1 til 15 af 15

Er góðærið mætt aftur?

Ritað þann:    28. janúar 2010
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Ísbirnir gengnir á land á ný.

Manni líður bara eins og sumarið 2008 sé skollið á að nýju með umhverfisráðherra í þyrlum og sérinnflutt ísbjarnarbúr sem leit út eins og því væri klastrað saman af dönskum börnum á smíðanámskeiði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. janúar 2010 ( spritti ) [H]
Ó ég man þá tíð


 02. febrúar 2010 ( - grettir ) [H]
Það var gott sumar


Landflótti er hafinn

Ritað þann:    27. janúar 2010
Efnisflokkar:  kreppa  

Við erum 16 ég og mín fjölskylda og tengdafjölskylda. 21 ef ég tel maka systkina og börn þeirra.

1 er nú að flytja af landi brott eða ca. 5% fjölskyldunnar.

Skriðan er farin af stað. Með hærra verði á áfengi, lægri launum, hærri afborgunum, spillingu, hærri sköttum og lélegri þjónustu af hálfu hins opinbera er bara tímaspursmál hvenær við hin fylgjum.

Eigum við að segja 2-3 ár?

Það er ekki endalaus þolinmæði á þessum bæ þó hún sé ágæt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nýtt hraðamet í uppsiglingu

Ritað þann:    21. janúar 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Samkvæmt veðurspám stefnir í "brjálað veður" - eins og það heitir á fagmálinu - seinnipartinn í dag.

Vondu fréttirnar eru þær að ég er á hjóli. Góðu fréttirnar eru þær að það er meðvindur.

Nú væri gott ef Seglagerðin gæti sent mér eins og eitt gott segl og þá væri ég í góðum málum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. janúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Pfff... þarft ekkert segl. Sleppir stýrinu, býrð til segl með úlpunni og lætur gossa!

Vííííííííí!!!!


 27. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Ég gleymdi alveg að stæra mig af 68 km hraðanum sem ég náði í meðvindinum.
Hér með er því komið á framfæri.


Þorramatur

Ritað þann:    21. janúar 2010
Efnisflokkar:  matur  

Við fengum sviðasultu, saltkjöt og púnga í hádeginu. Ég borðaði minn árlega bita af hákarli í veikri von um að mér fyndist hann nú loksins góður en án árangurs.

Það bætti örlítið bragðið af honum að fá staup af íslensku brennivíni til að skola honum niður, en það segir nú ýmislegt um hversu vondur matur er ef íslenskt brennvín gerir hann bragðbetri.

Það tók ekki svona langan tíma að venjast ólífum. Í fyrsta sinn sem ég bragðaði þær voru þær fljótar út sömu leið og þær komu inn.

Nú eru ekki gerð innkaup á mínu heimili nema ólífur séu á listanum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. janúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Hákarlinn er nefnilega þannig að hann bragðast alveg jafnilla og hann lyktar. Andstyggilegur.

Það sama var upp á tengingnum með ólífurnar; mér fannst þær afskaplega bragðvondar. Það var svo í einhverri legendary vinnuferð þar sem áfengi var haft um hönd að ég smakkaði ólífur og át að mig minnir heilt trog af þeim. Nú eru ólífur ómissandi í eldhúsið.


Split

Ritað þann:    19. janúar 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Það var svo sleipt í gær að ég fór næstum í split þegar ég steig út á gangstéttina.

Vöðvastyttingarnar mínar fengu að kenna á því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Frí á föstudögum

Ritað þann:    15. janúar 2010
Efnisflokkar:  kaldhæðni  

Að taka sér frí á föstudögum er góð skemmtun en afleit hugmynd.

Mánudaga og þriðjudaga vinnur maður fyrir skattinum.
Á miðvikudögum og fimmtudögum vinnur maður fyrir húsnæðisláninu, bílaláninu og námsláninu.

Á föstudögum er maður loksins farinn að fá peningana sjálfur fyrir brauðstritið.

Föstudagsfrí er því fráleit hugmynd.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. janúar 2010 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Ég samdi við Steingrím um að fá bara að vinna fyrir hann fram að hádegi alla daga.


 19. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
hehe.. já það er ágætur díll.. þú verður þá að passa þig að hætta ekki klukkan fjögur.


Til að koma í veg fyrir að farangurinn týnist...

Ritað þann:    14. janúar 2010
Efnisflokkar:  fyndið  netið  

.. pakkaðu byssu í töskuna og láttu innritun vita.

þetta á reddit.

Ekkert flugfélag vill týna farangri sem hefur byssu að geyma - töskunni er læst og henni fylgt eftir af meiri nákvæmni en öðrum töskum sem innihalda eingöngu nærföt (efnavopn).

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Vandamálin sett í samhengi

Ritað þann:    14. janúar 2010
Efnisflokkar:  fréttir  

Einhvern veginn skammast maður sín fyrir að vera að tala um kreppu þegar maður sér myndir þarna frá Haiti.
Ætli fólkið þarna hafi einhvern tíma upplifað slíkt góðæri eins og er hér á landi akkúrat í dag?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skammdegisþunglyndi

Ritað þann:    13. janúar 2010
Efnisflokkar:  bjartsýni  líðandi stund  

Ég held að myrkur valdi ekki skammdegisþunglyndi heldur samskiptaleysi fólks. Önnur lönd hafa myrkur en samskiptin eru öðruvísi vegna veðurs. Á Íslandi hefur fólk samskipti í gegnum bílrúður, bílflautur, svarþræði á moggabloggi og með facebook statusum.

Á sumrin hittist fólk í görðum og hefur samskipti og skammdegisþunglyndinu léttir. Þegar ég er á reiðhjólinu mínu heilsar fólk mér þegar ég mæti því - býður góðan dag og er hresst.

Um helgina ætla ég að klæða mig vel og setjast út á pall með bjór. Athuga hvort það komi ekki einhver granni í spjall.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Svitalykt

Ritað þann:    13. janúar 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ég skil ekki hvers vegna svitalykt getur ekki verið góð.

Þetta myndi spara heilmikla sápu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. janúar 2010 ( Rósa ) [H]
Ef þú hættir að borða dýraafurðir þá batnar svitalyktin víst.


 13. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Já svo er sagt. Prófa kál í kvöld og hnusa úr handarkrikanum í fyrramálið.


Brjóstagjöf

Ritað þann:    13. janúar 2010
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Ný rannsókn bendir til þess að brjóstagjöf sé góð fyrir geðheilsuna.

Mér finnst einmitt eins og geðheilsu minni sé að hraka. Ég ætti kannski að skella mér heim í hádeginu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. janúar 2010 ( Konan .... ) [H]
Þú ert ekki enn kominn heim..


 13. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Góðir hlutir gerast hægt :-)


Utangátta

Ritað þann:    13. janúar 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ég opnaði fyrir sturtuna í vinnunni í morgun, afklæddi mig, setti handklæðið á öxlina og steig inn í sturtuna.

Með handklæðið á öxlinni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. janúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Bwahahahaha!! Classic!

Minnir mig á gamansöguna um jakkafatagaurinn sem fór að pissa. Renndi niður buxnaklaufinni, reif út bindið og meig í brækurnar...


 13. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Já hún er góð. Ég heyrði líka aðra jakkafatatengda einu sinni:
Bankamaður var spurður hvernig hann svæfi þessa dagana þegar allur fjármálamarkaðurinn væri á niðurleið.
- Eins og ungabarn
- Nú?
- Já, vakna, græt, sofna aftur, sýg á mér þumalinn, pissa undir..


Nagladekk

Ritað þann:    12. janúar 2010
Efnisflokkar:  hjólreiðar  

Ég fékk nagladekk lánuð hjá Ægi pípara um jólin. Nú kemst fjallahjólið mitt allt. Og ég með.

Ný nagladekk á reiðhjól kosta á bilinu 11-15 þúsund, svo það er góð búbót að fá svona hluti lánaða í kreppunni.

Það var reyndar búið að segja mér að viðnámið í nagladekkjunum væri töluvert meira og því var ég ekkert yfir mig hissa á því að bílar eyði töluvert meira á nöglum en án þeirra þegar ég fór af stað á föstudaginn, því þetta var hörkupúl. Nánast eins og að vera á þrekhjóli þar sem maður þarf stöðugt að stíga pedalana til að halda áfram.

Þegar ég kom í vinnuna komst ég að því að hjólið var hálffast í bremsu eftir jólafríið og ég rann ljúflega heim á leið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. janúar 2010 ( Ingunn ) [H]
hehe, góður :)


Glaðningur frá Sýslumanni

Ritað þann:    11. janúar 2010
Efnisflokkar:  nöldur  

Fékk glaðning frá Sýslumanninum á Selfossi inn um lúguna vegna hraðaksturs annan dag jóla. Var myndaður með alla fjölskylduna á leið í jólaboð.

Á 96 km hraða í miðri bílalest. 10.000 krónur takk fyrir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. janúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Ætli myndvélin hafi verið með burst-mode enable-að og öll lestin fengið mynd af sér? Eða þú bara svona heppinn að vera í fókus þegar skotið reið af...


 11. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Það hefur þá verið 50.000 kall.
Hressandi fyrir Steingrím.


Úr hýðinu - uppgjör ársins

Ritað þann:    08. janúar 2010
Efnisflokkar:  annáll  börnin  fjölskyldan  líðandi stund  

Ég var að hefja vinnu aftur eftir þriggja vikna fæðingar-/jólaorlof.

Jólin voru í alla staði frábær. Börnin eru að komast í rútínu aftur, en skóli og leikskóli byrjuðu á mánudag og þurfti nokkra daga til að vinda ofan af löngum morgnum sem við tileinkuðum okkur í fríinu.

Batteríin eru full.

Gleðilegt ár kæru vinir


Árið 2009 var viðburðaríka hjá okkur en allajafna. Það hófst frekar rólega og tíðindalaust en seinnihluta vetrar létum við fjölskyldur okkar fá þau tíðindi að von væri á einu barni í viðbót.

Drengurinn okkar æfði sund af miklu kappi og fórum ég og dóttir mín iðulega með og lágum í pottinum.
Sumarfríið var langt og sólríkt. Ég lagði gamla bílnum mínum og hóf að hjóla í vinnuna.

Þann 7. september fæddist okkur önnur dóttir. Sú fékk nafnið Þórdís Birna og skýrðum við frá því áður en hún þornaði, enda löngu ákveðið að það nafn skyldi hún fá.

Drengurinn okkar fór að æfa Taekwondo hjá Ármanni um haustið og hætti sundæfingum í bili, en hann hafði æft áður Taekwondo hjá Björk í Hafnarfirði. Hann náði bronsi í æsilegum bardaga á móti í haust og náði sér í appelsínugult belti í byrjun desember.

Eldri stelpan okkar útskrifaðist með glans af yngstu deild leikskólans og hóf nám á Holti sem henni finnst mjög töff.
Við hjólum saman í skólann á morgnanna öll þrjú og þó að leikskólinn sé nær heimilinu vill sú stutta alltaf fylgja bróður sínum alla leið í skólann og fara svo í leikskólann. Aukahjólreiðatúr fyrir pabba gamla, en bara gaman að því.

Árið endaði eins og vanalega á jólunum - þeim fjórðu sem við höldum á Háteigsvegi og þeim fyrstu sem voru ekki keypt á kreditkorti. Við leyfðum börnunum að skreyta tréð eins og áður nokkrum dögum fyrir jól og söfnuðum pökkunum undir það jafnóðum. Tréð næstum hvarf.
Jólamaturinn - kalkúnabringur í sinneps- rósmarínlegi var snilld.

Jólafríinu eyddum við á kósíkvöldum með börnunum, bíómyndir, snakk og ostar.

2009 var ágætis ár og skilaði fjölskyldubúið hagnaði um eina sæta stelpu og minnkandi skuldastöðu í krónum talið. Getur maður beðið um meira?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. janúar 2010 ( Jón Óskar ) [H]
Gleðilegt ár sömuleiðis!

Klárlega topp ár hjá fjölskyldunni - glæsileg frammistaða.

Þín var sárt saknað á rembunni í ár. Jónas, Jóhann og undirritaður áttu langar og athygliverðar samræður um hugbúnaðargerð og önnur álíka merkileg málefni. Það er rómur manna að remban í ár hafi verið sérlega vel heppnuð, bæði í skemmtun og ölvun - tala jafnvel um sumar-rembu!


 08. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Já, ég held að það sé kominn tími á sumarrembu. Alltof sjaldan sem maður hittir orðið þá snillinga sem mynda þann frábæra hóp. Sérstaklega ef maður skrópar eins og fífl.