1 til 15 af 15
Klukkan níu á morgnanna stillir einhver strumpur sér upp hérna fyrir utan gluggann hjá mér á Strikinu með auglýsingaskilti. Þarna stendur gaurinn teinréttur allan daginn og líkar bara vel.
...
- grettir :: hvar sækir maður um?
Í Kóngsins Köben eða í Malmö.
Ritað þann: 26. janúar 2004
Efnisflokkar: ferðalög fyndið
Iss. Tók lest frá Kastrup í öfuga átt og fór til Svíþjóðar. Svíar voru bara hressir, nenntu ekki einu sinni að rukka mig fyrir lestarfargjaldið. Bentu mér bara á að fara út næst og taka aðra ókeypis lest yfir til Danmerkur aftur.
Skítakuldi hérna, by the way...
...
- grettir :: áttavilltur
Ég er búinn að fá menn úr öllum deildum Reykjavíkurborgar í heimsókn til að rannsaka lekann í kjallaranum. Enginn kannast við að þetta vatn sé frá þeim komið.
Einkennilega við þetta þó, var að eftir heimsókn holræsadeildar hvarf vatnið mjög snögglega. Tilviljun?
Anyways, ég er á fullu að klára það sem þarf að klára áður en ég fer út á mánudaginn svo kerfið virki. Ýmsir endar sem þarf að hnýta áður en maður setur í gang. Búinn að vera óhemjuduglegur í vikunni, svo ég býst við að ég leyfi mér að sulla í bjór og rauðu um helgina.
Who am I kidding? Myndi gera það þó ég væri búinn að vera hauglatur alla vikuna.
...
- grettir :: spurning um að grilla.. hmm
Í allan dag, er ég búinn að bíða eftir því að komast heim og hlamma mér fyrir framan kassann. Hvað gerist? Niðurfallið í húsinu tók upp á þeim ósköpum að gefa sig og nú eru öll baðkör ársins í kjallaranum. Flæðir út um allt og allt í fokki.
Ég hringdi í Tryggingamiðstöðina og þeir sendu pípara, en voru fljótir að afturkalla hann þegar þeir áttuðu sig á því að tryggingin færðist til Íslandstryggingar þann 15. janúar. Svo núna bíð ég bara eftir nýjum pípara.
...
- grettir :: allt í pati rassagati
Það stóð til að fara á Lord of the Rings um helgina í Lúxus með Guðrúnu og Gísla (sem hýstu mig í tæpa þrjá mánuði meðan ég beið eftir kotinu mínu), en það er bara uppselt langt fram í tímann ( allavega um helgar ), svo það varð ekki mikið úr þeirri ferð. Drukkum bara bjór í staðinn. Það var bara fínt. Fékk
Óla og Ingvar í bjórkaffi, eftir að ég hafði verið rasskelltur af Guðrúnu í Trivial. Merkilegt hvað þessar íþróttaspurningar ætla að verða mér fjötur um fót í því annars ágæta spili.
Annars er ég óánægður með veðurguðina þessa dagana. Laugardagurinn byrjaði þannig að Bimminn var fastur í skafli upp að speglum, svo það tók tímana tvenna að komast í burtu. Þegar ég náði loksins að rugg mér í burtu var þetta fína snjóhús í bílastæðinu. Þegar ég kom til baka, hafði einhver jeppastrumpurinn verið að göslast í skaflinum og skemmt slóðina mína, svo það var ekkert annað að gera en að taka þetta bara á ferðinni. Mátti nú ekki miklu muna að sú ferð endaði inn í stofu hjá grannanum. Það hefði verið einkar hressandi.
Og meðan ég man, eftir viku verð ég í Köben að vinna.. íha. Snakke du dansk?
...
- grettir :: merkilegt hvað maður kann lítið í dönsku
Síðasti bensíndropinn hjá Atlantsolíu var varla kominn úr tönkunum þegar mafía Íslands ákvað að hækka sitt bensín.
Sem er mjög skrýtið, því þegar dollarinn eða heimsmarkaðsverð lækkar, þá segja þeir alltaf að verðbreytingar séu bara gerðar um mánaðarmót, þegar þeir fái skammt á nýju verði með nýrri og öflugri krónu.
Næst á dagskrá hjá mér er að reyna að komast að því hvar í Kópavogi Atlandsolía selur bensín - því mér hefur nú aldrei gengið vel að finna nokkurn skapaðan hlut í Kópavogi - og snúa viðskiptum mínum þangað. Það er að segja þegar þeir fá meira af þessum fokdýra vökva.
Ég eyði milli 12 og 15 þúsundum á mánuði í bensín. Það eru 144 - 180 þúsund á ári sem hinar skítasjoppurnar missa af. Hvet alla sem vettlingi geta valdið að gera slíkt hið sama.
...
- grettir :: nú verður vaselínið notað í annað
Greidd skuld í blóðbankanum
Ritað þann: 14. janúar 2004
Efnisflokkar: ég
Í dag ákvað ég að byrja að greiða skuld mína við blóðbankann. Ég er með 16 ára gamla skuld þar sem ég hef aldrei greitt. Til að byrja með verður að sjálfsögðu að athuga hvort ég sé með eitthvað bóbó í blóðinu, en að ef allt er eðlilegt ætti ég að geta tappað af fyrstu afborguninni í byrjun febrúar.
...
- grettir :: eins gott að það eru ekki okurvextir þarna
Sugababes
Ritað þann: 13. janúar 2004
Efnisflokkar: nöldur tónlist

Þar sem á Íslandi eru svo margir skíthælar sem tóku sig til og keyptu upp Muse miðana til að græða án þess að ætla á tónleikanna, þá held ég að ég drífi mig á Sugababes í höllinni í sárabætur.
Og ég ætla að vera fremst.
...
- grettir :: ú yeah
Hitchhikers Guide
Ritað þann: 12. janúar 2004
Efnisflokkar: bækur kvikmyndir
Það gladdi mitt nördahjarta þegar ég las í mogganum að það ætti loksins að kvikmynda almennilega hina ótrúlegu bók,
Hitchhikers Guide to the Galaxy. Ég er búinn að lesa hana að minnsta kosti fimm sinnum og verð aldrei leiður. Sem dæmi, þá tók ég mig til og byrjaði að merkja blaðsíður sem innihéldu ótrúlega fyndin quote með svona glósulímmiðum (stal þeim á skrifstofunni, hehe).
Anyways. Ég gafst upp þegar ég var hálfnaður, því þá var nánast því hver einasta blaðsíða merkt.
Ef þú ert ekki búin(n) að því,
verslaðu hana strax.
...
- grettir :: get ekki beðið
Dr. Phil *yack*
Ritað þann: 12. janúar 2004
Efnisflokkar: sjónvarp
Djöfull fer í taugarnar á mér að þessi leiðindaþáttur skuli alltaf vera á skjánum þegar maður kemur heim.
Í hverju er þessi skíthaus doktor? "Segja heimskum könum það sem liggur í augum uppi"
Þú verður að hætta að borða 20 þúsund kaloríur á dag til að grennast.
Það er ljótt að mála 4ra ára dóttir þína og senda hana í fegurðarsamkeppni.
Þú verður að tala við makann til að leysa vandamálin.
Pirrandi rödd líka að það getur gert hvern mann vitlausan.
Ekki er þessi Bernie Mac skárri sem er á stöð 2. Það er nú bara versti þáttur í sögu sjónvarps. Best að skipta yfir á barnaefnið á Rúv bara.
...
- grettir :: eða netið.
Skautahelgi
Ritað þann: 12. janúar 2004
Efnisflokkar: íþróttir
Litla systir mín var hjá mér um helgina og náði hún að draga strákinn á skauta. Einu sinni áður hef ég farið á skauta, en það var fyrir fermingu.
Kom mér á óvart hvað ég var góður. Eftir tvo hringi var ég farinn að standa sjálfur, án þess að styðja mig við vegginn og eftir þrjá hringi var ég farinn að komast áfram án þess að nota vegginn til að ýta mér.
Næst, þá kannski læri ég að stoppa og beygja.
...
- grettir :: feginn að enginn var með myndavél
Internetið er stundum svo skemmtilegt
Ritað þann: 08. janúar 2004
Efnisflokkar: netið
Einn af þeim sem hefur verið duglegur að senda inn vefi á
oswd kallar sig
nix. Ég er einmitt að nota nokkur snið frá pilti, eins og
Anti Compliance,
cica og einhver fleiri.
Ég rambaði inn á
heimasíðuna hans um daginn. Virkilega áhugavert. Ef ykkur finnst ykkar líf ekki hressandi, lesið um hans.
Fólk er líka orðið svo iðið við að skrifa á netið.
Greatest Journal býður fólki upp á að skrifa fyrirhafnarlaust um netið og getur fólk sankað að sér vinum og myndað heilu samfélögin eftir áhugamálum.
"Flottasta" samfélagið er vafalaust
fictionalize. Þar geta þeir sem eiga sér ekkert líf tekið að sér að vera fræg persóna og skrifað fyrir hennar hönd. Þeir sem eiga sér svo enn minna líf geta síðan lesið skáldskapinn og ímyndað sér að þeir séu að lesa um daglegt líf stjörnunnar.
Þarna má meðal annars finna:
Victoria Beckham,
Avril Lavigne,
Paris Hilton,
Eliza Dushku og sjálfan Fróða,
Elijah Wood.
...
- grettir :: það sem fólki dettur í hug
Í
FHM reglubókinni er að finna klausu er viðkemur bílastæðum. Þar segir meðal annars:
1) Ef tveir bílar ætla að leggja í sama stæðið, þá á sá réttinn sem er á stærri og flottari bíl.
2) Ef báðir bílarnir eru af sömu tegund, þá á sá réttinn sem er á dekkri bíl, svörtum eða bláum.
3) Því lengra sem gengið er í burtu frá bílnum áður en honum er læst með fjarstýringunni, því karlmannlegra.
Snilld.
Annars lenti ég í skemmtilegu um daginn þegar ég var að taka bensín. Yfirleitt verður mér bara illt í veskinu þegar ég gusa bensíni, en þetta var öðruvísi. Þannig var að ég dældi sjálfur og tveir bílar eru að bíða eftir mér. Áður en ég fer inn, færi ég bílinn svo næsti geti hafist handa á meðan ég greiði fyrir gasið.
Haldið að ég fái bara ekki tvöhundruð króna afslátt fyrir að vera kurteis og skemmtilegur eins og ég er!
...
- grettir :: þeir fengu samt sinn fimm þúsund kall, *andvarp*
Maður á að vera fullur á laugardögum
Ritað þann: 05. janúar 2004
Efnisflokkar: líðandi stund
Þoli ekki þegar maður vaknar óþunnur seinnipartinn á sunnudögum og getur ekki sofnað á sunnudagskvöldum. Fór ekki að sofa fyrr en hálf fjögur í nótt. Verulega asnalegur núna.
Annars veit ég ekki hvaða andi kom yfir mig á laugardaginn. Þvoði allan þvottinn minn, vaskaði allt upp, skúraði, fyllti ísskápinn, þvoði bílinn OG þreif klósettið.
Einhverjir kunna að spyrja: En Grettir, áttirðu ekki að gera þetta fyrir jólin
Jú, kannski. En ég mátti ekki einu sinni vera að því að setja upp jólaskraut. Fyrir utan það að ég var ekkert heima hjá mér um jólin, so what's the point.
...
- grettir :: annars á maður bara að kaupa húshjálp
Áramótin fóru friðsamlega fram af minni hálfu, þrátt fyrir fína ölvun. Til stóð að koma aftur í bæinn eftir skaup, en fréttir af skítaveðri settu strik í reikninginn. Sem og gríðarlegur bjórþorsti.
Ekkert smá erfitt að vakna í vinnuna í morgun. Kalt og ömurlegt. Tilhugsunin um að það verði heldur ekkert frí fyrr en um páska var nú ekki upplífgandi heldur.
Árið er búið að vera viðburðarríkt. Keypti mér kot og bíl á árinu. Vinnan rúllar sem aldrei fyrr og loksins er ég búinn með skólann. Loksins, loksins, loksins. Til að ég drepist nú samt ekki úr leiðindum, þá held ég að það væri sterkur leikur að koma sér í kvöldskóla og læra eitthvað sniðugt og gagnlegt. Spænsku eða eitthvað. Sjáum til.
...
- grettir :: áramótaheit? vera áfram prúður og stilltur eins og alltaf :-)