Class, here I come. Bless turn, öll kaffihúsin, Louvre og allt stöffið.
...
- grettir :: djamm í kvöld?

Ég get varla staðið upp á stól, svo lofthræddur er ég - og því er gersamlega óskiljanlegt hvernig ég þorði að klöngrast alla leið upp á Eiffel turninn til að taka eina skitna mynd.
Ég svitnaði svo mikið í lófunum að ég var hræddur um að síminn myndi renna úr lúkunni á mér og rota einhvern ótalandi apakött á jörðu niðri.
En eins og sjá má, þá er ekki kominn vetur hér í París, en mér skilst einmitt að íslenskir bílar á sumardekkjum séu best geymdir hjá Securitas við Leifstöð þessa dagana.
...
- grettir :: tussudýrt að vera hérna
Jæja, París í fyrramálið. Það ætti nú að vera hægt að láta hreyta einhverjum ónotum í sig þar fyrir að kunna ekki staf í frönsku.
...
- grettir :: les yfir þeim á íslensku
Ég verð nú að lýsa frati á þetta Vanish Oxi blettabull. Fékk eitthvað framan á mig um daginn og er búinn að reyna að þvo bol kvikindið fimm sinnum - og ef eitthvað er, þá dreifir bletturinn bara úr sér.
Nema að þetta hafi verið Hlölla sósa. Þá fyrirgef ég allt.
Ætli maður nái sér bara ekki í skæri bara. Það þolir enginn blettur það. Og hver veit nema að maður komi af stað nýju trendi - gat á bolnum svo sjáist í naflann. Stelpur hafa ekkert einkaleyfi á naflasýningum.
...
- grettir :: eða í ruslið með hann bara.
Hvað gerist, ef maður tekur nýbakaðan og ilmandi kanilsnúð og stingur honum hálfum upp í sig í einu?
Nú, síminn hringir.
Svo klæjar mig í puttana að segja ykkur þvílíkan skandal, en ég á bara eftir að fá söguna staðfesta.
...
- grettir :: ÞVÍLÍKAN SKANDAL, get ég sagt ykkur
Hef fundið hamingjuna
Ritað þann: 13. október 2004
Efnisflokkar: fimmaurar
Og hún kostar ekki nema 595 kr. kílóið. Hamingju egg í Nóatúni.
...
- grettir :: alltaf í eldhúsinu
Fjárfesti í fjarstart búnaði í Bimmann um helgina. Nú get ég verið allsber með Kellogs í hægri og fjarstýringu í vinstri og ræst tryllitækið svo hann verði nú heitur og fínn þegar mér þóknast að fara í larfa og koma mér út.
Eða ég get það þegar ég hef komið búnaðinum í. Mér virðist þetta vera verkefni fyrir einhverja eldflaugasérfræðinga.
Texti eins og:
Incorrect installation could damage your car
er nóg til að fá mig til að hætta við.
Ég er ekkert svo handlaginn. Man til dæmis þegar ég fékk þá hugdettu að skrúfa í sundur vekjaraklukkuna mín, því hver vill ekki vita hvernig svoleiðis græja lítur út að innan?
Þegar ég hafði komið henni saman, þá var eitt tannhjól afgangs. Blessuð sé minning hennar. Og fjarstýrða bílsins sem ég drap líka með skrúfjárni og fikti.
Svipað gæti gerst ef ég set þennan fjarstart búnað í sjálfur. Bíllinn gæti lagt af stað inn um stofugluggann um leið og ég ýtti á takka.
...
- grettir :: eða vekjaraklukkan hringir og bíllinn fer á undan mér!?
Áður en ég fer á kjötkveðjuhátíðina þarf ég að fá nokkrar sprautur í rassinn. Þess vegna fór ég á stúfana að leita mér að heimilislækni í borg óttans.
Í fyrsta sinn á ævinni er nú nafnið mitt komið á biðlista, því heimilislæknar eru víst ekki á hverju strái. Mér líður eins og gömlum kalli sem er að bíða eftir að skipt verði um mjaðmalið.
En konan í símanum var svo væn að bóka mig í sprautur klukkan sjö í kvöld, þrátt fyrir að ég eigi engan lækni ennþá.
En maður á víst ekki að vera að kvarta, kerfið hérna er mun betra en víðast annarsstaðar. Það var til dæmis saumaður á mig putti sem datt af þegar ég var átján, án þess að ég þyrti að borga svo mikið sem komugjald, ég var skorinn upp í hausnum (þess vegna er ég svona ringlaður) þegar ég var þrettán og ekki kostaði það mig krónu.
Ég reyni þess vegna að hugsa jákvæðar hugsanir þegar Geir kemur um hver mánaðarmót og hirðir sín tæp 40% og geri mér grein fyrir því að þessi peningur fer kannski í að bjarga einhverjum vesalingnum sem hefur það ekki eins gott og ég.
...
- grettir :: þetta fer þó ekki í hernaðarbrölt (ennþá)
Of snemmt fyrir mig
Ritað þann: 11. október 2004
Efnisflokkar: djamm nöldur
Vaknaði alltof snemma í morgun. Svo snemma að þegar ég setti púlsmælinn á mig áður en ég fór á brettið, þá sýndi hann bara "Off".
Ég fór á Egó á laugardaginn. Það var nú meira buttfokkið. 2900 kall inn og þeir spiluðu í einn og hálfan tíma. Ballið búið klukkan tvö og þá tæmdist staðurinn. Eina sem ég hafði upp úr þessu er geðveikt pirrandi suð í eyrunum, enda Bubbi hálf heyrnalaus og þurfti því að bæta við hálfu tonni af bassaboxum til að kofinn myndi nú nötra myndarlega.
Jújú, nokkur ágæt lög þarna, en ekki þess virði.
...
- grettir :: jæja, tímakortið bíður
Fínar bollur
Ritað þann: 09. október 2004
Efnisflokkar: ég klám
Fyrir tíu árum, þegar Hárið var sýnt, þá þurfti ég að velja á milli slatta söngleikja og endaði á þvi að fara á Jesus Christ Superstar og Rocky Horror. Sá seinni endaði ljómandi vel, þar sem ég endaði í ljómandi fínu sambandi næstu þrjú árin.
Kvöldið í kvöld endaði ekki alveg eins vel, en Hárið var excelllent sýning fyrir bollu aðdáanda eins og mig, þar sem allir leikendur kusu að vera allsberir í einu atriðinu. Ég kaus, að sjálfsögu, að horfa einungis á kvenkyns leikendurna og verð að segja að, hún Selma okkar, Eurovison stjarna, er með fjórðu fallegustu brjóst sem ég hef á ævinni séð. Og það þarf slatta fallleg brjóst til að meika topp tíu listann hjá mér. Nota Bene.. ég mæli fegurð bolla aldrei eftir því hversu miklu sílikoni er búið að sprauta inn...
...
- grettir :: og hverjar eru hinar þrjár? Við erum að tala um live viewing..
Það næstbesta í heimi
Ritað þann: 08. október 2004
Efnisflokkar: djamm ég
Djööööfull er gott að láta þvo á sér hárið þegar maður fer í klippingu. Ég er eins og nýr maður, það er ekkert flóknara en það.
Mér fannst alveg við hæfi að drífa mig í klippingu í dag þar sem ég er að fara á Hárið í kvöld. Það verður stuð. Eflaust fer maður á eitthvað magnað fyllerí á eftir. Það verður enn meira stuð.
...
- grettir :: glúgg glúgg glúgg glúgg.. aahh
Sótti mér nýja Windows Media Playerinn um daginn og finnst ansi skemmtilegur masókista fídusinn í honum. Það er nefnilega hægt að gefa lögunum stjörnur og flokka þannig músikina í sjálfvirkum playlistum. Einn listinn heitir "Music Tracks I dislike":
Af hverju í veröldinni ætti maður að vilja setja þann playlista í gang nema að maður vilji refsa sér myndarlega?
...
- grettir :: Bill klikkar ekki á því
Ansi skemmtilegur könnunar fídus á nýja
Vísi þar sem maður fær þrjár spurningar og getur þannig séð hversu mikill fréttafíkill maður er.
Skemmst er frá því að segja að ég get aldrei þessar fjandans íþróttaspurningar. Ekki frekar en í Trivial Pursuit. Enda forðast ég íþróttafréttasíður og tuðrusparkleiki í sjónvarpinu eins og pestina.
Ég varð ekkert smá fúll í vikunni þegar ég ætlaði að horfa á Leno, en þá hafði honum verið skipt út fyrir einhvern anskotans boltaleik.
...
- grettir :: iss
Eftir alveg excellent sumar sá ég mér ekki annað fært en að kveikja á ofnunum heima hjá mér um helgina. Þvílíka skítaveðrið sem búið er að vera.
Annars verð ég nú að segja að ég er ekkert yfir mig stoltur af fyrrverandi
sveitungum mínum þessa dagana.
Ég hef nú oft sagt að menn eigi ekki að leika sér að matnum, en þetta
hestamál er auðvitað ekki í lagi. Auðvitað er þetta ekki bannað - það þyrfti ansi frjótt ímyndunarafl til að banna allt sem mönnum dytti mögulega í hug að gera.
Í fréttinni finnst mér reyndar alveg sérdeilis fyndin þessi klausa:
, en tekur fram að hún telji að aðfarir mannsins flokkist undir að hrekkja dýr, sem er ólöglegt.
...
- grettir :: bannað að hrekkja
Gillette út, rafmagn inn.
Ritað þann: 04. október 2004
Efnisflokkar: ég neytendur
Nú hef ég fengið mig fullsaddan. Ekki nóg með að þessi bévítans Mach 3 rak(véla)blöð kosti handlegg og fótlegg, þá er þetta nú meira draslið.
Vegna verðsins hef ég notað tækifærið og keypt heilu bílfarmana af þessu drasli í hvert skipti sem ég á leið um Fríhöfnina.
Ég er kannski svona mikill klaufi við rakstur, en eina sem maður hefur upp úr þessu þriggja blaða undri eru inngróin hár í andlitinu. Þegar eitt er búið að jafna sig, þá byrjar nýtt að grassera. Fyrir tveim mánuðum ákvað ég að gefa Gillettinum frí og byrja að brúka gömlu góðu rafmagns rakvélina mína og viti menn. Lífið er gott að nýju.
Um daginn var ég svo batteríislaus í gymminu svo ég tók tregur upp Gillettinn þar sem ég átti að mæta á fund strax á eftir og betra að vera ekki eins og villimaður. Ég skar mig svo illa á hökunni að ég er ennþá með hrúður.
...
- grettir :: til sölu, 10 pakkar af Gillette Mach 3 drasli