1 til 7 af 7

Húsgögn eða eldiviður

Ritað þann:    30. janúar 2007
Efnisflokkar:  neytendur  skandall  

Það er ein húsgagnaverslun hér í bæ sem fær það óþvegið á morgun ef ekki verður greitt úr okkar málum á viðunandi hátt. Dónaskapur og dýrt drasl sem sómir sér varla sem eldiviður virðist vera þeirra mottó.
Þetta er ekki Ikea. Þar virðast fást vörur sem þola það að vera skrúfaðar sundur og saman, fluttar hingað og þangað og kosta ekki mikið fé.


Nú þarf ég bráðum að fara að vinna aftur eftir mánuð í fæðingarorlofi. Það á eftir að verða hundleiðinlegt, en sem betur fer verð ég bara í 50% vinnu til 1. júní. Ég ætti að lifa það af. Ef mér leiðist fer ég bara í húsgagnaverslunina og ríf kjaft.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. janúar 2007 ( von ölves ) [H]
hvaða húsgagnaverslun er þetta?... meður verður að vita hvað á að forðast... ég hef td. lært af biturri reynslu minni og annarra að forðast húsgagnahöllina...


 01. febrúar 2007 ( - grettir ) [H]
Þeir mættu á svæðið með smið og gerðu við borðstofuborðið, svo ég ætla að hlífa þeim við opinberri aftöku.
En ég fer ekki þangað aftur.. og vonandi ekki þú þegar þú hefur fengið sms-ið :-)


Kosningar, innflytjendur og manngæska

Ritað þann:    25. janúar 2007
Efnisflokkar:  innflytjendur  líðandi stund  

Nú þegar kosningar eru yfirvofandi keppast flokkarnir við að finna hitamál sem getur fengið óákveðna á sitt band. Undanfarið hefur það verið Krónan versus Evran og nýlega fór Frjálslyndi flokkurinn hamförum í málefnum útlendinga á Íslandi.

Hnakkus tók málið fyrir við gríðarleg mótmæli harðkjarna Íslendinga sem kunna þó ekki að skrifa heila setningu á íslensku frekar en þýskar og danskar ömmur sem hafa sett svip sinn á íslenskt mannlíf um áratugaskeið.

Ég las ansi skemmtilegan pistil eftir Andra Snæ um innrás jarðarbúa..
Þar segir meðal annars:
Það er athyglisvert að velta fyrir sér íslenskri umræðu um samheitið "útlendingur". Íslendingar eru svo fáir að þeir eru innan skekkjumarka í mannfjöldatölum heimsins. Hvaða samheiti er þetta eiginlega: "útlendingar"? Væri ekki nær að kalla þá einfaldlega jarðarbúa? Allir í heiminum nema við eru útlendingar?

Ég get alveg sagt frá því að ég er ekki alltaf stoltur af því að vera Íslendingur. Þegar gömul kona finnst látin í íbúð sinni rétt eftir áramótin og talið að hún sé búin að vera þar í mánuð - yfir öll jólin - þá er ég ekki stoltur af því að vera Íslendingur.
Ég rakst á fínan pistil um þetta á vafri mínu um moggann. Þar segir meðal annars:
Kunningi minn einn bandarískur sagði mér nýverið ýmsar sögur af því hvernig hann upplifði almenna samfélagsþróun í Ameríku - og neikvæð áhrif af valdatíð Bush. Þegar ég spurði hann að því hvað gæfi honum von þá svaraði hann á athyglisverðan hátt:

"Innflytjendur okkar frá Mið- og Suður-Ameríku. Þeir gefa mér von. Gefa mér von um að við eigum eftir að breytast. José nágranni minn þekkir bókstaflega alla í byggingunni - bankar upp á, kemur með kökur og hressingu og skiptir sér glaðlega af manni þegar honum dettur í hug. Þekkir alla nágranna sína með nafni. Ég á þetta ekki til í sjálfum mér, en ég finn að það gerir veröld mína hlýlegri - og Ameríku betri. Þetta er önnur arfleifð sem með tímanum verður að okkar eigin."


Þetta er nákvæmlega það sem okkur vantar hérna á Íslandi - samskipti við náungann. Við gætum lært heilmikið af innflytjendum okkar (jarðarbúum) og við ættum að nýta okkur það.
Á ferðalagi mínu og vina minna til Brazilíu urðum við vör við þennan samgang og vinarþel sem einkennir Brazilíumenn. Hvar sem fólk beið í röð, á rauðu ljósi eða hvar sem fólk hittist var kastað kveðju, málin rædd stuttlega og svo haldið áfram sína leið. Leigubílstjórar voru með niðurskrúfaðar rúður og ræddu við fólk sem sat eða stóð á gangstéttum, spurði til vegar eða hvort það hafi horft á leikinn í gær.

Ástæðan fyrir þessum pistli er að í gær fengum við geisladiskinn sem var gefinn út í minningu Svandísar Þulu, fimm ára telpu sem dó í umferðarslysi í desember og til styrktar bróður hennar Nóna sem er mikið slasaður á eftir.

Sá sem stóð fyrir þessari útgáfu er Ítali sem býr í stigaganginum - jarðarbúi sem ákvað að flytja til Íslands.

Það er á hreinu að í vor kem ég til með að kjósa þann flokk sem býr vel að þeim jarðarbúum sem vilja koma hingað og láta sér ekki fátt um finnast, losar okkur við verðbólgutengda smámynt og færir okkur frjálsan innflutning á ódýrri matvöru. Við erum ekki ein á þessari jarðkringlu. Það er stundum grænna grasið hinu megin.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. janúar 2007 ( von ölves ) [H]
góður!


 25. janúar 2007 ( Ægir pípari ) [H]
æji þetta er eitthvað svo fallegur pistill að ég hef ekki hjarta í mér að rífast um þetta, ætli ég kaupi ekki diskinn heldur.


 25. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Já það væri nær.. mér sýnist reyndar síðan þeirra vera dottin út, en það hlýtur að vera hægt að redda sér eintaki með öðrum hætti.


 26. janúar 2007 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Það eina sem mér dettur í hug að segja er "heyr heyr!!"


 28. janúar 2007 ( Írena ) [H]
Þessi diskur er til í skálasjoppuni hérna í Þorlákshöfn !;)


Rúv gerir slappar fréttir spennandi

Ritað þann:    20. janúar 2007
Efnisflokkar:  fréttir  

Hvað er svona spennandi við það að flytja fréttir af fólki á skíðum í Bláfjöllum gæti fréttagengið á Rúv bílnum hafa verið að hugsa þegar þeir lögðu af stað upp í Bláfjöll.
Gerum þetta aðeins meira spennandi segir einn.
Ég veit, slítum niður rafmagnslínu og látum fólk híma í níðamyrkri og kulda í dágóða stund uppi í fjallinu. Það eru sko fréttir sem gaman er að flytja.



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. janúar 2007 ( Heiðrún, Beggi og Lilja Rós ) [H]
Til hamingju með fallega nafnið hennar dóttur þinnar - var að sjá það núna. Dætur okkar eru sem sagt nöfnur! :-)


 23. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir og sömuleiðis til hamingju :D


 25. janúar 2007 ( Lilja ) [H]
Heitir hún í alvörunni Elísabet Lilja???


 25. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Jájá, í höfuðið á ömmunum ;-)


 25. janúar 2007 ( Lilja ) [H]
Og mér :D

Til hamingju með nafnið. Frábærlega vel valið, verð ég að segja ;)


Innipúki

Ritað þann:    17. janúar 2007
Efnisflokkar:  ég  fjölskyldan  

Það er búið að vera svo kalt undanfarið að ég hef varla farið út fyrir dyr. Sem er slæmt því ég hef tekið áskorun sem felur í sér taumlausa líkamsrækt næstu fjóra mánuði.

Áskorunin er þannig að við leggjum 20 þúsund í púkk og förum í mælingar einu sinni í mánuði. Sá sem nær mestum árangri hirðir pottinn óskiptan. Ekki sá sem er sterkastur, með mesta brúnkukremið eða mesta þvottabrettið, heldur sá sem bætir sig mest viðað við núverandi ástand.
Mitt ástand er ekki gott núna. Skírnartertuafgangar í morgunmat, súpukjöt á afslætti í Bónus og full geymsla af bjór sem mér þótti vissara að kaupa þegar fréttir bárust af hækkunum á öli fyrir jól.

Ofan á þetta bætast svo frosthörkurnar sem gera það enn erfiðara að drattast framúr á morgnanna. Ef ég ætti ekki dreng á leikskóla svæfi ég fram að hádegi með B manneskjunni henni dóttur minni sem finnst gaman að vaka lengi og sofa út. Eins og mér.

Á mánudaginn var ég í tuttugu mínutur að sópa af bílnum mínum sem var bókstaflega á kafi eftir fannfergi síðustu viku. Meira hvað það væri hressandi að búa á hlýrri slóðum. Eða eins og drengurinn orðaði það um daginn (lesist með 4ra ára vælutón): Ég nenni ekkert að búa í landi þar sem er alltaf svona kalt
Ég stakk upp á því að við flyttum til Ástralíu og honum leist vel á það.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. janúar 2007 ( von ölves ) [H]
ég held ég vinni!


 18. janúar 2007 ( Hjalti ) [H]
Ástralía hljómar ekkert smá vel um þessar mundir!


 19. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Tja, það lítur ekki vel út í byrjun átaks hjá mér. Konan bakaði skúffuköku í gær.

Já, Ástralía for the win. Einn daginn gott fólk.. einn daginn.


Andvökunætur

Ritað þann:    09. janúar 2007
Efnisflokkar:  börnin  

Mannskepnan er furðulega hönnuð. Venjuleg fullorðin manneskja þarf að staðaldri 6-8 tíma svefn sem er auðvitað alger tímaeyðsla, en væri í fínu lagi ef afkvæmin þyrftu ekki að borða á 3 tíma fresti.

Þetta er hönnunargalli.

Og til hvers fær maður magapínu? Magaverkir eru mest tilgangslausu verkir í heimi. Maður getur ekkert gert og þeir skipta í raun engu máli. Einn ætti bara að fá drullu og málið væri þannig dautt. Hvernig vita til dæmis ungabörn að magapína sé ekki bara partur af lífinu. Ungabörn vita ekki neitt en samt ákveða þau að prófa að grenja - gá hvort ástandið sem þau vita ekki hvort er eðlilegt - breytist. Í eitthvað annað sem þau vita ekki heldur hvort er eðlilegt.

Dóttir mín var með magapínu í nótt. Á náttborðinu í morgun voru að minnsta kosti átta bleyjur, fullar af kúk og pissi. Ungabörn eru full af kúk og prumpi. Og grenja þegar þeim er illt í maganum.
Ég elska hana samt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. janúar 2007 ( Hjalti ) [H]
Þykir það leitt að ég hafi misst af skírnarathöfninni, Ég kíki í kaffi við fyrsta tækifæri :)


 15. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Þér er boðið í afganga í kvöld ef þú vilt?


 15. janúar 2007 ( Jónína Guðrún ) [H]
Til hamingju með skvísuna :-) og hvað heitir hún svo ??


 16. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Hún heitir Elísabet Lilja :-)


 16. janúar 2007 ( Anna Júl ) [H]
Til hamingju með nafnið á prinsessunni...ekkert smá flott nafn :)


 17. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)


Ég er að verða fullorðinn

Ritað þann:    05. janúar 2007
Efnisflokkar:  ég  fyndið  

Nýja árið byrjar vel.

Hvort sem það er um að kenna bjórleysi, bleyjuskiptum, svefnleysi eða blöndu af þessu þrennu, þá fann ég mitt fyrsta gráa hár í morgun.

Ég er því að halda áfram að vera töff. Töffið er bara að fara yfir á næsta stig.
George Clooney er til dæmis mun meira töff með grátt hár en ekki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. janúar 2007 ( Ægir pípari ) [H]
já skál fyrir þeim gráu, ég vil nú meina að mín séu silfruð sko


 09. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Já skál fyrir þeim!


Gleðilegt árið

Ritað þann:    03. janúar 2007
Efnisflokkar:  annáll  

Ágætu lesendur til sjávar og sveita, gleðilegt árið og takk fyrir það gamla.

Árið var sérlega viðburðaríkt fyrir mig. Ég og konan mín settum upp hringa, keyptum okkur íbúð, endurnýjuðum bílinn (ekki þó BMW-inn, hann er að verða erfðagóss) og síðast en ekki síst eignuðumst við dóttur.

Ég gerði tilraun til að selja íbúðina mína á Framnesvegi á árinu, en var eiginlega ráðlagt af fasteignasölunni að leigja hana þar til markaðurinn tæki við sér að nýju.

Ég fór til Belgíu á Rock Werchter í sumar ásamt vinum og systkinum. Það var æðislegt.
Fyrir utan Belgíu heimsótti ég Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Danmörku og Þýskaland á árinu (og Holland ef maður telur flugvöllinn þar með).

Ég þyngdist á árinu. Ég vil meina að það hafi verið samúðarkíló á meðgöngu konunnar :-)
Nú er hún hins vegar laus við öll sín meðgöngukíló en ég ekki, svo það verður vel tekið á því í ræktinni á nýju ári eins og undanfarin ár. Finnst aukakíló ekki kúl.

Árið 2006 var mikið myndaár, þrátt fyrir að meirihluti myndanna séu á bakvið læstar dyr (mikið af rugluðu liði þarna úti sem ég kæri mig ekki um að sé að valsast í fjölskyldualbúminu). Á nýju ári er stefnt að því að kaupa alvöru myndavél og stærri tölvu undir myndagalleríið.

Árið 2006 var gott ár.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. janúar 2007 ( von ölves ) [H]
gleðilegt ár, sömuleiðis og takk fyrir samverustundirnar á liðnum árum... sérstakar þakkir fyrir rokkið í werchter og leuven í belgíu.


 05. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Já, takk sömuleiðis fyrir það :-)